Morgunblaðið - 30.12.1987, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987
Bylting Gorba
Styttið dóminn yf-
ir Mathiasi Rust
tveimur stuðningsmönnum Sam-
stöðu gefnar upp sakir en þeir voru
á sínum tíma dæmdir í tíu og sjö
ára fangelsi fyrir að verða lögreglu-
manni að bana. Var sagt, að þeim
hefði verið sleppt vegna góðrar
hegðunar og með tilliti til þess, að
þeir voru undir lögaldri þegar þeir
frömdu glæpinn. Samt sem áður
kom ákvörðunin öllum á óvart.
Andófsmenn í Póllandi geta sér nú
til, að þeir hafi verið látnir lausir
til að draga úr viðbrögðum almenn-
ings við þeirri ákvörðun að milda
dómana yfir morðingjum Popiel-
uszkos.
við flugmálayfirvöld. Hann mun eiga
fundi með sovéskum ráðamönnum
næstu tvo daga. Mathias Rust situr
nú í Lefortovo-fangelsinu í Moskvu
þar sem hann bíður þess að vera flutt-
ur í vinnubúðir. Náðunabeiðni hans
var hafnað fyrir tveim vikum af For-
sætisnefnd Æðstaráðsins.
> *
Atta Iranir í
Júgóslavíu:
Dregnir út
í flugvél
og sendir burt
Dubai. Reuter.
ÁTTA íranir, sem hótuðu að stytta
sér aldur og voru dregnir æpandi
um borð í flugvél í Belgrað, komu
í gær til Dubai í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum.
íranimir, fiórir karlmenn, fjórar
konur, þar af ein ófrísk, og eitt bam,
komu með flugvél frá júgóslavneska
ríkisflugfélaginu en um borð í hana
vom þeir fluttir með lögregluvaldi
og hrópuðu þá í sífellu, að þeir vildu
ekki snúa aftur og ætluðu að fyrir-
fara sér. Ekki er vitað hvað verður
um íranina, hvort þeir fá að vera um
kyrrt í Dubai eða verða sendir til
írans.
Tveir írananna, karlmaður og
kona, reyndu að skera sig á púls
áður en þau vom dregin út í flugvél-
ina en lögreglumenn bmgðust skjótt
við og komu í veg fyrir, að þeim
tækist að skaða sig. íranimir komu
til Júgóslavíu frá Dubai á laugardag
og ætluðu að halda áfram ferðinni
til Kanada og biðja þar um landvist.
Talsmaður kanadíska sendiráðsins
segir hins vegar, að komið hafi í ljós,
að vegabréfsáritanir fólksins til
Kanada hafi verið falsaðar. Svetin
Frleta, fulltrúi Flóttamannastofnunar
S.Þ.-í Belgrað, segir einnig, að kring-
umstæður fólksins hafi ekki verið
þannig, að það geti talist flóttamenn.
Ungverjar auka
útf lutningsfrelsi
Búdapcst. Reuter.
UNGVERSK fyrirtæki, sem ár-
lega flytja út vöru fyrir miiljón
dollara eða meira, mega frá og
með nk. júlí flytja hana til Vest-
urlanda án sérstakra útflutnings-
leyfa.
„Þessi ákvörðun mun fyrst og
fremst koma sér vel fyrir vel rekin
fyrirtæki og auðvelda þeim að
bregðast skjótt við öllum hræring-
um á heimsmarkaði," sagði MTI-
fréttastofan ungverska en tekið var
fram, að eftir sem áður þyrfti leyfi
fyrir innflutningi.
Strauss á fundi með Gorbatsjov:
AP
Frá réttarhöldunum yfir morðingjum séra Popieluszkos. í fremri röð eru þeir Gregorz Piotrowski og
Leszek Pekala og í aftari röð Waldemar Chnielewski og Adam Pietruszka. Á milli þeirra eru lögreglu-
menn.
Pólland:
Moskvu, Reuter.
FRANZ Josef Strauss, forsætis-
ráðherra Bæjaralands, fór þess á
leit við Míkhaíl Gorbatsjov sovét-
leiðtoga í gær að hann fengi
dóminn yfir Mathiasi Rust styttan.
Rust var dæmdur í fjögurra ára
dvöl í vinnubúðum í Sovétríkjunum
eftir að hann flaug lítilli flugvél í
óleyfi til Sovétríkjanna og lenti
henni á Rauða torginu í Moskvu.
Strauss bar upp þessa ósk við
Gorbatsjov á tveggja og hálfrar
stundar löngum fundi sem þeir áttu
í Kreml í gær. Að sögn talsmanns
vestur-þýska sendiráðsins er ekki vit-
að hver viðbrögð Gorbatsjovs voru
við beiðni Strauss. Strauss fór að
dæmi Mathiasar og flaug einkavél
sinni til Moskvu, en í fullu samráði
Dómarnir yfir morðingjum
séra Popieluszkos mildaðir
Lögum um uppgjöf saka beitt tvisvar um sama afbrotið
hans í ánni Vislu og hafði hann
verið bundinn á höndum og fótum
og keflaður. Gregorz Piotrowski.
lögregluforingi, sem var dæmdur í
25 ára fangelsi sem forsprakki
morðingjanna, þarf nú aðeins að
sitja inni í 15 ár og dómamir yfir
hinum þremur voru nú mildaðir í
annað sinn. Adam Pietruszka,
ofursta í öryggislögreglunni, verður
nú sleppt þegar hann hefur af-
plánað 10 ár og hinum tveimur,
Leszek Pekala og Waldemar Chmi-
elewski, eftir að hafa setið inni í
sex og hálft fimmta ár. Allir hafa
þeir verið í fangelsi í þrjú ár.
Eldward Wende, lögfræðingur-
inn, sem fór með mál Popieluszko-
fjölskyldunnar við réttarhöldin yfír
morðingjunum, kvaðst ekki vita um
neitt fordæmi fyrir því, að lög um
uppgjöf saka væru látin taka til
sama afbrotsins tvisvar sinnum.
„Ég tel, að pólska þjóðin muni
fyllast hneykslun og andstyggð á
þessari ákvörðun, ekki síst þegar
við höfum í huga afbrotið sjálft og
þá fordæmingu, sem það olli," sagði
Janusz Onyszkiewicz, talsmaður
Samstöðu, hinna bönnuðu verka-
lýðssamtaka, en séra Popieluszko
var einarður stuðningsmaður
þeirra.
Sautjánda desember sl. voru
Varsjá. Reuter.
DÓMAR yfir fjórum pól&kum
öryggislögreglumönnum, sem
myrtu Samstöðuprestinn Jerzy
Popieluszko árið 1984, hafa verið
mildaðir. Skýrði talsmaður
stjórnarinnar frá því í gær.
Talsmaðurinn sagði, að hæsti-
réttur Póllands hefði tekið þessa
ákvörðun 17. desember sl. og væri
hún í samræmi við lög frá fyrra
ári um náðun pólitískra fanga og
uppgjöf saka.
Popieluszko hvarf í október árið
1984 en 11 dögum síðar fannst lík
Reuter
Frönsku systumar Marie-Laure og Virginie Valente, sem skæm-
liðar segjast ætla að leysa úr haldi.
Skæruliðasamtök Abus Nidal:
Ætla að sleppa
tveimur stúlkum
Beirut. Reuter.
Skæruliðasamtök, sem lúta forystu hryðjuverkamanns-
ins Abus Nidal, kváðust í gær ætla að sleppa úr haldi
tveimur frönskum stúlkum og sjá um að koma þeim til
Frakklands. Voru þær og sex menn aðrir um borð í
skipi, sem skæruliðasamtökin rændu í byijun nóvember sl.
í yfirlýsingu frá skæruliða- að þeim líði sæmilega. Á jóladag
samtökunum sagði, að Marie-
Laure Valente, fimm ára gömul,
og sex ára gömul systir hennar,
Virginie, yrðu fluttar til höfuð-
borgar í arabaríki og þaðan til
Frakklands. Hafa samtökin birt
mynd af þeim systrum og er
ekki annað að sjá af henni en
tilkynntu skæruliðamir, að móðir
þeirra, Jacqueline Valente, hefði
alið bam í fangavistinni og átt
þriðju dótturina. Auk þeirra
mæðgnanna er sambýlismaður
Jacqueline í haldi hjá skæruliðun-
um, bróðir hans og mágkona og
tvö böm þeirra.