Morgunblaðið - 30.12.1987, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987
Astin á vaktinni
Costner, Hackman og Patton í spennuniyndinni Öll sund lokuð.
ÖLL SUND LOKUÐ
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Á vaktinni (Stakeout).
Sýnd í Bíóborginni.
Stjörnugjöf: ★ ★ ★ V2
Bandarísk.
Leikstjóri: John Badham.
Handrit: Jim Kouf.
Framleiðendur: Jim Kouf
og Cathleen Summers.
Kvikmyndataka: John Seale.
Helstu hlutverk: Richard Dreyf-
uss, Ernilio Estevez, Madeleine
Stowe og Aidan Quinn.
Chris (Richard Dreyfuss) og Bill
(Emilio Estevez) eru tvær löggur
sem fá það verkefni að hafa eftir-
lit með húsi fyrrverandi vinkonu
morðingja. Morðinginn (Aidan Qu-
inn) hefur brotist úr fangelsi og
stefnir til konunnar (Madeleine
Stowe) þar sem lögreglan vonast
til að geta handtekið hann. Þetta
er ósköp venjulegt verkefni og
löggumar tvær eru ósköp venjuleg-
ar löggur og gera það sem löggur
venjulega gera sem hanga yfir leið-
indarverkefni; rífa kjaft hvor við
aðra í gríni og hrella löggumar á
næstu vakt. Svo má líka drepa
tímann með „Trivial Pursuit": Hver
var sextándi forseti Banda-
ríkjanna? Ég skal hjálpa þér aðeins,
segir Chris og heldur uppi Playbo-
y-opnunni.
Þannig er lífíð á vaktinni.
Hvemig getur maður orðið ást-
fanginn í svona vinnu? Það er erfítt,
en Chris tekst það samt. Hann lýg-
ur sig inná konuna með því að
þykjast vera símvirki til að koma
hlerunartæki fyrir í síma hennar
og ástin kviknar einhverstaðar á
milli eldhússins og svefnherbergis-
ins. Það er lítill neisti í fyrstu, en
verður fljótt að stórbruna. Það
reynist ótrúlega erfítt fyrir Chris
að umgangast þessa nýju kærustu
sína — og um leið ómótstæðilegt.
Hann á að fylgjast með öllum
mannaferðum í kringum húsið og
það er hann sjálfur sem kemur þar
manna mest. Ilann gæti misst
vinnuna og það sem verra er hann
gæti misst kærustuna ef hún kemst
að hinu sanna. Fyrir Chris er morð-
inginn sem stefnir á húsið minnsta
vandamálið eins og á stendur.
Þegar John Badham, leikstjóri
spennumyndarinnar Á vaktinni
(Stakeout), sem sýnd er í Bíóborg-
inni, gerir afþreyingarmyndir, eru
það sannarlega afþreyingarmyndir
í þess orðs fyllstu og bestu merk-
ingu. Stakeout er tvímælalaust
hans besta hingað til, hún er mjög
skemmtileg, fyndin og spennandi.
Hún er það sem Badham gerir
best; pottþétt skemmtun. Það þýðir
að þú sest niður með gotteríið þitt
og Badham sér um að þú fínnir
aldrei bragðið af því.
Það eru engar predikanir um
gott og illt hjá Badham, engin svör
við stóru spurningunum, sálartetrið
fær frí frá öllum þenkingum um
vandamál heimsins, en er boðið að
gefa sig skemmtuninni á vald.
Þessi er sannarlega 250 króna
virði.
Það er nóg af öllu hjá Badham.
Stakeout byijar með fangauppþoti
og endar í skotbardaga niðri við
höfnina og í millitíðinni er bílaelt-
ingaleikur og annað gamalt og
gott úr spennumyndageiranum. En
það er ekki það sem kitlar hlátur-
og sjóntaugamar heldur stór-
skemmtilegur rómansinn á milli
Dreyfuss og Stowe, þar sem Dreyf-
uss leikur við hvem sinn fíngur.
Og það er ekki síður gaman að
fylgjast með fjörugu sambandi lög-
regluþjónanna á vaktinni, sérstak-
lega Éstevez og Dreyfuss. Maður
fær á tilfínninguna að helmingur-
inn af því sem þeir segja hvor við
annan sé spunninn á staðnum.
Það er Dreyfuss sem enn stelur
senunni, enda hefur hann bitastæð-
asta hlutverkið. Hann er orðinn
hinn mesti sjarmör síðan hann sneri
sér aftur að kvikmyndaleik í mynd-
inni Down and Out in Beverly Hills
og hefur yndi af að leika góða
gæjann hér. Hann er ansi ólíklegur
riddari á hvítum hesti en þeim mun
skeleggari þegar hann kemur
stúlkunni sinni til bjargar. Estevez
hefur lítið hlutverk, er varla í
myndinni nema til að gefa Dreyf-
uss tækifæri til að sýna á sér
skemmtilegu hliðamar, en fer vel
með það og Madeleine Stowe fer
einstaklega vel að vera ástfangin.
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
ÖIl sund lokuð (No Way Out).
Sýnd í Háskólabíói.
Stjörnugjöf: ★ ★ ★ */2
Bandarísk. Leikstjórí: Roger
Donaldson. Handrít: Robert Gar-
land byggt á skáldsögunni „The
Big Clock“ eftir Kenneth Fear-
ing. Framleiðendur: Laura
Ziskin og Robert Garland. Kvik-
myndataka: John Alcot. Helstu
hlutverk: Kevin Costner, Gene
Hackman, Sean Young og Will
Patton.
Öll sund lokuð (No Way Out),
sem sýnd er í Háskólabíói, er
pólitfskur þriller eins og þeir gerast
bestir. Myndin gerist að mestu inn-
an veggja Pentagon í Washington,
snertir einn valdamesta mann
Bandaríkjanna, morð á vinkonu
hans, hugsanlegan njósnara KGB
innan Pentagon, umfangsmikla
yfírhylmingu, fleiri morð, svik og
lygar. Allt getur gerst, engum má
treysta.
Það er aðeins einn maður sem
þekkir alla söguna til enda og hana
fáum við ekki að vita fyrr en á
síðustu mínútunni. Endírinn kemur
talsvert á óvart ef ekki illilega.
Allt sem á undan er gengið fær á
sig annan svip.
En svo er líka rómantík í mynd-
inni og öllu villtari systir hennar,
erótík, aðallega í atriði sem gerist
um borð í sex til níu metra langri
limósínu á næturferð um götur
Washington. í faðmlögum eru Ke-
vin Costner, hin nýbakaða ró-
mantíska hetja kvikmyndanna, sem
leikur sjóliðsforingjann Tom Far-
rell, og Sean Young er leikur
glæsilega hjákonu vamarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sem Gene
Hackman leikur. Ástarþríhyming-
urinn nær aldrei að þróast því
ráðherrann myrðir hjákonuna í af-
brýðisemiskasti og aðstoðarmaður
hans, frábærlega leikinn af Will
Patton, sem ég hef ekki séð áður,
setur í gang umfangsmikla yfir-
hylmingu til að forða ráðherranum
frá hneyksli. Hann býr til þá sögu
að morðinginn sé KGB-njósnari
sem sést hafði með hjákonunni og
hann verður að fínna eins og skot.
Farrell er settur yfír rannsóknina.
Hann veit sannleikann í málinu en
vantar sannanir og maðurinn sem
leitað er að, er raunar hann sjálfur
því hann er sá eini sem verið hefur
með hjákonunni. Aðstoðarmaður-
inn hefiir tryggt að þegar maðurinn
fínnist muni hann ekki vera til frá-
sagnar um neitt. Tveir leigumorð-
ingjar munu sjá til þess.
Astralinn Roger Donaldson leik-
stýrir öllu þessu mikla samsæri á
toppnum með hraða og spennu í
fyrirrúmi sem nær hámarki í rang-
ölum Pentagon þar sem Farrell
stjómar leitinni að sjálfum sér
(leyfí fékkst ekki til kvikmyndunar
inní Pentagon svo gera varð eft-
irlíkingar af innviðum hússins í
upptökusal). Rennileg kvikmynda-
taka John Alcot, sem myndin er
tileinkuð, en hann lést skömmu
eftir gerð hennar, gefur myndinni
hæfílega dulúðugan blæ sem fer
henni sérstaklega vel og handritið
gefur mönnum aldrei tækifæri til
að slaka á þegar skriðan er farin
af stað. Það þarf ekki nema fímm
mfnútur til að sjá að hér er vandað
til verka.
Donaldson gefur leikurunum það
rúm sem þeir þurfa og þeir launa
honum með afbragðsleik. Kevin
Costner sameinar hinn rómantíska
elskhuga og harðjaxlinn með
stjömuleik sínum (einhverstaðar
var sagt að framleiðendur myndar-
innar hafí beðið með að dreifa henni
þar til Hinir vammlausu hefðu sleg-
ið í gegn til að nýta vinsældir
Costners). Gene Hackman er hér í
einu af sfnum betri, harðneskju-
legri hlutverkum og aðrir leikarar
leika mjög vel.
aðskilnaðurinn næstum óbærileg-
ur þegar furðudýrið verður að
halda til sinna upprunalegu heim-
kynna.
Allt er þetta býsna vel gert og
myndin er oft fyndin og næstum
alltaf skemmtileg. Það er auðvitað
apinn stóri sem stelur senunni af
mannfólkinu þótt John Lithgow
veiti stundum harða samkeppni.
Dear krefst þess hins vegar af
honum að vera svo yfírmáta væm-
inn þegar líður nær endalokunum
að það er engu lagi líkt. Væmni
er alltaf í Spielberghönnuðum
myndum en þessi ofskammtur
næstum drepur Stórfót — bók-
staflega.
Boðskapurinn er að sjálfsögðu
sá að það skiptir ekki máli hvern-
ig þú lítur út heldur hvað inní þér
býr; í Hollywood verða gamlar
vísur nýrri með aldrinum.
Snjómaðurmn huggulegi
ætt við ET; úr myndinni Stórfótur.
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Stórfótur (Harry and the Hend-
ersons). Sýnd i Laugarásbíói.
Stjömugjöf: ★ ★ */2
Bandarisk. Leikstjóri: William
Dear. Handrít: William Dear,
William E. Martin og Ezra D.
Rappaport. Framleiðendur:
William Dear og Richard Vane.
Kvikmyndataka: Allen Daviau.
„Harry“ hannaður af Rick Bak-
er. Helstu hlutverk: John
Lithgow, Melinda Dillon, Don
Ameche og David Suchet.
Snjómaðurinn hræðilegi eða
Stórfótur er loksins fundinn og
það var auðvitað Steven Spielberg
sem fann hann. Og úr því það var
Spielberg sem fann hann en ekki
t.d. David Cronenberg er ekki
lengur hægt að tala um Snjó-
manninn hræðilega. Nær væri að
tala um Stórfót hinn huggulega,
indæla og skemmtilega, fjöl-
skylduvininn góða, furðudýrið
sem heillar alla í návist sinni.
Ef þú ert þegar farinn að hugsa
um ET ertu á réttri leið. Það er
eins og Spielberg hafí tekið sögu
leikstjórans og handritshöfundar-
ins William Dear um fjölskyldu í
Seattle sem fínnur Stórfót og tek-
ur inná heimili sitt, keyrt hana í
gegnum. ET-forritið sitt á skrif-
stofutölvunni í Amblin Entertain-
ments og fengið út Stórfót (Harry
and the Hendersons), sem er jóla-
mynd Laugarásbíós. Uppbygging-
in er nauðalík sögunni um
geimálfinn; það verður ást við
fyrstu sýn á milli fjölskyldunnar
og Stórfóts, vondir menn leita
skepnunnar og vilja drepa hana,
íjölskyldan felur hana og kemur
henni undan og í lokin verður
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag- Akureyrar
Ólafur Lárusson og Jakob
Kristinsson sigruðu í jólamótinu
sem fram fór í Vin við Hrafna-
gil 27. desember sl. Hlutu þeir
743 stig eða 5 stigum meira en
paríð sem varð í öðru sæti. 30
pör tóku þátt í mótinu víðs vegar
að en flest þó af Norðurlandi.
Spilað var eftir Mitchell-fyrir-
komulagi í tveimur lotum, 26
spil í lotu.
Verðlaunagripir voru fyrir 3
efstu sætin gefnir af Sparisjóði
Glæsibæjarhrepps, einnig voru 10
bókaverðlaun frá Bókaútgáfunni
Skjaldborg og bikar sem geymdur
er í Blómaskálanum Vin en á hann
eru skráð nöfn sigurvegara. Gef-
andi er Blómaskálinn.
Lokastaðan
Ólafur Lárusson —
Jakob Kristinsson, Rvík. 743
Hilmar Jakobsson —
Jón Sverrisson, Ak. 738
Halldór Svanbergsson —
Óli Már Guðmundsson, Ólf. 733
Karl Steingrímsson —
Rafn Gunnarsson, Árskstr. 709
Anton Haraldsson —
Ævar Ármannsson, Ak. 704
Frímann Frímannsson —
Pétur Guðjónsson, Ak. 697
Þórarinn B. Jónsson —
Páll Pálsson, Ak. 684
Arnar Einarsson —
Þorsteinn Friðriksson,
Hún./Ak. 668
Rögnvaldur Ólafsson —
Gísli Pálsson, Skag./Ak. 668
Reynir Helgason —
Tryggvi Gunnarsson, Ak. 666
Keppnisstjóri var Albert Sigurðs-
son og reiknimeistari Margrét
Þórðardóttir.
Bikarkeppni Norðurlands stend-
ur nú yfír. Fyrstu umferð er lokið
og annarri umferð á að Ijúka í jan-
úar.
Undankeppni fyrir íslandsmót í
sveitakeppni fer fram á Akureyri
dagana 15,—17. janúar nk. og er
spilað um tvö sæti en Norðurland
á einnig fyrstu varasveit.
Þátttökutilkynningar berist til
Amar Einarssonar í síma 96-21058
eða Stefáns Ragnarssonar í síma
96-22175.
Bridsfélag kvenna
Sveitakeppni félagsins hefst 4.
janúar nk. Væntanlegir þátttakend-
ur eru beðnir að láta skrá sig hjá
Aldísi (15043), Jenný (33778) eða
Margréti (21865).
Árleg keppni félagsins við Hafn-
fírðinga fór fram fyrir nokkru og
urðu konurnar að lúta í lægra haldi.
Sigruðu Hafnfírðingar á 7 borðum,
tvö jafntefli urðu og á einu borði
sigmðu konumar.