Morgunblaðið - 19.01.1988, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1988
7
Blönduós;
Nýtt hlutafélag tekur
við rekstri Pólarpijóns
NÝTT hlutafélag hefur verið
stofnað um rekstur Pólarprjóns
á Blðnudósi. Fyrirtækið, sem var
stofnað árið 1971, varð gjald-
þrota um áramótin en starfsemin
hófst á ný í gær. Ekki hefur enn
verið fiindið nafo á hið nýja
hlutafélag en 50% hlutaQár er í
eigu Baldurs Valgeirssonar og
50% í eigu Söluféiags Austur- -
Húnvetninga.
Að sögn Baldurs Valgeirssonar,
forstjóra hins nýja hlutafélags,
hófst starfsemi að hluta til í pijóna-
stofu og annarri saumastofu fyrir-
tækisins í gær. Hafist var handa á
þeim verkefnum sem lágu fyrir er
rekstur fyrirtækisins stöðvaðist en
þau ve'rkefni munu nægja í um
hálfan mánuð og er starfsfólk ráðið
í þann tíma.
„Við höfum verið stopp í nokkum
tíma og því ekki skiýtið að ný verk-
efni hafi ekki komið inn á meðan,"
sagði Baidur í samtali við Morgun-
blaðið. „En við vonum auðvitað að
fyrirtækinu takist að fá ný verk-
efni.“
Byggðastofiiun:
Fundur haldínn með
Patreksfirðingum
FJÓRIR stjórnarmenn Byggða-
stofnunar fóru til Palreksfjarðar
á föstudaginn og ræddu þar við
sveitarstjórnarmenn og forsvars-
menn í atvinnulífi bæjarins um
vandamál fiskvinnslunnar á
staðnum, en Hraðfrystihús Pat-
reksfjarðar hefúr nú verið lokað
í nær Qórar vikur.
Guðmundur Malmquist, forstjóri-
Byggðastofnunar, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að málefni
Hraðfrystihússins væm nú í sam-
eiginlegri skoðun Byggðastofnunar,
Landsbankans og Sambandsins og
fyrirtækja þess sem hlut ættu í
Hraðfrystihúsinu. Málið væri nú í
athugun og vinnslu hjá Byggða-
stofnun, og kæmi líklega til
Hafijrninn á Akranesi:
Fyrri eig-
endur taka
við rekstri
KAUP Þorsteins Ingasonar á
hraðfrystihúsinu Haferninum hf.
á Akranesi gengu til baka um
áramót, samkvæmt samkomulagi
hans og fyrri eigenda fyrirtækis-
ins. Fyrri eigendur hafa því tekið
við rekstrinum, en vinnsla er
ekki hafin eftir jólahlé.
Þorsteinn Ingason útgerðarmað-
ur og fiskverkandi keypti Haförninn
í sumar og tók við rekstri hans.
Áður var fyrirtækið í eigu 5 manna,
sem ráku það í 25 ár. Samkomulag
varð um það á milli kaupanda og
seljenda að láta kaupin ganga til
baka nú um áramótin og fyrri eig-
endur tækju aftur við rekstrinum.
Haföm á hlut í Krossvík sem gerir
út togara Akumesinga. Vinnsla var
stöðvuð hjá Haferninum um miðjan
desember, eins og hjá fleiri frysti-
húsum á Akranesi, og hefur ekki
hafist aftur.
umræðu á fundi stjómar stofnunar-
innar á fimmtudaginn næstkom-
andi.
Ölvaður ökumaður endaði ferð sína við Litluhlíð aðfaranótt sunudagsins. MotKunbiaðið/Júiíus
Ók á aðra bifreið og útaf
OLVAÐUR ökumaður ók bifreið sinni á aðra og síðan út af vegi í Reykjavík aðfaranótt sunnudagsins.
Árekstur þessi varð á mótum Skógarhlíðar og Litluhlíðar á þriðja tímanum um nóttina. Ölvaði ökumaður-
inn skemmdi bæði sína bifreið og hina og hafnaði loks utan vegar. Hann meiddist Iítillega, en ekki urðu
önnur slys á fólki.
Tvær stúlk-
ur slösuðust
TVÆR stúlkur slösuðust. nokkuð
þegar bifreið þeirra valt á
Reykjanesbraut, skammt sunnan
við Álverið, aðfaranótt sunnu-
dags.
Mikil hálka og snjókoma var þeg-
ar slysið varð. Svo virðist sem
ökumaðurinn hafi misst stjóm á
bifreiðinni, sem valt út af veginum
og ofan í gjótu. Báðar stúlkumar
slösuðust nokkuð á baki og var tal-
ið að önnur væri hryggbrotin.
HELDUR
ÁFRAM
Her
z\ ys-
fra
góðaR
KARNABÆR
r Laugavegi 66
Austurstræti 22
Gllæsibæ
. Austurstræti 22