Morgunblaðið - 19.01.1988, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1988
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Hcrmann Guðmundsson, framkvæmdastjóri, sitjandi og Jón Halldór
Bergsson, sölustjóri hjá Ragnarsbakaríi, skoða nýja brauðuppskrift
á tölvuskjá, en þeir hafa látið breyta flestum gömlu uppskriftunum.
SHANNON
DATASTOR
Allt á sínum staö
Ef einhver sérstök vörzluvandamál þarf aö leysa biöjum viö
viökomandi góöfúslega aö hafa samband viö okkur sem
allra fyrst og munum viö fúslega sýna fram á hvernig
ShcmiiOH skjalaskápur hefur „allt á sínum staö
Útsölustaðir:
Reykiavik; Ólafur Glslason & Co. hjf. Mál og mennlng, Slðumúla 7-9. Kópavogur; Glsli J.
Johnsen. Keflavik; Bókabúð Keflavikur. Akranes; Bókaverslun Andresar Nlelssonar h/f.
Isafjöróur; Bókaverslun Jónasar Tómassonar. Akureyri; Bókval, bóka - og ritfangaverslun.
Húsavik; Bókaverslun Þórarins Stefánssonar. Eskifjörður; Ellas Guónason, verslun.
Egllsstaóir; Bókabúóin Hlöóum.
\M)% b(^íí /a fin nr
Ragnarsbakarí:
Hjólin farin að snúast aftur
Keflavík.
„SUÐURNESIN hafa verið og
eru lífæð bakarísins og ef fyrir-
tæki og einstaklingar á svæðinu
hefðu ekki tekið okkur ja&ivel
og raun hefur orðið á, þá er ég
ekki viss um að okkur hefði tek-
ist að rétta jafnskjótt úr kútnun
og við höfum gert,“ sagði Her-
mann Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Ragnarsbakarís, í
samtali við Morgunblaðið. Her-
mann sagði að það hefði skipt
sköpum að halda fyrri viðskipt-
um og nú væru hjólin farin að
snúast aftur.
Sem kunnugt er var bakaríið
tekið til gjaldþrotaskipta í desem-
ber og öllu starfsfólkinu sagt upp
án fyrirvara. Nokkrum- dögum
seinna keyptu tveir einstaklingar
í Reykjavík fyrirtækið, þeir Ar-
mann Reynisson og Pétur Björns-
son. Strax var hafist handa um
að koma rekstrinum af stað aftur
og þorri starfsliðsins hóf störf að
nýju hjá nýjum vinnuveitendum.
Ragnarsbakarí hefur verið í um
1.200 fermetra leiguhúsnæði við
Iðavelli og nú hafa þeir Ármann
og Pétur keypt húsnæðið til að
tryggja reksturinn enn frekar.
Einnig eru uppi áform um að
stækka húsnæðið.
Hermann Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri, sem áður starfaði
hjá bakaríinu Myllunni í Reykjavík,
sagði að margt væri í bígerð og
markmiðið að stórauka framleiðsl-
una. Þeir væru nú famir að selja
brauð í litlum mæli á Stór-
Reykjavíkursvæðinu og stefnt væri
að stórauka söluna. Hermann
sagði að mikil vinna hefði verið
iögð í að bragðbæta brauðin hjá
Ragnarsbakarii að undanförnu og
viðbrögð viðskiptavina hefði til tek-
ist. Hermann sagði ennfremur að
gera ætti stórátak í markaðsmál-
um á næstunni og þeir myndu
fljótlega koma með 7 nýjar tegund-
ir af heildsölubrauðum svo eitthvað
væri nefnt.
- BB
Húsnæði Ragnarsbakarís við Iðavelli 8 í Keflavík. Bakariið var í leiguhúsnæði, en nú hafa eigendur
fyrirtækisins keypt húsnæðið sem er um 1.200 fermetrar.
UÓSRITUNARVÉLAR
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800
hvortþig vantarstól eða ekki, þvíAPPOIXO leðurstóllinn er
svo þægilegur og á svo góðu verði, að maður hreinlega verður
aðkaupahann.
húsgagmtiiöllin
M0BLER
REYKJAVÍK