Morgunblaðið - 19.01.1988, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1988
Yfir 2200
manns sóttu
„Opið hús“
Ríkisútvarpsins
síðastliðinn
sunnudag. Hér
virða nokkrir
áhugasamir
gestir fyrir sér
tækniútbúnað
útvarpsins.
Morgunblaðið/Sverrir
Einstakt tækifæri til að fá á einu námskeiði þjálfun í öllum grunnatriöum
tölvunotkunar í starfi og leik.
Flest tyrirtæki gera nú kröfu um almenna þekkingu starfsmanna og stjórnenda á tölvum og
tölvutækni. Til að koma til móts við þessar kröfur höfum við komið á fót námskeiöi sem
sniðið er að þörfum þeirra sem gera kröfur um mikinn árangur á stuttum tíma.
Dagskrá:
• Grundvallaratriði í tölvutækni
• Tölvuteiknun og myndgerö - Paint og Draw
• Ritvinnsla, gagnagrunnar og töflureiknar - WORD/WORKS/EXCEL
• Tölvubókhald
• Verkefnastjórnun - MacProject
• Bæklingagerð, auglýsingar og umbrot - PageMaker2.0 umbrotsforritiö
• Gagnabankar og tolvutelex
Við bjóðum 60 klst hagnýtt nám með úrvalskennurum. Þátttakendur geta valið um 10 vikna
kvöldnámskeið eða morgunnámskeiö og þægiiega greiðsluskilmáia.
Kennt er á Macintosh tölvur - Yfir 500 bls af námsgögnum - Næstu námskeið hefjast 25.janúar
SKILÐ
LAUNAMÐUM
í tœka fíð
Launamiðum fyrir greidd laun á árinu 1987 þarf að skila
nú sem endranær.
Síðasti skiladagur er
2HjQnúamk
KENNITALA í STAÐ NAFNNÚMERS
í stað nafnnúmers ber nú að tilgreina kennitölu
bæði launamanna og launagreiðenda.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Ríkisútvarpið
Mikið Qölmenni
í „opnu húsi“ hjá
Ríkisútvarpinu
„OPIÐ hús“ var í húsnæði Ríkisútvarpsins við Efstaleiti
síðastliðinn sunnudag og sótti mikill Qöldi fólks útvarpið
heim. „Opið hús“ var haldið í tilefni Norræns tækniárs sem
hófst formlega í síðustu viku. Ætlunin er að ýmsar stofnan-
ir kynni almenningi starfsemi sína og auki þannig skilning
hans á tækni og tæknivæðingu. Ríkisútvarpið reið á vaðið
um helgina er það gaf almenningi kost á að kynnast starf-
seminni. Sérstök áhersla var lögð á að kynna tæknideildina
og mæddi mikið á starfsmönnum hennar, að sögn Gunnars
Kvaran en hann hafði umsjón með „Opnu húsi“. Einnig
var opið í RÚVAK Akureyri og RAUST á Egilstöðum.
„Þetta gekk stórkostlega vel
hjá okkur. Hér streymdi inn fólk
frá því að við opnuðum og hátt
í 2200 manns skráðu sig í gesta-
bókina," sagði Gunnar.
A Akureyri var sömuleiðis fullt
út úr dyrum, en þangað komu á
þriðja hundrað manns. Mun ró-
legra var á Egilsstöðum og komu
á milii 20 og 30. „Að okkar
mati gekk þetta mjög vel. Það
hefur verið mikið um þetta hús
rætt og menn gátu komið og
gengið hér um, að svo miklu leyti
sem það er tilbúið. Starfsmenn
einstakra deilda reyndu að upp-
lýsa gestina um hvernig þeir
ynnu og vöktu tæknibúnaðurinn
og salur til að taka upp leikrit
hvað mesta athygli," sagði Gunn-
ar.
Hægt var að fylgjast með út-
sendingu á „Pallborðinu" svo og
„Spilakassanum" á Rás 2. Gunn-
ar taldi „Opið hús“ útvarpinu
tvímælalaust til framdráttar.
„Fólk var mjög ánægt með að
fá að koma og skoða og þetta
endurspeglar þann áhuga sem
er meðal almennirigs á útvarpi.“
Alyktun flokkstjórnar Alþýðuflokks:
Ríkisstjóm þarf að
treysta samstarf
og auka samheldni
í ÁLYKTUN fiokksstjórnarfúndar Alþýðuflokksins, sem haldinn
var á Hótcl Sögu 16. janúar sl. segir m.a. að ríkisstjórnarflokkarnir
þurfi að treysta samstarf sitt og auka samheldni til þess að takast
á við þau nýju verkefni sem framundan eru, og muni Alþýðuflokkur-
inn heilshugar leggja sig fram um að slík samvinna náist.
í ályktuninni segir að framundan
séu viðfangsefni nýsköpunar í fjár-
málastjóm hins opinbera, í
dómsmálum, í húsnæðis- og félags-
málum, í heilbrigðismálum, í
iðnaðar og atvinnumálum og síðast
en ekki síst í gerð nýrra kjarasamn-
inga. Við þessar aðstæður, segir í
ályktuninni, skiptir meginmáli að
ríkisstjómin, sem lokið hefur úr-
lausnum fyrstu og brýnustu við-
fangsefnanna, haldi ótrauð áfram
eftir þeirri braut sem mörkuð er í
stjómarsáttmálanum.
Flokkstjómin skorar jafnframt á
ráðherra sína að fylgja eftir af
hörku hertu skattaeftirliti, sem fjár-
málaráðherra hefur boðað. Þá er
þess krafist að ráðherrar flokksins
reyni á allan hátt að greiða fyrir
því að kjör tekjulægstu hópanna
verði bætt í komandi kjarasamning-
um. Um leið sé nauðsynlegt að
stöðva vaxtahækkun og Íækka
vaxtastigið með samstilltum efna-
hagsaðgerðum sem tryggi starfs-
kjör fólks og fyrirtækja og hjöðnun
verðbólgu. Beinir flokkstjórnin því
til ráðherranna að sérstaklega verði
hugað að hlut landsbyggðarinnar í
þeim aðgerðum sem framundan
séu.
TOLLSKJÖL
Láttu fagfólkið annast tollskjala-
gerðina. Það marg borgar sig.
Combi Cargo - Flutningaþjónustan hf.,
Vesturgötu 5. Símar 623722 - 623822.
MICROSOFT
HUGBÚNAÐUR