Morgunblaðið - 23.01.1988, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1988
17
grænt allan ársins hring. Stærð
trésins skiptir því ekki máli.
Gjafapakka hlaðinn við jólatrés-
fótinn, er ekki minni hér en heijna.
Má vera að Danir kunni að velja
hófsamari gjafír, til að gleðja ætt-
ingja og vini á jólunum. Hefur þú
nokkru sinni tekið við svo stórri
gjöf, að gleði þín hafí horfíð á braut
er þú opnaðir pakkann þinn?
Sumir hafa lag á að gefa jólagjaf-
ir sem gleðja þá er þiggja.
Svo er nú allur blessaður jólamat-
urinn!
Mér þótti merkilegast að kynnast
dönsku ,jólafrúkost“ máltíðinni.
Máltíð af því tagi hófst um kl. 14,
þetta sinn. Borðið svignaði undan
réttunum, svo hlaðið var það. Þessi
góða jólamáltíð hefur það til ágæt-
is, að maður situr lengi við að
bragða á hinum ýmsu réttum.
Ætla ég að nefna nokkuð af því
góðgæti. Þama var súrsuð grísa-
sulta, rúllupylsa, gæsakjöt, þijár
tegundir mismunandi kryddaðra
sílda, reykt hangilæri, reyktur lax,
rækjuréttur og með þessu var auð-
vitað borið brauð og smjör. Tveir
heitir réttir voru á borði, steikt
pylsa og lifrakæfa.
Mér var ljóst þegar ég settist að
máltíðinni, að nú væri um að gera
að bragða nógu lítið af hveiju einu.
Þrátt fyrir góðan ásetning leið
ekki á löngu þar til ég fann að ég
var mettur. Maturinn var góður og
saðsamur. Drukkið var annaðhvort
öl eða hvítvín með.
Rúsínan í pylsuendanum var þó
eftir.
Danir eru listamenn í að bera
fram osta og nú kom að ostunum.
Fengum við nú að bragða osta,
bæði frá Frakklandi og Danmörku,
camenbertost, geitaost, brieost o.fl.
Þetta var máltíð sem talandi er um,
ég held að hún hafí staðið um það
bil í tvær klukkustundir.
Aramótin. Hátíðin gekk í garð
með ræðu M^rgrétar drottningar í
útvarpi og sjónvarpi. Lagði hún
áherslu á að hver og einn legði sig
fram um að gera sitt besta í lífínu.
Væri um að gera að missa ekki
kjarkinn þótt hægt gengi. Ef þú
nærð ekki því stóra marki sem þú
setur þér þá reyndu við minna fyrst.
Böm og unglingar eru vitanlega
mikið úti við á gamlárskvöld. Ýmis-
konar sprengjur eru sprengdar og
flugeldum skotið. Minniháttar
„prakkarastrik" mega ■ krakkar
stunda þetta kvöld. Heyrst hefur
t.d. að einn hópurinn hafí gengið í
hús, þar sem ekki vom læstar úti-
dyr og safnað mottum og dreglum,
sem settar vom í haug í nágrenn-
inu. Á öðmm stað varð sápufroðu
hellt yfír einkabifreið, sem ung-
mennum þótti ekki nógu hrein.
Ekki tíðkast hér áramótabrennur,
eins og heima.
Höfundur er smíðakennari.
Maður tek-
inn með hass
í Leifsstöð
Keflavik.
UNGUR maður var handtekinn
með hass í Leifsstöð um daginn.
Maðurinn var að koma úr sólar-
landaferð og vöktu töskur
mannsins óveryumikinn áhuga
sérþjálfaðs fíkniefnaleitarhunds.
Við leit fundust engin fíkniefni
í töskunum og var þá leitað á
manninum og fannst nokkurt
magn af hassi sem hann hafði
komið fyrir í sokkunum.
- BB
TÖLVUPRENTARAR
ÚTSALA. - SÉRTUOD
_______Opid 10—16 laugardag_
fsssp 10-60% afsL
GÖTUSKÓR Allt nýjar vörur
Sendum í póstkröfu.
Austurstræti 6,
Laugavegi 89.
Bflaverkstæði
Gunnars
Sigurgíslasonar
Heimilistæki h/f
Búnaðarbanki ísl.
Seljaútibú í Mjódd
KJÖTMIÐSTÖÐIN
Hamraborg, Kópavogl, aíml 41640\
IðBLHASKÚLABfÚ
" illlinilincami SÍMI 2 21 40
Lögreglukór Reykjavíkur
syngur kl. 5 fyrir
frumsýningu.
Forsala aðgöngumiða hjá
Gunnari Ásgeirssyni hf.v
Suðurlandsbraut 16.
EVROPUFRUMSYNING
KÆRISÁLI
sunnudaginn 24. jánúar kl. 5
ÖLLUM ÁGÓDA
VARIÐ TIL BARÁTTU
Y GEGN eiturlyfjum
\ L
A
-—!
Dan Aykroyd
^ Charles Grodín
ALTER
ADKON
Lionessuklúbburinn Eir
Reykjavík
mllupa
"Í^ftcr
Bflaborg h/f
Bjöm Kristjánsson
heildverslun
Litaver h/f
Hekla h/f
Ábyrgð h/f
Verslunarbankinn í
Mjódd
Veltir h/f
Rafgeymaverksmiðjan
Pólarh/f
Plastos h/f
H. Helgason h/f
Sfldarréttir h/f
Álímingar s/f
Rafvörur h/f
Brunabótafélag íslands
Miðnes h/f
Andri h/f
Kreditkort h/f
T.P. Co.