Morgunblaðið - 23.01.1988, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1988
Minning:
Sigurður Ágústs-
son Borgarkoti
Fæddur 22. september 1916
Dáinn 13. janúar 1988
í dag laugardag fer fram frá
Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð útför
Sigurðar Ágústssonar bónda í
Borgarkoti á Skeiðum. Hann varð
bráðkvaddur á heimili sínu að kvöldi
13. janúar síðastliðinn.
Sigurður var fæddur að Háamúla
í Fljótshlfð og voru foreldrarhans
hjónin Guðný Pálsdóttir og Ágúst
Þorgrímur Guðmundsson. Voru
böm þeirra hjóna fjórtán talsins og
komust tólf til fullorðinsára, en sex
eru á lífí í dag.
Fram til ársins 1955, var Sigurð-
ur vinnumaður í sveit, lengst af í
Árkvöm í Fljótshlíð, en sótti jafnan
vetrarvertíðir í Vestmannaeyjum.
En líklega hefur langþráður draum-
ur ræst þegar hann ásamt konu
sinni Ingibjörgu Pálsdóttur frá
Kirkjulæk í Fljótshlíð, keypti jörðina
Borgarkot á Skeiðum.
Sumarið 1980, er ég var á leið
með son minn Bjama til sumardval-
ar í Borgarkoti, var ég ekki laus
við kvíðatilfínningu, þar sem ég
þekkti ekkert til á staðnum. Þessi
kvíði var óþarfur því okkur mætti
slíkt viðmót heimilisfólks. Fann ég
að þama mundi syni mínum eiga
eftir að líða vel, sem og kom í ljós,
því Borgarkot hefur verið hans ann-
að heimili síðan. Eins eignuðumst
við, fjölskylda Bjama, góða vini sem
við kunnum vel að meta.
Þegar þama var komið sögu, var
Sigurðúr, eða Siggi eins og hann
var almennt nefndur, að mestu
hættur búskap nema hvað hann var
með nokkrar kindur, en Jón einka-
sonur hans og Ingibjargar rekur
nú kúabú í Borgarkoti.
Siggi var maður dulur á eigin
tilfínningar, en hinsvegar mann-
blendinn og skemmtilegur viðræðu,
enda fylgdist hann vel með dægur-
málum og hafði ákveðnar skoðanir
Nýr metsölubíll
ára ábymð.
tupotm pr hi^oot firrir prfíAcir w hnnni
tveggja er byggt fyrir erfiðar að-
stæður. Auk þess er hann á heilsárshjólbörð
um. Excel er gerður til að endast, viðhaldið
er í lágmarki og þú getur verið áhyggju-
laus í 5 ár.
Excel er búinn kraftmikilli 1,5 lítravél
með yfirliggjandi knastás. Val er um 4 eða 5
gíra beinskiptingu, eða þriggja stiga sjálf-
skiptingu. Eldsneytiseyðslan er því með
minnsta móti. en krafturinn nægur.
Glæsileiki Hyundai Excel felst ekki ein-
göngu í útlitinu (sem reyndar er ítölsk
hönnun), því það er staðreynd að
staðalbúnaður Hyundai er í mörgum tilvikum
aukabúnaður hjá öðrum.
Settu þig strax í samband við söluaðila
Hyundai Excel á íslandi Svein Egilsson hf., í
Framtíð við Skeifuna.
Síminn er (91) 685100.
ATH. Það verður opið í Framtíð laugar- #
dag og sunnudag.
HYunoni ;
Bíll fyrir skynsamt fólk.
35
sem hann hafði gaman af að reifa.
Heimsóknir í Borgarkot voru þvf
alltaf ánægjulegar, enda einstak-
lega gestrisið heimili.
Það var oft rifist á hærri tónun-
um í eldhúsinu í Borgarkoti, þegar
„Reykjavíkuraðallinn" setti fram
sínar hugmyndir um búskaparhætti
í landinu. í þeim málum hafði Siggi
margt til málanna að leggja, og oft
fannst mér hann æði gamaldags.
Ég sagði stundum við hann, að það
væri engu líkara en að hann hefði
fest í gamla tímanum. Það þyrfti
jafnvel að fara aftur til fyrri alda
til að fínna samlíkingar.
Margir af eldri kynslóðinni eiga
erfítt með að skilja hina gífurlegu
breytingu, sem orðið hefur á tiltölu-
lega stuttum tíma, á lifnaðarháttum
fólks. Þetta er í raun auðskilið, því
þarna er fólk sem hefur lifað þá
erfíðleikatíma sem eru í órafjarlægð
í hugum okkar yngri, sem lifum
betri tíma. Okkur ber því skylda til
að hafa þetta í huga þegar við rök-
ræðum við okkur lífsreyndara fólk
sem hvorki skilur né fínnur þörfína
fyrir öllum þeim munaði, sem við
flest teljum okkur ekki geta lifað
án. Fyrrgreinda hópnum tilheyrði
Siggi svo sannarlega.
Eg geri þetta að umtalsefni, þeg-
ar ég minnist Sigga vinar míns, af
þeirri ástæðu að mér fannst hann
stundum eiga í vök að veijast vegna
þijósku sinnar og eða skilningsleysr
is á nútima kröfum. \ \
En hvað sem því líður, for þamáy
góður og hrekklaus maðurog hlýjai
kveðjur og þakklæti fylgja Konum
á vit feðra sinna.
Blessuð sé minníng góðs vinar.
Samúðarkveðjur til ástvina og
vandamanna.
Theodóra Kristinsdóttir
Hann Siggi frændi er farinn í
sína síðustu ferð. Það var enginn
hávaði eða sérlegur undirbúningur
fyrir þá ferð, enda svipað sem við
öll þörfnumst að leiðarlokum. Hafin
var löngu ferðbúinn, hpnum fannst
að þegar heilsan væri farin og lítið
hægt að hafa fyrir stafni væri ekk-
ert að vanbúnaði.
Margar af bemskuminningum
mínum em tengdar Sigga frænda,
sem líka var uppeldisbróðir minn.
Hann var sá sem oftast varð til að
uppfylia óskir mfnar, hvort sem það
nú var að búa til leikföng eða að
leyfa mér að vera með í smiðjunni,
þegar hann þessi hagi maður var
að smíða skeifur og reyndar allt
sem smíða þurfti fyrir heimilið. I
mínum huga gat Siggi allt en það
var ekki bara í huga bamsins, hann
var snillingur í höndunum, ennþá á
ég leikföng frá bemskuámnum,
sem hann táigaði handa mér. Ekki
er ég viss um að það hafi alltaf
verið þægilegt að hafa litla frænku
á hnakknefinu, þegar fara þurfti á
milli bæja, eða huga að búsmala,
en ég þurfti ekki að suða lengi til
að öðlast slíkt hnoss.
Nú þegar ég hugsa til baka undr-
ast ég hversu mikla þolinmæði hlýju
og tíma þessi elskulegur frændi gat
gefíð mér. Fyrir ailt þetta vil ég
þakka. Góður, vandaður maður fer
nú heim á æskuslóðir til hinstu
hvfldar hjá ættingjum og vinum að
Hlíðarenda í Fljótshlíð.
Guð gefur honum áreiðanlega
hjörð til að hlúa að í landi eilífðar-
innar.
Þeim sem hann unni og unnu
honum bið ég Guðs biessunar.
Dóra' Guðmundsdóttir
\)
flö PIOIMEER
HUÓMTÆKI