Morgunblaðið - 23.01.1988, Síða 41

Morgunblaðið - 23.01.1988, Síða 41
41 Vorið 1939 tók hann jörðina Fossá í Kjós á leigu ásamt bróður sínum Helga og hófu þeir búskap þar þá um vorið. Nokkrum árum seinna keyptu þeir hálfa jörðina og hinn helminginn um hálfum áratug síðar. Þeir bræður Björgvin og Helgi kvæntust aldrei og réðu því til sín ráðskonur til að sjá um hús- hald fyrir sig. Árið 1941 kom til þeirra sem ráðskona Úrsúla Gísla- dóttir frá Seljadal, alltaf kölluð Salla, en þeir bræður og hún voru bræðraböm. Salla sá um húshald á Fossá fram til haustsins 1965, en Helgi andaðist 1967. Björgvin föðurbróðir minn var dagfarsprúður maður, gamansamur og glettinn, en gat þó verið einarð- ur og ákveðinn ef honum þótti með þurfa. Björgvin kunni alltaf vel við sig innan um fleira fólk _ og var ræðinn og spaugsamur. Á gleði- stundum var hann hrókur alls fagnaðar og naut sín þá vel í góðra vina hópi. Þau frændsystkinum Salla og hann voru afar gestrisin og var tekið á móti gestum á Fossá af rausn og myndarskap. Þar sem Fossá er í alfaraleið var oft gest- kvæmt þar og ekki ófáir sem lentu í erfiðleikum á leiðinni fyrir Hval- fjörð nutu þeirrar gestrisni og hjálpsemi sem þar ríkti. Þegar faðir minn lést 1934 tóku þeir bræður Björgvin og Helgi að sér framfærslu á mér og flutti ég því til þeirra að Fossá, þegar þeir hófu búskap þar, og átti þar heima þar til ég fór í framhaldsskóla og vinnu útí frá, og var þar eftir það svo oft, sem ég kom því við í fríum ffá skóla og starfí, og enn í dag tala ég um að fara heim að Fossá. Með okkur frændum, mér og Björg- vini, tókst náið samband sem hélst alla tíð og aldrei bar neinn skugga á og einkenndist af gagnkvæmu trausti. Mér leið alla tíð vel hjá þeim bræðrum Helga og Björgvini frændum mínum og Söllu frænku minni og á þaðan góðar minningar. . Eftir að Salla fór frá Fossá og Helgi var látinn, bjó Björgvin ein- samall þar meðan heilsa og þrek leyfðu, en rúm þijú síðastliðin ár dvaldi hann á heilsuhælinu Reykja- lundi. Eins og áður var sagt var Björg- vin mikill skepnumaður en hafði þó einkalega yndi af sauðfé og átti góðan fjárstofn, sem hann hirti vel og hafði góðan arð af, einnig var Björgvin mjög fjárglöggur. Eftir að hann var orðinn einbúi voru húsdýr honum mikils virði, sem félagar og síðustu árin, sem hann bjó, fóru æmar hans ekki langt frá honum og má segja að hann hafí talað til þeirra flestra nær daglega. Allra síðustu árin, sem hann bjó var hann aðeins með fáar ær, var hann þá oft á göngu um landareign- ina að fylgjast með hvaðan það fé væri sem þar kom, sér til heilsubót- ar eins og hann sagði 'sjálfur. Árið 1974 seldi Björgvin jörðina Skógræktarfélögum Kjósarsýslu og Kópavogs, en hafði ábúðarrétt á henni meðan hann vildi sjálfur búa. Honum var ekki sama hvað yrði um jörðina, þegar hans nyti ekki lengur við, hann vildi sjá landið vaxa af gróðri. Þegar heilsan bilaði svo hann gat ekki lengur verið einn fór hann fyrst í aðgerð á sjúkrahús í Reykjavík, en komst þaðan fljótlega til dvalar að Reykjalundi. Þó heilsan væri þorrin og fæmin til að vera einn væri ekki lengur til staðar var það honum samt erfíð ákvörðun, að yfír- gefa staðinn þar sem hann hafði búið svo lengi. En þegar hann var kominn að Reykjalundi komst hann strax yfír það og honum fannst sem hann væri heima á Fossá. Hér var hann fráls og gat rölt um gróna haga og holt þar í kring og litið til fjárins, sem var þar í högum. Ég flyt nú við þessi þáttaskil öll- um þeim, sem þátt áttu í því að hann komst að Reykjalundi og fékk að dvelja þar, mínar bestu þakkir, því honum leið þar vel, einnig þakka ég öllu því starfsfólki, sem annaðist hann fyrir mjög góða umönnun. Þegar frændi minn er nú kvadd- ur hinstu kveðju þakka ég honum öll okkar samskipti, allt sem hann gerði fyrir mig og mína fjölskyldu MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1988 og vona að hans bíði gróin jörð og grænar grundir handan landamær- anna sem við þekkjum ekki. ★ Elís Hannesson var fæddur í Hækingsdaí, sonur hjónanna Hann- esar Guðbrandssonar frá Hækings- dal og Sigríðar Elísdóttur frá Efri-Miðbæ í Norðfírði. Elís var yngstur átta systkina. Móður sína missti Elís, þegar hann var rúmlega tveggja ára gamall. Eftir lát hennar hélt faðir hans áfram búskap með aðstoð bama sinna. Systur Elísar urðu því að ganga honum í móður- stað, þó ekki væru þær gamlar, sú elsta ijórtán ára. Hækingsdalssystkinin hafa alla tíð verið mjög samrýmd og líklegt er að aðstæðumar á fyrstu upp- vaxtarárunum hafi tengt þau sterkari tilfínningaböndum en ann- ars hefði orðið. Þau urðu að leita hvort til annars með sín vandamál og oft hafa þau orðið að leysa sam- eiginlega úr daglegum viðfangsefn- um, þar sem ekki var hægt að leita til móðurinnar. Elís var í föðurhúsum að mestu þar til hann kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni Sigrúnu Eiríksdótt- ur frá Gröf í Skilmannahreppi árið 1966. Sama ár hofu þau búskap á Hlíðarási, sem er nýbýli úp landi Hækingsdals. Birgir, bróðir Elísar, hóf þar búskap og bjó þar í nokkur ár, en fluttist þá þaðan, en Hannes faðir þeirra bjó enn í Hækingsdal, og næst yngsti bróðirinn, Guð- brandur, bjó þar með föður sínum. Þegar Elís byijaði búskap á Hlíðarási var húsakostur þar enn lélegur, flutt hafði verið þangað gamalt íbúðarhús og bústofninn var í gömlum fjárhúsum með áfastri hlöðu, sem hvoru tveggja vom búin að gegna sínu hlutverki og vom farin að láta á sjá. Elís hófst fljót- lega handa við uppbyggingu á jörðinni ásamt stækkun túna. Fyrst varð að byggja yfír búsmalann til að fá lífsviðurværið. Þegar lokið var að byggja yfír skepnumar var farið í að byggja nýtt íbúðarhús, sem hann lauk við nú fyrir síðustu jól, en samtímis var hann búinn að rækta allt ræktanlegt land og við blasti björt framtíðin. Allar framkvæmdir á jörðinni bera vott um hið góða samstarf þeirra hjóna Sigrúnar og Elísar, allt var unnið af myndarskap, snyrtimennsku og smekkvísi. Með eljusemi og dugnaði, sem honum var í blóð borinn, hafði Elís, náð því marki að byggja upp á jörð- inni á tiltölulega skömmum tíma. Hann hefur litið til komandi daga með björtum augum, erfiðleikar frumbýlingsáranna voru afstaðnir, en enginn ræður sínum næturstað og nú er Elís frændi minn allur og á þess ekki kost að njóta verka sinna og þeirra aðstæðna, sem hann var búinn að skapa sér og sinni fjöl- skyldu. Elís frændi minn var hægur maður, traustur og hlédrægur, en verkmaður góður. Hann var góður bóndi, átti bæði afurðagóðar kýr og kindur enda lét hann sér annt um þær og lagði sig fram við að þeim liði vel. Elís var tryggur sveit sinni og þar undi hann sér vel. Elís og Sigrún eignuðust þijú börn, Óðin, Guðveigu og Hilmar, sem öll eru enn til heimilis að Hlíðarási, en hafa sótt framhalds- skóla í Reykjavík. Óðinn stundar viðskiptafræðinám í Háskólanum, Guðveig er við nám í fjölbrauta- skóla og Hilmar nemur húsasmíði. EIís var þægilegur í allri um- gengni og unglingar og böm sóttu eftir að vera í návist hans. Tvö bama minna dvöldu hjá þeim Sig- rúnu og Elísi að sumarlagi og hafa þau síðan sótt þangað, eins og margir aðrir unglingar, sem vom hjá þeim á sumrin. Með Guðbrandi syni minum og Elís myndaðist strax, þegar þeir kynntust, góð vinátta sem hélst æ síðan. Ég þekkti Elís einna minnst af Hækingsdalssystkinum vegna ald- ursmunar okkar, en ég hefí alla tíð verið í nánu sambandi við þau. Af kynnum okkar Ella, eins og hann var oft kallaður, var mér ljost, að hann var traustur maður og þægi- legur var hann í öllum samskiptum. Þegar ég nú kveð frænda minn að leiðarlokum þakka ég honum fyrir það sem hann var bömunum mínum sem kynntust honum og fyrir öll okkar kynni og samveru- stundir. Nú er Elli er farinn í óþekkt lönd þá hefur sveitin misst einn af sínum bestu sonum, góðan bónda og góðan dreng, og mér fínnst sem horfínn sé hluti af dalnum. Sigrún mín, ég og fjölskylda mín vottum þér, bömum þínum og öðr- um ættingjum og vinum dýpstu samúðar og megi minningin um góðan dreng, eiginmann og föður gefa ykkur öllum aukinn styrk í sorg ykkar. Sigurberg H. Elentínusson t Hjartkær móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, MAGNEA G. ÁGÚSTSDÓTTIR, Krummahólum 4, lést í gjörgæsludeild Landakotsspítala 21. janúar. Steinunn Jónsdóttir, Lilja Jónsdóttir, Magnea Jónsdóttir, Einar AAalsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín og móðir okkar, JÓNA GUÐRÚN EIRÍKSDÓTTIR, . Hafnargötu 63, Keflavik, andaðist fimmtudaginn 21. janúar. Jarðarförin auglýst siðar. Guðni Guðleifsson, börn og barnabörn. t Móðir okkar, SIGRÍÐUR ÖRNÓLFSDÓTTIR, Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, andaðist i Sjúkrahúsi Akraness 21. janúar. Arnór Ólafsson, Kristján Ólafsson, Gréta Ólafsdóttir. t Móðir okkar og fósturmóðir, VILBORG WIGELUND, lést miðvikudaginn 20. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Erla Wigelund, Svala Wigelund, Hrefna Wigelund Steinþórsdóttir. t Eiginmaður minn og faðir okkar, BJÖRN KONRÁÐSSON fyrrverandi bústjóri, Vífilsstöðum, andaðist 21. janúar. Signhild Konráðsson, Sigurður Björnsson, Ragnheiður Björnsdóttir, Borgþór Björnsson, Elísabet Björnsdóttir. t Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓHANNA M. JÓHANNSDÓTTIR, Barmahlíð 42, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánudaginn 25. janúar kl. 13.30. Gunnar Pálsson, Margrót Á. Gunnarsdóttir, Guðlaugur S. Helgason, Páll Gunnarsson, Jóna L. Gísladóttir, Björk Gunnarsdóttir og barnabörn. t Móðir mín, tengdamóðir amma, og langamma, KATRÍN AUÐUNSDÓTTIR, til heimilis að Syðri-Hól, Vestur-Eyjafjöllum, verður jarðsungin frá Ásaskálakirkju í dag kl. 14.30. Barn, tengdabarn og barnabarnabarn. “ Móðir okkar og tengdamóðir, h LOVÍSA HALLDÓRSDÓTTIR, Bergstaðastræti 71, lést í Borgarspitalanum að morgni föstudagsins 22. janúar. Hrafnhildur Þórðardóttir, Lárus Hallbjörnsson, Hjördís Þórðardóttir, Guðmundur Karlsson, Andrea Þórðardóttir, ísleifur Bergsteinsson, Hjörleifur Þórðarson, Jensína Magnúsdóttir, Ásdis Þórðardóttir, Valdimar Hrafnsson. t Útför *. SIGURÐAR ÓLASONAR, hæstaréttarlögmanns, verður gerð frá Dómkirkjunni mánudaginn 25. janúar kl. 15.00. Jarðsett verður i Gufuneskirkjugarði. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Borgarspítalann. Unnur Kolbeinsdóttir, Kolbeinn Sigurðsson, Þórunn Sigurðardóttir, Jón Sigurðsson, Guðbjartur Sigurðsson, Guðrún Sigríður Sigurðardóttir, Katrín Sigurðardóttir. t Frú BODIL BEGTRUP fyrrv. sendiherra Dana á íslandi, andaðist í Kaupmannahöfn 12. desember 1987. Útför hennar fór fram í Helligándskirken i Kaupmannahöfn 19. desember 1987. Að ósk hennar verður duftker hennar greftrað í Skálholti. Minningarathöfn verður í Skálholtsdómkirkju mánudaginn 25. janúar kl. 14.00. Danska sendiráðið. t Faöir okkar og tengdafaðir, FRÍMANN Á. JÓNASSON fyrrverandi skólastjóri, sem lést hinn 16. þ.m., verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 25. janúar kl. 13.30. Ragnheiður Frímannsdóttir, Ove Krebs, Birna Frímannsdóttir, Trúmann Kristiansen, Jónas Frfmannsson, Margrét Loftsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.