Morgunblaðið - 02.02.1988, Qupperneq 1
84 SIÐUR B
STOFNAÐ 19X3
26. tbl. 76. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988
Prentsmiðja Morgunblaðains
Efnahagsstöðn-
un spáð í Noregi
Osló. Reuter.
NORÐMENN mega búast við efnahagslegri stöðnun á þessu ári, sam-
kvæmt nýrri þjóðhagsspá. Spáð er samdrætti þjóðartekna, vaxandi
atvinnuleysi, viðskiptahalla og minnkandi framleiðni atvinnuveganna.
Spáin þykir harður dómur á
frammistöðu minnihlutastjórnar
Verkamannaflokksins. Samkvæmt
henni er gert ráð fyrir að atvinnu-
leysi aukist úr tæpum tveimur
prósentum í fyrra í 2,5% í ár og
3,25% á þvi næsta. Spáð er við-
skiptahalla mörg næstu árin og sagt
að svo muni fara jafnvel þótt verð-
og kauphækkanir verði ekki meiri
en í helztu viðskiptalöndum Norð-
manna.
Spáin gerir ráð fyrir því að þjóðar-
framleiðsla dragist saman um 0,25%
á þessu ári og að hún vaxi ekki á
næsta ári. Þjóðarframleiðslan jókst
um 0,4% í fyrra. Einnig er gert ráð
fyrir að greiðslujöfnuður Norð-
manna verði óhagstæður um 43
Óeirðalögregla grípur um höfuðið og verst snjókasti óbreyttra borgara, sem mótmæltu fyrirvaralausum
verðhækkunum á nauðsynjum i Póllandi um helgina. Lögreglumennimir svöruðu ekki í sömu mynt
heldur gripu til kylfunnar.
Matvæli hækka um
40 prósent 1 PóUandi
Varsjá. Reuter.
VERÐ á nauðsynjavörum var hækkað um 40% að jafnaði um
helgina í Póllandi og kom til mótmælaaðgerða í Varsjá og
Gdansk er hinar óvæntu og fyrirvaralausu verðhækkanir spurð-
ust út.
Ríkisstjómin lét sér ekki nægja
að hækka verð á helztu nauðsynj-
um um helgina. Gengi gjaldmiðils
landsmanna, zloty, var lækkað um
15,8% gagnvart Bandaríkjadollar.
Vissi enginn af breytingunni fyrr
en gengistöflur birtust í dagblöðum
í gærmorgun. Talsmenn seðla-
bankans vörðust allra fregna og
ríkisstjómin gaf engar skýringar á
gengisbreytingunni. Gengislækk-
unin varð enn meiri, eða 18,75%,
á hinum svarta markaði. Þar feng-
ust 1.600 zloty fyrir dollar í stað
1.300 í fyrradag, að sögn sölu-
manna.
Verð á matvörum hækkaði að
jafnaði um 40% en brauð hækkaði
um 50%, gæðasmjör um 30% og
sykur um 50%. Verð á benzíni
hækkaði um 60%, díselolíu um
100%, áfengi um 46% og tóbaki
um 40%. Þá var húsaleiga hækkuð
um 50% og hermt var að verð á
kolum hefði hækkað um 200%.
Búist var við meiri mótmælum
við hækkununum en orðið hafa. í
Gdansk mótmæltu um 3.000
manns þeim eftir messu, sem Jozef
Glemp, kardináli, og Lech Walesa,
leiðtogi Samstöðu, voru viðstaddir.
Gekk mannfjöldinn að stöðvum
kommúnistaflokksins og hrópaði
slagorð gegn stjóminni í stundar-
fjórðung en hvarf síðan á braut. í
Varsjá tóku um 1.500 manns þátt
í mótmælum, einnig eftir messu.
Kastaði fólkið snjóboltum í óeirða-
lögreglu, sem fékk það hlutverk
að dreifa mannfjöldanum.
Verkamenn í fimm stórum verk-
smiðjum í iðnaðarborginni
Wroclaw eru sagðir hafa myndað
leynilegar verkfallsnefndir en þær
hafa enn ekki boðað til verkfalla.
Að baki nefndunum standa stuðn-
ingsmenn Samstöðu, hinna óháðu
og útlægu verkalýðsfélaga.
•Hækkanir á nauðsynjavörum
hafa leitt til óeirða í Póllandi, en
alvarlegastar urðu þær 1970 og
1980. Stjómin hugðist hækka
matvæli um allt að 110% í janúar
samkvæmt neyðaráætlun um end-
urreisn efnahagslífsins en frestaði
þeim þar sem áætlunin hlaut ekki
stuðning í þjóðaratkvæði í nóvem-
ber sl.
milljarða norskra króna, eða 250
milljarða íslenzkra króna.
Verðlækkun á olíu í hitteðfyrra
hefur leikið Norðmenn grátt. Verð-
bólga er nú rúmlega sjö prósent í
Noregi, eða hærri en í flestum við-
skiptalöndum Norðmanna í Evrópu.
Svíþjóð:
Enginn hag-
vöxtur vegna
verkfallanna
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara
Morjjunblaðsins.
ÁTÓKIN á sænskum vinnumark-
aði færast stöðugt í aukana og í
gær settu vinnuveitendur verk-
bann á 50.000 manns.
Sænska þjóðarbúið tapar nú næst-
um einum milljarði sænskra króna,
rúmum sex milljörðum ísl. kr., á dag
vegna verkfalla og verkbanna enda
hefur iðnframleiðsla í landinu að
mestu stöðvast. Aðilar ræðast við
daglega en ríkisstjómin hefur ekki
enn skipað sáttasemjara í deilunni,
sem virðist ætla að verða Iöng og
ströng. Hafa verkalýðsfélögin tekið
mjög óstinnt upp síðasta tilboð
vinnuveitenda.
Heita má, að öll starfsemi hjá
Saab-Scania og Volvo liggi niðri og
vegna þess hve illa horfir hefur
næstum 100.000 manns verið sagt
upp störfum. Útlit er fyrir, að þessi
átök geri að engu væntanlegan hag-
vöxt í Svíþjóð á þessu ári.
Nýr leiðtogafundur undirbúinn:
Shultz til Moskvu
Washington. Reuter.
GEORGE Shultz, utanríkisráðherra Bandarikjanna, heldur til fundar
við Eduard Shevardnadze, sovézkan starfsbróður sinn, í Moskvu
22.-23. febrúar og mun fundur þeirra snúast um væntanlegan fund
Míkhaíls Gorbatsjovs og Ronalds Reagans, leiðtoga risaveldanna, í
Moskvu í sumar.
7L4SS-fréttastofan hafði eftir
Gennadfj Gerasímov, talsmanni ut-
anríkisráðuneytisins f Moskvu, að
Shultz og Shevardnadze myndu
leggja drög að uppkasti að samn-
ingi um helmings fækkun lang-
drægra kjamavopna og undirbúa
heimsókn Reagans til Moskvu.
Marlin Fitzwater, talsmaður Hvíta
hússins, staðfesti fregn TASS síðar.
Á Washingtonfundi leiðtoganna
í desember síðastliðnum hétu þeir
því að hittast í Moskvu í vor og
sögðust vonast til að undirrita þar
samkomulag um helmingsfækkun
langdrægra kjamaflauga.
Shultz sagði í sjónvarpsviðtali á
sunnudag að START-samkomulag,
þ.e. samningur um fækkun lang-
drægra eldflauga, væri mögulegt
en spáði að erfítt yrði að koma því
í höfn.
Koivisto hlaut
ekki meirihluta
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins Í
Finnlandi.
MAUNO Koivisto, Finnlandsforseti, fékk 47,9%
atkvæða í forsetakosningunum um helgina og
náði því ekki beinu kjöri. Verður hann liklega
hlutskarpastur á kjörmannafundi, sem haldinn
verður 15. febrúar næstkomandi.
Sigurvegari kosninganna var Paavo Váyrynen,
formaður Miðflokksins, sem hlaut 20,1% atkvæða.
Harri Holkeri, forsætisráðherra, forsetaefni hægri-
manna, hlaut 18,1% atkvæða, eða mun lakara fylgi
en flokkur hans, Hægriflokkurinn, hlaut í síðustu
þingkosningum. Kalevi Kivisto, frambjóðandi annars
kommúnistaflokksins, fékk 10,4% atkvæða og
harðlínukomminn Jouko Kajanoja fékk 1,4%. Alls
vom 2,1% atkvæða ógild.
Bæði Koivisto og Holkeri sögðu í gærkvöldi að
úrslitin myndu ekki hafa nein áhrif á stjómarsam-
starf hægrimanna og jafnaðarmanna. Váyrynen
sagði hins vegar að stjómin ætti að segja af sér
um leið og nýr forseti hefði tekið við völdum. Kosn-
ingaúrslitin gefa til kynna að Váyrynen og Mið-
flokkurinn hafí náð góðum árangri í stjómarand-
stöðu. Fylgi flokksins hefur farið vaxandi og var
mikið meira í forsetakosningunum en í síðustu þing-
kosningum.
Spumingin er nú hvaða kjörmenn muni tryggja
Koivisto endurkjör, hvort þeir verða frá hægri eða
vinstri. Kjörmenn hans eru 144 en hann þarf at-
Reuter
Tellervo og Mauno Koivisto, forseti Finnlands,
greiða atkvæði í forsetakosningunum á sunnu-
dag.
kvæði 151. Kjörmenn Miðflokksins munu væntan-
lega styðja Paavo Váyrynen og því þykir líklegast
að kjörmenn Kivisto, annars frambjóðanda kommún-
ista, muni tryggja endurkjör Koivisto.