Morgunblaðið - 02.02.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988
VEÐUR
Fyrsta Boeing 737-
400-fhigvélin sýnd
BOEING-flugvélaverksmiðjumar
í Bandaríkjunum sýndu fyrstu
flugvélina af gerðinni Boeing
737-400 að viðstöddu fjölmenni á
þríðjudaginn í siðustu viku. Flug-
leiðir undirrituðu samning um
kaup á tveimur slíkum vélum fyr-
ir 2,5 miiyarða islenskra króna
Kópavogur:
Skemmdar-
verk í skóla
AÐKOMAN í Hjallaskóla í Kópa-
vogi var heldur ljót á sunnudags-
morgun. Nóttina áður höfðu
skemmdarvargar brotist þar inn
og makað oliumálningu um allt.
Skemmdarvargamir máluðu með-
al annars 41 skólaborð, nokkrar
krítartöflur og sýningartjald. Þá
voru áklæði á nokkrum stólum skor-
in í sundur. Rannsóknarlögregla
ríkisins rannsakar nú hveijir þama
vom að verki.
siðastliðið sumar. Er fyrsta vélin
væntanleg til landsins i apríl á
næsta ári.
Sigurður Helgason stjómarform-
aður Flugleiða og Leifur Magnússon
framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Flugleiða vom viðstaddir er Boeing
737-400 flugvélin var sýnd við hátí-
ðlega athöfn í fyrsta sinn í síðustu
viku.
Samningurinn um kaup Flugleiða
á tveimur slíkum vélum er stærsti
samningur sem íslenskt einkafyrir-
tæki hefur gert til þessa. Hann
undirrituðu þeir Sigurður Helgason
forstjóri Flugleiða og Borge Boeskov
framkvæmdastjóra Evrópusöludeild-
ar Boeing verksmiðjanna í tilefni af
50 ára afmælis samfellds atvinnu-
flugs á íslandi í júní 1987.
Vélamar munu taka 158 farþega
og er fyrri vélin væntanleg til lands-
ins í apríl 1989, en sú síðari í maí
1990. Flugleiðir hafa pantað tvær
vélar til viðbótar, eina 1991 og aðra
1992, en þessar pantanir hafa ekki
verið staðfestar enn.
Þetta er i fyrsta sinn sem íslenskt
Leifur Magnússon framkvæmdastjóri þróunarsviðs Flugleiða og Sig-
urður Helgason stjórnarformaður Flugleiða ásamt Borge Boeskov
framkvæmdastjóra Evrópusöludeildar Boeing-verksmiðjanna fyrir
framan nýju flugvélina. Merki þeirra flugfélaga sem þegar hafa
pantað slíkar vélar voru fest á skrokk vélarinnar og eins og sjá má
er merki Flugleiða lengst til hægri á myndinni.
Leedice Kissane og Randall Hodgkinson með forseta íslands Vigdisi
Finnbogadóttur á Bessastöðum í gærkvöldi
Randall Hodgkinson
spilar með Sinfóníunni
RANDALL Hodgkinson mun
næstkomandi fimmtudag spila
með Sinfóníuhljómsveit íslands á
tónleikum til styrktar byggingar
tónleikahúss. Hodgkinson er kon-
sert píanisti og hefur spilað viða
um heiminn og Bandaríkin, en
hann er búsettur í Boston.
Hann er hingað kominn með
ömmu sinni Leedice Kissane, en hún
kenndi við enskudeild Háskóla ís-
lands árin 1970 til 1972 og hefur
tekið ástfóstri við landið. Koma henn-
ar og dóttursonar hennar hingað til
lands er kostuð af þeim sjálfum og
er framlag til byggingar tónleika-
hússins. Leedice Kissane sagðist í
samtali við Morgunblaðið hafa hrifíst
af landi og þjóð er hún kenndi við
Háskólann og sér væri það því mikil
ánægja að hún og dóttursonur henn-
ar gætu lagt lítil lóð á vogarskálam-
ar. Hún hefði á slnum tíma verið
með áskriftarmiða á tónleika Sin-
fóníuhljómsveitarinnar og þótt mikið
til hennar koma. „ísland er mér sem
annað heimili. Ég hef lært að rrieta
landið eftir að hafa dvalið hér um
tíma og komið af og til síðan. Því
er mér það kært að geta lagt eitt-
hvað af mörkum með aðstoð dóttur-
sonar rníns," sagðiu Leedice Kissane.
Á189 kíló-
metra hraða á
Reykjanesbraut
LÖGREGLAN í Hafnarfirði var
við hraðamælingar á Reykjanes-
braut hinni nýju á laugardags-
kvöld og mældist þá ein bifreið
á 189 kílómetra hraða.
Ökumaður bifreiðarinnar sinnti
ekki stöðvunarmerkjum lögreglu,
heldur ók af vettvangi. Lögreglan
hafði hins vegar skráningamúmer
bifreiðarinnar og hafði uppi á henni
og ökumanninum á sunnudag.
Hann var sviptur ökuskírteini um
leið og í hann náðist.
Fyrsta vélin af gerðinni Boeing
737-400 kemur fyrir sjónir gesta
hjá Boeing verksmiðjunum í
Bandaríkjunum á þriðjudaginn í
síðustu viku.
flugfélag er meðal þeirra sem fyrstir
panta nýja flugvélategund áður en
byijað er að framleiða hana.
V
Heimild: Veðurslofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gaer)
/ DAG kl. 12.00:
I/EÐURHORFUR I DAG, 2.2.88
YFIRUT f gaar: Búist er við stormi ó Vestfjarðamiðum, Vesturdjúpi
og Norðurdjúpi. Yfir Svalbarða og Norðaustur-Grænlandi er 1024ra
millib. hæð en 949 millib. lægð við N-írland þokast norðaustur.
SPÁ: Noröaustanótt, víðast stinningskaldi eða allhvasst. Él norðan-
lands og suður með austurströndinni, en úrkomulítið syðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG og FIMMTUDAG: Norðan- og norðaust-
anótt og vægt frost um land allt. Úrkomulaust um sunnanvert
landið en él norðanlands, einkum þó við ströndina.
TAKN:
Heiðskírt
Lettskyjað
Halfskyiað
Skyjað
Alskyjað
s, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * * * Snjókoma
-J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
'OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIHA
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavfk hltl 2 3 veöur slydduél skýjað
Bergen vantar
Helalnkl vantar
Jan Mayen 0 skýjað
Kaupmannah. 3 alakýjað
Narssarsauaq +11 anjókoma
Nuuk +8 snjókoma
Osló vantar
Stokkhólmur 2 slydda
Þórshöfn vantar
Algarve 17 skýjað
Amaterdam vantar
Aþena vantar
Barcelona 16 hálfakýjað
Berlln vantar
Chicago 0 alskýjað
Faneyjar vantar
• Frankfurt vantar
Glasgow ' vantar
Hamborg vantar
Las Palmas vantar
London 9 skúr
LosAngales vantar
Lúxemborg vantar
Madrfd 12 skýjað
Malaga 18 léttskýjað
Mallorca 16 akýjaft
Montreal +14 skýjað
NewYork vantar
Parfa 8 rlgning
Róm vantar
Vín vantar
Waahlngton 8 alskýjað
Wlnnipeg +30 halðskfrt
Valencia 18 skýjað