Morgunblaðið - 02.02.1988, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988
Glæsileg frammi-
staða Kristjáns
Jóhannssonar í Scala
Kristján
Jóhannsson
_____________________Tónlist_________________________
Egill Friðleifsson
Scala-óperan S Milanó 31. 1. 1988.
I due Foscari, ópera í þremur þáttum eftir Giuseppe Verdi.
Helstu hlutverk:
Francesco Foscari EDUARD TUMAGIAN
Jacopo Foscari KRISTJÁN JÓHANNSSON
Lucrezia Contarini MARIA GULEGHINA
Jacopo Loredano MARIO LUPERI
Stjórnandi GIANANDREA GAVAZZENI
Kór og hljómsveit Scalaóperunnar
Það er eftirminnilegur atburður
hverjum tónlistarunnanda að vera
viðstaddur óperusýningu í Scala-
óperunni í fyrsta sinn. Yfír
nafninu hvílir sérstakur ljómi. Þar
þykir óperulistin hafa risið hæst.
Þar angar sagan úr hveiju homi.
Þar hafa margir snillingar starf-
að, öðlast heimsfrægð og ódauð-
legt nafn. Menn eins ogtónskáldin
Verdi og Puccini, stjómandinn
Toscanini ásamt ótölulegum fjölda
söngvara með sjálfan Caruso í
broddi fylkingar. Og nú var kom-
ið að Kristjáni okkar Jóhannssyni
að stíga þar á ijalimar í fyrsta
sinn, stór stund fyrir hann og stór
atburður í íslensku menningarlífí.
Það er æðsti draumur frama-
gjamra óperusöngvara að komast
á sviðið f Scala. Hjá Kristjáni
rættist draumurinn. Saga Krist-
jáns er saga manns, sem tekur
stóra áhættu í lífínu. Hann leggur
frá sér tól sín og tæki norður í
landi, brýtur allar brýr að baki
sér og heldur út í hinn stóra heim,
knúinn áfram af þrá til að þroska
þá hæfíleika sem honum hafði svo
ríkulega verið gefnir í vöggugjöf.
Leiðin til Scala hefur ekki verið
honum eintómur dans á rósum.
En hingað hefur hann náð og
geri aðrir betur. Galvaskur og
geislandi með sína björtu tjáning-
arríku rödd er Kristán hvergi
banginn við að láta til sín taka í
þessu höfuðmusteri óperunnar.
Verdi og Scala
Verdi þótti ekki efnilegur tón-
listarmaður. Hann féll við inn-
tökupróf í tónlistarskólann í
Mílanó og náði t.d. aldrei góðum
tökum á píanóinu. Kollegi hans,
Rossini, sem einnig starfaði við
Scala, spaugaði með þetta og
skrifaði gjaman utan á bréfín til
hans „Maestro Verdi, fímmta-
flokks píanisti". Samt varð Verdi
með tímanum ástsælasta ópemt-
ónskáld sögunnar. Samskipti
Verdis við Scala vom ekki snurðu-
laus. Það var Bartolomeo Marelli
forstjóri Scala og vinur Verdis
sem kom verkum hans á fram-
færi. Óperan „Oberto, greifínn af
San Bonifaccio" var frumflutt þar
1839 óg hlaut góðar viðtökur. En
þeirri næstu, „Konungur í einn
dag", var afleitlega tekið, enda
Verdi miður sín vegna áfalla í
einkalífi sínu er hann vann að
verkinu. Með „Nabucco" öðlaðist
hann fyrri vinsældir á ný. Það
átti svo eftir að ganga á ýmsu,
en með síðustu tveimur ópemm
sínum, „Óþelló" og „Falstaff",
festi hann sig endanlega í sessi
og hefur æ síðan gegnt mikilvægu
hlutverki í efnisskrá Scala-óper-
unnar.
I due Foscari
Óperan „I due Foscari" (Fosc-
Hinn glæsilegi salur í Scala, sem tekur 3600 manns i sæti. Þar er frábær hljómburður.
ur fyrir aðild að pólitísku morði.
Dómnefnd, sem er andsnúin
þeim feðgum, finnur hann sekan
og dæmir hann til ævilangrar út-
legðar á eynni Krít, þótt Jacopo
haldi fram sakleysi sínu.
Hertoginn, faðir hans, setur
réttlætið ofar persónulegum til-
fínningum og staðfestir dóminn
þrátt fyrir ákafar bænir eiginkonu
Jacopos, Lucreziu (sópran).
Síðar sannast sakleysi Jacopos,
þar sem annar maður játar á
banasænginni að hafa einn staðið
að morðinu.
En það er um seinan, Jacopo
deyr á leiðinni í útlegðina harmi
sleginn yfír að fá ekki að sjá fjöl-
skyldu sína og heimkynni framar.
Nokkur orð um Scala
Scala-óperan hefur nú starfað
í rúmar tvær’aldir. Nafnið er
þannig fengið að einhvemtímann
áður hafði staðið þama kirkja
kölluð Sankta Maria alia Scala.
Kirkjan hvarf en nafnið hélt sér.
Það var María Teresa keisaraynja
í Austurríki og hertogaynja í
Mflanó sem hvatti til að byggja
ópemhús eftir að konunglega her-
togaleikhúsið í Mflanó brann til
gmnna 1776. María var mikill
tónlistamnnandi og hafði m.a.
kynnst Mozart. Húsið er byggt í
nýklassískum stfl og var til þess
tekið að smíðin tók aðeins tvö ár,
sem þótti afrek á þeim tíma. Það
er fremur látlaust að utan og sker
sig lítt úr umhverfí sínu, en er
þeim mun glæsilegra og íburðar-
meira að innan. Hinn stórfenglegi
skeifulaga salur tekur 3600
manns í sæti og er annálaður fyr-
ir góðan hljómburð. Neðst em
númemð sæti en þá koma fjórar
hæðir með stúkusætum og þar
fyrir ofan stæði á tveimur hæðum.
í upphafí aðhöfðust menn þar
ýmislegt annað en bara flytja
ópemr, því þar vom fjárhættuspil
einnig stunduð af kappi, en vom
seinna bönnuð. Það hafa skipst á
skin og skúrir í sögu Scala-óper-
unnar, glæsilegir uppgangstímar
lengst af, en einnig erfíðleikaár,
svo starfsemin hefur stöðvast
vegna kreppu eða styijalda. í
húsinu er einnig að fínna frægt
listmunasafn og bókasafn.
aríamir tveir) er ekki samin fyrir
Scala. Hún var frumflutt í Róm
1844 og í London 1847 og Boston
sama ár. Nú á dögum heyrist hún
sárasjaldan og kannast fáir við
hana. Textinn er eftir Piave og
byggir á leikriti Byrons lávarðar,
„The two Foscari", er hann samdi
1821. Óperan, sem er í þremur
þáttum, er hádramatísk og sögu-
þráðurinn er í örfáum orðum á
þessa leið:
Sögusviðið er Feneyjar á miðri
16. öld. Jacopo Foscari (tenór)
sonur Franceso Foscari (bariton)
hertogans af Feneyjum er ákærð-
Giuseppe Verdi 1844, sama ár
og „I due Foscari“ var frum-
sýpd.
Gamli hertoginn, bitur og von-
svikinn, er neyddur til að láta af
embætti og hnígur örendur niður
í lok ópemnnar.
Sýningin
Það ríkir eftirvænting í leik-
húsinu. Prúðbúið fólk streymir inn
í stóran skeifulagan salinn. Brátt
er hvert sæti skipað, enda löngu
uppselt og komust færri að en
vildu. Ljósin dofna og hinn aldni
stjómandi, Gianandrea Gavaz-
zeni, gengur að hljómsveitinni,
hefur sprotann á loft og voldugir
hljómar Verdis fylla salinn. Það
er ekki að ástæðulausu að þessi
leikhúshljómsveit er talin einhver
sú besta í heimi. Allt frá því að
Toscanini hélt hér um stjómvölinn
hefur hljómsveitin verið frábær
og svo er enn.
Eftir stuttan forleik er tjaldið
dregið frá og við emm stödd í
hertogahöllinni í Feneyjum árið
1467. Á sviðinu fylgjumst við með
örlögum þeirra Foscari-feðga. í
stuttri blaðagrein er varla tóm til
að rekja hvert atriði, en í öðm
atriði fyrsta þáttar kemur Jacopo
Foscari til sögunnar. Kristján Jó-
hannsson er þama í titilhlutverki.
Hann hefur upp raust sína og
syngur „Ah si, ch’io senta anc-
ora“. Við íslendingamir höldum
niðri í okkur andanum. í upphafí
má greina dálítinn óstyrk, en það
á reyndar einnig við um hina
söngvarana. Honum vex brátt
ásmegin og í hinni erfíðu aríu,
„Brezza del suol natio", nær hann
sér á skrið. Eftir það er ekkert
hik á Kristjáni. Hann söng af
öryggi og innlifun allt til enda og
var mjög vel tekið af hinum vand-
látu leikhúsgestum, sem em
frægir fyrir að láta tilfínningar
sínar í ljós, hvort sem það er lof
eða last. „Bravo" hljómaði víða
úr salnum, það fór ekki milli
mála að Kristján hafði unnið hug
þeirra og hjörtu.
Maria Guleghina söng hlutverk
Lucreziu. Hún er stórkostleg
söngkona og það var hún sem
hlaut bestu viðtökumar þetta
kvöld. Rödd hennar er svo voldug
og sterk og hún söng af slíkum
krafti og sannfæringu að minnti
helst á nöfnu hennar Callas.
Fangelsisatriði þeirra Lucreziu
og Jacopos í upphafí annars þátt-
ar var mjög áhrifamikið. Eduard
Tumagian naut sín vel í hlutverki
hins mædda hertoga Francescos
Foscari og reyndar var valinn
maður í hveiju hlutverki — hvað
annað í Scala!
Sviðsmyndin var einföld, en
ákaflega stflhrein og sama má
segja um búningana. Það er erfitt
að átta sig á hvers vegna „I due
Foscari" hefur svo gjörsamlega
fallið í skuggann af öðmm verkum
Verdis. í ópemnni birtast margir
af helstu kostum hans sem ópem-
tónskálds, fallegar aríur og
dúettar og mikilfenglegir kórar
eins og t.d. bátssöngurinn í upp-
hafi þriðja þáttar. „I due Foscari"
er áhrifamikið verk, of gott til að
liggja í þagnargildi.
Sigur
Það fer ekki á milli mála að
Kristján Jóhannsson vann hér
glæsilegan listsigur. Innileg við-
brögð áheyrenda staðfesta orð
mín. Hlutverkið gerir miklar kröf-
ur, en hann stóðst hveija raun
með sóma. Það er ástæða til að
óska Kristjáni til hamingju með
árangurinn. ísland stækkaði í
augum ópemunnenda, það sem
gerist í Scala kemur öllum listvin-
um við. Kristján Jóhannsson braut
blað í íslenskri listasögu þetta
kvöld.