Morgunblaðið - 02.02.1988, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fróttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 55 kr. eintakiö.
Listasafn Islands í
eigið húsnæði
Síðar á þessu ári eru 104
ár liðin frá stofnun Lista-
safns íslands. Frumkvöðull
safnsins var Björn Bjamar-
son, sem síðar varð þingmað-
ur og sýslumaður Dalamanna.
Fyrsti vísir til safnsins vóru
38 málverk, gefín til landsins
1885, fyrir tilstilli Bjöms.
Fyrsta verkið eftir íslenzkan
listamann, sem safnið eignað-
ist, var höggmynd Einars
Jónssonar, „Útilegumaður-
inn“, en fyrsta olíumálverkið
„Áning" Þórarins B. Þorláks-
sonar. Arið 1889 sendi
Thorvaldsen-safnið í Kaup-
mannahöfn listasafninu 66
grafísk verk gerð eftir högg-
myndum Bertels Thorvald-
sens, þar af 8 eftir hann
sjálfan. Safninu óx síðan
smám saman fískur um
hrygg- Málverk og högg-
myndir í eigu þess um síðast-
liðin áramót vóm 4.978
talsins. Tveir þriðju safnverka
em gjafír.
Listasafn íslands hefur
lengst af rúmlega aldarlangri
sögu sinni átt við þröngan og
ónógan húsakost að búa. Nú
hefur myndarlega rætzt úr
fyrir safninu í þessu efni. Það
opnaði ný, glæsileg húsakynni
sín — í hjarta borgarinnar —
síðastliðinn laugardag að við-
stöddum forseta íslands,
Vigdísi Finnbogadóttur, og
menntamálaráðherra, Birgi
ísleifí Gunnarssyni. Forsetinn
opnaði sýninguna „Aldar-
spegil, íslenzk myndlist frá
190-1987, sem sett var upp í
tilefni opnunar safnsins í nýj-
um eigin húsakynnum. Ávörp
fluttu við hátíðina, auk ráð-
herrans, Guðmundur G.
Þórarinsson, formaður bygg-
ingamefndar Listasafns
íslands, og Bera Nordal, for-
stöðumaður safnsins. Það
sýnir áhuga almennings á
safninu og hinum nýju húsa-
kynnum að rúmlega þúsund
manns komu í safnið á opnun-
arhátíðinni.
Sem fyrr segir em tveir
þriðju verka Listasafnsins
gjafír. Margir þjóðkunnir
listamenn hafa lagt safninu
mikil verðmæti, þar á meðal
Ásmundur Jónsson, Gunn-
laugur Scheving, Finnur
Jónsson og Jóhannes Kjarval.
Ýmsir stórhuga einstaklingar
hafa og lagt því fjármuni, fyrr
óg síðar, sem ásamt framlög-
um úr ríkissjóði hafa gert
safninu kleift að koma upp
því glæsilega húsnæði, sem
formlega var tekið í notkun
um síðastliðna helgi. Þar veg-
ur efalaust þyngst að hjónin
Helga Jónsdóttir og Sigurliði
Kristjánsson, kaupmaður í
Reykjavík, ánöfnuðu safninu
fjórðung eigna sinna árið
1980, til að stuðla að bygg-
ingu húsnæðis jrfír safnið.
Vel hefur tekizt til með
gerð og staðstetningu hús-
næðis yfír Listasafn íslands.
Listaverkin njóta sín vel í því
umhverfí sem þeim hefur ver-
ið búið. Og safnið sjálft er vel
í sveit sett við Ijömina — í
hjarta höfuðborgarinnar. Það
er þáttur í aðgerðum til að
auka á veg og virðingu gamla
miðbæjarins.
Mestu máli skiptir þó að
Listasafn íslands verði virkur,
hvetjandi þáttur í þjóðlífínu
og aflvaki í myndmennt þjóð-
arinnar, bæði að því er varðar
listamenn og tengslin við al-
menning. Landssafn af þessu
tagi, sem spanna á kynslóðir
listamanna og aldir í þjóðar-
sögu, verður að geta fjárfest
í myndlist hvers tíma, svo það
geymi samfellda og sannferð-
uga sögu sinnar listgreinar
og rísi undir menningarlegu
hlutverki sínu.
Sjálfstæðisbarátta lítillar
þjóðar er viðvarandi. Sú bar-
átta er ekki einvörðungu
stjómarfarsleg eða efnahags-
leg, heldur ekki síður menn-
ingarleg. Menningarleg
sjálfstæðisbarátta felst ekki
því að sneiða hjá erlendum
lista- eða menningarstraum-
um heldur í hinu að standa
trúan vörð um menningararf-
leifð þjóðarinnar — tungu og
þjóðemi — og sjálfstæða list-
sköpun í landinu.
Listasafn íslands er hluti
af þessari sjálfstæðisbaráttu
ef grannt er gáð. Það á að
vera þjóðinni fagnaðarefni að
það hefur loksins fengið við-
unandi starfsaðstöðu. Von-
andi verður staðið þannig að
verki á næstu áratugum, að
safnið hafí starfsaðstöðu við
hæfí þegar næstu starfsöld
þess lýkur.
SNJOFLOÐIÐ VIÐ SKARÐATINDA
Séð yfir svæðið úr fjarlægð. Númer 1 er slysstaðurinn, 2 er Skarðatindur þar fyrir ofan, númer 3 er Morsárdi
Leitarmenn fuku
eftir annað um I
Björgunarsveitamenn fuku i þegar mjög vel skipulögð leit i naumlega. Vindhraðinn fór hátt
hvað eftir annað um koll í fór fram að piltinum sem lenti I 13 vindstig og sýndu þyrlu-
snörpustu stormhviðunum á í snjóflóðinu þar á sunnudag, flugmenn Landhelgisgæslunnar
slysstað inn af Morsárdal I gær I en félagar hans fjórir sluppu | og Varnarliðsins mikla hæfni