Morgunblaðið - 02.02.1988, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 02.02.1988, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988 37 Safn um haf- svæðin um- hverfis Island EIÐUR Guðnason (A/Vl) mælti í sameinuðu þingi í gær fyrir þings- ályktunartillögu sem hann hefur lagt fram um haf- og fiskveiða- safn. í tillögunni er lagt til að Alþingi skori á menntamálaráðherra að skipa i samráði við sjávarútvegsráðherra nefnd til að gera áætlun um stofnun og rekstur haf- og fiskveiðasafns. Safnið á að gefa mynd af hafsvæðunum umhverfis Island, eðli þeirra, lífi, lífsskilyrðum í hafinu, fiskveiðum íslendinga o.fl. í safninu á að beita fullkomnustu sýningartækni sem völ er á. Eiður Guðnason (A/Vl) sagði að nefnd þessi ætti að gera fjár- hagsáætlun um uppbyggingu slíks safns, hugsanlega í áföngum. Einnig ætti að kanna möguleikana á því að nota hluta af sýningar- efni sem kjama minni safna víðs vegar um landið og bæta þá við því sem er sérkennilegt í hverju byggðarlagi eða tengja það þeim söfnum sem fyrir eru. Eiður sagðist ekki enn hafa tek- ið afstöðu til þess hvar heppilegast væri að velja slíku safni stað, en taldi Akranes koma sterklega til greina. Þingmaðurinn sagði safn af þessu tagi verða áhrifamikið fræðslutæki fyrir unga sem aldna. Hjörleifur Guttormsson (Abl/Al) sagðist hafa efasemdir um að tillaga þessi hitti naglann á höfuðið varðandi brýnar úrbætur í þessum málum. Hjörleifur sagði íslendinga hafa búið illa að söfnum sínum á þess- ari öld og áður en hann gæti tekið undir tillögu um uppbyggingu sérstaks haf- og fískveiðasafns þá ætti að standa með viðeigandi hætti að þeim stofnunum sem þeg- ar störfuðu á þessu sviði. Minntist Hjörleifur t.d. á sjóminjasafnið í Hafnarfírði. Uppbyggingu svona safns mætti líka tengja endurreisn Náttúrufræðisafns Islands. Hreggviður Jónsson (B/Rn) sagðist telja að það væri tímabært að athuga hvort ekki væri mögu- leiki á að koma upp safni af þessu tagi. Það væri mikilvægt að fólk gæti á einum stað séð alla þá hluti er tengdust sjávarútvegi. Hann spurði einnig hvort ekki væri rétt að kanna hvort hægt væri að gera þetta í samvinnu við Háskóla ís- lands. Morgunblaðið/Óiafur K. Magnússon Fjórir varaþingmenn tóku sæti á Alþingi í gær. A myndinni sjáum við þijá þeirra. Talið frá vinstri má sjá Elínu R. Líndal, Þórð Skúlason og Sigríði Lillý Baldursdóttur. Nýir þingrnenn FJÓRIR varaþingmenn tóku sæti á Alþingi í gær. Tveir þeirra, þær Sigríður Lillý Baldursdóttir og Elín R. Líndal, hafa ekki setið áður á Alþingi. Sigríður kemur í stað Þórhildar Þorleifsdóttur, Kvennalista, og Elín í stað Stef- áns Guðmundssonar, Framsókn- arflokki. Einnig tóku í gær sæti á Alþingi þeir Þórður Skúlason, í stað Ragnars Amalds, Alþýðu- bandalagi, og Níels Ámi Lund, í stað Steingríms Hermannssonar, Framsóknarflokki. Brú yfír eða göng undir Hvalfjörð um aldamót? AIMÍIGI TILLAGA frá öllum þingmönn- um Vesturlands um nýja legu Vesturlandsvegar um Hvalfjörð og Grunnafjörð kom til umræðu í sameinuðu þingi í gær. Tillag- an gerir ráð fyrir að gerðar verði nauðsynlegar rannsóknir til að kanna hversu hagkvæmt sé að gera göng undir Hvalfjörð utan við Laufásgrunn og Hnausasker eða brú í fjarðar- mynni og breyta legu Vestur- landsvegar þannig að farið sé vestan Akrafjalls um Grunna- fjörð á Fiskilækjarmela. í máli Eiðs Guðnasonar, sem mælti fyrir tillögunni, kom m.a. fram að ef allt gengi eins og best yrði á kosið ættu göng eða brú að komast í notkun um alda- mót. Matthías Á. Mathiesen, samgöngumálaráðherra, sagði tillöguna vera athyglisverða og gefa tækifæri til að kanna hvernig hagkvæmast væri að gera úrbætur á þessum vegark- afla. Eiður Guðnason (A/Vl) mælti fyrir tillögunni. Hann sagði að með þessari tillögu vildu flutnings- menn láta kanna til hlítar mögu- leikana á úrbótum í þessum málum. Taldi hann að um nánast byltingarkenndar breytingar væri að ræða á þessari fjölfömu þjóð- leið ef af þessu yrði. Vegalengdin Stuttar þingfréttir Gjaldþrotum fjölgar í svari dómsmálaráðherra til Svavars Gestssonar um nauð- ungaruppboð og gjaldþrotamál, sem lagt var fram á Alþingi í gær, kemur m.a. fram að á árun- um 1982-1987 var heildarfjöldi þeirra félaga sem voru úrskurð- uð gjaldþrota 565. Fjöldi ein- staklinga sem voru úrskurðaðir gjaldþrota var 1.528. XLeildar- fjöldi seldra fasteigna á nauð- ungaruppboðum var 858. Flest gjaldþrotanna og uppboðanna urðu á síðustu tveimur árum. Framtíðarhlutverk héraðsskóla Tillaga til þingsályktunar frá Óla Þ. Guðbjartssyni (B/Sl) og sex öðrum þingmönnum úr Al- þýðubandalagi, Borgaraflökki, Kvennalista og Framsóknar- flokki kom til umræðu í gær. Lagt er til að Alþingi skori á menntamálaráðherra að skipta nefnd til að gera tillögur um framtíðarhlutverk héraðsskól- anna. Nefndin á að vera skipuð sérfróðum mönnum og eiga þeir að vinna með stjómendum skól- anna og skólayfírvöldum í viðkomandi fræðsluumdæmi að tillögugerð um framtíðarskipan þessara skóla. í framsögu Óla Þ. kom m.a. fram að gert sé ráð fyrir því að framtíðarhlutverk þessara skóla geti verið með mismunandi hætti á hinum ýmsu stöðum á landinu en að lögð verði höfuðáhersla á tvennt. í fyrsta lagi að héraðsskólamir séu svo mikilvægar og verðmæt- ar eignir að allra leiða verði að leita til að nýting þeirra verði áfram til hagsbóta íbúum hérað- anna og f öðra lagi að sérstak- lega verði könnuð þörf strjálbýl- isins á símenntun fullorðinna með tilliti til rekstrar héraðsskól- anna í núverandi mynd. Einnig tóku til máls þau Hjör- leifur Guttormsson (Abl/Al), Kristín Halldórsdóttir (Kvl/Rn) og Alexander Stefánsson (F/Vl) og vora þau fremur jákvæð í garð tillögunnar. frá Reykjavík til Akraness myndi styttast um 61 km, 45 km styttra yrði frá Reykjavík til Borgamess og 7 km styttra milli Akraness og Borgamess. Á þessu myndu ekki bara Vestlendingar hagnast held- ur landsmenn allir. Eiður taldi úrbætur á Hvalfjarð- arvegi ganga hægt og væra enn um tólf kílómetrar með óbundnu slitlagi. Þó væri þetta mjög fjölfar- in leið. Við síðustu talningu hefði mönnum reiknast til að um Hval- fjörð færa 1100 bílar á dag. Þetta væru þó ekki alveg nýjar tölur og hefði umferð aukist mikið á síðasta ári á þessari leið. Ef veraleg stytt- ing yrði á leiðinni mætti reikna með að umferð myndi aukast um allt að 50%, ef miðað væri við hver raunin hefði orðið við tilkomu Borgarfjarðarbrúar, og allt að 2000 bílar myndu fara um vegin á dag. Eiður ræddi einnig hvemig mætti fjármagna göngin eða brúna og taldi vegatolla vel geta komið til greina. Friðjón Þórðarson (S/Vl) sagði mönnum löngum hafa fund- ist Hvalfjörður langur og talið hann þröskuld á leiðinni til Vestur- lands. Það væri nauðsynlegt að skjóta upp nýjum hugmyndum, á borð við þá um göngin, sem gætu leitt til nýrra niðurstaðna. Eyjólfur Konráð Jónsson (S/ Rvk) sagði að sér hefði strax fundist þessi hugmynd áhugaverð þegar honum var sagt frá henni. Varðandi fjármögnun minnti Ey- jólfur Konráð á að í gildi væra lög um happdrættislán vegna tveggja vega, Norðurvegar og Austurveg- ar. Því miður hefðu þau aldrei komið til framkvæmda vegna kennisetninga um að of mikil þensla væri í þjóðfélaginu á þeim tíma. Þingmaðurinn sagðist mundu styðja það að taka þessi og lög og nýta þau í breyttu formi. Eyjólfur Konráð sagðist vilja ítreka það að þetta væri ekki einkamál Vestlendinga, það væri ekki síður mál t.d. Reykvíkinga og Norðlendinga. Matthias Á. Mathiesen, sam- göngumálaráðherra, sagði þessa hugmynd vera athyglisverða og með þessari tillögu fengist vonandi tækifæri til að fá fram niðurstöðu um það, hvemig best væri og hag- kvæmast að stytta vegalengdir um þetta svæði. Skúli Alexandersson (Abl/Vl) sagði stóran hluta Hvalfjarðarveg- arins ekki vera vel uppbyggðan og óhæfan til þess að taka við hinni miklu umferð sem færi þar um. Skúli sagði að nauðsynlegt væri að fá fjármagn sem fyrst til þess að skoða þessa hluti og fá úr því skorið hvort væri heppi- legra, brú eða göng. Einnig taldi hann koma til greina að hafa feiju- leið utarlega á fírðinum. Kjartan Jóhannsson (A/Rn) sagðist hafa dreymt um brú yfír Hvalfjörð frá bamæsku og taldi að svo væri um fleiri. Hann efað- ist ekki um að sá draumur myndi rætast, spuminginn væri bara hvenær. Kjartan sagði að fyrir nokkram áram hefði verið leitað til hans og hann beðinn um að kanna hag- kvæmni feijureksturs yfir Hval- §örð. Hann hefði í byijun verið vantrúaður á það mál en síðan hefði annað komið í ljós við könn- unina. Ýmsir, t.d. á Akranesi, vildu þó ógjaman heyra á þetta minnst. Væri það vegna hræðslu um að það myndi tefja fyrir draumnum um brú eða göng og stofna rekstri Akraborgarinnar í hættu. Kjartan sagðist telja áð feijurekstur gæti þó vel komið til greina þann tíma sem menn væra að bíða eftir brú eða göngum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.