Morgunblaðið - 02.02.1988, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988
fclk í
fréttum
H AFRANN SÓKNASTOFNUN
Lífríki sjávar í hnotskum
Ianddyri gamla útvarpshússms,
þar sem Hafrannsókna stofn-
un er nú til húsa, hefur verið
komið upp fiskabúri sem ku vera
eina sjávarbúrið á íslandi, Utan
Vestmannaeyja. í búrinu er að
fínna margar tegundir dýra og
sjávarlífvera, en þeir Konráð
Þórisson og Kristinn Guðmunds-
son hjá Hafrannsóknarstofnun
hafa séð um að safna í búrið og
annast eftirlit með því. Af dýrum
sem þama er að fínna má nefna
marhnút, tijónukrabba, kuð-
ungakrabba, ígulker, beitu-
kónga, .sæbjúgu, hörpudisk,
dauðsmannshönd, hrúðurkarla
og krossfíska, sem Konráð hélt
reyndar að væru búnir að gefa
upp öndina er blaðamaður Morg-
unblaðsins leit við í síðustu viku.
Þá eru margskonar þörungar í
búrinu, t.d. þang, þari, söl, kerl-
ingarhár og kalkþörungar.
Lífsbaráttan í þessum litla heimi
er hörð. „Dýrin dafna vel þessa
stundina," sagði Konráð. „Við
þurftum að byrja allt uppá nýtt
eftir að það drapst allt í hjá okk-
ur. Það var vegna þess að búrið
var illa staðsett, - of nálægt ofni,
sem gerði að verkum að sjórinn
fúlnaði. Einu afföllin hafa verið
átt sér stað síðan eru þau að
marhnúturinn át alla sprettfísk-
ana, sjö að tölu. Það hefði verið
heppilegast að hafa tvö búr til
að geta aðskilið refina og lömb-
in. Við höfum endumýjað í
búrinu og dýrin hafa raunar gert
tilraunir til þess líka. Beitukóng-
urinn hrygndi, en það er óvíst
hvort það muni bera árangur."
Hvað með næringu ?
„Við höfum sett ljósátu, sem
líkist rækju, útí búrið og sprett-
fiskamir átu mest af henni áður
en marhnúturinn át þá. Eins
höfum við gefíð smá krabbadýr
og loðnu, en hún líkaði illa. Ann-
ars höldum við dýrunum á
horriminni til að óhreinka vatnið
sem minnst."
Dýrin og þörungamir voru tekin
í sjónum og fjörunni í Viðey.
Hitastigið í búrinu er um 9 gráð-
ur. „Það er svipað og er oft í
íjörunum þar sem flest dýrin lifa.
Fjöru- og grunnsjávardýrin þola
jafnvel enn hærri hita því það
er ekki óalgengt að sjávarhitinn
fari í 12 til 14 stig á sumrin,"
sagði Konráð að lokum.
Konráð við búrið i andyri gamla útvarpshúsins við Skúlagötu.
Sum dýrin í búrinu eru ekki alltaf fnðsamleg. Ef glöggt er skoð-
að má sjá marhnútinn horfa grimmdaraugum á tijónukrabbann,
en til átaka kom stuttu seinna. Fyrir miðri mynd er friðelskandi
hörpufiskur sem lætur sér fátt um finnast.
KÍNA
„Rokkað og rólað
ánýrri
langri göngu“
Mikil læti fylgdu í kjölfar tón-
leika sem haldnir voru í
Borginni forboðnu í Kína sl. mið-
vikudagskvöld. Þúsundir ungmenna
hrópuðu og æptu, stöppuðu og neit-
uðu að yfirgefa tónleikasvæðið. Sá
er valdur var að þessari uppákomu
var kínverska rokkstjaman Cui
Jian, sem er eins konar Bubbi Mort-
ens kínverskrar æsku. Cui Jian sló
í gegn í fyrra með laginu „Rokkað
og rólað á nýrri langri göngu“, en
hann var svo óheppinn að á tónleik-
unum sem lagið var frumflutt á var
borgarstjórinn í Peking, Chen Xi-
tong, meðal áheyrenda og líkaði
honum illa texti lagsins. í textan-
um, sem ijallar á angurværan hátt
um tilgangsleysí lífsins, er vísað til
göngunnar löngu, sem hermenn
Maós formanns fóru í á þriðja árá-
tugnum. Cui Jiang fékk að súpa
seyðið af reiði borgarstjórans því
hann var tekinn af launaskrá
Fílharmóníuhljómsveitar Peking og
honum var bannað að koma fram
annars staðar en heima hjá sér og
í einkasamkvæmum.'
Þessu banni hefur nú verið aflétt
og þykir það bera vott um tilslakan-
ir í menningarmálum í Kína. Á
miðvikudagskvöldið fékk hann að
flytja „Rokkað og rólað á nýrri
langri göngu“ á nýjan leik, og bera
viðtökumar nú merki um að vin-
sældir Jiangs hafí aukist á meðan
á banninu stóð.
Aðdáendur Cui Jiangs fengust ekki
til að hjóla heim fyrr en hann kom
aftur fram á sviðið og hvatti þá til
að drífa sig í háttinn.