Morgunblaðið - 05.02.1988, Side 20

Morgunblaðið - 05.02.1988, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988 Meðalland: Tilboð í fjarskiptabúnað ratsjárstöðva: Gengið frá út- boðsgögnum á næstunni LOKIÐ er kynningarráðstefnu vegna væntanlegs útboðs á fjarskiptabúnaði ásamt stjórnstöð fyrir fjórar ratsjárstöðvar hér á landi. Að sögn Ólafs Davíðssonar framkvæmdastjóra Frá bókaútsölu Vöku-Helgafells fyrir tveimur árum. Forlagsútsala hjá Vöku-Helgafelli Margir titlar eldri bóka á boðstólum Bókaútgáfan Vaka-Helgafell heldur um þessar mundir út- sölu á bókum, sem gefnar hafa verið út af forlögunum Vöku og Helgafelli. Á útsölunni eru á sjötta hundrað bókatitlar og eru þeir elstu frá því fyrir stofnun Helgafellsútgáfunnar, en hún var stofnuð áríð 1943 og keypti þá útgáfu nokkurra eldri bóka. Forlögin tvö sameinuðust fyrir rúmum tveimur árum og undan- fama mánuði hefur verið unnið við flokkun og flutning bókalag- ers. Við þá vinhu komu í ljós allmargir bókatitlar frá blóma- skeiði Helgafellsútgáfunnar og höfðu ýmsir þeirra verið taldir uppseldir fyrir löngu síðan. Fæst- ir þeirra titla, sem boðnir eru fram á útsölunni, fást í almennum bókaverslunum. Veittur er veru- legur afsláttur frá skráðu verði bókanna og kosta þær allt niður í 50 krónur eintakið. Útsalan er haldin í nýjum og breyttum húsakynnum forlagsins að Síðumúla 29 í Reykjavík og henni lýkur þann 17. febrúar næstkomandi. spá ótíðarkafla Hnausum í Með&llandi. HÉR í Meðallandi og Álftaveri hefur undanfaríð veríð allmikill snjór. Hefur hann þó sjatnað allm- ikið nú síðustu daga. Hefur stundum mælst hiti og þótt skammt hafi farið upp fyrir frost- mark hefur gola bætt það upp. Á nú að heita fært hér um sveitina á fólksbilum. Spámenn hér höfðu sagt fyrir um þennan ótíðarkafla, þykja fullt eins framsýnir og þeir á Veðurstofunni. Þetta er ritað á kyndilmessu. Þá þótti vita á ótíð ef sólin settist í heiði. Héðan að sjá er smá heiðríkjublettur sunn- an við Hjörleifshöfða og þar settist sólin. Gætu þvi orðið harð- indi áfram hvað þetta snertir en spámenn eru tregir með allar dagsetningar. Þegar kvóti var settur á land- búnaðarframleiðslu urðum við illa úti vegna mikilla kalára sem miðað var við. Voru bú hér yfírleitt frekar lítil þar að auki. Á fundi hér á Kirkju- bæjarklaustri fyrir rúmlega tveimur árum var okkur lofað því, af forystu- mönnum bænda er þar voru mættir, að við skyldum njóta þess í kvóta- úthlutun að vera fjærst höfnum á landinu. Annar en hefðbundinn land- búnaður kæmi hér ekki til greina nema að litlu leyti. Samkvæmt upp- lýsingum í Tímanum í fyrravor var þetta loforð framkvæmt þannig að við erum nú verst settir á landinu í kvótamálum. Nú er ráðgert að flytja gjaldheimtuna úr héraðinu að Hellu eða Selfossi og leggja sýslumann- sembættið niður. Flytja það að Hvolsvelli. Þangað eigum við svo að Morgunblaöið/Sverrir Þrjátíu eríend fyrírtæki og tuttugu íslensk, sendu fulltrúa á kynning- arrásðstefnu vegna útboðs á hugbúnaði í ratsjárstöðvar og stjómstöð sem reisa á hér á landi. fara ef við þurfum að hitta sýslu- mann. Getur það oft verið vegna einkamála. Einnig megum við síst við því að þama tapast 5 eða 6 at- vinnutækifæri út úr sýslunni. Þama á að fara að framkvæma ný lög og virðist eiga að vaða blint í sjóinn. Ekkert tekið tillit til aðstæðna sem vegalengdir skapa. Nú taka gildi ný skattalög. Er það áreiðanlega af því góða. Stað- greiðsla skatta er nauðsyn margra hluta vegna. En samtímis taka gildi ný sveitarstjómarlög. Taka sveitar- félögin þá við mörgum verkefnum sem ríkið hafði áður. Allt væri þetta í lagi ef íjármögnun væri tryggð. Svo er þó ekki. Enginn virðist vita hvemig fámennar byggðir fara út úr þessu. Þó virðast að minnsta kosti sum sambönd sveitarfélaga með- mælt þessum breytingum. En ekki þó á Austurlandi. Þeir hefðu viljað sjá fyrst hvemig nýju skattalögin verka. Og sýnist vera vitið meira. — Vilhjálmur Stjórnunarfélagið Námskeið fyrir konur í slgórn- unarstörfum Á vegum Stjórn- unarfélags ís- lands verður efnt til námskeiðs fyr- ir konur í stjórn- unarstörfum eftir helgina, 8. og 9. febrúar. Leiðbeinandi er dr. Judith Mower en hún er eigandi Dr. Judith Mow- ráðgjafarfyrir- er tækis í Syracuse í New York og sérhæfir sig í stjórnun. Mower hefur unnið á vegum margra þekktra fyrírtækja svo sem Chrysler og Philips. Á námskeiðinu verður farið í efn- isþætti á borð við: Konur í stjómun, stjómunarferlið, þróun stjómun- arstíls, ákvarðanataka — lausnir, hvatar til árangurs og að mynda vinnuhópa, að vera leiðtogi, starfs- deiling, og starfsframi. Námskeiðið fer fram á ensku og hefst kl. 9 báða dagana í Krístalsal Hótel Loftleiða og lýkur kl. 17. Veðurglöggir menn Félags íslenskra iðnrekenda, verður gengið frá útboðsgögn- nnnm á næstu vikum. Endanlegnr skilafrestur tilboða hefur ekki verið ákveðinn en verkinu á að vera lokið árið 1993. Hafnarfjörður: Ráðstefna um skólamál Áttatíu erlend stórfyrirtæki hafa verið tilnefnd sem hugsanleg- ir aðalverktakar eða stærri undir- Fræðsla um tannvernd í stórmörkuðum í TENGSLUM við tann- verndardaginn sem er í dag, 5. febrúar, verður aðstoðarfólk tannlækna í nokkrum stórmörkuðum og fræðir fólk um varnir gegn tannskemmdum. Fræðslan fer fram milli kl. 16 og 20. Auk þess halda skátar áfram kynningu sinni á gæðum vatns. Á Akureyri hafa tveir tann- fræðingar annast fræðslu alla þessa viku og í Reykjavík ætla tannfræðingar að heimsækja fæðingarstofnanir. verktakar og sóttu fulltrúar frá þijátíu fyrirtækjum ráðstefnuna sem haldin var til að kynna íslensk fyrirtæki, sem hugsanlega undir- verktaka. Ólafur sagði að ekki yrði endanlega samið við erlendan verktaka fyrr en í mars eða apríl á næsta ári. „Við vonum að er- lendu aðilamir muni í millitíðinni hafa samband við þau íslensku fyrirtæki sem áttu fulltrúa á ráð- stefnunni, og komi á sambandi milli fyrirtækjanna sem fyrst," sagði Olafur. „Það samband er reyndar þegar komið á milli nok- kurra fyrirtækja." Ólafur sagði það óvenjulegt að kynningarráðstefna sem þessi væri haldin. Ráðstefnan var því einnig nýlunda fyrir fulltrúa er- lendu fyrirtækjanna sem flestir höfðu ekki komið til landsins áð- ur. „Ég held að það hafí tekist mjög vel að sýna þeim fram á að hér væri heilmikil þekkin og kunn- átta fyrir hendi sem lýtur að þessu verki,“ sagði Ólafur. „Ég held að ráðstefna hafí tekist vel og ég heyrði á erlendu aðilunum að þeir voru ánægðir með dvölina.“ RÁÐSTEFNA um framhalds- skólamál, fyrirkomulag og framtíðarstefnu framhalds- menntunar i Hafnarfirði verður haldin i Flensborgar- skólanum laugardaginn 6. febrúar. Á ráðstefnunni verður fjallað um eftirfarandi atriði: 1. Hvemig má best tryggja Qöl- breytt námsframboð á framhalds- skólastigi í Hafnarfirði og hvemig er réttast að dreifa því á skóla, einn skóli, tveir skólar? 2. Með hvaða hætti er best að koma til móts við óskir og þarfír framhaldsskólanema í Hafnarfirði og hvemig er réttast að dreifa því á skóla, jafnt á verklegu sem bóklegu sviði og efla áhuga þeirra og metnað í náminu? 3. Hvað þarf að gera til að veita þessum nemendum góða aðstöðu og umhverfi til félagslegra starfa? 4. Hvaða fyrirkomulag er hag- kvæmast fjárhagslega og náms- lega í starfí og skipulagi framhaldsmenntunar í Hafnar- fírði miðað við þá framtíðarsýn sem nú blasir við mönnum í þess- um efnum? 5. Hvemig má stuðla að sam- starfí og efla það við nágrannafé- lög Hafnarfjarðar um framhalds- skólamenntun? Á ráðstefnuna er sérstaklega boðið bæjarfulltrúum í Hafnar- firði, skólanefnd Hafnarfjarðar, skólanefnd Iðnskólans og fulltrú- um frá menntamálaráðuneytinu, Flensborgarskóla, Iðnskóla Hafn- arfjarðar, Fiskvinnsluskólanum, Iðnfræðsluráði, Sambandi iðn- fræðsluskóla, atvinnulífinu og nágrannasveitarfélögum Hafnar- fjarðar þ.e. Garðabæ og Bessa- staðahreppi. Ráðstefnan hefst kl. 10.00 með því að Guðmundur Ámi Stefáns- son bæjarstjóri setur ráðstefnuna. Síðán flytja framsöguerindi Birgir ísleifur Gunnarsson menntamála- ráðherra, Kristján Bersi Ólafsson skólameistari Flensborgarskóla, Steinar Steinsson skólastjóri Iðn- skóla Hafnatfyarðar, Sveinn Sigurðsson framkvæmdastjóri, frá Vinnuveitendasambandi ís- lands og Hjálmar Ámason skóla- meistari, frá Sambandi Iðn- fræðsluskóla. Eftir framsöguerindi verður hádegisverður og kl. 13.00 hefjast síðan frjálsar umræður sem standa til kl. 16.00. Ráðstefnan er haldin á vegum bæjarstjómar Hafnarfjarðar en hún kaus þá Guðjón Tómasson, Hörð Zóphaníasson og Kristján Bersa Ólafsson í nefnd til að ann- ast undirbúning og framkvæmd hennar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.