Morgunblaðið - 05.02.1988, Side 35

Morgunblaðið - 05.02.1988, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGÚR 5. FEBRÚAR 1988 35 Nei, ráðherra eftirEinar Bjarnason Hr. dómsmálaráðherra, Jón Sig- urðsson. Að loknu talsverðu harðbráki var í júlí 1986 undirritaður viðamikill kjarasamningur milli LL og ríkis- valdsins. Að mínu mati var hann viðunandi og eftir að hafa kynnst þeirri efndafælni sem hann veldur Amarhvolsfjölskyldunni, hef ég styrkst í þeirri trú. Hitt er svo önn- ur saga, að mínum ágætu lands- feðrum hefur ekki þóknast að standa við sinn hlut enn sem komið er, og hafa þó ekki getað bent á veilur varðandi frágang og orðalag gjömingsins. Siðferði og samningar 1. Stórfelldar vanefndir em varð- andi Lögregluskóla ríkisins. 2. Samningur um kauptryggingu gegn afnámi verkfallsréttar ar í rúst. 3. Réttindalausir menn hafa verið teknir fram yfír fólk með víðtæka reynslu og gilda starfs- menntun. 4. Starfskjör einstaklinga hafa ver- ið færð niður fyrir það, sem gildandi samningarsegjatil um. 5. Geðþótti er látinn ráða því, hvort stöður em auglýstar. 6. Samið hefur verið við einstakl- inga í blóra við stéttarfélagið. Friðarpípan Minnugur þess, að oft verður málum best borgið ef hávaðalaust em rekin, rölti ég til þín snemma á hausti, kærði sumar þessara van- efnda og bað um leiðréttingu. Ég fékk hlýjar móttökur og þú sagðist skilja vandann. Samt bar fátt til tíðinda á þeim fundi enda var hvorki já eða nei í munni ráðherra míns þá stundina. Ég gladdist yfír að heyra um þann forgang, sem ýmis þörf mál njóta nú um stundir, enda sagðir þú nauðsyn bera til. En er sú nauðsyn svo rík, að hún ógildi orð og gerðir stjómvalda? Til hvers í ósköpunum eru menn þá að berjast við að gera samninga og hvernig í dauðanum á að staðfesta þá, ef undirskrift- ir eru markleysan ein? En vegna þíns nauma tíma varð fundur okkar skammur, og vera má að röksemdir mínar hafí ekki skilað sér. Þess vegna kæri ég nú öðru sinni og þá opinberlega þessi samningsrof, fyrir þér, æðsta yfír- manni í dóms- og lögreglumálum íslendinga. í þetta skipti er aðeins kæra á ferð. Bónin er horfín mér af tungu. Sá skaði, sem nú er skeð- ur, verður seint bættur, og svo undarlega hefur við brugðið, að þótt friðarpípa lögreglumanna sé nú týnd, þá leitar hennar eng- inn. Menntun Stærsta atriðið í öllum samn- ingunum voru úrbætur, sem gera átti við Lögregluskóla ríkisins. Og hveijar eru svo efndimar? Jú, alla viðleitni ber að meta, smávegis lagfæringar hafa verið gerðar, en sé miðað við þá erfíðleika sem auk- inn nemendafjöldi skapar, heldur skólinn varla í horfínu. Enginn fastur starfsmaður er við stjórn- un, því síður við bóklega kennslu. Menn, yfírhlaðnir öðmm störfum, eiga að sjá um skólahaldið. Að sinna í hjáverkum áttatíu og átta nemend- um, sem troðið var inn í tvær litlar stofur jjetur varla verið heiglum hent. Eg efast ekkert um góðan vilja kennaranna, en geti þeir kom- ið frá sér eðlilegri fræðslu við þessar aðstæður er tími kraftaverkanna hreint ekki liðinn. Verkfallsréttur Með samningnum fengu lög- reglumenn launahækkun, verð- tryggða eftir ákveðinni reglu. Þar var því um að ræða starfsmat, sem menn sættu sig við og staðfestu með undirskrift. Trygginguna skyldi reikna á sex mánaða fresti. A móti samþykktu lögreglumenn að verkfallsréttur þeirra skyldi af- numinn. Það var mörgum sárt. í augum verkafólks er sá réttur því sem næst heilagur. Þrátt fyrir það, var ég á engan hátt ófús til samkomulagsins, og held ég þó, að gildi verkfallsréttar sé mér sæmi- lega ljóst. Mín sjónarmið eru nefnilega svo gamallar gerðar að mér fínnst siðlítið að bjóða almenn- ingi upp á það öryggisleysi sem skapast í verkfalli lögreglunnar. Ég var ekki eini löggæslumaður- inn, sem hafði þá skoðun. Okkur fínnst nefnilega, ágæti ráðherra, að heimurinn fari harðn- andi þessi árin. Þrátt fyrir störf okkar fara ofbeldismenn lausir og misþyrma fólki. Þrátt fyrir um- ferðarátak eru slysin mörg og hörmuleg. Þeir, sem þekkja bakhlið þjóðfélagsins, horfa án bjartsýni til þeirrar stundar, þegar „löggan" gefst upp og fíkniefnasalinn erfir landið. Mín stétt hefur viljað frið, hr. ráðherra, og hún heldur samn- inga. Hvað ríkisvaldið hefur í hyggju veit ég ekki. Orðheldnin liggur hins vegar ljós fyrir. Kaup- tryggingin hefur aldrei verið reikn- uð út, a.m.k. ekki á umsaminn hátt. Það sem verra er, á þeim snautlegu pappírum, sem þó hafa borist, má blekkingu fínna, og hana ekki af smærri sortinni. Hvort er nú uppris- inn kaupmaðurinn, sem eitt sinn sagði: „Mældu rétt, strákur"? Nei, ráðherra Lögreglan er þjónn fólksins, hennar æðsta skylda er að vaka yfír öllum almennum mannréttind- um. Henni ber að gæta hlutleysis og umfram flest annað hefur hún það hlutverk að stilla til friðar og sýna ekki sjálf meiri hörku en nauð- syn ber til. Því miður hefur það ekki ætíð gengið sem skyldi, enda Einar Bjarnason „Meginþorri þjóðarinn- ar lítur á okkur sem manneskjur en ekki sem valdsmenn. Ef það viðhorf breytist, geng ég út af lögreglustöð- inni í Reykjavík. Það eitt væri enginn skaði, en vertu viss, ég verð ekki einn á ferð.“ eru tvíþætt hlutverk ekki auðleikin. Samt eru verri tímar í nánd. Hver, sem heyra vill eða sjá, gerir sér grein fyrir því að nú eru fleiri hnífar á lofti en áður. í þeirri vopnuðu eiturefnaveröld sem við blasir stytt- ist í að lögreglan neyðist til að taka upp hertar starfsaðferðir. Undir það er hún ekki búin og vill sannarlega sleppa við þá þróun. Um það verður þó ekki spurt. Tímans hjól er nokk- uð fast í rásinni. Með þá framtíðarsýn sömdum við um betri starfsmenntun. A þann eina veg getum við ef til vill staðið af okkur aukinn vanda. Á þann eina veg getum við gert okkur einhveijar vonir um að viðhalda sæmilegu trausti borgaranna. Auð- vitað má spyrja sem svo: Geta ekki mannaskammimar sætt sig við svipað „rigti" og löggustrákamir í Moskvu og Chicago, þetta er jú sama starf og áþekkt úniform. Þessu er fljótsvarað: Nei, ráð- herra. Islensk lögregla er handhafí ómetanlegra auðæfa. Auðæfa, sem erlendir stéttarbræður öfunda hana af og myndu kaupa dým verði, ef unnt væri. Við erum hluti hóps- ins. Meginþorri þjóðarinnar lítur á okkur sem manneskjur en ekki sem valdsmenn. Ef það viðhorf breytist, geng ég út af lögreglustöð- inni í Reykjavík. Það eitt væri enginn skaði, en vertu viss, ég verð ekki einn á ferð. „Glík skulu gjöld gjöfum“ Samningurinn frá árinu 1986 er orðinn lélegur. Enginn pappír, þótt löggiltur sé, þolir slík skakkaJföll. Samt sinnir Iögreglan skyldum sínum, enda ekki þakkarvert. Þó má nú reikna með áherslubreyt- ingu. Við þekkjum enga menn jafn fjölhæfa í að túlka samninga eins og einmitt þá, sem yfirvöld hafa sett til þeirra verka. Þessa menn hyggjumst við nú taka til fyrir- myndar. Það verður erfítt, við emm aðeins meðal-Jónar og því ekki eins brattgengir og þeir „Glæsivalla- menn“. En er nokkuð athugavert við það þótt lögreglan aðlagi sig nýjum siðum og túlki skyldur á hliðstæðan hátt og yfirvöld túlka réttindi? Hr. ráðherra. Stefna, sem leitt hefði til aukins öryggis, er í sand mnnin. Ný samn- ingagerð gæti orðið nauðsynleg fyrr en sumir hyggja. Þá munu lögreglu- menn mæta til leiks með þau sannindi í huga að sáttmáli um langtímafrið hefur verið brotinn niður. Þeir munu koma með spum- ingu: Höfðu þeir, sem svo stóðu að verki, fengið til þess umboð frá húsbónda sínum, þjóðinni? P.s. Stjóm Landssambands lög- reglumanna biður fyrir kveðjur! Höfundur er aðalvarðstjóri ílög- regluliði Reykjaríkur og formað- ur Landssambands lögreglu- manna. Aðeins tveimur einvígjum ólokið SKÁK Karl Þorsteins Aðeins tveimur áskorenda- einvígjum er nú ólokið í Saint John í Kanada að afloknum sex einvigisskákum. Vitaskuld ber þar hæst einvígi Jóhanns Hjart- arsonar og Viktors Kortsjnojs. Hitt cinvígið er milli Sokolovs frá Sovétrílg' unum og heima- mannsins Spraggetts. Fyrri aukaeinvigisskákunum , gær lauk báðum með jafntefli og verða þær síðari tefldar í dag, föstudag. Ef enn verður jafnt kemur til bráðabana þar sem umhugsunartíminn er skertur frá því sem nú er. Sigurvegurunum í einvígjunum í Saint John verður raðað á ný til einvígistaflmennsku. Við þann hóp bætist fyrrverandi heims- meistari, Anatoly Karpov, og má búast við að taflmennskan hefjist fyrri hluta sumars. En lítum aðeins á þau einvígi sem lokið er í Saint John. Vita- skuld hafa önnur einvígi í Saint John fallið í skuggann af tafl- mennsku Jóhanns og Kortsnojs og er ætlunin að bæta aðeins úr því hér. Taflmennskan var nefni- lega bráðskemmtileg í flestum einvígjunum. Speelman sigraði Seirawan af öryggi. Lokastaðan varð fjórir vinningar gegn einungis einum. Speelman hefur mjög sérstæðan skákstíl, kannski líkt og útlit hans gefur til kynna. Skákskilningur hans er djúpstæður og tafl- mennskan oft snilldarleg. Að mínu viti hefur hann alla möguleika til að ná langt í áframhaldinu. í ein- víginu nú var Speelman ekki alls kostar ánægður með taflmennsk- una, áleit heppni ásamt betri taflmennsku í tímahraki hafa or- sakað sigurinn. Portisch lagði Vaganjan af velli, 3V2—2V2. Einvígið þótti heldur bragðdauft. Fyrstu tvær jafnteflisskákirnar voru heldur snubbóttar. Portisch sigraði næst í einni skák og hélt jöfnu í þeim sem eftir voru. Portisch á vissu- lega heiður skilinn fyrir sigurinn. Hann var ekki álitinn sigurstrang- legur fyrir millisvæðamótið í Szirak í sumar. Lenti þar í þriðja til fjórða sæti og öðlaðist rétt til þátttöku í Saint John með því að bera sigurorð af Nunn í sérstöku einvígi um þátttökuréttinn. Þrátt fyrir að hann sé kominn af létt- asta aldursskeiði er hann enn vís til afreka og engin ástæða til að afbóka hann strax fyrir næstu einvígislotu. Einvígi Timmans og Salovs vakti mikla athygli. Þrátt fyrir að Timman hafi lengi verið álitinn meðal sterkustu skákmanna heims hefur honum aldrei fyrr tekist að komast eitthvað áleiðis í keppninni um heimsmeistara- tignina. Eftir jafntefli í fímm fyrstu einvígisskákunum nú, þar sem Timman stóð öllu betur í flestum skákunum, gerðu menn því skóna að líklegast væru það örlög Hollendingsins snjalla að sitja úti í kuldanum. Með snjallri taflmennsku í lokaskákinni tókst honum þó að sigra og er ekki annað hægt en að spá honum velgengni í næstu einvígislotu. Nigel Short er spáð miklum framgangi í skákheiminum. Sax frá Ungveijalandi varð honum líka engin hindrun. Short sigraði í tveimur fyrstu skákunum og jafntefli varð í þremur hinum næstu. Taflmennskan þótti litrík og skemmtileg og verður gaman að fylgjast með Short í fram- haldinu. Ehlvest frá Eistlandi er gjaman nefndur arftaki Keres í heimal- andi sínu. Taflmennskan er hvöss, en bar ekki árangur í þetta sinn gegn yfírvegaðri taflmennsku Ju- supovs. Jusupov sigraði örugg- lega, hlaut 3V2 vinning gegn IV2. Hann hefur þungan skákstíl, sem hentar vel þegar til einvígishalda er komið. Nóg um einvígistaflmennskuna að sinni. Margt ánnað ér á boð- stólum fyrir skákáhugamenn í Saint John þessa dagana. Tvö mjög sterk opin skákmót eru á dagskrá. Annað mótið stendur nú yfír og meðal þátttakenda eru fjöl- margir stórmeistarar og tveir íslenskir skákmeistarar, þeir Jón Garðar Viðarsson og Áskell Öm Kárason. Hið síðara byijar 8. fe- brúar og verða Helgi Ólafsson, Margeir Pétursson og Karl Þor- steins væntanlega þar á meðal keppenda. Heimsmeistaramót í hraðskák er einnig á næstunni 0g úrslita- keppnin verður 20. febrúar. 36 skákmeistarar munu tefla þar. Þar á meðal keppenda verða allir sterkustu skákmeistarar heims. Gary Kasparov heimsmeistari og Anatoly Karpov eru þar skráðir til leiks. Allir keppendumir í ein- vígjunum nú eiga rétt til þátttöku og nú standa yfír undanrásir fyrir þau sæti sem aflögu eru enn. Helgi Ólafsson tryggði sér um daginn eitt af þeim sætum er hann lenti í öðru sæti í mjög sterku hraðskákmóti. Helgi hlaut I8V2 vinning af 24 mögulegum, en sigurvegarinn var Noguaires, stórmeistari frá Kúbu, hlaut 19 vinninga, á meðal fómarlamba Helga var stórmeistarinn Torre, sem lagður var að velli í einstak- lega skemmtilegri skák sem hér fer á eftin Hvitt: Helgi Ólafsson Svart: Torre 1. Rf3 - d5, 2. g3 - Rf6, 3. Bg2 - c6, 4. 0-0 - Bg4, 5. d3 - Rbd7, 6. Rbd2 - e6, 7. e4 - Bd6, 8. h3 - Bh5, 9. I?el - 0-0, 10. Rh4! Möguleikar hvíts liggja til kóngssóknar. Riddaraleikurinn er fyrsta skrefið í þeim hugleiðing- um. 10. - He8, 11. Rf5 - Bf8, 12. b3 - Bg6, 13. De2 - dxe4, 14. dxe4 - Rc5, 15. g4 - Dc7, 16. Bb2 - Re6, 17. Rc4 - Rf4 Fljótt á litið virðast möguleikar svarts vera ákjósanlegir. Riddar- inn hefur fengið góðan reit, sem hann verður ekki hrakinn frá. í framhaldinu gætir Torre sín hins vegar ekki sem skyldi. 18. Df3 - Rxg2, 19. Kxg2 - b5, 20. Rce3 - Rd7, 21. h4 - f6, 22. h5 - Bf7, 23. Hadl - Rc5, 24. g5! a b c d • I 0 h Taflmennskan er bráðskemmti- leg. Peðum er fómað til þess að ryðja leiðina að svarta kónginum. 24. - fxg5, 25. h6 - g6, 26. Rg7 - Bxg7, 27. hxg7 - Re6, 28. Rg4 - Rf4+, 29. Kh2 - Kxg7, 30. Dc3! Hvítur hótar nú 31. Dxe5+ og 31. Rxe5. Við því er engin vöm. 30. - b4, 31. Dxe6+! - Dxe5, 32. Bxe5+ - Kf8, 33. Hd7 - Had8, 34. Hfdl - Hxd7, 35. Hxd7 - Be6, 36. Bg7+ Torre gafst hér upp. Hann er mát í næsta leik. I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.