Morgunblaðið - 16.03.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988
27
Þing norrænu MS-félaganna:
MS-félagi Islands
boðin aðild að evr-
ópskri samvinnu
í TILEFNI 20 ára afmælis félags MS-sjúklinga á íslandi var árlegt
þing norrænu MS félaganna haldið í Reykjavík dagana 11. til 12.
mars. Hefur MS-félagi Islands verið boðin þátttaka i evrópskri sam-
vinnu og munu fulltrúar félagsins sækja fund í Brussel af þvi tilefni.
Á þinginu vöruðu sænsku fulltrúarnir við skottulæknum.
„Það sem einkenndi þetta þing
var almennur vilji norrænu félag-
anna til að efla samvinnu og tengsl
sín á milli," sagði GyðaÓlafsdóttir,
for maður íslenska MS-félagsins,.
Sextán fulltrúar sátu þingið, sem
var haldið á dagvistarheimil MS-
félagsins að Álandi 13. Dagvistar-
heimilið'sækja milli 15 og 20 sjúkl-
ingar, daglega en deildin var opnuð
fyrir um tveimur árum og hefur
sýnt sig að þörfin er mikil og fer
vaxandi að sögn Gyðu.
Finnska MS-félagið hefur nýlega
opnað deild fyrir 50 MS-sjúklinga,
þar sem einnig er dagvist til húsa.
Danir reka tvö sérhæfð sjúkrahús
fyrir MS-sjúklinga og hafa auk
þess opnað hús í Kaupmannahöfn,
þar sem MS-sjúklingar geta dvalið
yflr daginn. Sænska MS-félagið
heyrir undir sænska öryrkjabanda-
lagið og var á þinginu gerð grein
fyrir framkvæmdum og starfsemi
liðins árs.
Að sögn Gyðu hafa svokallaðir
skottulæknar haft fé af MS-sjúkl-
ingum í Svíþjóð en margir MS-
sjúklingar, sem og aðrir er haldnir
eru ólæknandi sjúkdómum, eru auð-
Morgunblaðið/ÓI.K.M.
Þingfulltrúar á norrænu þingi MS-félaga, sem haldið var í Reykjavík í tilefni 20 ára afmælis MS-
félags Islands.
veld bráð fyrir óprúttið fólk. Sagði
hún að því miður yrðu sjúklingar
hér á landi einnig fyrir áhrifum
skottulækna ekki síður en erlendis.
MS-félag íslands er aðili að al-
þjóðlega MS-félaginu og sendir full-
trúa á fund árlega. Stjórn félagsins
skipa Gyða Ólafsdóttir formaður,
John Benedikz, en hann er er jafn-
framt trúnaðarlæknir dagvistar,
Sigurbjörg Ármannsdóttir ritari og
Elín Herdís Þorkelsdóttir gjaldkeri.
Islandsmeistaramót í samkvæmisdönsum:
Tvö hundruð og
fjömtíu pör kepptu
DANSRÁÐ íslands stóð fyrir íslandsmeistarakeppni í samkvæmis-
dönsum í flokkum barna, unglina og fullorðinna um helgina.
Börn 7 til 13 ára kepptu á Hótel íslandi á laugardag og á sunnu-
dag var keppt í flokkum unglinga og fullorðinna i Laugardals-
höU. Alls kepptu 240 pör frá 6 dansskólum á landinu i 20 flokkum.
Keppnin var nú haldin í þriðja
sinn og hefur fjöldi keppanda
meira en tvöfaldast á þeim þrem-
ur árum. Að sögn Hermanns
Ragnars Stefánssonar, forseta
Dansráðs, hefur áhugi á dansi
stóraukist. Hafa keppendur einnig
tekið stórstígum framförum á
þessum tíma. Hermann sagði
marga þeirra æfa dans eins og
íþróttir og þá léti árangurinn ekki
á sér standa.
Yfirdómari í keppninni var John
Knight, ásamt breska parinu Mic-
hael Sandham og Marie Pownall,
sem sýndi suður-ameríska dansa
báða dagana. Danssýningar voru
frá balletskólum síðari keppnis-
dag auk þess sem sigurvegaramir
frá deginum áður sýndu.
Keppt var í sígildum samkvæm-
isdönsum og suður-amerískum
dönsum. í flokki 7 ára og yngri
sigruðu Brynjar Öm Þorleifsson
og Sesselja Sigurðardóttir í báð-
um greinum. Sömuleiðis sigruðu
Davíð A. Einarsson og Jóhanna
E. Jónsdóttir í báðum greinum í
flokki 8-9 ára. íslandsmeistarar í
sígildum samkvæmisdönsum í
flokki 10-11 ára urðu Viktor Vikt-
orsson og Drífa K. Þrastardóttir
og í suður-amerískum dönsum
urðu Óskar Oskarsson og Fríða
Ros Valdimarsdóttir hlutskörpust.
í flokki 12-13 ára sigruðu Edgar
K. Gapunay og Rakel Ýr ísakson
í báðum greinum. Sigurvegarar í
flokki 14-15 ára í báðum greinum
urðu Ragnar Sverrisson og Hildur
Yr Amarsdóttir. í flokki 16-24
ára urðu Þröstur Jóhannsson og
Sólveig Þorarinsdóttir hlutskörp-
ust í báðum greinum. í flokki
25-34 sigruðu Reynir Arngríms-
son og Auðbjörg Arngrímsdóttir
í báðum greinum. í flokki 35-49
ára urðu Jón Stefnir Hilmarsson
og Berglind Freymóðsdóttir ís-
landsmeistarar í báðum greinum.
í flokki 50 ára og eldri sigmðu
Gísli Svanbergsson og Margrét
Hákonardóttir í sígildum sam-
kvæmisdönsum en Arngrímur
Marteinsson og Ingibjörg Sveins-
dóttir í suður-amerískum dönsum.
í flokki kennara urðu Jón Pétur
Úlfljótsson og Kara Amgríms-
dóttir íslandsmeistarar í báðum
greinum.
Guðmundur Sigurðsson og Bergþóra Þorsteins-
dóttir keppa í suður-amerískum dansi. Þau urðu
í 2. sæti í flokki 35-49 ára.
Jón Þór Antonsson og Esther Inga Söring í suð-
ur-ameriskum dansi.
Þessar ungu dömur notuðu tækifærið til að æfa sig meðan full-
orðna fólkið keppti.
Morgunblaðið/BAR
Jón Stefnir Hilmarsson og Berglind Freymóðsdóttir, tvöfaldir
íslandsmeistarar I flokki 35-49 ára.