Morgunblaðið - 29.04.1988, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988
Selkórinn á œfingu undir stjórn Friðriks V. Stefánssonar.
Selkórinn með tónleika
SELKÓRINN á Selljarnamesi heldur hina árlegu dóttir, stjómandi er Friðrik V. Stefánsson, undirleik-
tónleika sína fyrir styrktarfélaga og aðra söng- ari er Jónína E. Ámadóttir og nemendur Tónlistar-
unnendur laugardaginn 7. maí kl. 17.00 og sunnu- skóla Seltjamamess taka einnig þátt í tónleikunum.
daginn 8. maí kl. 17.00 i sal Tónlistarskóla Selt- Hinn árlegi vordansleikur Selkórsins verður svo
jamamess. haldinn í kvöld í Félagsheimili Seltjamamess. Hljóm-
sveitin Kaktus heldur uppi Qörinu frá kl. 22.00—
A flölbreyttri efnisskrá eru bæði innlend og erlend 03.00. Kórféiagar bregða á leik að venju.
lög. Einsöngvari með kómum er Hulda Guðrún Geirs- (Fréttatílkynnlng)
Hótel ísland:
Þröstur Steinþórsson Reykjavíkurmeistari í bogfimi '85, '86 og ’87.
Afla fjár með
maraþonbogfimi
BOGFIMIDEILD íþróttafélags
fatlaðra Reykjavík og nágrenni
hefur ákveðið að standa fyrir
Maraþonbogfimi dagana 30.
april og 1. maí nk. í fjáröflunar-
skyni.
Maraþonið stendur yfír í 24
klukkustundir, frá kl. 11 f.h. á
laugardaginn 30. apríl til kl. 11
f.h. á sunnudaginn 1. maí. Meðan
á maraþonbogfíminni stendur
verður hægt að gefa áheit í síma
27080.
Hveragerði:
Varmá ófögur á að líta
Vorferð barna-
starfs kirkjunnar
á Selljarnarnesi
BARNASTARFI kirkjunnar á
Seltjarnaraesi lýkur á laugardag-
inn, þann 30. aprfl, með vorferða-
lagi.
Farið verður frá kirkjunni kl. 1
e.h. en bömin eru beðin að mæta
15 mínútum fyrr. Ferðinni er heitið
upp í Vindáshlíð, þar sem farið verð-
ur í leiki og borðaðar pylsur. Þar
verður einnig helgistund fyrir bömin
í kirkjunni.
Pylsur og drykkir verða í boði
safnaðarins, en bömin mega gjaman
taka með sér nesti, svo og bolta og
önnur létt leiktæki. Auk þess þurfa
bömin að koma með 250 krónur fyr-
ir rútufargjaldi.
Öll böm eru velkomin í þessa vor-
ferð, en böm yngri en 5 ára þurfa
að koma í fylgd með foreldrum eða
eldri systkinum en vitanlega eru allir
foreldrar velkomnir að taka þátt í
ferðinni. Gert er ráð fyrir að koma
f bæinn um kl. 18.
(Fréttatilkynninff)
Hveragerði.
GEYSILEG úrkoma var í Hvera-
gerði á mánudag og aðfaranótt
þriðjudags og var Varmá, sem
rennur f gegnum bæinn, ófögur
á að lfta.
Varmá flytur vatn a.m.k. þriggja
áa til sjávar auk smærri lækja.
M.a. fellur í hana Hengladalsá, en
mikill snjór er nú að bráðna af
Hellisheiði.
Nýja ræsið sem byggt var á
Varmá árið 1986 í stað brúarinnar
sem lengi hafði prýtt staðinn, fyllt-
ist-alveg í morgun og barst krapa-
hröngl alveg uppundir handriðið.
Göngubrú sem er neðar á ánni, við
Fagrahvamm, tók af og er það í
annað sinn á þessu vori.
íbúar Hveragerðis hafa fjöl-
mennt til að fylgjast með flóðinu í
ánni og margir hafa óttast um böm-
in sem eiga leið yfír ræsið á leið
til sundlaugarinnar, en sum þeirra
Á myndinni sést hvar ræsið á Varmá er að fara í kaf. Ef rignt hefði
öllu lengur hefði vegurinn við ræsið farið f sundur að sögn kunnugra.
hafa farið all óvarlega miðað við
þá hættu sem þeim stafar af vatns-
straumnum. Er ástæða fyrir for-
eldra að vara bömin við því að vera
að príla í bökkum árinnar.
- Sigrún
Ðe Lónlí Blú Bojs
leikur fyrir dansi
Kórtónleik-
ar í Breið-
holtskirkju
KÓR Átthagafélags Stranda-
manna heldur tónleika í Breið-
holtskirkju f Mjóddinni á morg-
un, laugardag, kl. 15.
Dagskrá tónleikanna verður
Qölbreytt. Með kómum koma fram
einsöngvarar og einnig kemur
fram tvöfaldur kvintett úr Mos-
fellsbæ.
Kórinn hélt sfðast tónleika í maí
1983 en hefur komið fram á
skemmtunum Átthagafélagsins
árlega.
Stjómandi kórsins er Erla Þór-
ólfsdóttir, undirleikari Úlrik Óla-
son og formaður kórsins er Matt-
hildur Sverrisdóttir.
(Fréttatilkynning)
Þorbjörg Höskuldsdóttir við eitt verka sinna.
Morgunblaðið/BAR
Þorbjörg Höskuldsdóttir
sýnir í Gallerí Borg
ÞORBJÖRG Höskuldsdóttir hefur
opnað sína áttundu einkasýningu
og verður hún f Gallerí Borg,
Pósthússtræti.
Þorbjörg Höskuldsdóttir stundaði
nám við Myndlistaskólann í
Reykjavík 1962—66, síðan við Lista-
akademíuna í Kaupmannahöfn
1967—71 og lagði stund á olíumál-
un, grafík og leikmyndagerð.
Sýning Þorbjargar er opin frá
klukkan 10 árdegis til sex síðdegis
en milli klukkan tvö og sex laugar-
daga og sunnudaga.
(Fréttatilkynning)
HUÓMSVEITIN Ðe Lónlf Blú
Bojs, sem undanfarið hefur
ísbrjóturimi
Northwind-
í Reykjavík
ISBRJ ÓTURINN Northwind
kom til Reykjavíkur í gær og
verður hér í fjóra daga. North-
wind, sem er stjórnað af Ken-
neth J. Morris skipherra, verður
að störfum f grennd við ísland
í tengslum við rannsóknarverk-
efni sem nefnist Arctic East
Summer 88. Verður þetta
sfðasta verkefni skipsins en það
verður tekið úr notkun f nóv-
ember.
Skipið kemur til Reykjavíkur til
að taka um borð tækjabúnað og
vísindamenn sem gera munu rann-
sóknir á hafísnum norður af
landinu. Munu vísindamennimir
dvelja um tveggja vikna skeið á
ísflákanum og þann 27. maí mun
Northwind flytja þá aftur til
Reykjavíkur.
skemmt gestum veitingahúss-
ins Hollywood, leikur fyrir
dansi á Hótel íslandi í kvöld og
annað kvöld og um hveija helgi
í maímánuði nk.
Hljómsveitina skipa Gunnar
Þórðarson, Engilbert Jensen,
Björgvin Halldórsson og Rúnar
Júlíusson. Aðstoðarmenn þeirra
eru Gunnlaugur Briem trommu-
leikari og Eyþór Gunnarsson
hljómborðsleikari.
Hljómsveitin Ðe Lónlí Blú Bojs
var mjög vinsæl á síðasta áratug.
Sveitin gaf út hljómplötur og náðu
sum laganna miklum vinsældum,
svo sem Harðsnúna Hanna og
Heim í Búðardal. Hljómsveitin var
nýlega vakin af 10 ára dvala og
kom fram í Hollywood við slíkar
vinsældir, að ákveðið var að hún
kæmi fram á Hótel íslandi um
helgar út maímánuð.