Morgunblaðið - 01.05.1988, Page 22

Morgunblaðið - 01.05.1988, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1988 Ég er eins og farandriddarinn VIÐTAL VIÐ FRANSKA LJÓSKÁLDIÐ JEAN-LOUIS DEPIERRIS Franska ljóðskáldið Jean-Louis Depierris á heimili sínu í Reykjavík, þar sem hann er nú menninjrarfulitrúi í franska sendiráðinu. Franska ljóðskáldið Jean-Louis Depierris er um þessar mundir menningarfulltrúi franska sendiráðsins í Reykjavík. Depierris er þekkt ljóðskáld, sem hefur hlotið eftirsótt verðlaun ljóðskálda í Frakklandi, m.a. René-Guy Cadou verðlaunin 1961 ogPrix Antonin Artaud 19 71 og nú síðast bókmenntaverðlaun Academie des lettres Pyréneennes 1984. í Frakklandi hafa komið út eftir hann 10 ljóðabækur, auk fjölda annarra rita um menningarmál, m.a. gagnrýni- og viðtalsbækur, enda starfaði hann um árabil hjá franska útvarpinu sem gagnrýnandi og við menningarþætti, hafði umsjón með endurskoðun á merkingu um 70 þúsund franska orða við útgáfu Grand Larousse orðabókarinnar frönsku og var fyrr á æfínni viðriðinn áberandi bókmenntahópa og við útgáfu bókmenntarita í því sambandi. Síðan hann kom til íslands hafa þessi víðtæku tengsli iðulega vel nýst, því af fyrmefndu leiðir að hann virðist þekkja persónulega flest það fólk sem framarlega hefur staðið í Iistum og bókmenntum í Frakklandi á löngu árabili. Skemmst að minnast að slík tengsli urðu til þess að fá hingað með sýningu franska listmálarann Soulages og í haust til fyrirlestrahalds einn þekktasta sagnfræðing Frakka, Georges Dupy, og hann hefur gengist fyrir þýðingum og birtingu á íslenskum ljóðum í tímariti evrópskra ljóðskálda. Fréttamanni Mbl. þótti því hæfa að nálgast M. Depierris ogræða við hann. TEXTI: ELÍN PÁLMADÓTTIR Jean-Louis Depierris hittum við á heimili hans og konu hans Djurdju, sem er júgó- slavnesk, í Þingholtunum í Reykjavík. Hann kvaðst þekkja lítið til íslenskrar ljóðlistar, verða enda að lesa^ ljóðin í þýðingu, en hafa dálæti á íslendingasögun- um og skáldskapnum í þeim. Tvenns konar þætti sé þar að finna til skilningsauka, annars vegar ætt- artengslin og hins vegar miklar og ákaflega vel gerðar kenningar. Þessu svipi til Gongora kvæða á Spáni. Sem leiðir okkur að uppruna hans sjálfs. Hann er fæddur í Pau í Pýreneafjöllunum, um 100 km frá spönsku landamærunum, og móðir hans var fransk-katalónsk. Sjálfur dvaldi hann í bamæsku norðar í Languedoc-héraði, skammt frá To- ulouse, í umhverfi sem fremur minnir á trúbadorana. Ungur fór hann á eftir foreldrum sínum til Alsír og var með þeim í Oran þar til hann ungur maður fór til náms í bókmenntum í Sorbonne-háskóla í París 1951, þar sem hann slóst í hóp skálda og myndlistamanna. Ekkert var honum eðlilegra, útskýr- ir Depierris, því ættmenn hans voru mjög bókmenntalega sinnað fólk, með skáld og rithöfunda innan fíöl- skyldunnar, m.a. rithöfundinn Henri Nair. Og einn frændinn var í miklu vinfengi við rithöfunda og myndlistamenn í París á l.og 2. áratug aldarinnar, Jean Giono, Modigliani og þá hina, en gegn um þau tengsli gekk ungi maðurinn Jean-Louis Depierris strax inn í slíka menningarhópa, ekki síður í myndlistinni en bókmenntum, enda benda gagnrýnendur gjaman á að ljóð hans séu myndræn. Vegna upprunans segir Depierris sum fyrstu ljóða sinna ekki laus við spænsk áhrif, sem einnig gætir mjög í Oran, auk frönsku áhrifanna frá nýlendutímanum. í París var Depierris í áberandi hópi, svonefndum Ecole de Roche- fort, sem m.a. fjallaði um kenning- ar og gerð skáldskapar á árunum 1941-61 og sem í voru m.a. Jean Rousselot og Adrian Miatlev, ei fyrstir vöktu athygli á ljóðum Depi erris. Hann sat m.a. í ritstjóm rits ins „Le Cadran Lunaire“ og slóst hóp skálda sem gáfu út „Entretien' í Rodez, en í þeim bæ í Suður Frakklandi er haldin ljóðskáldahátí' og veitt mikilvæg ljóðaverðlaun Frakklandi. M.a. er myndlistarmað urinn Pierre Soulages einmitt það an. í bók André Doms um ljóðskáld- ið Jean-Louis Depierris segir þó að hann muni hafa staðið næst Tour- de-Feu-skáldunum svonefndu, enda gaf hann hjá forlaginu út tvær ljóðabækur á ámnum 1955 og 1957. Listagagnrýnandi franska útvarpsins í tíu ár var Jean-Louis Depierris lista og bókmenntagagnrýnandi hjá franska útvarpinu RTF og við spyij- um hann í hverju það starf sé fólg- ið. Hann útskýrir að um þetta leyti hafí verið stoftiað til þess sem kall- að var Controle artistique des Em- missions eða listrænt eftirlit með útsendingum, sem hann hafði yfír- umsjón með. Hann starfaði þá sem sjálfstæður gagnrýnandi á menn- ingarþætti alla og skrifaði um þá skýrslur fyrir stofnunina, auk þess sem hann sá um viðtalsþætti og aðra unna þætti útvarpsins. Starf- aði bæði við aðalrás franska út- Ljóð eftir Jean-Louis Depierris I Guðirvillast þarsem náttúran strandar III Faliðspennsli steinhnúturieynist Arm-sveifla svipasveimar Steinninnskalþola brimblóðsins IV Hvelfíngþorstláta ersattaðþitthróp undir sjávarfleti grafíð hörfí um daga út um göngsprungins bjargs Ogdijúpiánóttum afhiminsængum hreysa (Úr (jóðabókinni Bas-Empire. íslensk þýðing: Gerard Lemarquis og Kurl Guð- mundsson)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.