Morgunblaðið - 01.05.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR X. MAÍ 1988
29
K
nótumar, tilkynnti svo föðumum að
dóttir hans gæti gifst Giordano.
Efnisþráður
Óperan Andrea Chénier íj'allar
um ævi og endalok franska skáldsins
Andrea Chéniers. Atburðarásin á sér
stað í París og nágrenni á dögum
frönsku byltingarinnar (1789—
1794). Óperan hefst á því að Andrea
Chénier kemur í móttöku hjá her-
togaynjunni di Coigny. Þar kynnist
hann dóttur hennar, Maddalenu. í
miðjum hátíðahöldunum brýst hópur
almúgafólks inn á hefðarfólkið.
Þjónninn Gérard, sem alinn er upp
á heimili di Coigny-ijölskyldunnar
og elskar Maddalenu á laun, stjómar
innrásinni. Byltingin er hafin en
hefðarfólkið lætur sér fátt um
fínnast og hátíðahöldin halda áfram.
Fimm ámm síðar ríkir Ógnarstjómin
í Frakklandi. Maddalena, sem er í
felum, hefur sent nafnlaus bréf til
Chéniers. Gérard, sem nú er bylting-
arforingi, leitar hennar ákaft með
hjálp njósnara. Chénier og Madda-
lena hittast og lýsa yfir ást sinni
hvort á öðm. Gérard finnur þau. Það
kemur til átaka og Gérard særist.
Maddalena og Chénier sleppa á
flótta. Nokkmm vikum síðar, eftir
að Gérard er gróinn sára sinna, er
Chénier handtekinn. Maddalena
kemur úr felum og freistar þess að
bjarga Chénier. Gérard er djúpt
snortinn af fómfýsi hennar og gerir
allt til þess að hjálpa þeim. En allt
kemur fyrir ekki og Chénier er
dæmdur til dauða. Maddalena er
ákveðin að deyja með Chénier og
skiptir á örlögum við dauðadæmda
konu. Sameinuð horfast þau í augu
við dauðann. Ópemnni lýkur á því
að þau em leidd út til aftöku.
Hver var Andrea Chénier?
París en gegna herþjónustu. Á þess-
um tíma kynntist Chénier Coigny-
fjölskyldunni, þ. á m. dótturinni.
Ekkert bendir þó til að alvarlegt
ástarsamband hafi verið milli þeirra.
Á ámnum 1788—1790 dvaldi Chéni-
er í London sem ritari franska sendi-
herrans. Þegar hann snéri aftur til
Parísar var byltingin hafm. Chénier
var hliðhollur hugmyndum bylting-
arinnar en ofbauð ákafinn við fram-
kvæmdina. Hann taldi sjálfan sig
vera ópólitískan en sökkti sér samt
í átökin í ræðu og riti. Hann skrif-
aði reglulega í Journal de Paris
og gagnrýni hans á Robespierre
þótti sérlega beitt. Tvívegis neyddist
Chénier til að fara í felur. Síðara
skiptið var hann handtekinn og
færður til Parísar. Þá 140 daga sem
hann dvaldi í fangelsi samdi hann
frægustu ljóð sín, m.a. La Jeune
Captive (um Maddalenu di Coigny)
og Iambes. Fjölskyldan reyndi
árangurslaust að fá hann leystan
úr haldi og 25. júlí 1794 var Chéni-
er hálshöggvinn, ásamt Roucher vini
sínum. Menn hafa síðan deilt um
stöðu Chéniers sem skálds en ekki
er að efa að skrif hans höfðu mikil
áhrif á þróun mála í frönsku bylting-
unni.
Hljómplötur
Á markaðnum em 6 hljóðritanir
af Andrea Chénier. Sú elsta er
dásamlega falleg útgáfa frá 1941
með Gigli, Caniglia og Bechi. Tvær
em frá sjötta áratugnum, önnur með
Del Monaco, Tebaldi og Bastianiani
en hin með Corelli, Stella og Ser-
eni. Báðar em vel frambærilegar,
sérstaklega sú fyrri. Þá em þijár
nútímaútgáfur, allar fáanlegar á
geisladiskum. Frá 1976 er útgáfa
með Domingo, Scotto og Milnes, frá
1985 er útgáfa með Pavarotti, Ca-
ballé og Nucci og frá 1987 er út-
gáfa með Carreras, Marton og Zan-
canero. Persónulegt mat hvers og
eins ræður mestu um val á útgáfum
en ég leyfi mér að mæla með James
Levine og félögum frá 1976.
Höfundur erjarilfræðingur og
styrktarfélagi íslensku óperunn■
ar.
Andrea Chénier fæddist 30. októ-
ber 1762 í Konstantínópel. Móðir
hans var grísk en faðir hans fransk-
ur stjómmálamaður. Frá þriggja ára
aldri ólst hann upp í Frakklandi hjá
ættingjum í Carcassonne. Ellefu ára
flutti hann til Parísar, hóf þar nám
og þótti afburða ljóðaþýðandi. Tutt-
ugu og eins árs gekk Chénier í her-
inn en hætti fljótlega því hann kaus
frekar að umgangast menntafólk í
MENNT ER MÁTTUR___
Byrjendanámskeið
á PC tölvur
Kjörið tækifæri
fyrir þá, sem vilja
kynnast hinum
frábæru kostum PC-
tölvanna, hvort heldur
sem er, í leik eða starfi.
Leiðbeinandi
DAGSKRÁ
* Grundvallaratriði við notkun PC-tölva.
* Stýrikerfið MS-DOS.
* Ritvinnslukerfið WordPerfect.
* Töflureiknirinn Multiplan.
* Umræður og fyrirspurnir.
Logi Ragnarsson
tölvunaríræðingur.
Tími: 3., 5.,
10. og 11. maí.
kl. 20-23
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28.
Upplýsingar og innritun í
símum 687590 og 686790
VR og BSRB styðja sína félaga
til þátttöku í námskeiðinu
Kjörbókin ber háa vexti auk verðtryggingar-
ákvæðis, verðlaunar þá sérstaklega sem eiga
lengi inni, en er engu að síður algjörlega
óbundin.
M' Landsbanki
mh íslands
Banki allra landsmanna
Já, Kjörbókareigendur góðir, nú er komið að því. Þeir sem átt
hafa innstæðu, eða hluta hennar, óhreyfða í 16 mánuði fá
reiknaða fyrstu þrepahækkunina nú um mánaðamótin:
1,4% viðbótarvextir reiknast á innstæðuna 16 mánuði
aftur í tímann, samtals 70 milljónir króna. Á hverjum
degi héðan í frá bætast svo fleiri og fleiri
Kjörbókareigendur við, sem ná 16 mánaða þrepinu.
Átta mánuðum síðar hefst á sama hátt, útreikningur
á afturvirka 24 mánaða vaxtaþrepinu.