Morgunblaðið - 01.05.1988, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 01.05.1988, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1988 Oábyrg skrif Svanhildar Bogadóttur um málefni SINE Athugasemdir vegna skrifa Svanhildar Bogadóttur í Morgunblaðinu þann 27. apríl síðastliðinn um málefni SÍNE eftir Kristján Ara Arason Að skemmta lesendum Morgun- blaðsins með lygum og óhróðri á kostnað SÍNE getur vart talist heið- arlegt né málefnalegt. Gagnvart lesendum er slíkur málatilbúningur óvirða og gagnvart hlutaðeigandi þolendum eru slík skrif lítilmannleg. Hugsmíð Svanhildar Bogadóttur, sem birtist í Morgunblaðinu þann 27. apríl sl. um málefni SÍNE getur vart talist til álitsauka fyrir hana því þar kom fram aragrúi stað- hæfulausra fullyrðingar sem tengd- ar voru saman með háði og róg- burði um undirritaðan formann SÍNE, sem og um stjóm SÍNE. Slík skrif hljóta að stórum hluta að dæma sig sjálf. Hinsvegar telur undirritaður sig knúinn til að leið- rétta þau ósannindi sem Svanhildur 'pvingaði penna sinii til að setja á blað. Ósannindi o g rang- færslur Svanhildar í upphafi greinar Svanhildar seg- ir að nú standi yfir bréflegar kosn- ingar til stjómar SÍNE, fyrir vetur- inn 1988—89 og að nokkur blaða- skrif hafi orðið um þessar kosning- ar. Ólíkt því sem á eftir kemur þá fer hún hér með rétt mál, en við þessa staðreynd bætir hún sínum fyrstu ósannindum, þ.e.a.s. að þau blaðaskrif sem orðið hafí um kosn- ingamar hafí „einkennst af yfirlýs- ingum formanns SÍNE, Kristjáns Ara Arasonar, um nokkra af þeim fímm frambjóðendum sem bjóða sig fram“. Þetta er rangt, því rétt er að fram til dagsins í dag hef ég ekk- ert skrifað í islensk dagblöð um yfírstandandi kosningar til stjómar SÍNE. Hins vegar hafa blaðamenn tveggja íslenskra dagblaða, Morg- unblaðið (14. apríl) og Þjóðviljinn (12. apríl), spurt mig álits um það hvort ég teldi að Samband ungra sjálfstæðismanna væri með afskipti aX yfirstandandi kosningum. Og eins og rétt var, þá skýrði ég þess- um blaðamönnum frá því að mér hefði borist bréf í hendur nýverið sem sýndi að fímm frambjóðendur til stjómar SÍNE hefðu skrifað und- ir sameiginlega stefnuskrá og væri þannig með listaframboð. Leynilega listakosning Umrætt bréf, sem mér var ekki ætlað að sjá, hafði verið sent til útvalins hóps SÍNE-félaga, án vit- undar stjómar SÍNE og án vitundar annarra frambjóðenda. Á þessu stigi málsins fordæmdi ég þessi vinnubrögð „fímmmenn- inganna", enda tel ég óeðlilegt að leynileg kosningabarátta, á kostnað einstakra frambjóðenda eigi sér stað. Umræddum blaðamönnum skýrði ég einnig frá þvi að mér hefði borist til eyma að SUS hefði skipulagt framboð „fímmmenning- anna“ þó svo að ég gæti ekkert fullyrt um það. í fréttum sem við- komandi blaðamenn skrifuðu höfðu þeir einnig samband við „fímm- menninganna" og fengu ummæli þeirra að njóta. sín til jafns á við mín. í frétt bæði Morgunblaðsins og Þjóðviljans lýsa „fímmmenning- amir“ því yfír að um sameiginlegt framboð sé að ræða. Um yfirlýsing- 'ar af minni hálfu hefur því ekki verið að ræða, en að sjálfsögðu hef ég svarað eftir bestu getu þeim spumingum sem til mín hefur verið beint. Afskipti SUS af málefnum SÍNE ' ‘ Stuttu eftir að þessar fréttir birt- ust fékk ég staðfestingu á því að Samband ungra sjálfstæðismanna hefðu aðstoðað „fímmmenning- anna“ við að senda framboðsbréfíð til útvalins hóps SÍNE-félaga, m.a. með því að útvega nöfn og heimilis- föng ákveðinna félaga. Þetta hefur Svanhildur Bogadóttir sjálf staðfest á stjómarfundi hjá SÍNE þann 19. aprfl sl. M.ö.o. þá liggur það ljóst fyrir að SUS hefur beitt sér í fram- boði „fimmmenninganna“. Að rejma að breiða yfír þessa stað- reynd, ber að mínu mati einungis vott um slæma samvisku Svanhild- ar Bogadóttur. Enda fer hún ekki í grafgötur með það að hún styður þetta framboð. Ályktun stjórnar SÍNE Á þessum sama stjómarfundi samþykkti stjóm SÍNE harðorða ályktun þar sem hún gagnrýnir af- skipti SUS af innri málefnum SÍNE sem og þær aðferðir sem „fímm- menningamir“ beittu í kosningum. í þessari ályktun, sem send var öll- um fjölmiðlum, var það skýrt tekið fram að ekki væri verið að gagn- rýna „fímmmenninganna" sem ein- staklinga heldur þá starfshætti sem þeir beittu við að ná kjöri. Það var mat stjómarinnar að henni væri skylt að álykta um undangengna atburði, þannig að hinir almennu SINE-félagar fengju að vita sann- leikann í málinu og til að veija fé- lagið fyrir frekari ágangi SUS. „Einkakosningabarátta“ formanns SINE í ljósi ofanritaðs, má vera Ijóst að sú fullyrðing Svanhildar Boga- dóttur í grein sinni, „ ... formaður SÍNE standi í einkakosningabar- áttu..." er röng, og sér í lagi í ljósi þess að undirritaður formaður SINE er ekki í framboði. I grein Svanhildar segir að undir- ritaður hafí notfært sér Sæmund, málgagn SÍNE, til að gagnrýna framboð „fímmmenninganna". Þetta er rangt hjá henni því sem formaður SÍNE og sem föstum leið- arahöfundi í Sæmundi ber mér skylda gagnvart félagsmönnum SÍNE að greina frá þeim málum sem hæst bera hverju sinni. Og það hlýtur að þykja umtalsvert að SUS sé að skipta sér af kosningabaráttu inna SÍNE. Og vart er hægt að þegja með góðri samvisku um að- leynilegt listaframboð sé í gangi í yfírstandandi kosningum. Að mínu mati væri það að „notfæra" sér Sæmund ef maður þegði vísvitandi um slíka og þvflíka atburði. Rangtúlkun Svanhildar á leiðara I gr'ein Svanhildar segir einnig: „lesendum til gamans skulum við líta aðeins á hvað Kristján hefur að segja um kosningarnar" og skírskotar þá til ofangreinds leið- ara. Með þessu orðalagi gefur Svan- hildur sterklega í skyn að leiðarinn styðji mál hennar á ótvíræðan hátt og ætti henni því að vera í mun að benda á dæmi um slíkt. En Svan- hildur virðist engin slík dæmi fínna og vitnar því aldrei beint f umrædd- an leiðara í grein sinni. Því bregður Svanhildur til þess ráðs að leggja undirrituðum orð í munn rétt eins og ég hafi sjálfur sagt þau. T.d. segir Svanhildur að „ af orðum Kristjáns megi ráða að kosningar séu einn sá mesti bölvaldur sem SÍNE geti orðið fyrir". Þetta er ekki bara rangt heldur sýnir þetta glögglega málefnalega fátækt Svanhildar. í leiðaranum segi ég þvert á móti að það væri „ ... óskandi að skýringin á þessum fjölda framboða væri vaxandi bar- áttuvilji SÍNE-félaga fyrir betri kjörum". Það má vera að Svan- hildur telji sig geta skemmt lesend- um Morgunblaðsins með svona málflutningi. Ég hef hinsvegar meiri trú á lesendum Morgunblaðs- ins en svo. Svanhildur þvingnð til stjórnarsetu? Svanhildur Bogadóttir segir í grein sinni að yfírleitt hafí „ ... með herkjum tekist að neyða þijá menn í stjóm". Þetta er rangt því skv. mínum heimildum um sögu SÍNE hafa að öllu jöfnu setið fleiri en þrír í stjóm SÍNE. Það að halda því fram að einhver hafi verið neyddur til stjómarsetu hjá SÍNE em ummæli sem dæma sig sjálf að mínu mati, — en án þess að ég þori að fullyrða nokkuð um það þá má vel að ^stjómarseta Svanhildar í stjóm SÍNE sé nauðungin ein. Ef svo er væri fróðlegt að fá að vita hver þvingi hana til stjómar- setu í SÍNE, og þá jafnframt hver leggi henni línumar? Af vinsældum SÍNE Ef til vill má skýra þær rang- færslur sem næst koma í grein Svanhildar, á grundvelli þess að hún sé til stjómarsetu. í greininni fagn- ar hún því að ellefu „óþvinguð" framboð hafí komið fram, og tek ég vissulega undir þann fögnuð, en bæti því jafnframt við að þau hafí komið fram „ ... án þess að SÍNE hafi gert nokkuð til að auka vin- sældir sínar“. Þó svo að Svanhildur leggi áherslu á það í gréin sinni að hún vilji „skemmta“ lesendum Morgunblaðsins með tiltæki sínu, þá vil ég þó ekkj gera henni þá skoðun upp að SÍNE sé eitthvert „skemmtifélag". Með ofangreindri fullyrðingu hlýtur Svanhildur að eiga við að SINE hafí ekki staðið sig í hagsmunabaráttunni. Þetta er að mínu viti alrangt enda hefur SÍNE hingað til staðið sameinað •og öflugt í hagsmunabaráttunni, og hefur sú barátta vart dulist nokkrum. Það vekur hins vegar furðu mína að Svanhildur Bogadótt- ir^ varaformaður SÍNE og fulltrúi SINE í stjóm Lánasjóðs íslenskra námsmanna, er svona uppfull af sjálfsgagnrýni. Ofurfrjótt ímyndunarafl eða blákaldar staðreyndir? Ekki þarf að leita lengi að næstu ósannindum í grein Svanhildar. Hún lætur í það skína með háðulegum glósyrðum að skrif mín um tengsl Sjálfstæðisflokksins við framboð „fímmmenninganna" beri merki um ofurfrjótt ímyndunarafl. Þannig leggur hún mér í munn að ég telji „ ... að Sjálfstæðisflokkurinn skipuleggi vel undirbúna skæruliða- starfsemi til að koma SÍNE af kort- inu“. Og spyr mig jafnframt að því hvaða heimildir ég hafi fyrir þess- ari vitneskju. Ofangreint orðalag kannast ég ekki við. Hinsvegar kastaði ég fram þeirri spumingu hvort „ . .. Sjálfstæðisflokkurinn væri ef til vill að reyna að tryggja sér vinnufrið við þær fyrirhuguðu breytingar á Lánasjóði íslenskra námsmanna sem ríkisstjómin hefur boðað?“ í ljósi þess að SUS aðstoð- aði „fimmmenninganna" við fram- boðið og að framkvæmdastjóri SUS er einn frambjóðenda á lista „fímm- menninganna", hlýtur þessi spum- ing þó enn að eiga rétt á sér. Hvern er Svanhildur að gagnrýna? Svanhildur fullyrðir ennfremur að stjóm SÍNE hafí sætt harðri Kristján Ari Arason „í ljósi óheiðarlegra vinnubragða „fimm- menninganna“ og þeirrar leyndar sem hvílt hafði yfir fram- boðsmálum þeirra, þótti stjórn SÍNE ekki ástæða til að halla enn frekar á aðra frambjóð- endur og seinka útgáfu blaðsins til að koma gögnum „fimmmenn- inganna“ að. Slik seink- um hefði jafnframt valdið því að Sæmund- ur hefði ekki borist SÍNE-félögum áður en kosningafrestur rann út.“ gagnrýni margra frambjóðenda fyr- ir að hafa ekki skipulagt opinbera kosningabaráttu. Þetta em ósann- indi því þar til að upp komst um leynilega listaframboð „fímmmenn- inganna" bámst stjóm SÍNE engar slikar óskir. Hins vegar var form- anni kjörstjómar, Svanhildi Boga- dóttur, falið að hafa samband við alla frambjóðendur og bjóða þeim að skrifa kynningu á sér og mark- miðum sínum í Sæmund, málgagn SÍNE, þegar ljóst var hveijir myndu gefa kost á sér til stjómarsetu. Ég veit ekki betur en Svanhildur hafi gert þetta en því miður vom við- brögðin dræm. Stjóm SÍNE leit því svo á frambjóðendur væm sáttir við þá kynningu sem þeir fengu á fylgiriti kjörseðils. Einn „fímmmenninganna", Jónas Egilsson, er sá eini sem látið hefur í ljós gagnrýni á slælegri kynningu (Morgunblaðið, 14. apríl). Það er eftirtektarvert að gagnrýni Jónasar kemur fyrst fram löngu eftir að „fimmmenningamir" höfðu sent út sameiginlega stefnuyfírlýsingu til útvalins hóps SÍNE-félaga. Og þar sem Sæmundur var þá kominn á lokastig í vinnslu, taldi stjóm SÍNE ekki rétt að seinka útkomu blaðsins til þess eins að koma að nánari útskýringum „fimmmenninganna" á framboði sínu. Slflri hefði verið óréttlátt gagnvart öðram frambjóð- endum, því einungis hafði borist kynning frá einum frambjóðenda utan þessa hóps. Það hefði því orð- ið að bíða eftir að fímm frambjóð- endur til viðbótar skiluðu efni í blað- ið. Og það hefði óneitanlega seinkað útgáfu þess enn frekar. I ljósi óheiðarlegra vinnubragða „fímmmenninganna" og þeirrar leyndar sem hvflt hafði yfír fram- boðsmálum þeirra, þótti stjóm SÍNE ekki ástæða til að halla enn frekar á aðra frambjóðendur og seinka útgáfu blaðsins til að koma gögnum „fímmmenninganna" að. Slík seinkun hefði jafnframt valdið því að Sæmundur hefði ekki borist SÍNE-félögum áður en kosninga- frestur rann út. En í Sæmundi vom nauðsynlegar upplýsingar um kosn- ingamar og því nauðsynlegt að hann bærist í tæka tíð. Hverra erinda gekk Svan- hildur í kjörstjórn? Svanhildur segir „ ... það skoð- un kjörstjómar að hafa skyldi út- sendingu kjörgagna eins ódýra og unnt væri og því yrði frambjóðend- um ekki leyft að senda sín gögn með, því þá hefði útsendingarkostn- aður hækkað til muna ...“. Hér er um fullkominn uppspuna að ræða. Sem einn kjörstjómarmanna vil ég taka fram að þessi ákvörðun var aldrei tekin í kjörstjóm. Hinsvegar var Svanhildur Bogadóttir ein þeirr- ar skoðunar í kjörstjóm að ítarlegar upplýsingar um alla frambjóðend- uma skyldu ekki fara út með kjör- gögnum. Þannig beitti hún sér ítrekað fyrir því að skera framboðs- kynningamar sem mest niður. Meirihluti kjörstjómar reyndi að fremst megni að koma til móts við þessar óskir Svanhildar en án árangurs. í stuttu máli þurfti meirihluti kjörstjómar síðan að beita meiri- hlutavaldi sínu til að námslönd frambjóðenda kæmu fram. Þessari „valdníðslu“ meirihluta kjörstjómar mótmælti Svanhildur og hótaði lg'örstjóm jafnframt málsókn. Ástæður þessa mótþróa Svanhildar var ekki kostnaðarlegs eðlis, heldur taldi hún að allar upplýsingar með kjörgögnum um frambjóðendur gætu haft áhrif á val SÍNE-félaga. Hver raunvemleg ástæða þessarar afstöðu Svanhildar í kjörstjóminni var, get ég ekkert fullyrt um, en hitt er annað mál að Svanhildur er dyggur stuðningsmaður „fimm- menninganna" og má því vel vera að hún hafí talið „leynibréf þeirra, sem einungis var sent til útvalins hóps SÍNE-félaga, fullnægjandi framboðskynningu. Mér dettur alla vega ekki til hugar í þessari grein að væna Svanhildi um að hafa gengið erinda „fímmmenninganna" í kjörstjóm, þó svo að sú skýring kunni að sýnast nærtæk. Sæmundur og ritfrelsið Fullyrðing Svanhildar um að öll- um frambjóðendum hafí verið „ ... neitað um að kynna sig fyrir hinum almennu félagsmönnum og koma skoðunum sínum á framfæri" er því með ofangreindum rökum stað- hæfulaus. i tíð núverandi stjómar SÍNE hefur Sæmundur, málgagn SÍNE, staðið öllum SÍNÉ-félögum, og þar með frambjóðendum til stjómar, opið til málefnalegra um- ræðna. Listaframboð fimmmenn- inganna gerði lýðræðislega kynn- ingu hins vegar ill framkvæman- lega, því ekki vildi meirihluti stjóm- ar stuðla enn frekar að forskoti þeirra. Blaðaútgáfa — moldvörpu- starfsemi? Svanhildur gerir stjóm SÍNE það upp, að blaðið hafí verið keyrt á methraða í gegnum prentun til að tryggja að hún fengi ekki að svara „níði um sig“ í blaðinu og vísar hún í því sambandi annars vegar í marg- ræddan leiðara minn og hins vegar í bréf fulltrúa SHÍ og BÍSN í stjóm LÍN þar sem hún vissulega sætir gagnrýni. Það er hinsvegar ekki rétt hjá henni að stjóm SINE hafí verið að halda henni frá vinnslu blaðsins, nema síður sé því við þá vinnu em allar hendur nytsamleg- ar. Staðreyndin er sú að vinnsla blaðsins varð að ganga hratt fyrir sig því verkfall var yfírvofandi og seinkun útgáfu hefði þýtt að blaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.