Morgunblaðið - 01.05.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1988
37
Frá fyrstu æfingu kvennadeildarinnar.
Fjármunir eru öruggir
í hvelfingum -
en hvernig væri
að láta þá vinna fyrir þig?
Kynntu þér valkosti Ávöxtunar sf.
ÁVftXTUNSf^y
FJármálaráðgjöf — Ávöxtanarþjónasta — Verðbréfamarkaðtir
LAUGAVEGI 97 - SÍMI 621660
þess verður bylting í aðstöðu allri
sem deildir félagsins hafa yfir að
ráða. Framarar hafa ekki rasað
um ráð fram í byggingu hússins.
Þeir skulda ekki meira í því en
þeir eiga útistandandi í skuldum
sjálfir, raunar eru þeir í miklum
plús þegar þeir hafa sjálfir inn-
heimt sitt útistandandi.
I tilefni af afmælinu, hefur stjóm
Fram ákveðið að nú skuli saga
félagsins skráð. Til þess ama hef-
ur verið fenginn sá maður sem
hvað mesta reynslu hefur í þeim
efnum hér á landi, Víðir Sigurðs-
son blaðamaður. Að sögn Birgis
Lúðvíkssonar miðar Víði vel áfram
og er áætlað að saga Fram komi
út á bók í haust.
Fram hefur unnið marga sigra og
glæsta á 80 árum, kannski hefur
enginn þeirra verið sætari en sá
fyrsti. Það var árið 1911, á móti
sem haldið var til heiðurs Jóni
Sigurðssyni forseta sem þá átti
aldarafmæli. Nokkru áður hafði
Fram leikið sinn fyrsta opinbera
leik, minningarleik um forsetann,
við KR eins og áður er greint frá,
en liðin skildu jöfn í markalausum
leik. Einn leikmanna Fram á þess-
um árum var Axel Thorsetinsson.
Við skulum gefa honum aðeins
orðið, láta hann lýsa þessum fyrsta
sigurleik Fram og stemmingunni
sem fylgdi, en Axel ritaði um leik-
inn og fleira í 35 ára afmælisblað
Fram sem kom út 9. febrúar 1943.
Axel hefur nú orðið: -íþróttamótið
hófst með leikfímissýningu
kvennaflokks úr Iðunni, undir
stjóm Bjöms Jakobssonar. Var
það í fyrsta sinn sem slíkur flokk-
ur kom fram opinberlega hér á
landi. Keppt var og í glímu, stökki,
hlaupum, lyftingum, sundi o.s.frv.
-Mótið hófst á laugardegi, en
þriðjudaginn í vikunni á eftir,
keppti Fram við KR. Ólafur Ros-
enkranz var dómari. Veður var
gott og margt áhorfenda og þeirra
meðal félagar okkar úr Fram, sem
hvöttu okkur óspart til dáða. Frið-
þjófur var vitanlega lífið og sálin
í okkar flokki og skoraði bæði
mörkin sem skomð vom. Leikur-
inn var fjörugur, gleði okkar mik-
il, í leik og að unnum leik, og
vonbrigði KR-manna auðsæ en
þeir tóku ósigrinum drengilega og
ég man að einn úr þeirra flokki,
Þorsteinn Jónsson lét orð falla í
þá átt að „strákarnir hefðu átt
skilið að sigra". Sá var líka dómur
allra. Við höfðum æft kappsam-
lega og vorum vel að sigrinum
komnir. í ísafold, sem þá var aðal-
blaðið hér, var þessi frásögn um
leikinn: „Loks var sýndur fjörugur
knattsparksleikur milli Fótboltafé-
lags Reykjavíkur og Fótboltafé-
lagsins Fram. í hinu síðamefnda
em einungis unglingar en eigi að
síður unnu þeir svo, að mjög skar
úr. Þeir komu knettinum tvisvar
í mark og gerði það hvortveggja
sinnið Friðþjófur Thorsteinsson.
Dómari var Olafur Rósinkranz".
Og enn em keppnislið Fram að
leggja mótheija sína að velli.
Vandamál þjónustu við aldraða eru margþætt og fara
vaxandi, m.a. vegna stöðugt hækkandi meðalaldurs
þjóðarinnar.
Af þeim málum sem brvnust eru úrlausnarer bygging fleiri
hjúkrunarheimila fyriraldraða, að halda opnum deildum
þeirra sjúkrahúsa sem taka við öldruðu fólki til lækninqa
og endurhæfíngar og stórbæta öryggi og þjónustu við þá
sem í heimahúsum dvelja.
Sjómannadagssamtökin í Reykjavík og Hafnarfirði, sem
minnast 50 ára afmælis síns á þessu ári, hafa lagt drjúgan
skerf að mörkum til úrbóta í vandamálum aldraöra, eins og
Hrafnistuheimilin í Reykjavíkog Hafnarfirði eru lýsandi
dæmí um, Bent skal á að þær eru báðar sannkallaðar
„landsstofnanir", þarsem þardveljastaldraðirallsstaðarað
af landinu.
í Hrafnistu í Reykjavíker utmið að enöurbótum á
hjúkrunardeildum og endurbvggingu þvottahúss og
samtengingu þess og eldhúss við hjúkrunarheimilið Skjol,
sem njóta mun þessarar þjonustu frá Hrafnistu.
í Hafnaifirði mun innan tíðar hefjast bygging 2. álartga
verndaðra þjónustuíbúða, sem eru 28 fhúðirvið
Þaustahlein, en flestum þeirra hefur þegar verið raðstafað
til einstaklinga og samtaka. Þessi hus sem hin fyrri við
Boðahiein njóta þjónustu fra Hralnistu og eru i sámbandi
við heimilið dag og nóít vegna öryggis fbúanna.
Við skyndileg veikindi þeirra, er akut sjúkraherbergi á
Hrafnisíu til reiðu, Aðild ibúanna er að ýmissi þjónustu á
Hrafnistu svo sem íör.dri sundiauq oe annarri
Eflum stuðning uid aldraöa.
Miöiámannfyrirnvem aidraöan.