Morgunblaðið - 01.05.1988, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1988
-\
„Hér er
sannkölluð
paradís
fyrir kylfinga“
- Rœtt við Jóhann
Sigurðsson í
Lundúnum sem
stofnað hefur
fyrirtœki, er vinna
mun að auknum
ferðamanna- og
viðskiptatengsl-
um milli íslands
ogBretlands
Viðtal: Valdimar
Unnar
Valdimarsson
Hinir glæsilegu golfvellir
í Sundridge Park í
suðurhluta Lundúna
skörtuðu sínu fegursta hinn
8. apríl síðastliðinn er þar
var haldið í fyrsta sinn
svokallað Pre-Arctic Open
golfmót. Golfmót eru
auðvitað daglegur
viðburður í hinu stóra
Bretlandi en það er hins
vegar ekki á hverjum degi
sem slíkt mót þar í landi er
haldið að frumkvæði
íslendings. Svo var hins
vegar að þessu sinni.
Hugmyndina að Pre-Arctic
Open og jafnframt allan veg
og vanda af mótinu hefði
Jóhann Sigurðsson, fyrrum
umdæmisstjóri Flugleiða í
Bretlandi. Var mót þetta
raunar einn liður í þeirri
viðleitni Jóhanns að auka
viðskipta- og
ferðamannatengsl á milli
íslands og Englands. í því
skyni hefur hann sett á stofn
fyrirtæki, Anglo Icelandic
Business and Travel
Consultants. Morgunblaðið
ræddi við Jóhann af þessu
tilefni — um golfið, fyrirtæki
hans og yfirleitt um áhuga
Jóhanns á auknum
tengslum milli íslands og
Bretlands.
Jóhann Sigurðsson
Jóhann Sigurðsson af-
hendir Des Sturdee far-
andbikar Pre-Arctic
Open, gefinn af Scand-
inavian Bank Group.
Ljósmynd/Bill Lovelace
Bob Cameron, golfkennari hjá Sundridge Park Golf Club í Lundún-
um.
** *t ** ** **
Jóhann Sigurðsson hefur
búið í Bretlandi um fjögurra
áratuga skeið og þar til á
síðasta ári starfaði hann í
Lundúnum sem umdæmis-
stjóri Flugleiða í borginni.
— Eftir að ég lét af störfum hjá
Flugleiðum sá ég auðvitað fljótt að
starfskraftar mínir voru fjarri því
að vera þrotnir. Ég fann að ég
hafði ennþá mikið af hugmyndum
um það hvemig standa mætti að
auknum tengslum og kynningu ís-
lendinga og Breta. Mér þótti sjálf-
sagt að bjóða fólki upp á að njóta
góðs af þeirri reynslu og þekkingu
sem ég hafði aflað mér með ára-
tugastarfí fyrir íslensk flugfélög í
Bretlandi. Þess vegna gekkst ég í
að stofna þetta fyrirtæki, Anglo
Icelandic Business and Travel Con-
sultants, sem ætlað er að vinna að
þessum auknu tengslum á sviði
ferðamála og viðskipta. Það er
raunar skemmst frá því að segja
að undanfama mánuði hef ég verið
jafn upptekinn af þessu fyrirtæki
og ég var forðum er ég starfaði
fyrir Flugleiðir.
Ég stend auðvitað ekki einn í
þessu. Eiginkona mín, Dorothy,
stendur dyggilega við hlið mér og
nýtur fyrirtækið góðs af þeirri
reynslu sem hún á að baki í störf-
um, sem snerta almenningstengsl
og auglýsingar fyrir blöð og tíma-
rit. Hún hefur til dæmis starfað
fyrir blöð í Fleet Street, að auglýs-
ingasölu, þekkir því til mála af þvf
tagi og hvemig staðið skuli að
kynningu á fyrirtæki á borð við það
sem við höfum nú komið á fót. Éig-
um við ekki að orða það svo að
hennar reynsla komi að notum við
að kynna starfsemi fyrirtækisins á
meðan ég rekst í því að láta starf-
semina sjálfa ganga upp.
Golfparadís
Snar þáttur í starfsemi þess fyrir-
tækis sem Jóhann Sigurðsson hefur
nú komið á fót í Lundúnum er að
skipuleggja ferðir þeirra íslendinga,
sem áhuga hafa á að leika golf á
afbragðsvöllum í Bretlandi, við
bestu aðstæður og tilsögn færustu
manna.
— Það er langt síðan ég fékk
sjálfur golfbakteríuna, en vegna
mikilla anna, sem fylgdu starfi mínu
hjá Flugleiðum, er tiltölulega stutt
síðan ég tók að stunda þessa íþrótt
að ráði hér í Lundúnum, sem að
mínu viti verður að teljast sannköll-
uð golfparadís. Að minnsta kosti
er ég mjög vel í sveit settur að
þessu leyti. Þar sem ég bý í suður-
hluta Lundúna má eiginlega segja
að stutt sé í heilan frumskóg golf-
valla. Til dæmis reiknast mér svo
til að innan tíu mínútna akstursleið-
ar frá heimili mínu séu einir 16
golfvellir og þessi tala fer upp í
30—40 sé akstursleiðin 20—30
mínútur.
Sjálfur er ég félagi í golfklúbbi,
sem hefur aðsetur í Sundridge Park,
er státar af golfvöllum sem eru á
meðal þeirra bestu í Suðaustur-
Englandi. Þetta er rótgróinn og
þekktur klúbbur, sem ýmsir mætir
menn hafa átt aðild að. Til dæmis
var Harold McMillan, sem á sínum
tíma var forsætisráðherra Bret-
lands, heiðursfélagi í þessum
klúbbi.
Það hafa auðvitað lengi verið
uppi hugmyndir heima á íslandi um
nauðsyn þess að gefa íslenskum
kylfíngum kost á að kynnast hinum
bestu golfvöllum érlendis, bjóða
þeim upp á að stunda íþrótt sína i
við bestu hugsanlegar aðstæður. é
Sjálfur hef ég auðvitað ekki komist
hjá því að sjá þá kosti sem að þessu
leyti eru fyrir hendi hér í Lundún- Si
um, með alla þessa golfparadís nán-
ast rétt við bæjardymar. Það er
þetta sem ég vil gefa löndum mínum
kost á að njóta og þess vegna mun 1
fyrirtæki það, sem ég hef nú stofn-
að, meðal annars skipuleggja ferðir I
íslenskra kylflnga hingað út.
Golfferðir
Hvemig mun verða háttað þess- |
um golfferðum sem þú munt sjá I
um að skipuleggja?
— Hér er einkum um að ræða .