Morgunblaðið - 01.05.1988, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1988
64
Kvikmynd
ítalans
Bernardo
Bertolucci,
Siðastí
keisarinn,
sem hlaut
níu Oskarsverðlaun og sýnd
er í Regnboganum, fjallar
um ótrúlega sögu manns,
sem varð keisari ekki einu
sinni heldur þrisvar og
drottnaði yfir fjórðungi
mannkynsins snemma á
öldinni, varð fangi
kommúnista og gerðist
garðyrkjumaður í Peking á
efri árum. Keisarinn, sem
hafði verið dýrkaður sem
guð, týndist í mannhafinu í
Kína, en varð einn af
fyrirmyndarborgurum
aiþýðulýðveldisins og undi
glaður við sitt unz hann féll
frá skömmu eftir að
„menningarbyltingin" skall á
fyrir um tveimur áratugum.
Pu Yi, þriggja ára keisari Kína (1908): „Umkomulausasti drengur í heimi.“
arinn, sem hafði m.a. 185 mat-
sveinum á að skipa, lifðu áfram í
óraunverulegri draumaveröld og
héldu við fornum hefðum, form-
legum athöfnum og ströngum sið-
um. Helzta breytingin varð sú að
Johnston gaf keisaranum reiðhjól
og hirðmenn hans urðu skelfingu
lostnir þegar hann fór að æfa sig
á því. Johnston færði honum einn-
ig tennisspaða og átti hugmyndina
að því að hann tók sér nafn þess
konungs Englands, sem hann dáði
mest, Hinriks VIII. Bandaríkja-
menn kölluðu hann „Hank“.
Pu Yi kynntist aldrei Peking,
jafnvel ekki þá sjaldan að hann
fór úr „gullbúri" sínu og tók þátt
í opinberum athöfnum utan
múranna. Lífverðir hans fylgdu
honum hvert fótmál og hann var
í raun fangi hirðarinnar, fyrst og
fremst 1.200 geldinga hennar,
sem smjöðruðu fyrir honum. Eng-
inn fékk að yrða á hann án leyfís
og þótt klifað væri á því við hann
að hann gæti gert allt kom alltaf
betur og betur í ljós að hann gat
í rauninni ekkert gert.
Gamall keisarasinni, Chang
SÍÐASTI
KEISARINNN
Söguhetjan, Aisin Gioro Pu Yi,
sem fæddist í Peking 1905 og var
sonur Chu’un prins, var frændi
(systurdóttursonur) hinnar frægu
keisaraekkju Tze-Hsi, sem réð lög-
um og lofum í Kínaveldi í 47 ár
og minnti á Katrínu miklu.
Skömmu áður en hún lézt fékk
hún bifreið að gjöf, en hún notaði
hana aldrei, því að bílstjórinn sat
fram í og enginn mátti sitja fyrir
framan hana. Þegar ungum prins
var gefið reiðhjól lét hún hýða
hann svo óþyrmilega að hann
hneig niður dauður. Reiðhjól voru
hættuleg að hennar dómi og það
var fyrir neðan virðingu kínversks
prins að láta sjá sig á slíku farar-
tæki.
Pu Yi hitti frænku sína aðeins
einu sinni og varð svo hræddur
við hana að hún greip til þess ráðs
að gefa honum ávexti til að róa
hann. Þáverandi keisara, sem var
raunverulegur fangi hennar, var
byrlað eitur og hún valdi Pu Yi
eftirmann hans. Daginn eftir
fannst hún látin.
Ótrúlegævi
söguhetju
Bertoluccis
Sonur himinsins
Móðir Pu Yis varð að sætta sig
við að sonur hennar var fluttur til
„Forboðnu borgarinnar" í Peking.
Hann var aðeins þriggja ára þegar
hann settist í kínverska „drekahá-
sætið" og varð „keisari Kína og
heimsins, sonur himinsins og herra
hinna tíu þúsund ára“. Seinna
minntist hann þess að hann grét
þegar hann var færður í þungan
krýningarskrúða og að ráðherra,
sem reyndi að hugga hann, sagði:
„Hafðu engar áhyggjur — þetta
tekur enga stund.“
Litli keisarinn ólst upp í furðu-
legri gerviveröld í keisarahöllinni,
sem í voru 9.999 herbergi
(Kínveijum var talin trú um að
höll með 10.000 herbergjum væri
aðeins til á himnum) og var reyrð-
ur í fjötra strangra og fáránlegra
siða 2000 ára keisaradæmis.
Skozkur einkakennari hans, Sir
Reginald Johnston, kallaði hann
„umkomulausasta dreng í heimi“.
Hann fékk ekki að hitta móður
sína og systkini fyrr en hann var
orðinn 10 ára. Jafnvel frændur
hans urðu að kalla sig „þræla“
hans þegar þeir ávörpuðu hann.
Hann hafði 200 einkalækna í höli-
inni og var alltaf kappklæddur að
boði þeirra. Þeir bönnuðu honum
að reyna á sig, bæði vegna þess
að þeir höfðu áhyggjur af heilsu
hans og vegna þess að talið var
óviðeigandi að keisari léki sér,
þótt ungur væri.
Venjuleg leikföng voru bönnuð
í höliinni. Ef keisarinn ungi vildi
leika sér varð hann að fá til þess
sérstakt leyfi og þess var vandlega
gætt að enginn sæi tii hans. Hann
var sjóndapur, en ekki þótti við
hæfi að leita til „ósiðmenntaðs"
augnlæknis, sem hafði menntazt
á Vesturiöndum, og Johnston varð
að heyja langa og erfiða baráttu
fyrir því að hann fengi gleraugu.
Fangi í höllinni
Keisaradæmið hrundi til grunna
í byltingu lýðveldissinna Sun Yat-
sens 1912, fjórum árum eftir að
Pu Yi steig í hásætið. Enginn sagði
honum hvað gerzt hafði, en lýð-
veldissinnar snertu ekki hár á
höfði og leyfðu honum að búa
áfram í Forboðnu borginni. Hins
vegar höfðu þeir strangt eftirlit
með honum, því að þeir óttuðust
að tilraun yrði gerð til að endur-
reisa keisaradæmið, en þeir
greiddu honum rífiegan lífeyri —
fjórar milljónir (kínverskra) doll-
ara á ári.
Einkennilegt líf Pu Yis og 3.000
manna hirðar hans breyttist lítið
á næstu 12 árum þrátt fyrir bylt-
inguna. Hjól sögunnar virtist hafa
stöðvazt fyrir utan háa og rauða
múra hallarinnar. Hirðin og keis-
Hsun, gerði gagnbyltingu 1917,
þegar Pu Yi var 12 ára og flestum
gleymdur, og „sonur himinsins“
varð keisari á ný, en aðeins í
nokkrar vikur. Byltingarleiðtoginn
fékk aðra herforingja upp á móti
sér, þótt þeir væru einnig hollir
keisaranum, og keisaraættin varð
fyrir svo miklum álitshnekki að
fleiri tilraunir voru ekki gerðar til
að koma henni aftur til valda í
Kína.
Flóttinn
Johnston og aðrir, sem þekktu
Pu Yi vel, töldu hann gáfaðan og
næman, áhrifagjarnan og ekki í
nógu miklu andlegu jafnvægi.
Hann var gæflyndur, alúðlegur og
hógvær, en vinum hans duldist
ekki að hann var einmana og van-
sæll í þeirri óeðlilegu gerviveröld,
sem hann lifði og hrærðist í. Hann
krafðist þess að geldingamir yrðu
reknir frá hirðinni og hann fengi
að taka upp einfaldari lífshætti,
en stjórnvöld virtu kröfur hans að