Morgunblaðið - 03.05.1988, Síða 1

Morgunblaðið - 03.05.1988, Síða 1
88 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 99. tbl. 76. árg. ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins ísraelsher hefur leit að skæruliðum í Líbanon Andstæðar fylkingar Palestínumanna eiga í bardögum New York, Tel Aviv, Sidon, Reuter. UM 2.000 ísraelskir hermenn réðust i gær inn fyrir landamæri Líbanons í leit að PLO-skærulið- um og höfuðstöðvum þeirra, að þvi er JVBC-sjónvarpið i Banda- ríkjunum skýrði frá í gær. Tals- maður israelska hersins staðfesti þessa frétt í gær. Fjórir féllu i bardögum milli skæruliða sem styðja Yasser Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka Palestinumanna, og skæruliða sem fylgja Sýrlend- ingum í Shatila-flóttamannabúð- unum í Beirút. Talsmaður ísraelska hersins sagði í gær að ísraelsher hefði haf- ið leit í Suður-Líbanon „vegna Þrír breskir hermenn drepnir í Hollandi: Bretar óttast frek- ari hryðjuverk IRA Lundúnutn. Routor. V Lundúnum, Reuter. IAN Steward, aðstoðarvamar- málaráðherra Breta, fordæmdi í gær dráp þriggja breskra her- manna i HoIIandi á sunnudag og hvatti til frekara samstarfs breskra og írskra stjórnvalda i baráttunni við hryðjuverka- menn. Hann sagði að gripið yrði til öryggisráðstafana i breskum herstöðvum á meginlandi Evrópu til að koma i veg fyrir frekari árásir hryðjuverkamanna. Félagar í IRA, írska lýðveldis- hemum, hófu skotárás á bifreið bresks hermanns í hollenska bæn- um Roermond á sunnudag, felldu hann og særðu tvo félaga hans. Tveir breskir hermenn til viðbótar féllu síðan í bílsprengingu í öðrum hollenskum bæ sama dag. írski lýðveldisherinn varaði í gær Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, við þvf að breskir hermenn væm hvergi ömggir með- an Bretar væm á Norður-írlandi. Ian Steward, aðstoðarvamarmála- ráðherra Bretlands, sagði í útvarps- viðtali f gær að stjómin myndi gera allt sem hún gæti til að tryggja öryggi breskra hermanna. Stjómmálamenn og dagblöð á írlandi fordæmdu árásimar og Alan Dukes, leiðtogi Fine Gael, sagði að þau væm sönnun þess að írski lýð- veldisherinn svifist einskis. Tals- maður breska forsætisráðuneytisins sagði að Margaret Thatcher hefði ekki í hyggju að gefa út yfirlýsingu um árásimar. Sjá ennfremur frétt á bls 30. sífjölgandi tilrauna hryðjuverka- manna til að laumast inn fyrir landamæri ísraels og fremja þar morð og hryðjuverk." NBC-sjón- varpið hafði skýrt frá því að 2.000 ísraelskir hermenn hefðu farið inn fyrir landamærin, en talsmaður ísraelska hersins vildi ekki segja hversu margir þeir hefðu verið. Sjónarvottar sögðu í gær að pal- estfnskir stuðningsmenn Yassers Arafats og skæmliðar í hreyfingu sem nefnist al-Intifída (Uppreisn) hefðu barist með flugskeytum, sprengjuvörpum og vélbyssum í gær. Bardagamir hefðu hafist á laugardag vegna persónulegra deilna milli félaga í þessum and- stæðu fyikingum Palestfnumanna. Stjómmálaskýrendur segja hins vegar að bardagamir sýni að skæruliðamir f al-Intifida séu óán- ægðir með sættir Arafats og for- seta Sýrlands, Hafez al-Assads. Opinber útvarpsstöð í Beirút skýrði frá því að tíu manns hefðu fallið og 50 særst í bardögunum frá því á laugardag. Reuter Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu gefur sigurmerki með fingrunum við Lenin-skipasmfðastöðina í Gdansk, þar sem þúsundir starfs- manna lögðu niður vinnu i gær. Samstaða var stofnuð í kjölfar verk- falla f skipasmfðastöðinni árið 1980. Pólland: Að mínnsta kostí sjö leið- togar Samstöðu handteknir Starfsmenn Lenín-skipasmíðastöðvarinnar í Gdansk hefja setuverkfall VarsjA, Gdansk, Reuter. PÓLSKA lögTeglan handtók að minnsta kosti sjö leiðtoga Sam- stöðu, hinna óháðu verkalýðs- félaga, f gær eftir að þúsundir starfsmanna Lenin-skipasmfða- stöðvarinnar f Gdansk, þar sem Samstaða var stofnuð, höfðu lagt niður vinnu. Starfsmenn raf- eindaverksmiðju f suð-v estur Póll- Skoðanakönnun í Danmörku: íhaldsflokkurinn bætir við sig sætum Kaupnuuuuhttfn. Reuter. íhaldsflokkurinn Hnnaki vinnur þijú þingsæti f kosning- unum eftir rétta viku, 10. maf, samkvæmt Gallup-skoðana- könnun, sem birt var á sunnu- dag. Jafnaðarmannaflokknum er spáð lakari útkomu en nokkru sinni i 15 ár. Niðurstöður Gallup-könnunar- innar eru birtar í Beríingske Tid- ende. Samkvæmt þeim ná fimm borgaraflokkar eins sætis meiri- hluta á danska þinginu. „Miðað við niðuretöður könnun- arinnar er langlíklegast að borg- araleg stjóm verði áfram við völd eftir kosningar, en litla sveiflu þarf þó til að vinstri meirihluti verði á þingi," segir í Beríingske Tidende. Samkvæmt könnuninni bætir íhaldsflokkurinn við sig þremur þingsætum, fengi 41 í stað 38. Jafnaðarmannaflokknum tapar hins vegar þremur, fengi 51 þing- sæti í stað 54. Þá fellur Kristilegi þjóðarflokkurinn út af þingi ef úrslitin verða eins og f könnuninni þar sem fylgi hans er innan við tvö prósent. andi fóru einnig f verkfall í nokkr- ar klukkustundir f gær en hófu störf að nýju þegar stjórnendur fyrirtækisins lofuðu að ganga að kröfum þeirra. Andófsmenn í Póllandi segja að í það minnsta sjö leiðtogar frá ýmsum borgum Póllands, þar á meðal Var- sjá og Gdansk, hafí verið hand- teknir í gær. Þeir hafi ailir verið í framkvæmdanefnd Samstöðu og aðrir nefndarmenn, fimm talsins, hafi farið í felur til að komast hjá handtöku. Næstum 3.000 starfsmenn Lenfn- skipasmfðastöðvarinnar f Gdansk tóku stöðina á sitt vald á hádegi f gær. Starfsmennimir sungu bar- áttusöngva og sveipuðu fána yfir aðalinngang skipasmfðastöðvarinn- ar, þar sem á stóð: „setuverkfall." 3.700 starfsmenn raftækjaverk- smiðju í Wrocklow-borg, sem hefur verið eitt af höfuðvígjum Samstöðu, fóru einnig í verkfall f nokkrar klukkustundir I gær, en hófu störf að nýju eftir að stjómendur verk- smiðjunnar höfðu lofað að ganga að kröfum þeirra um launahækkun. Lech Walesa hvatti stuðnings- menn Samstöðu á hátíðisdegi verka- lýðsins til þess að grípa til áhrifa- ríkra aðgerða til að styðja 16.000 verkfallsmenn í pólskum stálvemm. Walesa er rafvirki í Lenfn-skipa- smíðastöðinni en tók veikindafrí í gær. Hann kom að aðalinngangi gangi stöðvarinnar þegar verkfallið hófst og sagði við verkfallsmennina að hann myndi styðja þá þótt hann gæti ekki gengið til liðs við þá. Hann sagði að hans væri þörf til að samstilla aðgerðir Samstöðu um allt land. Sjá ennfremur frétt á bls. 32. OPEC-ríkin náðu ekki samkomulagi Tilboði sex ríkja utan samtakanna um minni framleiðslu var hafnað Vin, Reuter. OLÍA lækkaði f gær í verði þegar OPEC, Samtök oliuútflutnings- ríkja, náðu ekki samkomulagi innan eigin raða um að ganga að tilboði sex ríkja utan samtak- anna um minni framleiðslu. Olía af Brent-svæðinu breska seldist á 16 dollara fatið, dollara minna en bandarfsk olfa fyrir helgi, en sérfræðingar segja, að þessi lækkun sé tímabundin þrátt fyrir erfiðleikana innan OPEC. Verðið muni aftur hækka með aukinni eft- irspum síðar á árinu. Fulltrúar sex olíuvinnslurfkja ut- an OPEC buðust til þess fyrir helgi að minnka framleiðsluna um 5% ef OPEC-ríkin gerðu slfkt hið sama. Sögðu þeir, að með þessum sam- drætti mætti minnka birgðir í olíu- kauparíkjum og hækka verðið. Alsírmenn, sem eru innan OPEC, vildu ganga að þessu boði en Saudi-Arabar vildu ekki samþykkja 5%-samdráttinn, aðeins minnka framleiðsluna um jafn mörg olíuföt og ríkin utan OPEC. Markaðssérfræðingar segja, að aðalástæðan fyrir afstöðu Saudi- Araba sé sú, að þeir vilji ekkert gera, sem geti dregið úr ægivaldi þeirra innan OPEC og á olíumörk- uðunum yfírleitt. Auk þess telji þeir, að olíuverð muni á næstunni fara heldur hækkandi en hitt og þá kæri þeir sig ekkert um að ýta undir verðsprengingu á mörkuðun- um, sem síðan leiddi til offram- leiðslu og verðhruns.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.