Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
47
Stefán E. Petersen píanóleikari.
Café Ópera:
Stefán E.
Petersen
leikur fyr-
ir gesti
Píanóleikarinn Stefán E. Pet-
ersen hefur leikið í veitingahús-
inu Café Óperu undanfarið við
góðar undirtektir gesta.
Stefán leikur létta tónlist af
fingrum fram fyrir matargesti Café
Óperu á hveiju kvöldi á næstunni.
(Fréttatilkynning)
Anders Josephsson
Norræna húsið:
Söngtónleik-
ar á þriðjudag
SÖNGTÓNLEEKAR verða á
vegum Tónlistarskólans i
Reykjavk í Norræna húsinu í
kvöld þriðjudaginn 3. maí kl.
20.30.
Tónleikar þessir eru sfðari hluti
einsöngvaraprófs Anders Josephs-
sonar, bariton, og mun hann flytja
sönglög eftir Áma Thorsteinsson,
Sigfús Einarsson, Tore Rangström,
Maurice Ravel og Ludwig van Be-
ethoven. Anna Guðný Guðmunds-
dóttir leikur með á píanó. Kennari
Anders Josephssonar er Elísabet
Erlingsdóttir.
Leiðrétting
VEGNA fréttar í Morgunblaðinu
30. marz sl. skal tekið fram, að
Sveinn Sigurmundsson er fram-
kvæmdastjóri Búnaðarsambands
Suðurlands en ekki Kjartan ólafs-
son, eins og sagði I fréttinni. Þetta
leiðréttist hér með.
Kristniboðssamkoma
Kristniboðsflokkur KFUK í
Reykjavík heldur árlega samkomu
sina í félagshúsinu, Amtmannsstig
2b í Reykjavik, í kvöld, þriðjudags-
kvöld, og hefst hún kl. 20.30.
Á samkomunni mun Valgerður
Gísladóttir flytja kristniboðsþátt. Val-
gerður býr sig undir að fara öðru
sinni með fjölskyldu sinni til starfa í
Eþíópíu síðar á þessu ári. Maður
hennar, Guðlaugur Gunnarsson, er
við framhaldsnám í Englandi. Einnig
syngur Ann-Toril Lindstad organisti
einsöng og Ástráður Sigursteindórs-
son, starfsmaður Biblíufélagsins,
flytur hugvekju.
Þetta er fjáröflunarsamkoma fyrir
kristniboðið í Eþíópiu og Kenýu og
því verða happdrættismunir á boð-
stólum og kökusala i lokin. Allt sem
inn kemur rennur í kristniboðssjóð-
inn. Gert er ráð fyrir að starfsemi
Kristniboðssambandsins kosti nálægt
níu milljónum króna á þessu ári.
Allir eru velkomnir á kristniboðs-
samkomuna í kvöld.
(Fréttatilkynning)
Mjög margt æskufólk leggur
eyrun við boðskap islensku
kristniboðanna í Afriku.
auto
motor
-sport
^ Kjörinn„HEIMSINS BESTI
BÍLL“ af lesendum „flUTO
MOTOR UND SP0RT“
Nú 5. árið í röð kusu lesendur
þessa virta þýska bílatímarits
MAZDA 626 „HEIMSINS
BESTA BÍL“ í millistærðar-
flokki innfluttra bíla. Á annað
hundrað þúsund kröfuharðir
Þjóðverjar tóku þátt í þessari
árlegu kosningu og sigraði
MAZDA 626 með yfirburðum í
sínum flokki.
Blaðamenn AUTO M0T0R
UND SPORT höfðu áður gert
samanburðarprófun á 5 vin-
sælum bílum í millistærðar-
flokki á þýskum markaði. Úr-
slit urðu:
1. MAZDA 626 GLX
2. Audi 80 1.9E
3. Ford Sierra 2.0i GL
4. Peugeot 405 SRi
5. Renault 21 GTX
„Sögulegur viðburður" sagði
Auto Motor und Sport, því
þetta er í fyrsta skiptiö, sem
japanskur bíll vinnur slíka
samanburðarprófun.
nuto
ZEITUNG
EUROPfl POKAL
Árlega efnir þýska bílatímarit-
ið „AUTO ZEITUNG“ til sam-
keppni um „Evrópubikarinn11.
Til keppninnar þetta ár voru
valdar 12 gerðir bíla, sem
kepptu í 3 riðlum. í dómnefnd-
inni voru 8 bilagagnrýnendur
og gefa þeir stig fyrir samtals
60 atriði. Úrslit urðu:
1. BMW318Í
2. MAZDA 626 GLX
3/4. Audi 80
3/4. Peugeot 405
5/6. Opel Ascona
5/6. Volkswagen Passat
7. Renault 21
8. Mercedens Benz 190
9/10. HondaAccord
9/10. Mitsubishi Galant
11. Ford Sierra
12. Citroen BX
Munurinn á stigum BMW
318i, sem er dýrari bíll, og
MAZDA 626 var þó vart mark-
tækur því að hann var innan
við þriðjungur úr prósentu-
stigi!
freie
fahrt
KLUBJOURNAL DES ARBÖ
1. gullverðlaun #“%
hjá FREIE FAHRT V
MAZDA 626 hlaut 1. gullverö-
laun í samkeppni, sem fram
fer árlega á vegum „FREIE
FAHRT“ sem er gefið út af fé-
lagi bifreiðaeigenda í Austur-
ríki. í dómnefndinni voru 43
einstaklingar, þar á meðal
hinn heimsfrægi kappaksturs-
maður Niki Lauda, en að auki
höfðu lesendur blaðsins at-
kvæðisrétt. 9 bílar kepptu i ár:
MAZDA 626, Toyota Corolla,
Honda Prelude, Honda Civic,
Daihatsu Charade, Opel Sena-
tor, Peugeot 405, Citroen AX
og Rover825. MAZDA 626 sigr-
aði keppinauta sína með mikl-
um yfirburðum og má geta
þess að þetta er í fyrsta skipt-
ið, sem japanskur bíll hlýtur
þessi eftirsóttu verðlaun!
Fyrstu 3 sætin skipuðu:
1. MAZDA 626
2. Peugeot 405
3. Citroen AX
Mikið hrós ekki satt? En
MAZDA 626 á það skilið! Því
ekki að kynnast MAZDA 626 af
eigin raun? Við bjóðum ykkur
að koma og skoða þennan frá-
bæra bíl. Verðið mun svo koma
ykkur þægilega á óvart, það er
írá aðeins698þús. krónum.
(Gengisskr. 04.03 88 stgr.verð Sedan 1.8L
5 gíra m/vökvast.)
Opið laugardaga frá kl. 1-5
13
ÐÍLAÐORG HF. FOSSHALSI 1. S. 68 12 99.
MAZDA 626
JtEIMSINS BESTI BlLL!!“*
Nú eru aðeins nokkrir mánuðir
síðan hinn nýi MAZDA 626
kom á markaðinn og er ekki of-
sögum sagt að fáir nýir bílar
hafi fengið eins lofsamlegar
umsagnir og viðurkenningar
og hann. Hér eru nokkrar: