Morgunblaðið - 03.05.1988, Síða 47

Morgunblaðið - 03.05.1988, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988 47 Stefán E. Petersen píanóleikari. Café Ópera: Stefán E. Petersen leikur fyr- ir gesti Píanóleikarinn Stefán E. Pet- ersen hefur leikið í veitingahús- inu Café Óperu undanfarið við góðar undirtektir gesta. Stefán leikur létta tónlist af fingrum fram fyrir matargesti Café Óperu á hveiju kvöldi á næstunni. (Fréttatilkynning) Anders Josephsson Norræna húsið: Söngtónleik- ar á þriðjudag SÖNGTÓNLEEKAR verða á vegum Tónlistarskólans i Reykjavk í Norræna húsinu í kvöld þriðjudaginn 3. maí kl. 20.30. Tónleikar þessir eru sfðari hluti einsöngvaraprófs Anders Josephs- sonar, bariton, og mun hann flytja sönglög eftir Áma Thorsteinsson, Sigfús Einarsson, Tore Rangström, Maurice Ravel og Ludwig van Be- ethoven. Anna Guðný Guðmunds- dóttir leikur með á píanó. Kennari Anders Josephssonar er Elísabet Erlingsdóttir. Leiðrétting VEGNA fréttar í Morgunblaðinu 30. marz sl. skal tekið fram, að Sveinn Sigurmundsson er fram- kvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands en ekki Kjartan ólafs- son, eins og sagði I fréttinni. Þetta leiðréttist hér með. Kristniboðssamkoma Kristniboðsflokkur KFUK í Reykjavík heldur árlega samkomu sina í félagshúsinu, Amtmannsstig 2b í Reykjavik, í kvöld, þriðjudags- kvöld, og hefst hún kl. 20.30. Á samkomunni mun Valgerður Gísladóttir flytja kristniboðsþátt. Val- gerður býr sig undir að fara öðru sinni með fjölskyldu sinni til starfa í Eþíópíu síðar á þessu ári. Maður hennar, Guðlaugur Gunnarsson, er við framhaldsnám í Englandi. Einnig syngur Ann-Toril Lindstad organisti einsöng og Ástráður Sigursteindórs- son, starfsmaður Biblíufélagsins, flytur hugvekju. Þetta er fjáröflunarsamkoma fyrir kristniboðið í Eþíópiu og Kenýu og því verða happdrættismunir á boð- stólum og kökusala i lokin. Allt sem inn kemur rennur í kristniboðssjóð- inn. Gert er ráð fyrir að starfsemi Kristniboðssambandsins kosti nálægt níu milljónum króna á þessu ári. Allir eru velkomnir á kristniboðs- samkomuna í kvöld. (Fréttatilkynning) Mjög margt æskufólk leggur eyrun við boðskap islensku kristniboðanna í Afriku. auto motor -sport ^ Kjörinn„HEIMSINS BESTI BÍLL“ af lesendum „flUTO MOTOR UND SP0RT“ Nú 5. árið í röð kusu lesendur þessa virta þýska bílatímarits MAZDA 626 „HEIMSINS BESTA BÍL“ í millistærðar- flokki innfluttra bíla. Á annað hundrað þúsund kröfuharðir Þjóðverjar tóku þátt í þessari árlegu kosningu og sigraði MAZDA 626 með yfirburðum í sínum flokki. Blaðamenn AUTO M0T0R UND SPORT höfðu áður gert samanburðarprófun á 5 vin- sælum bílum í millistærðar- flokki á þýskum markaði. Úr- slit urðu: 1. MAZDA 626 GLX 2. Audi 80 1.9E 3. Ford Sierra 2.0i GL 4. Peugeot 405 SRi 5. Renault 21 GTX „Sögulegur viðburður" sagði Auto Motor und Sport, því þetta er í fyrsta skiptiö, sem japanskur bíll vinnur slíka samanburðarprófun. nuto ZEITUNG EUROPfl POKAL Árlega efnir þýska bílatímarit- ið „AUTO ZEITUNG“ til sam- keppni um „Evrópubikarinn11. Til keppninnar þetta ár voru valdar 12 gerðir bíla, sem kepptu í 3 riðlum. í dómnefnd- inni voru 8 bilagagnrýnendur og gefa þeir stig fyrir samtals 60 atriði. Úrslit urðu: 1. BMW318Í 2. MAZDA 626 GLX 3/4. Audi 80 3/4. Peugeot 405 5/6. Opel Ascona 5/6. Volkswagen Passat 7. Renault 21 8. Mercedens Benz 190 9/10. HondaAccord 9/10. Mitsubishi Galant 11. Ford Sierra 12. Citroen BX Munurinn á stigum BMW 318i, sem er dýrari bíll, og MAZDA 626 var þó vart mark- tækur því að hann var innan við þriðjungur úr prósentu- stigi! freie fahrt KLUBJOURNAL DES ARBÖ 1. gullverðlaun #“% hjá FREIE FAHRT V MAZDA 626 hlaut 1. gullverö- laun í samkeppni, sem fram fer árlega á vegum „FREIE FAHRT“ sem er gefið út af fé- lagi bifreiðaeigenda í Austur- ríki. í dómnefndinni voru 43 einstaklingar, þar á meðal hinn heimsfrægi kappaksturs- maður Niki Lauda, en að auki höfðu lesendur blaðsins at- kvæðisrétt. 9 bílar kepptu i ár: MAZDA 626, Toyota Corolla, Honda Prelude, Honda Civic, Daihatsu Charade, Opel Sena- tor, Peugeot 405, Citroen AX og Rover825. MAZDA 626 sigr- aði keppinauta sína með mikl- um yfirburðum og má geta þess að þetta er í fyrsta skipt- ið, sem japanskur bíll hlýtur þessi eftirsóttu verðlaun! Fyrstu 3 sætin skipuðu: 1. MAZDA 626 2. Peugeot 405 3. Citroen AX Mikið hrós ekki satt? En MAZDA 626 á það skilið! Því ekki að kynnast MAZDA 626 af eigin raun? Við bjóðum ykkur að koma og skoða þennan frá- bæra bíl. Verðið mun svo koma ykkur þægilega á óvart, það er írá aðeins698þús. krónum. (Gengisskr. 04.03 88 stgr.verð Sedan 1.8L 5 gíra m/vökvast.) Opið laugardaga frá kl. 1-5 13 ÐÍLAÐORG HF. FOSSHALSI 1. S. 68 12 99. MAZDA 626 JtEIMSINS BESTI BlLL!!“* Nú eru aðeins nokkrir mánuðir síðan hinn nýi MAZDA 626 kom á markaðinn og er ekki of- sögum sagt að fáir nýir bílar hafi fengið eins lofsamlegar umsagnir og viðurkenningar og hann. Hér eru nokkrar:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.