Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
17
lega við sig. Að mínu viti sannar
þessi könnun ekki annað en það að
hægt er að gera lýsingu sem er það
almenn að flestir geta fundið þar
eitthvað við sitt hæfi. Það að slíkt
er hægt sannar ekki að allar lýsing-
ar allra stjömuspekinga séu al-
mennar. Eða á að halda því fram
að þeir þúsundir eða hundruð þús-
unda stjömuspekinga sem starfa í
heiminum í dag séu allir faglega á
sama stigi? Það segir sig sjálft að
svo er ekki. Það sem kannski er
þó merkilegast í þessu samhengi
er að framangreind könnun var
framkvæmd af Michel Gauquelin,
þeim manni sem ætlaði sér í upp-
hafi að afsanna stjömuspeki, en er
í dag tíður gestur á þingum stjömu-
spekinga og verður sennilega þegar
upp er staðið frekar minnst sem
stjömuspekings heldur en sálfræð-
ings eða tölfræðings. Könnun sem
var gerð með kort glæpamannsins
hefur því ekki minnkað áhuga þess
sem framkvæmdi hana á stjömu-
speki og getur því varla talist veiga-
mikil. (Ekki síst þegar litið er ui
þess að sami maður hefur gert aðr-
ar rannsóknir sem sýna fram á já-
kvæða niðurstöðu fyrir stjömu-
speki.)
Sálfræðileg stjörnuspeki
í margnefndum sjónvarpsþætti
var talað um uppeldis-, umhverfis-
og erfðaþætti sem sagt var að væru
ráðandi en að stjömumar hefðu
ekkert að segja. Rétt þykir mér að
taka það fram að velflestir stjömu-
spekingar af sálfræðilega skólanum
svokallaða, til að greiningar frá
stjömuspáfræðinni sem við aðhyll-
umst ekki, telja stjömuspeki ein-
ungis einn þátt af mörgum, eða
þátt sem hefur með upplag að gera.
Erfðaþættir, uppeldi, umhverfísmál
og þroskastig einstaklingsins skipta
siðan að sjálfsögðu miklu.
Tvö ólík fög
Ég vil að lokum biðja þess að
gagnrýnendur stjömuspeki geri
greinarmun á speki og spám og
reyni að verða sér úti um bækur
sem fjalla um það nýjasta í faginu,
ræði við ábyrga stjömuspekinga og
almennt kynni sér vandlega um
hvað málið snýst áður en felldir eru
harðir dómar. Einnig vil ég að lok-
um segja eitt: Stjömuspeki flokkast
að mínu viti aðallega undir innsæis-
og hugvísindi. Ef rannsóknir á
stjömuspeki eiga að sanna eða af-
sanna eitthvað verða þær að taka
mið af aðferðafræði stjömuspekinn-
ar en ekki einungis af aðferðafræði
þeirrar vísindagreinar sem ætlar sér
að rannsaka hana. Þó tölfræðilegar
rannsóknir Gauquelins og annarra
sýni fram á gildi afmarkaðs þáttar
stjömuspeki, þá duga þær einungis
að takmörkuðu leyti. Stjömuspeki
er fag sem fjallar um upplag og
innsta eðli einstaklingsins. Þessir
þættir eru flóknir og hafa mörg
birtingarform, allt eftir umhverfi,
aðstæðum og þroskastigi einstakl-
ingsins. Þetta þýðir að meta þarf
sérstaklega hvert kort fyrir sig út-
frá þessum þáttum en erfitt er að
setja á það staðlaða mælistiku.
Þess vegna er erfítt eða aðeins að
takmörkuðu leyti. Stjömuspeki er
fag sem ijallar um upplag og innsta
eðli einstaklingsins. Þessir þættir
eru flóknir og hafa mörg birtingar-
form, allt eftir umhverfi, aðstæðum
og þroskastigi einstaklingsins.
Þetta þýðir að meta þarf sérstak-
lega hvert kort fyrir sig útfrá þess-
um þáttum en erfitt er að setja á
það staðlaða mælistiku. Þess vegna
er erfitt eða aðeins að takmörkuðu
leyti hægt að rannsaka stjömuspeki
útfrá fastskorðuðum forsendum töl-
fræðilegrar sálfræði. Carl Friedrich
Von Weizsácker, kjameðlisfræðing-
ur og heimspekingur, einn merkasti
vísindamaður 20. aldar, sagði í við-
tali á þýskri sjónvarpsstöð árið
1976: „Eg nálgaðist stjömuspeki
sem eðlisfræðingur fullur efa-
semda .. . Af reynslu minni dreg
ég þá ályktun að eitthvað sé til í
stjömuspeki." Og af því að hamast
er við að fordæma stjömuspeki með
tilvitnunum í tölfræðilegar rann-
sóknir má aftur vitna í Weizsácker,
er aðstoðarmaður hans sýndi hon-
um rannsókn sem var neikvæð fyr-
ir stjpmuspeki. „Þetta sagði ég
þér. Ég tel eftir sem áður að það
sé eitthvað að marka stjömuspeki
en að við finnum það ekki út á
þennan hátt,“ (þ.e. með tölfræðileg-
um rannsóknum). Það sem átt er
við, eða er sambærilegt, er að ef
t.d. múhameðstrúarmaður ætlar sér
að skilja íslenskt þjóðfélag verður
hann að reyna að setja sig inn í
menningu og staðhætti íslands, en
forðast að dæma einungis útfrá því
gildismati sem tíðkast fyrir botni
Miðjarðarhafs.
Höfundur er formaður Samtaka
áhugamanna um stjömuspeki.
Aðalfundur Krabbameinsfélags íslands:
Rekstr ar afgang-
ur 4,4 millj. króna
Á AÐALFUNDI Krabbameins-
félags íslands, sem haldinn var
sl. föstudag, sagði Gunnar M.
Hansson, gjaldkeri félagsins, að
rekstrarafgangur á ársreikningi
félagsins fyrir sl. ár hefði numið
4,4 milljónum króna. Þegar
skýrslur aðildarfélaga Krabba-
meinsfélags íslands voru fluttar
kom í ljós að Krabbameinsfélag
Akureyrar er orðið fjölmennasta
aðildarfélagið. Á fundinum var
Almar Grímsson, lyfjafræðingur,
kosinn formaður Krabbameins-
félags íslands.
í stjóm Krabbameinsfélags ís-
lands voru einnig kosin Guðrún
Agnarsdóttir, læknir og alþingis-
maður, Ragnar Pálsson, deildar-
stjóri, og Jón Þorgeir Hallgrfmsson
læknir.
Gestur fundarins, Arthur Holleb,
læknisfræðilegur forstjóri Banda-
ríska krabbameinsfélagsins, flutti
erindi um starfsemi félagsins og
sagði m.a. að það fengi engan fjár-
stuðning frá hinu opinbera. Dr.
Gunnlaugur Snædal, fráfarandi
formaður Krabbameinsfélags ís-
lands, flutti erindi um starfsemi
félagsins á sl. ári, Hermann Ragnar
Stefánsson sagði frá Samtökum
krabbameinssjúklinga og aðstand-
enda þeirra, Kristján Sigurðsson,
yfirlæknir, flutti erindi um nýskipan
legháls og bijóstakrabbameinsleit-
ar, Helga Ogmundsdóttir, yfirlækn-
ir, fjallaði um rannsóknir til að
auka skilning á eðli krabbameins
og Höskuldur Frímannsson, rekstr-
arráðgjafí, talaði um árangur end-
urskipulagningar Krabbameinsfé-
lagsins.
Fjölmargir vinningar í
Umboð í Reykjavík og nágrenni:
ADALUMBOD: Tjarnargötu 10, símar: 17757 og 24530.
Sparisjúður Reykjavíkur og nágrennis.
Austurströnd 3, Seltjarnarnesi, sítni: 625966.
Bókaversiunin Hugföng, Eidistorgi, sími: 611535.
Verslunin Neskjör, Ægissídu 123, símar: 19832 og 19292.
Bókaverslunin Úlfarslell, Hagamel 67, sími: 24960.
Sjóbúðin Grandagarði 7, sími: 16814.
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis,
Skólavörðustíg 11, sími: 27766.
Passamyndirhf., Hlemmtorgi, sími: 11315.
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Hátúni 2 B, sími: 622522.
Bókaverslunin Griffill, Síðumúla 35, sími: 36811.
Hreyfill, bensínafgreiðsla, Fellsmúla 24, sími: 685521.
Paul Heide Glæsibæ, Álfheimum 74, sími: 83665.
Hrafnista, skrifstotan, símar: 38440 og 32066.
Bókabúð Fossvogs, Efstalandi 26, sími: 686145.
Landsbanki Islands, Rofabæ 7, sími: 671400.
Bókabúð Breiðholts, Arnarbakka 2, sími: 71360.
Straumnes, Vesturberg 76, símar: 72800 og 72813.
Happahúsið, Kringlunni, sími: 689780, Birgir Steinþórsson
KOPAVOGUR: Bóka- og ritfangaverslunin Veda, Hamraborg 5, slmi: 40877.
Borgarbúðin, Hófgerði 30, sími: 40180.
GARDABÆR; Bókaverslunin Gríma, Garðatorg 3, sími: 656020. 1
I HAFNARFJÚRÐUR: Kári- og Sjómannafélagið, Strandgötu 11-13, simi: 50248:
. Hrafnista Hafnarfirði, sími: 53811.
[MOSFELLSSVEIT: Bóka- og ritfangaverslunin Ásfell, Háholt 14, sími: 666620.
Þökkum okkar traustu
viðskiptavinum
og bjóðum nýja velkomna.
HAPPDRÆTTI
DVAULRHEIMIUS
ALDRAÐRA SJÓMANNA
M
Við viíjum velija atfiygfi viMiptavina á jná að 1. maí - 1. septemScr verður oSaískrifstofa fciagsins opinjrá HL
ÉBRUnnBðTRF&JIG fSLRMS
Laugavegur 103 105 Reykjavík Sími 26055