Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
Bandaríkin:
Framleiðni- og
hagvaxtaraukning
Hagvaxtarskeiðið hefur staðið á sjötta ár
Reuter
Flak bifreiðarinnar, sem hryðju-
verkamenn írska lýðveldishersins
sprengdu í bænum Nieuw Bergen í
Hollandi á sunnudag. Tveir breskir
hermenn féllu í tilræðinu. Hálftima
áður höfðu Iiðsmenn IRA myrt einn
breskan hermann og sært tvo í bæn-
um Roermond og sýnir innfellda
myndin breska hermanninn látinn í
framsæti bifreiðar
þriggja.
Washington. Reuter.
PANTANIR frá bandarískum
verksmiðjum jukust um 1,6% í
mars og hafa ekki aukist jafn
mikið siðustu þijá mánuði. Þá
vekur það einnig athygli, að enn
virðist framleiðni á hvern
starfsmann vera að aukast.
Kemur þetta fram í nýjum
tölum frá bandaríska viðskipta-
ráðuneytinu.
Auk þessa jukust fjárframlög
til húsbygginga um 1,5% í mars
og þessar tölur og þær, sem birtar
voru í fyrri viku, benda til áfram-
haldandi vaxtar í efnahagslífínu
út árið. Hagvaxtarskeiðið í Banda-
ríkjunum hefur nú staðið í hálft
sjötta ár.
Bandarísk fyrirtæki hafa að
undanfömu aukið fjárfestingu í
nýjum tækjabúnaði og skorið niður
ýmsan kostnað til að standast
betur samkeppnina á alþjóðlegum
markaði en auk þess hefur fram-
leiðni á hvem starfsmann verið
að aukast í nokkur ár. Árið 1986
jókst hún um 1,6%, 1987 um 0,8%
og þetta ár byijar með 0,9% aukn-
ingu. Ber öllum saman um, að í
framtíðinni verði betri kjör og
meiri velferð aðeins sótt í aukna
framleiðni.
Flugumenn IRA fella þijá breska hermenn í Hollandi:
Morðingjanna ákaft leit-
að og öryggisgæsla hert
Þrír hermenn fluttir helsærðir í sjúkrahús
Nieuw Bergen, Roermond, Amsterdam. Reuter, Daily Telegraph.
ORYGGISGÆSLA var hert tU
muna í herstöðvum Breta í Vest-
ur-Þýskalandi á sunnudag eftir
að hryðjuverkamenn á vegum
írska lýðveldishersins (IRA)
höfðu vegið þijá breska her-
menn í Hollandi. Lögreglan í
Hollandi heldur uppi miklum
viðbúnaði vegna morðanna en
að sögn talsmanna lögregluyfir-
valda er ekki vitað hversu
margir tilræðismennirnir voru
né heldur hvernig vopnabúnaði
þeir beittu. Breskum hermönn-
um í Vestur-Þýskalandi hefur
verið ráðlagt að fara ekki yfir
landamærin til Hollands.
Bresku hermennirnir sem féllu
í árásunum voru í helgarleyfi í
Hollandi.
írski lýðveldisherinn, sem berst
gegn yfírráðum Breta á Norður-
Irlandi, hefur lýst ábyrgð á morð-
unum á hendur sér. Er almennt
talið að hryðjuverkasamtökin hafí
með illvirki þessu viljað hefna
þriggja liðsmanna samtakanna,
sem breskar öryggissveitir felldu
á Gíbraltar í marsmánuði. í orð-
sendingu samtakanna, sem birt
var tíu klukkustundum eftir að ill-
virkin höfðu verið framin og beint
var til Margaret Thatcher, forsæt-
isráðherra Bretlands, sagði: „Farið
Indland:
Þriggja hæða sjúkra-
húsbygging hrundi
Lík 21 hefur fundist, 66 er enn saknað
Srinagar & Indlandi. Reuter.
ÞRIGGJA hæða barnaspítali
hrundi í bænum Jammu á Norð-
ur-Indlandi i gær. Að sögn yfir-
valda hafa Ifk yfir tuttugu
barna þegar fundist. Margra er
enn saknað.
Að sögn indversku fréttaþjón-
ustunnar PTl voru 200 sjúklingar
og fjöldi starfsmanna í sjúkrahús-
byggingunni þegar efsta hæð
hennar hrundi í gær. Þegar efsta
hæðin hrundi féll hluti af neðri
hæðunum saman. Einn læknir á
spítalanum, Mahesh Gupta, sagð-
ist hafa veitt athygli stórum
sprungum í veggjum á efstu hæð-
inni þegar hann var á stofugangi
í gærmorgun. Hafði Gupta látið
flytja fáeina sjúklinga af efstu
hæðinni.
Yfírmaður sjúkrahússins, D.R.
Manhas, sagði í samtali við Reut-
ere-frettastofuna að talið væri að
um 30 hefðu farist þegar efsta
hæð spítalans hrundi. Sagði Man-
has að ekki væri vitað fyrir víst
Hversu margir væru enn grafnir
undir rústunum en 66 sjúklinga
væri enn saknað. Um fjölda starfs-
fólks er ekki vitað. 50 bömum
hefur verið bjargað.
Hermenn og íbúar bæjarins
vinna að því að leita í rústunum.
Yfírmaður Jammu- og Kasmír-
fylkis, Farooq Abdullah, lokaði
skrifstofu sinni og flaug til Jammu
til að "hafa yfirumsjón með björg-
unarstarfínu.
frá írlandi ogþá kemst á friður.“
Tvítugur breskur hermaður féll
og tveir félagar hans særðust al-
varlega er skotið var á bifreið
þeirra aðfaranótt sunnudags í
bænum Roermond í suðurhluta
Hollands. Mennimir vora að koma
af veitingastað og höfðu enn ekki
gangsett bifreiðina er tilræðis-
mennimir hófu vélbyssuskothríð.
„Ég heyrði skothríð og hljóp út á
svalir," sagði Niek Groot í samtali
við Éeuters-fréttastofuna. „Bif-
reiðinni hafði verið lagt beint fyrir
neðan svalimar og ég sá helsærð-
an mann skríða út úr henni.“ '
Hálftíma síðar sprakk sprengja
í bifreið þriggja hermanna fyrir
utan skemmtistað í bænum Nieuw
Bergen um 50 kílómetra norður
af Roermond. Tveir mannanna
létu lífíð og hinn þriðji særðist
alvarlega. Sprengjan var gífurlega
öflug og rifnuðu hurðir og þak af
bifreiðinni. „Brak þeyttist í loft
upp og eldsúla steig á loft,“ sagði
breskur hermaður sem varð vitni
að sprengingunni. Mér datt IRA
strax í hug. Þeir eru alls staðar."
íhelgarleyfi
Hermennimir sex störfuðu allir
við herstöðvar breska flughersins
í Vestur-Þýskalandi. Voru þeir í
helgarleyfi og óku yfír landamær-
in til Hollands þar sém skemmti-
staðir era að öllu jöfnu opnir leng-
ur en í Vestur-Þýskalandi, að því
er segir í frétt breska dagblaðsins
Daily Telegraph. Hinir særðu vora
þegar í stað fluttir í sjúkrahús og
lágu á gjörgæsludeildum þar til
síðdegis í gær er þeir vora fluttir
í sjúkrahús breska hersins í Vest-
ur-Þýskalandi. Munu þeir ekki
lengur vera taldir í lífshættu.
Utvarp breska hersins í Vest-
ur-Þýskalandi birti áskoranir til
breskra hermanna um að vera vel
á verði og grandskoða bifreiðar
áður en þær væra hreyfðar. Á
sunnudag var komið upp skiltum
við landamæri Hollands þar sem
breskum hermönnum var ráðlagt
að fara ekki inn í landið. Öryggis-
gæsla hefur einnig verið hert í
Hollandi og hafa hásettir embætt-
ismenn í innanríkis- og dómsmála-
ráðuneytinu lagt á ráðin um hvem-
ig haga beri viðbúnaði í landinu í
kjölfar ódæðisverkanna.
Talsmaður lögregluyfírvalda í
Hollandi sagði í gær að breskir
sérfræðingar, sem þekktu vel til
aðferða hryðjuverkamanna, að-
stoðuðu við rannsókn málsins og
væri hafín leit að tilræðismönnun-
um um gjörvalla Evrópu. Flugu-
menn írska lýðveldishersins létu
síðast til sín taka í Hollandi árið
1979 er sendiherra Bretlands í
Haag var skotinn til bana fyrir
utan breska sendiráð
ið í borginni. Árið 1986 vora þrír
félagar IRA handteknir í íbúð í
Amsterdam og höfðu þeir fyllt
hana af vopnum og sprengiefni.
Tveir þeirra höfðu flúið úr Maze-
fangelsinu í Belfast árið 1983 og
vora þeir framseldir til Bretlands.
Kúbönsk vél
skotin niður
yfir Ang’ola
Havana, Reuter
KÚBANSKA stjórnin skýrði frá
þvi á föstudag, að 26 kúbanskir
hermenn hefðu látið lífið, þegar
eldflaug var skotið að kú-
banskri flugvél yfir suðurhluta
Angola. Tekið var fram að með-
al hinna látnu væri virtur hers-
höfðingi. TUkynning þessi vakti
athygli, þar sem Kúbustjóm
hefur yfirleitt ekki gefið út
yfirlýsingar að fyrra bragði um
mannfall f Angola og einatt
neitað fréttum þess efnis.
Þetta er mannskæðasta slys
sem Kúbanir hafa orðið fyrir frá
því þeir hófu að veita stjóminni í
Luanda hernaðaraðstoð fyrir
þrettán árum. í yfírlýsingu stjóm-
arinnar er sagt, að hershöfðinginn
sem var í vélinni, Francisco Craz
Bourzac sé hetja úr Svínaflóaorr-
ustunni 1961 og hann hafí setið í
ýmsum helztu vaidastofnunum á
Kúbu.
Vélin var af gerðinni Antonov
26 og var á leið til bæjarins Tcha-
hutete í Suður Angola. Hún var
að koma inn til lendingar, þegar
eldflaugin hæfði hana.
Kúbumenn hafa nú um 40 þús-
und hermenn og ráðgjafa í An-
gola, marxistastjóminni þar til
stuðnings í baráttu við skæraliða
og hermenn frá Suður Afríku, sem
öðru hveiju ráðast inn yfír landa-
mærin.
Hópur evrópskra
geimfara þjálfaður
Strassborg’. Reuter.
EVRÓPSKA geimferðastofn-
unin (ESA) ætlar að hafa lokið
þjálfun rúmlega 30 geímfara
fyrir aldamót og eiga þeir að
starfa við alþjóðlega geimstöð
og evrópskar geimrannsókna-
stöðvar á braut um jörðu.
Evrópumenn vinna nú að
smíði geimskutlunnar Hermes
og á hún að vera tilbúin árið
1997. Verður þriggja manna
áhöfíi um borð og eiga þeir að
fara á misserisfresti frá jörðu
að ómannaðri geimrannsókna-
stöð á braut og vinna þar að
ýmsum athugunum.
Bandaríkjamenn, Vestur-
Evrópumenn og Japanir vinna
saman að smíði annarrar geim-
stöðvar og á bandarísk geimfeija
að flytja hana á braut $ 19 ferð-
um. Er að því stefnt, að hún
verði tilbúin árið 1998 en átta
menn verða um borð að stað-
aldri. Áætlaður kostnaður Evr-
ópumanna við smíðina nemur um
160 milljörðum króna.