Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 5
MORGUNBLAPIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
5
Morgunblaðið/Þorkell
Við Skúlagötu er verið að reisa dælustöð, sem tekin verður í notkun
í haust.
Hækkandi álverð:
Tekjur Landsvirkjunar
jukust um 12 milljónir
milli ársfjórðunga
TEKJUR Landsvirkjunar vegna raforkusölu til Álversins i Straumsvík
jukust um 12 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað
við síðasta ársfjórðung árið 1987. Er það i samræmi við hækkandi
álverð á heimsmarkaði að undanfömu, en samkvæmt samningi fyrir-
tækjanna er tekið mið af álverði við verðlagningu á raforku til ISAL.
í nýju dælustöðinni eru 8 dælur,
4 sem hver um sig dælir allt að
1500 1/sek af regnvatni og aðrar
4, sem dæla allt að 320 1/sek hver
dæla. Heildarafköst stöðvarinnar
eru þvi tæpir 7.300 1/sek og er
mesta lyftihæð 12 m. í þurrviðri er
einungis dælt skólpi og eru minni
dælumar notaðar til þess. Dælt er
upp í þiýstitum og frá honum verð-
ur á næstu árum lögð plastlögn að
fyrirhugaðri hreinsistöð í Laugamesi
og þaðan eftir 2-300 m langri leiðslu
í sjó fram. í mikilli úrkomu hafa
minni dælumar ekki undan. Ræðst
þá af sjávarstöðunni hvort ein-
streymislokinn opnast og regnvatn
rennur án dælingar í yfirfallsútrás-
ina út fyrir stórstraumsQöru þegar
sjávarstaðan er lág eða hvort ein-
streymislokinn lokast og stærri dæl-
umar, dæla regnvatninu í yfírfalls-
útrásina þegar sjávarstaðan er há.
Starfsmenn gatnamálastjóra,
ásamt verkfræðistofu A. R. Rein-
ertsen í Þrándheimi og Sveini T.
Þórólfssyni aðstoðarprófessor, við
Tækniháskólan í Þrándheimi sáu um
reikninga á aðrennsli. Tveir þeir
síðast töldu skipulögðu dæluþróna,
sáu um útboðsgögn vegna kaupa á
dælubúnaði og stýrðu að auki vinnu
við hönnun raf- og stýribúnaðar
ásamt loftræstikerfi.
Arkitekt hússins er Bjöm Halls-
son. Verkfræðistofa Sigurðar Thor-
oddssen annaðist burðarþolsreikn-
inga og gerð útboðsgagna vegna
uppsteypu stöðvarinnar. Holræsa-
stokka að og frá stöðinni hannaði
verkfræðistofan Línuhönnun. Út-
boðsgögn vegna smíði stálhluta ann-
aðist Sigurjón Yngvason tæknifræð-
ingur. Hersir Oddsson tæknifræð-
ingur annaðist hönnun rafbúnaðar í
yfirbyggingu.
Verkið var unnið af Málmsmiðju
og Suðustál á Akranesi og Hagvirki
hf. Eftirlit annaðist Verkfræðistofan
Mat sf., Verkfræðistofan Vista, Sig-
uijón Yngvason og Hersir Oddsson.
Að sögn Amar Marinóssonar,
fjármálastjóra Landsvirkjunar, voru
rafmagnskaupin frá ÍSAL að magni
til svipuð á síðasta ársfjórðungi 1987
og fyrsta ársfjóðungi þessa árs og
miðað við sama raforkumagn skilaði
fyrsti ársfjóðungur 1988 Landsvirkj-
un um 12 milljón krónum meira en
síðasti ársflórðungur 1987, en þá
voru tekjumar alls um 180 milljónir
króna vegna raforkusölunnar til
ÍSAL. í þessum útreikningum er
miðað við þáverandi verðlag og ekki
tekið mið af gengisbreytingum. Mið-
að við sömu forsendur er gert ráð
fyrir að tekjumar á öðrum ársflóð-
ungi verði um 28 milljón krónum
meiri en á síðasta ársfjóðungi 1987.
Samkvæmt samningi Landsvirkj-
unar og ÍSAL er lágmarksverð 12,5
bandarísk mill (um það bil 50 aurar
á núverandi gengi) á kW-stund. í
upphafí árs 1987 var raforkuverðið
12,514 mill, en siðasta ársflóðrung
1987 var það komið upp í 14,921
mill og á fyrsta ársfjórðungi þessa
árs 15,78 mill. Öm sagði að gert
væri ráð fyrir að raforkuverðið til
álversins yrði um 17 mill fyrir annan
ársfjórðung þessa árs. Lauslega
reiknað aukast tekjur Landsvirkjun-
ar, fyrir hvert hækkað mill, um rúm-
lega 50 milljónir króna á ársgrund-
velli. Reiknað er með að meðaltal á
raforkuverði til álversins á þessu ári
verði um 16 mill.
Tími nagla-
dekkja liðinn
NÚ ER komið fram i maí og þvi
tími til kominn að taka nagla-
dekkin nndan bifreiðunum. Sektir
liggja við þvi að aka á negldum
hjólbörðum eftir 1. maí, nema
akstursskilyrði séu slæm.
í reglugerð um gerð og búnað
bifreiða er tekið fram, að óheimilt
sé að nota keðjur og neglda hjól-
barða á tímabilinu 1. maí til 15.
október, nema þess sé þörf vegna
sérstakra akstursskilyrða. Sektir við
því að aka á nagladekkjum þegr
aðstæður krefjast þess ekki, eru
1500 krónur.
Handleggsbrot í fangageymslum:
Tveir lögreglumenn ákærðir
Ríkissaksóknari hefur ákært
tvo lögreglumenn í Reykjavík
vegna þess atburðar, er ungur
maður handleggsbrotnaði i
fangageymslum lögreglunnar.
Annar hinna ákærðu er faðir
mannsins, sem kærði unga manninn
fyrir að skemma bifreið sína. Hon-
um hefur verið vikið úr starfí sínu
hjá lögreglunni í Reykjavík. Hinn
maðurinn, sem ákærður hefur ver-
ið, er varðstjóri í fangamóttöku lög-
reglunnar við Hverfisgötu.
Málið verður rekið fyrir Saka-
dómi Reykjavíkur og fer Ingibjörg
Benediktsdóttir, sakadómari, með
það. Ingibjörg neitaði í gær að gefa
upplýsingar um efni ákærunnar,
þar sem hún hefði ekki verið birt
sakbomingum.
Ennþá elnu slnnl nýr og byltlngarkenndur HONDA CIVIC með breytingum,
sem gera HONDA CIVIC tvímsalalaust fremstan í flokki minni bíla.
Allar gerðlr koma nú með vól úr lóttmálml og 16-VENTLA, ýmist með
elnum eða tvelmur kambásum, sem þýðir meiri orku og minni eyðslu.
Ný frábsar fjöðrun, sem á sór enga hliðstsaðu í sambærlegum bílum og
óvenju mlkll lengd á mllli hjóla gefur bílnum mjög góða aksturseiginleíka
og aukln þssglndl I akstrl.
Með þessu hefur HOIMDA sannað enn einu sinni, að þelr framleiða „litla
bíllnnM með þsaglndl og rými stóru drekanna en aðalsmerki HONDA í
fyrirrúml:
SPARNEYTNI, GÆÐI OG ENDINGU.