Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
49
Þórhallur Leós-
son - Minning
Þess eru dæmi að óþekktar
stjömur hafi uppgötvast áður en
þær sáust í nokkrum stjömukíki.
Þekktar stjömur undir áhrifum
þeirra hafa þá borið tilvist þeirra
vitni og stjömufræðingar veitt því
athygli. Svo greinileg hafa áhrifin
þá verið.
Þessi samlíking kemur mér í hug
þegar ég hugsa um þau áhrif sem
Þórhallur tengdasonur minn hefir
orðið fyrir af föður sínum, Þórhalli
Leóssyni, sem nýlega lést hér í borg,
88 ára gamall. Þegar ég kynntist
yngra Þórhalli þóttist ég þegar sjá
hvaða mann foreldrar hans hefðu
að geyma í ljósi þess sannmælis,
að sjaldan falli eplið langt frá eik-
inni. Það staðfestist og þegar ég
kynntist þeim, og nú er hann geng-
inn en minningin lifir.
Prúðmennska var Þórhalli Leós-
syni umfram allt í blóð borin ásamt
glöðu bragði og hjartahlýju, er frá
honum stafaði ómeðvitað alla tíð
og hvarvetna, en þó hvergi sem á
heimili hans og í því andrúmslofti
ólust böm þeirra hjóna upp. Kurt-
eisi hans og sálarylur áttu djúpar
rætur í jarðveginum, sem ættartré
hans spratt úr. Systkini hans kváðu
einnig hafa borið eðlislægri menn-
ingararfleifð órækt vitni. Sjálfur
kynntist ég þessu í fari Jóns Leós
bróður hans.
Þórhallur Leósson fæddist á
ísafirði, sonur hjónanna Kristínar
Halldórsdóttur frá Rauðamýri og
Leós Eyjólfssonar söðlasmiðs og
kaupmanns, en hann var bróðir
Höllu skáldkonu á Laugabóli. Eyj-
ólfur faðir Leós var bóndi, en for-
feður hans í beinan karllegg vom
prestar í 6 ættliði, að undanteknum
þriðja ættliðnum, sem var Bjami
Pálsson, landlæknir.
Þórhallur ólst upp með sínum
virtu foreldmm og systkinum á
Isafirði og isafjörður var ævina á
enda ofarlega í huga hans. Sérstak-
lega minntist hann íþróttastarfsins
þar, sem hann var lífið og sálin í á
uppvaxtarámm sínum. Hann var
fjölhæfur íþróttamaður og stofnaði,
ásamt bræðmm sínum, íþróttafé-
lagið Hörð og var fyrsti formaður
þess. Síðan sigldi Þórhallur, ásamt
Jóni bróður sínum, til verslun-
amáms í Danmörku(og lauk prófí
frá Kaupmannaskólanum í Höfn
árið 1924.
Árið 1931 kvæntist hann eftirlif-
andi eiginkonu sinni Steinunni Ás-
geirsdóttur frá ísafirði, merkri
mannkostakonu. Meðan þau bjuggu
á ísafirði stundaði hann verslunar-
störf og rak eigin verslun í 8 ár.
En 1940 fluttust þau með þijú böm
sín til Reykjavíkur, þar sem hann
Hafnarfj örður;
Borgarafund-
ur um sam-
göngur og mál-
efni Landleiða
ALMENNUR borgarafundur
verður haldinn um almennings-
samgöngur og málefni Landleiða
í Gaflinum í Hafnarfirði i kvöld,
þriðjudaginn 3. maí klukkan
20.00
Að fundinum standa Fjarðarpóst-
urinn og Útvarp Hafnarfjarðar og
verður bein útsending frá fundinum
á FM 91,7. Hægt er að koma fyrir-
spumum, munnlegum eða skrifleg-
um, til Fjarðarpóstsins fyrir næst-
komandi þriðjudag og eins má
leggja fram skriflegar fyrirspumir
í upphafi fundarins á þriðjudags-
kvöldið.
Framsöguerindi flytja Ágúst
Hafberg, forstjóri Landleiða, Jón
Gestsson hópferðahafi, Magnús Jón
Ámason formaður bæjarráðs og
Svend Aage Malmberg, haffræð-
ingur, fulltrúi neytenda. Fundar-
stjórar em Fríða Proppé og Sigurð-
ur Sverrisson frá Fjarðarpóstinum.
vann áfram að verslunarstörfum,
lengst af hjá heildversluninni Eddu.
Þau Steinunn og Þórhallur byggðu
sér hús við Sörlaskjól, á sólarströnd
Seltjarnamess má kalla, þar sem
6Þ einhver fegursta ijara á höfuð-
borgarsvæðinu. þar stóð heimili
þeirra í 38 ár. Bömin urðu 5 að
tölu og bamabömin em orðin mörg.
Öll hafa þau notið yndisstunda í
þessu afa- og ömmuhúsi.
Og þar opinberaðist undirrituð-
um einmitt við sérstakt tækifæri, í
áttræðisafmæli ættföðurins, hve
mild og máttug áhrifin höfðu verið
frá honum, og þeim báðum, á
bama- og afkomendahópinn. And-
rúmsloftið talaði sínu þögla en ótví-
ræða máli. Þar að auki talaði einn
sona hans til hans, sem undirstrik-
aði allt er aldrei verður sagt en er
þó ofar öllu, þar sém kærleikurinn
ríkir.
Afmælisbarnið var ofurlítið ann-
ars hugar, heyrði e.t.v. ekki allt sem
sonurinn sagði. En hvað sem því
leið ríkti „sólfögur gleðin á brá“.
Hann var heima hjá sér, þar sem
hjarta hans hafði ætíð verið, í hópn-
um sínum. Það var honum allt og
þótt sonurinn gæti reiknað með að
faðir hans fylgdist ekki með hveiju
orði, er hann mælti til hans af
innsta hjartans gmnni, valdi hann
orð sín og tóninn, sem hann talaði
í, af slíku listfengi og kostgæfni sem
líf lægi við að áhrifin, sem hann
hafði orðið fyrir frá honum, bærust
aftur til upphafs síns.
Síðustu árin þurfti Þórhallur
umönnunar við á hjúkrunarheimili.
Aldrei brást þó ástúð eiginkonu og
barna. Og svo lengi sem einhver
veit eitthvað í þennan heim, og finn-
ur til, nær hún ein í gegnum alla
skilveggi. Emil Björnsson
rU£i5r« mk Ht*
\ upp pbne ?
Gódandaginn!
16. og 30. júní verða sérstakar
fjölskylduferðir til Costa Del
Sol. í þessum ferðum sem
kallaðar eru HNOKKA-
FERÐIR, fá öll börn á aldrin-
um 2-11 ára 40% afslátt og
12-15 ára 11.700 kr. afslátt.
Hnokkaferðir okkar til
Costa Del Sol hafa slegið í
gegn. Fjöldi ánægðra við-
skiptavina vitnar um það.
Við bjóðum aðeins fyrsta
flokks gististaði, þar sem
aðstaða og þjónusta er til
fyrirmyndar. PRINCIPTO
SOL, SUNSET BEACH CLUB
ofl.
Fararstjórarnir Þórunn
Sigurðardóttir og Sigríður
Stephensen sjá um að allir
séu ánægðir. Jakcbína
Davíðsdóttir, HNOKKA-
FARARSTJÓRI, heldur uppi
fjörinu hjá ungu kynslóðinni
og léttir áhyggjum af
foreldrunum.
Öll börn fá fría húfu, Sögu-
bol og meðlimakort í
Hnokkaklúbbnum. í lok
sumars verður svo dregið úr
öllum kortunum og þá verða
5 börn svo heppin að fá fría
ferð sumarið 1989.
BROTTFARW
Nú eru 6kkÍ
'1 '
FERDASKRIFSTOFAN
Suðurgötu 7
S.624040