Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988 Ný dælustöð tekin 1 notkun í Reykjavík: Hrein strönd eftír þrjú ár TEKIN hefur verið í notkun ný dælustöð við Laugalæk fyrir hol- ræsi, sem liggja frá Ægisgötu, að Hringbraut og Skógarhlíð, Bú- staðavegi, austan við Grensássveg og norðanvert Laugarnesi. Er dælustöðin liður í heildaráætlun borgarinnar um hreinsun strand- lengjunnar af mengun vegna hol- ræsa á næstu tveimur til þremur árum. Heildarkostnaður við nýju dælustöðina er um 85 milljónir króna. Davíð Oddsson borgarstjóri, sagði að með tilkomu stöðvarinnar væri áfanga náð að hreinsun stranda- lengjunnar við borgina. Leiðslur með ströndinni hafa verið sameinaðar að hluta og tengdar dælustöðinn. Þegar lokið er við dælustöð sem nú er I byggingu við Skúlagötu, og fyrir- hugaða hreinsistöð í Laugamesi, verður strandlengjan hrein við Skú- lagötu. Sagði Davíð að á næsta ári yrði hafist handa við Ægisíðu en þar á að sameina holræsi úr Fossvogi og Skeijafírði í tvær dælustöðvar og þaðan í eina hreinsistöð. Því næst tekur strandlengjan við Eiðsgranda við með tveimur dælustöðvum og hreinsistöð í Örfirisey. „Á undan- gengnum árum hafa borgaryfírvöld- um vaxið í augu kostnaður við þess- ar framkvæmdir og því ávalt lagt til hliðar áætlanir um endurbætur. Morgunblaðið/Þorkell Þórður Þ. Þorbjamarson borg- arverkfræðingur, Davíð Oddsson borgarstjóri, sem vígði nýju dælustöðina og Ingi Ú. Magnús- son gatnamálastjóri. Nýja dælustöðin við Laugalæk sem formlega var tekin í notkun í gær. Kostnaður rejmdist hinsvegar lægri er til var tekið og nú er verkið vel á veg komið," sagði Davíð. VEÐURHORFUR í DAG, 3..S. 88 YFIRUT f flær: Yfir Grænlandshafi or 1.008 mb smálægð sem þokast SA. Milli Jan Mayen og N-Noregs er 1.002 mb. lægð og 1.028 mb hæð yfir NA-Grænlandi. Frost verður víða á NA- og A-landi í nótt, en í öðrum landshlutum verður hiti á bilinu 2-5 stig. SPÁ: Hæg breytileg vindátt og skýjað víðast hvar á landinu. Sum- staðar skúrir eða slydduél. Hiti 1-5 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á MIÐVIKUDAG: S og SV-átt og fremur svalt vestan- lands, en hlýrra annars staöar. Skúrir eöa slydduól á S- og V-landi en víöast þurrt á N- og A-landi. HORFUR Á FIMMTUDAG: SA-átt um allt land og nokkuð hlýtt víðast hvar. Rigning um sunnanvert landið en úrkomulítið fyrir norðan. TÁKN: x, Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- 10 Hitastir,; 10 gráður á Celsius stefnu og fjaðrirnar • Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður SJ Skúrir er 2 vindstig. * V H Léttskýjað / / / / / / / Rigning — Þoka Hálfskýjað / / / = Þokumóða * / * ’ , » Súld Skýjað ' * / * Slydda / * / OO Mistur * * * —j- Skafrenningur Alskýjað * * * * Snjókoma * * * |Tx Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UMHEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hltl 1 5 veður þoka skúr Bergen 8 rígning Helsinki 1* lóttskýjað Jan Mayen +3 snjóél Kaupmannah. 13 rignlng Narssarssuaq 3 ekýjeð Nuuk 44 skýjað Osló 13 rigning Stokkhólmur 16 skýjað Þórshöfn 3 alskýjað Algarve 19 léttskýjað Amsterdam 17 skýjað Aþena vantar Barcelona 18 skýjað Berlln 20 ekýjað Chlcago 4 skýjað Feneyjar 17 þokumóða Frankfurt 13 skúr Qlasgow 12 mlstur Hamborg 1S akýjað Las Palmas 22 skýjað London 15 skúr Los Angeles 13 heiðskírt Lúxemborg 12 skur Madrfd 11 rignlng Malaga 22 skýjað Mallorca 21 akýjað Montreal 8 alskýjað New York vantar Parfs 16 skýjað Róm 18 skýjað San Diego 11 heiðskýrt Winnipeg vantar Kona í gæsluvarðhaldi: Stakk sambýlis- mann sinn hnífi KONA í Reykjavík var í gær úr- skurðuð í Sakadómi Reykjavíkur í gæsluvarðhald til 1. júní næst- komandi. Hún hefur játað að hafa stungið sambýlismann sinn með hnif í kviðarholið og liggur hann nú þungt haldinn á sjúkrahúsi. Aðfaranótt laugardagsins var nokkuð gestkvæmt í íbúð sambýlis- fólksins við Hagamel í vesturhluta Reykjavíkur og sat fólk þar að drykkju. Talið er að einhvem tíma þá um nóttina hafí konan stungið sambýlismann sinn, en ekki er vitað nákvæmlega hvenær atburðurinn átti sér stað. Það var ekki fyrr en snemma á sunnudag sem fólk f íbúð- inni kallaði eftir aðstoð og var mað- urinn þá fluttur með hraði á sjúkra- hús. Sambýliskona hans játaði við yfírheyrslu að hafa stungið manninn og notað til þess vasahnff. Ekki er ljóst hvað leiddi til þess að konan stakk manninn. Rannsóknarlögregla ríkisins, sem fer með rannsókn máls- ins, gerði kröfu um að konan yrði úrskurðuð í gæsluvarðhald til 1. júní og var úrskurðurinn kveðinn upp í Sakadómi Reykjavíkur eftir hádegi í gær, mánudag. Á sunnudag var maðurinn talinn í lífshættu. í gærmorgun var hann á batavegi, en var þó ekki enn talinn úr allri hættu. Akærður fyrir að bana konu sinni MAÐUR í Reykjavík hefur verið ákærður fyrir að hafa orðið eig- inkonu sinni að bana á heimili þeirra að Klapparstig 11 í janúar sl. Þann 10. janúar síðastliðinn til- kynnti maðurinn, sem er 51 árs, að eiginkona hans, Gréta Birgis- dóttir, 26 ára, væri látin í íbúð þeirra að Klapparstíg. Þegar lög- reglan kom á vettvang fann hún konuna látna, en eiginmaðurinn, sem var í fbúðinni, var handtekinn. Hann bar fyrst að konan hefði veitt sér sjálf þá áverka er drógu hana til dauða, en síðar viðurkenndi hann átök við hana. Við krufningu kom í ljós að dánarorsök konunnar var köfíiun. Ákæra í málinu hefur nú verið birt eiginmanninum, en Pétur Guð- geirsson, sakadómari, fer með mál- ið fyrir Sakadómi Reykjavíkur. Hraðfrystihús Stokkseyrar: Stefán Runólfsson var ráðinn framkvæmdastjóri STEFÁN Runólfsson hefur ver- ið ráðinn framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Stokkseyrar. Hann tekur við þvi starfi I júlf- mánuði næstkomandi. Stefán hefur undanfarin ár ver- ið búsettur í Vestmannaeyjum og hefur unnið við fískvinnslu í tæp 40 ár. Síðastliðin 14 ár hefur hann verið framkvæmdastjóri Vinnslu- stöðvarinnar í Vestmannaeyjum, en hætti störfum þar fyrir nokkru. Stefán sat í 12 ár í stjóm Sölusam- bands fslenzkra fískframleiðenda og á nú sæti í stjóm Umbúðamið- stöðvarinnar. Stefán Runólfsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.