Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988 Barnabæturnar og blessunin eftirEddu Ragnarsdóttur Eru stjómvöld, og þá er átt við bæði ríkisstjóm og verkalýðsforystu alveg orðin ær, — eða er vísvitandi verið að vinna að því að gera al- þýðu þessa lands gjaldþrota? Hingað til höfum við ekki heyrt um neinn sem getur lifað á loftinu. Magnús sálarháski reyndi að lifa á kindalungum í eina viku, munnvatni í aðra og Guðsblessun í þá þriðju — og var sú vikan verst að hans sögn. Við höfum að vísu munnvatnið, en það er orðin spuming með blessun- ina, að minnsta kosti er prestastétt- in búin að fá fýrir hjartað vegna þess hvað einstæðir foreldrar hafa það gott. Það em nú meiri ósköpin, hvað við höfum það gott. Við fáum bamabætur — eða hvað? Einstætt foreldri með ungling 16 ára og eldri fær ekki bamabætur og getur heldur ekki nýtt ónýttan persónuafslátt afkvæmis síns. Aft- ur á móti getur fólk í sambúð og hjón nýtt ónýttan persónuafslátt sambúðaraðila allt að 80%. Ungl- ingur á þessum aldri er í flestum tilvikum í skóla og dýr í rekstri, jafnvel þó hann/hún sé ekki í neinu tómstundastarfí, íþróttum, tónlist eða öðru því sem ætti að vera sjálf- sagt fyrir æsku þessa lands. Með nýjum skattalögum, matar- skatti og hækkaðri vísitölu, auk annarra hremminga hafa kjör ein- stæðra foreldra versnað svo að til algjörs hmns horfír. Þess vegna komum við saman nokkrir félagar í FEF og gerðum úttekt á heimilis- bókhaldi nokkurra félagskvenna. Til viðmiðunar em upplýsingar frá Hagstofu íslands um vísitölu- ijölskylduna. Vísitölufjölskyldan samanstendur af hjónum með rúm- lega eitt og hálft bam, þ.e. 3,66 meðlimir, og samkvæmt útreikning- um sérfræðinga Hagstofunnar þarf þessi íjölskylda til mánaðarlegra útgjalda kr. 116.548,- og er þá ekki húsleiga reiknuð, en hús- næðisliður talinn ca 10% þessarar upphæðar. Eitt er að þurfa en annað er að hafa til ráðstöfunar og munum við nú koma með dæmi því til sönnunar. Lítum fyrst á einstæða móður með eitt bam á framfæri sínu, þar sem það er langalgengasta fjöl- skyldumunstur einstæðra foreldra. Þessi umrædda kona býr í Reykja- vík, leigir á almennum leigumark- aði og vinnur í verslun. Hún hefur í laun kr. 34.000,- á mánuði, frá dregst lífeyrissjóðsgjald kr. 1.360 og kr. 340 í stéttarfélags- gjald, þannig að útborguð laun em kr. 32.300,- Telqur: Útborguð laun Bamabætur Meðlag Mæðralaun Bamabótaauki Útgjöld: Húsaleiga Hússjóður Rafmagn Sjónvarp Sími Dagheimilisgjald Strætisvagnakostn. Mismunur kr. 32.300 kr. 4.472 kr. 5.332 kr. 3.342 kr. 3.540 kr. 48.986 kr. 25.000 kr. 1.250 kr. 1.991 kr. 1.162 kr. 875 kr. 5.462 kr. 3.200 kr. 38.940 kr. 10.046 sem verður að duga fyrir mat, föt- um og tilfallandi útgjöldum tveggja aðila. Er nokkur undrandi yfír því að þessi kona er að gefast upp á því að láta enda ná saman. Eða finnst ykkur hún mjög svo öfunds- verð af bamabótunum? Auk þess má benda á að bamabætur koma til útborgunar á þriggja mánaða fresti, en ekki mánaðarlega, ena þótt við reiknum þau þannig út hér. Og bamabótaauki greiðist með tveimur greiðslum. Fyrri greiðsla eigi síðar en 1. ágúst og síðari greiðsla eigi síðar en 1. nóvember. Aftur á móti fá þeir sem nutu bamabótaauka á árinu 1987 55% af greiðslum þess árs fyrirfram og greiðist sú upphæð með tveimur jöfnum greiðslum fyrri hluta árs. í dæmi okkar deildum við bamabót- um og bamabótaauka jafnt niður á árið óg reiknuðum þá með fullum bótum. Einnig er öllum útgjalda- auka deilt niður í jafnar mánaðar- legar greiðslur. Ef þessi kona skuld- ar skatta eru þau gjöld dregin frá bótum og getur svo farið að hún fái yfírhöfuð engar bætur útborgað- ar. Ef konan er nýskilin og/eða nýlega hefur verið slitið sambúð, em skattaskuldir eiginmanns eða sambúðaraðila teknar af bamabót- um. Og svona til umhugsunar: Eiga bamabætur ekki að vera leiðrétting á skattprósentu, þar sem allir fá nú sama persónuafslátt, sama hvar í fíokki þeir standa félagslega, og vera þannig tæki til að rétta hlut bamafjölskyldna og tryggja að bömin okkar fái þó í það minnsta að borða? Einnig er rétt að taka fram að venjulega er talað um bamabætur og bamabótaauka á ársgrundvelli og margir hafa skilið það svo að sú fjárhæð sem þá er nefnd sé til greiðslu í hverjum mánuði. Virðist áróður fjármálaráðherra ekki hvað síst hafa stuðlað að þeim misskiln- ingi í hugum fólks. Formaður VR lét hafa eftir sér í blöðum og sjónvarpi nú nýverið að 75% afgreiðslufólks í verslunum væri með laun á bilinu 32-40 þús- und krónur á mánuði og allir vita að þar em konur í meirihluta. Ekki emm við með þessu að segja að hjónafólk með böm séu öfunds- verð í okkar nútímaþjóðfélagi. Þó er nú éngin goðgá að ætla að þar sem fullorðnir einstaklingar em tveir í stað eins í fjölskyldu, séu heldur meiri tekjumöguleikar fyrir hendi. Enda full þörf á fleiri krónum til heimilisreksturs heldur en fram- angreind kona hefur úr að spila. Eigum við því svolítð erfítt með að skilja þann „kristilega“ hugsunar- hátt, sem ffarn kemur í umræðum þeirra presta sem finnst einstæðum foreldmm vera gert svo mikið hærra undir höfði en öðmm þegnum þessa lands að það hvetji til upp- lausnar hins heilaga hjónabands. Skal hér aðeins minnst á þann samanburð sem gerður hefur verið í fjölmiðlum undanfarið á kjörum einstæðra foreldra og hjóna eða sambúðarfólks. Talað er um allar þessar bamabætur til einstæðra foreldra. Tökum mið af hjónum með eitt bam þar sem maðurinn nýtir 80% af persónuafslætti konu sinnar, og bemm það saman við einstætt foreldri með eitt bam. Þegar um hjónin er að ræða verður nýtanleg- ur persónuafsláttur maka kr. 11.760 á mánuði eða kr. 141.120 á ári. Bamabætur einstæðs foreldr- is umfram hjónin kr. 1.490,67 á mánuði þ.e. kr. 17.888 á ári. Á ársgmndvelli er því mismunurinn kr. 123.232,- hjónafólki í hag. Ekki virðist þessi samanburður vera hvetjandi til sambúðar- eða hjóna- bandsslita, eða hvað? Að ekki sé 21 Edda Ragnarsdóttir „Með nýjum skattalög um, matarskatti og hækkaðri vísitölu, auk annarra hremminga hafa kjör einstæðra foreldra versnað svo að til algjörs hruns horfir. Þess vegna komum við saman nokkrir félagar í FEF og gerðum úttekt á heimilisbókhaldi nokkurra félags- kvenna.“ nú minnst á samanburð á bamlaus- um hjónum og foreldri með ungling á framfæri. Hjá hvomgu er um bamabætur að ræða — og reikni nú hver sem vill. Og þá skulum við iíta snöggvast á annað dæmi um einstæða móður. Hún býr líka í Reykjavík, hún á bfl, íbúð í blokk (fasteignamat 4,1 millj.) og vinnur á skrifstofu. A heimilinu hjá henni býr sonur henn- ar, 17 ára gamall nemandi í flöl- braut. Með honum fær hún ennþá meðlag og mæðralaun, en ekki bamabætur og fær ekki að nýta ónýttan persónuafslátt hans, því gagnvart skattinum er sonurinn sjálfstæður einstaklingur og konan er því einungis að hálfu einstæð móðir, ef marka má tvískinnung opinberra stofnana. Laun þessarar konu era kr. 76.362 á mánuði, skattar em kr. 12.082, lífeyrissjóð- ur kr. 1.944 og stéttarfélagsgjald kr. 535, þannig að útborgað fær hún kr. 61.801,00. Gjöld á árs- gmndvelli sem falla undir hús- næðislið em fasteignagjöld kr. 20.922, afb. vextir og vísitöluálag kr. 324.000, eignaskattur kr.‘ 11.896, samtals kr. 356.818, það er kr. 29.734 á mánuði, sé því deilt jafnt niður á árið. Þá lítur dæmið þannig út: Tekjur: Útborguð laun kr. 61.801 Meðlag kr. 5.332 Mæðraiaun kr. 3.342 kr. 70.475 Gjöld: Húsnæðisliður kr. 29.734 Hússjóður 2.230 Skattar af mæðral. kr. 1.176 Rafmagn kr. 1.897 Sfmi kr. 987 Sjónvarp kr. 1.162 Bifr.kostn. (skv. FÍB) kr. 11.988 kr. 49.174 Mismunur 21.301 Laun þessarar konu em ekki rauntekjur. 36,30% er fyrir eftir- vinnu, þannig að ef hún missir hana á hún ekkert eftir til að lifa af og er í raun í mínus um kr. 6.413 á mán- uði. Óréttlæti eignaskattsins hefur bmnnið á mjög mörgum í þessu landi. Tökum sem dæmi hjón sem eiga skuldlausa íbúð að fasteigna- mati 3,9 milljónir. Fasteignamatið skiptist milli þeirra, þau borga eng- an eignaskatt. Ef fjölskyldan sam- anstendur af einstæðu foreldri með bam, (sú fjölskylda þarfnast ekki minna húsnæðis — hafa hjón ekki yfirleitt sameiginlegt svefnher- bergi?) þá telst húsnæðið í eigu ein- staklings, sem þar af leiðandi þarf að borga eignaskatt. Sömu sögu er að segja um konu sem verður ekkja. Hún borgaði engan eigna- skatt fyrir lát maka síns, en þegar launatekjur skerðast við fráfall hans, þarf hún að fara að borga eignaskatt. Undarlegt réttlæti það. Þykir okkur sem eignaskatts- mörkin séu alltof lág. Miða þyrfti við að íbúðarhúsnæði, sem ekki teldist óhóflega stórt yrði eigna- skattlaust. Við íslendingar verðum að beijast í þvi mest alla okkar ævi að eignast þak yfír höfuðið og eram svo sannarlega látnir borga opinber gjöld af launatekjum okkar. Hversu oft eigum við að borga skatta af sömu fjárhæð? Þá er það einnig furðulegt að okkar áliti hvemig húsnæðisbætur em ákvarðaðar. Einstaklingur, þar með taldir einstæðir foreldrar, án tillits til bamafjölda viðkomandi, fær ákveðna ijárhæð. En hjón, sam- búðarfólk eða einhveijir tveir éin- staklingar kaupa saman íbúð, fá þau tvöfalda þá fjárhæð. Eigum við að trúa þvi að vaxtakostnaður á hveija íbúð sé hærri ef tveir — eða jafnvel þrír — em um að afla tekna til að greiða kostnaðinn? Að hveijum er verið að gera grin? Grátt finnst okkur það grín vera. Höfundur er formaður Félags ein- stæðr.a foreldra (FEF) ogritaði þessa grein fyrir hönd samstarfs- bóps félagsins. STÓRIR-STERKIR-SPARNEYTNIR HINO FBog HINO FD eru í fremstu röö flutningabíla af milli- stærö. Við eigum nú til afgreiðslu STRAX og á sérlega hagstæðu verði: HINO FB 113: Heildarþungi: 7500 kg Burðargeta: 5400 kg Vél: 111 Hö HINO FD 174: Heildarþungi: 9900 kg Burðargeta: 7140 kg Vél: 165 Hö Við getum afgreitt þessa bíla með vönduðum pöllum eða vörukössum, sem vakið hafa verðskuldaða athygli og fengið frábæra dóma atvinnu- manna. Ennfremur léttar álvörulyftur, sturtur og vökvakrana. Hafið samband við sölumenn véladeildar, sem veita fúslega allar nánari upplýsingar. BÍLABORG H.F. FOSSHÁLS11, SlMI 68 12 99
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.