Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988 HÁTÍÐARHÖLD í TILEFNI 1. MAÍ Pólland: Harðvítug átök sljórnar- andstæðinga og herlögreglu Varsjá, Reuter. SVEITIR öryggislögreglu beittu táragasi og kylfum gegn stjómarandstæðingum i að minnsta kosti sex pólskum bæj- um og borgum á sunnudag, 1. maí. Lögreglumenn réðust að fylgismönnum „Samstöðu", hinnar ólöglegu hreyfingar pólskra verkamanna, í kirkju einni f Gdansk og kom til harðvítugra átaka, að sögn sjónarvotta. Wojciech Jaruz- elski, hershöfðingi og leiðtogi pólska kommánistaflokksins, sagði að yfirvöld í Póllandi myndu ekki líða stjómleysi og að hvergi yrði hvikað frá stefnu stjómvalda þrátt fyrir óróa og verkföll í landinu að undanf- ömu. Hvatning frá Walesa Fyrr um daginn hafði Lech Walesa, þekktasti leiðtogi „Sam- stöðu“, hvatt þúsundir stuðnings- manna samtakanna til að grípa til aðgerða á mánudag og sýna með því móti stuðning við kröfur 16.000 verkamanna í Lenín-stá- liðjuverinu í Krakow, sem verið hajfa í verkfalli frá því í byijun sfðustu viku. Jaruzelski hershöfðingi sagði í hátíðarræðu í Varsjá að hvergi yrði hvikað frá stefnu stjómvalda í efnhags- og félagsmálum og sagði að stjómleysi í landinu yrði ekki liðið. Áfram yrði unnið að þvf að þoka landinu í átt til lýð- ræðis og umbóta þrátt fyrir and- stöðu fhaldsmanna og þrýsting „niðurrifsafla" í þjóðfélaginu. Keuter Óeinkennisklæddur öryggislögreglumaður grípur til gúmmíkylf- unnar og sprautar táragasi að einum fylgismanna „Samstöðu" í Varsjá. Gífurlegt fjölmenni á Rauða torginu í Moskvu: Sendimenn vestræna ríkja Að sögn sjónarvotta og tals- manna stjómarandstæðinga beittu sveitir öryggislögreglu bar- eflum og táragasi gegn þúsundum stjómarandstæðinga sem safnast höfðu saman í tilefni dagsins í Varsjá, Gdansk, Krakow, Wroc- law, Lodz, Poznan og Plock. Heimildarmenn Reuíers-frétta- stofunnar sögðu fimm öryggislög- reglumenn hafa ruðst inn í kirkju heilagrar Brygidu í Gdansk. Fé- lagar í „Samstöðu" höfðu safnast saman í kirkjunni og grýttu þeir öryggisverðina. Kom til átaka inni í kirkjunni og lumbruðu stjómar- andstæðingar á tveimur heriög- reglumönnum eftir að hafa af- vopnað þá. Fréttaritari Reuters í Gdansk kvað hundruð herlög- reglumanna og stjómarandstæð- inga hafa barist á götum borgar- innar og grýttu fylkingamar hvora aðra auk þess sem táragasi og bareflum var óspart beitt. Atökin stóðu f um 40 mfnútur og var fjökii fólks handtekinn. Marg- \r hlutu opin sár eftir að hafa prðið fyrir bareflum herlögreglu- manna sem spörkuðu gjaman í herskáustu „Samstöðu“-mennina eftir að hafa slegið þá niður. tóku bátt í hátíðarhöldunum Mnolrvu Rnntop Moskvu, Reuter. HUNDRUÐ þúsunda Moskvubúa tóku þátt f hátfðarhöldum á Rauða torginu f Moskvu f tilefni af I. maf, alþjóðlegum baráttu- degi verkalýðsins. Sendiherrar vestrænna ríkja voru viðstaddir hátíðarhöldin f fyrsta skipti frá þvf í desember 1979 og sögðust stjómarerindrekamir með þessu vifja lýsa yfir ánægju sinni með þá ákvörðun Sovétstjóraar- innar að kalla innrásarliðið heim frá Afganistan. Ekkert þótti koma fram við hátfðarhöldin, sem bent gæti til þess að dregið hefði verið úr áhrifum Jegors Lfgatsjovs, næstráðanda Mfkhafls Gorbatsjovs Sovétleið- toga. Hátfðarhöldin á Rauða torginu stóðu í tæpar tvær klukkustundir. Göngumenn báru borða, fána og blöðrur í öllum regnbogans litum auk þess sem skrautlegir vagnar voru dregnir yfir torgið. Áletranir og slagorð þar sem lýst var yfir stuðningi við umbótaáætlun Heuter Raisa Gorbatsjova kaupir sér kaffi á Rauða torginu. Mfkhafl Gorbatsjov, aðalritari sovéska kommúnistaflokkfeins, veifar til mannfjöldans ofan af grafhýsi Lenfns á Rauða torg- < inu. Gorbatsjov á hægri hönd er Andrei Gromýko, forseti Æðsta ráðs Sovétríkjanna, og hinum megin við Gorbatsjov getur að líta Níkolaj Rýzhkov, forsætisráðherra Sovétrfkjanna. Mfkhafls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga voru áberandi. Fremur kalt var í verði og var Gorbatsjov klæddur þykkum frakka og með hatt er hann tók sér stöðu á grafhýsi Vladimírs Leníns byltingarleiðtoga á Rauða torginu. Á hæla honum komu An- drei Gromýko forseti og Níkolaj Rýzhkov forsætisráðherra. Næstur þeim kom Jegor Lígatsjov, hug- myndafræðingur flokksins og ann- ar valdamesti maður Sovétríkj- anna. Orðrómur hefur verið á kreiki um að völd hans hafi verið skert í kjölfar birtingar greinar í sovésku dagblaði þar sem ráðist var harka- lega að umbótaáætlun Gorbatsjovs og stjómarhættir Jósefs Stalíns varðir. Lígatsjov veifaði til mann- fjöldans og virtist hinn ánægðasti. Spjölluðu þeir Gorbatsjov saman í mikilli vinsemd á meðan aðrir fé- lagar stjómmálaráðsins komu sér fyrir á grafhýsinu. Sögðu sérfræð- ingar um sovésk málefni að Lígatsjov hefði tekið sér hefð- bundna stöðu næstráðanda leið- toga sovéska kommúnistaflokksins og hefði ekkert komið fram við hátfðarhöldin sem bent gæti til þess að völd hans og áhrif hefðu verið skert. Við hlið Gorbatsjovs stóð Viktor Tsjebríkov, yfirmaður sovésku öryggislögreglunnar, KGB, en hann er einnig sagður hafa efasemdir um ágæti umbóta- áætlunar Sovétleiðtogans. Raísu heilsað Hægra megin við grafhýsi Lenfns höfðu verið reistir pallar og gat þar að líta Raisu Gorbatsjovu, eiginkonu Sovétleiðtogans, ogdótt- ur þeirra Írínu. Ræddu þær mæðg- ur við nokkra áhorfendur, sem valdir höfðu verið úr fjöldanum sem tók þátt í hátíðarhöldunum. Vakti þetta mikla athygli og flykktust ' ljósmyndarar að þeim til að taka myndir. Þar til á sunnudag höfðu sendi- menn erlendra ríkja ekki tekið þátt í opinberum hátfðarhöldum í Sov- étríkjunum frá því í desember árið 1979 er herlið Sovétmanna gerði innrás í Afganistan. Vestrænir stjómarerindrekar kváðust hafa verið viðstaddir að þessu sinni til að lýsa yfir ánægju sinni vegna viðræðna um frið í Afganistan og þeirrar ákvörðunar yfirvalda f Sov- étríkjunum að hefla brottflutning innrásarliðsins þann 15. þessa mánaðar. „Mér þykir við hæfi að taka þátt í hátfðarhjöldunum á ný,“ sagði Jack Matlock, sendi- herra Bandaríkjanna, og bætti við að með þessu vildi hann einnig leggja sitt af mörkum til að bæta andrúmsloftið í samskiptum risa- veldanna fyrir flögurra daga fund þeirra Míkhafls Gorbatsjovs og Ronalds Reagans Bandarflq'afor- seta í Moskvu, sem hefet 29. maí. Austur-Þýskalandi: Göngumenn beðn- ir að sýna skilríki Austur-Berlín, Reuter. LÖGREGLA í Austur-Berlín gerði Ieit að andófsmönnum á meðan á 1. mai hátiðarhöldum stóð á sunnudag. Að sögn vest- rænna sendimanna vom að minnsta kosti fjórir kirkjugestir handteknir. Þúsundir tóku þátt í opinberum hátfðarhöldum f borginni. Mikill fyöldi manna tók þátt í kröfugöngunni niður Karl-Marx- stræti í Austur-Berlín. Báru göngumenn borða, slepptu blöðrum og veifuðu til leiðtoga kommúnistaflokksins Erichs Honeckers og annarra háttsettra flokksleiðtoga. Sjónarvottar segja að lögregla hafi beðið marga þeirra sem vildu taka þátt í göngunni um skilríki áður en þeir fóru f raðir göngumanna. Segja vestrænir sendimenn, að þeir hafi ekki séð slfkt eftirlit áður. Óeinkennis- klæddir lögreglumenn komu í veg fyrir að ljósmyndarar og vestur- þýskir sjónvarpsmenn gætu fest það á filmu, þegar lögreglan krafð- ist skilríkja af göngufólki. Talsmaður kirkjuyfirvalda í Austur-Berlín sagði að lögregla hefði elt mann frá heimili hans við Alexanders-torg þar sem hann hefði verið handtekinn ásamt fimm ára dóttur sinni. Maðurinn var á leið til guðsþjónustu í Soffíu-kirkj- unni þar sem lögregla hafði tekið nokkra menn höndum skömmu áður. Kirkjan í Austur-Þýskalandi hefur oft skotið skjólshúsi jrfir andófsmenn og virðist sem lög- regla hafi ætlað að hafa hendur í hári stjómarandstæðinga við guðs- þjónustur á 1. maí. 0 Reuter Óvenjuleg sjón á Spáni Mörg þúsund manns tóku þátt í 1. maí hátíðarhöldum í Madríd á Spáni þrátt fyrir gífurlega úrkomu. Þátttakendur í hátíðahöldunum í Madríd sjást hér kyija „Intemationalinn", alþjóðasöng verka- manna, undir risastóm veggspjaldi af Jósef Stalín.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.