Morgunblaðið - 03.05.1988, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
7
^ * ... &— 1 i
"
'
- • . '
' ’ "" 'J.V
■ -jJRSlllsgaÉi
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Framkvæmdir í fullum g-angi við hafnargarðinn í Helguvík.
Helguvík:
Hálft annað tonn af
SAGAN
UM SIGVALDA
OG FfÓRHJÓLŒ)!*
Þetta er sagan um Sigvalda, sem vann stóra vinninginn í happdrættinu. Hvorki meira
né minna en Mercedes Benz. Hann seldi bílinn þegar í stað og keypti sér Kjarabréf
í staðinn. Þetta er svo sem ekki óvenjuleg saga, ef það væri ekki staðreynd að Sigvaldi'
ekur nú, eins og greifi, á Mercedes Benz, konan hans á Toyota Coroila og
dóttursonur þeirra var tekinn úr umferð á nýju fjórhjóli í fyrradag.
Þetta byrjaði með miða...
grjóti í hafnargarðinn
Vogum.
FRAMKVÆMDUM sem verk-
takafyrirtækið Núpur hf. sér um
við gerð í Helguvík mun að mestu
ljúka í júni að sögn Hermanns
Sigurðssonar iýá Núp. Fram-
kvæmdiraar hófust í apríl árið
1986.
Höfnin í Helguvík er dýpsta höfn
landsins og er hafnargarðurinn
hæsta stífla sem hefur verið gerð
hérlendis, nokkru hærri en stíflan
í Sigölduvirkjun.
Hönnun hafnarinnar er af nýrri
gerð, en Vita- og hafnaniálastofnun
hefur þó notað samskonar hönnun
lítillega við gerð smærri garða hér-
lendis. Aðeins ein höfn í heiminum
hefur til þessa verið unnin sam-
kvæmt þessari aðferð. Hins vegar
eru 3 sams konar hafnir í byggingu
í heiminum í dag.
Gijótinu í garðinn er komið fyrir
í þykkum lögum, en ekki er aðeins
um stóra steina að ræða. Allt gijót
sem hefur farið í hafnargarðinn er
vigtað og hefur alls ein og hálf
milljón tonna af gijóti farið í hafn-
argarðinn, en til að fylgjast með
legu garðsins hefur verið notast við
fullkomnustu sjómælingatæki, sem
hafa verið um borð í bátnum
„Pjakk“ og koma upplýsingamar
strax fram á tölvu.
- EG
Kaupfélag Vestur-Barðstrendinga:
Verslunarhús slegið
Samvinnubankanum
Hæsta tilboð í sláturhús 50 þúsund
Verslunarhúsnæði Kaupfélags
Vestur-Barðstrendinga, Aðal-
stræti 62 á Patreksfirði, var sleg-
ið Samvinnubankanum á 6 millj-
ónir króna á nauðungarappboði
á Patreksfirði á föstudag, að
sögn Viðars Más Matthíassonar
hrl., bússtjóra í gjaldþrotabúi
kaupfélagsins.
Sláturhús Kaupfélags Vestur-
Barðstrendinga í Örlygshöfn í
Rauðasandshreppi var einnig boðið
upp sama dag og átti einstaklingur
í Rauðasandshreppi hæsta boð í
húsið, 50 þúsund krónur, en ekki
hefur verið tekin ákvörðun um hvort
boðið verður samþykkt, að sögn
Viðars Más.
Kaupfélag Vesturbarðstrendinga
var tekið til gjaldþrotaskipta 18.
nóvember sl. Samkvæmt kröfulýs-
ingaskrá, sem lögð var fram á
fyrsta skiptafundi búsins 17. mars
sl., var 126 kröfum lýst í búið, sam-
tals að fjárhæð rúmlega 158 millj-
ónir króna.
Stefán Ágúst
Kristjánsson látinn
STEFÁN Ágúst Kristjánsson,
fyrrverandi forstjóri á Akureyri,
lést í Reykjavík aðfaranótt
sunnudagsins 1. maí á 91. aldurs-
ári.
Stefán fæddist 14. maí 1897 í
Glæsibæ við Eyjafjörð, sonur hjón-
anna Kristjáns Jónssonar bónda og
trésmiðs þar og Guðrúnar Odds-
dóttur frá Dagverðareyri.
Stefán Ágúst var forstjóri
Sjúkrasamlags Akureyrar frá 1936
til 1970 eða í samfleytt 34 ár. Um
langan aldur veitti hann margvís-
legum menningar- og félagsmálum
lið, m.a. bindindishreyfíngunni. En
jafnframt sínu aðalstarfi sem for-
stjóri Sjúkrasamlagsins var hann
lengi forstjóri Borgarbíós og einn
aðalhvatamaður að stofnun Hótels
Yarðborgar á vegum IOGT. Stefán
Ágúst vann mjög að tónlistarmál-
um, en hann var einn af stofnendum
Tónlistarfélags Akureyrar árið
1943 og stjómarformaður þess í
24 ár. Eftir hann liggja nokkur
sönglög auk ljóðabóka. Hann flutt-
ist til Reylqavíkur 1970 og bjó þar
síðan til dauöadags.
Stefán Ágúst kvæntist Sigríði
Friðriksdóttur frá Amarnesi við
Eyjafjörð árið 1930 en hún lést
árið 1980. Þau eignuðust tvö böm.
Þú kannast ábyggilega við hann Sigvalda. Hann er búinn að vinna hjá borginni í
fjöldamörg ár. Konan hans, hún María, vinnur á lögmannastofunni austur í bæ. Þú
þekkir þau ábyggilega þegar þú sérð þau. Sigvaldi er mikill útilífsmaður. Hann er
alltaf í einhverju ferðastússi allan ársins hring. Þess vegna komst hann ekki hjá því
að kaupa happdrættismiða á árshátíð ferðaklúbbsins. Hann keypti að vísu ekki nema
tvo miða.
Vinningur í maí
Árshátíðin var í mars, árið 1985. Nokkrum vikum seinna var dregið í happdrættinu.
Það er að segja þann 20. maí 1985. Vinningurinn, Mercedes Benz 190 E árg. 85,
kom á númerið hans Sigvalda. Nú voru góð ráð dýr. Venfulegir borgarstarfsmenn
eins og Sigvaldi aka ekki um á borgarstjórabílum. Slíkt bara gerist ekki.
Happdrættismiði til sölu
Það er ekki hægt að segja að hann Sigvaldi sé bjáni. Síður en svo. Að minnsta kosti
segir hún María, að hann hefði átt að skella sér í pólitíkina, — í stað þess að vera
félagi í SFRB. Það var ekki liðinn dagurinn þegar Sigvaldi var búinn að selja
happdrættismiðann.
„Ég fór bara og talaði við nokkra bíladellukarla. Einn þeirra borgaði miðann út í
hönd,“ sagði Sigvaldi þegar hann kom heim með úttroðið veskið, rúmlega eina
milljón í vasanum!
Peningarnir á fast...
Hún María gat ekki sofið um nóttina. Hún bylti sér á alla enda og kanta í rúminu.
Hún sá fyrir sér innbrotsþjófa, gengisfellingar og alls kyns hörmungar. Sigvaldi aftur
á móti svaf eins og ungabarn — með veskið undir koddanum. Morguninn eftir fór
hann og ræddi við hann Pétur, ráðgjafa hjá Fjárfestingarfélaginu. Pétur ráðlagði
honum að kaupa Kjarabréf, og aðstoðaði hann við kaupin.
Þremur árum síðar...
Laugardagurinn tuttugasti febrúar nítjánhundruð áttatíu og átta var stór dagur í
lífi þeirra hjóna, Maríu og Sigvalda. Þau heimsóttu nýju söluskrifstofuna hjá
Fjárfestingarfélaginu í Kringlunni strax og opnað var um morguninn. Þar fengu þau
kaffisopa hjá Stefáni ráðgjafa og aðstoð við sölu á Kjarabréfunum frá 1985.
... nýr bíll og meira til!
Þegar Sigvaldi seldi happdrættisvinninginn árið 1985 fékk hann 1.050.000 krónur
fyrir miðann. Hann keypti Kjarabréf fyrir 1.049.580 krónur. Við sölu Kjarabréfanna
fékk hann 2.685.422 krónur. Þannig gat hann samdægurs keypt sér 1988 árgerð af
Mercedes Benz. Nákvæmlega sama bíl og var í vinning á sínum tíma, en auðvitað
spánýjan. Bíllinn kostaði hann 1.360.000 krónur sléttar. Hann keypti þar að auki
Toyota Corolla bíl fyrir Maríu. Corollan kostaði 505.000 krónur. Þar af leiðandi átti
hann eftir 820.422 krónur, sem nægðu honum til að gefa Jónasi dóttursyni sínum
splunkunýtt fjórhjól í fermingargjöf. Þá átti Sigvaldi ennþá eftir 630.422 krónur, sem
hann vill ekki segja hvað hann gerði við. Hann Stefán hjá Fjárfestingarfélaginu veit
allt um það, þó að hann segi engum frá því. Hann Stefán selur neftiilega Kjarabréf.
• Þetta er alveg satt. Sögunni og nöfhum hefiir að vísu verið breytt — af augljósum ástæðum!
FJÁRFESHNGARFÉIAGD
__Kringlunni 123 Reykjavík S 689700_
VISÍ7BS0