Morgunblaðið - 03.05.1988, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
19
Vaxandi markað-
ur fyrir íslenskar
vörur í Grænlandi
I S L A N D H . F .
StJ örnarformaður
Vigdls Finnbogadóttir
Stj 6rn
(rlkisrSS)
Forstjóri
Þorsteinn PSlsson
Deildarstjöri
(rSSherra)
Deildarstjóri (ráöherra) Delldars-tjóri (ráðherrj) Deildarstjóri (ráSherra) Deildarstjóri (ráftherra)
Deildarstjfiri
(ráðherra)
Umboðsmenn (þingmenn)
f frá aðeins áfyllingarmarkaður í
innflutningi. Fyrirtækin stækka
nánast ekki meira, nema knésetja
önnur eða innlima þau í sinn rekst-
ur. Útþenslan í einkageiranum hef-
ur séð fyrir endann á sjálfri sér,
og þess vegna að mínu mati óhætt
að hleypa erlendu fjármagni inn í
landið. Á hinn bóginn er opinberi
geirinn á fullri ferð í þenslu, og þar
þurfa stjómvöld að grípa í taumana.
Aðeins með peningastreymi, úti-
búum í öðrum löndum, leyfðri verð-
bréfasölu („portofolio") og fjárfest-
ingum erlendis fyrir okkur íslend-
inga, er möguleiki til þenslu þjóð-
félagsins íslands hf. í framtíðinni,
og það er frá og með nú.
ísland hf. er 247 þúsund manna
þjóðfélag, og því aðeins meðalstórt
fyrirtæki á heimsmælikvarða. Væri
ekki skynsamlegt að skoða þetta
fyrirtæki okkar í ljósi þess, að Vig-
dís Finnbogadóttir er stjórnar-
formaðurinn, stjórn fyrirtækisins
er ríkisráð, forsætisráðherra er for-
stjórinn, ráðherramir deildar-
stjórar, þingmennimir umboðs-
menn og síðan hluthafamir starfs-
menn. Við emm ekkert milljóna-
bákn! ísland hf. á alla framtíð fyrir
sér, en aðeins með persónulegu og
fjármálalegu frelsi.
Svarta kúlan
Oft hefur landanum tekist að
kveikja í svartsýni samlandans, og
er eftirfarandi dæmi- og mynda-
saga, sem er sönn, góð heimild um
það.
Árin 1981 og 1982, verðbólguár-
in, lenti ég undirritaður í því að
þrúgast af dæmigerðri neikvæðni
vegna fjölmiðla og stjórnmála-
manna. Ég varð neikvæður, (þó
jákvæður sé að eðlisfari), og sá
ekkert nema vandamál, eitt alls-
herjar vandamál. Ég hætti að sjá
þjóðfélagið, fyrirtækið og fólkið
mitt í réttu ljósi. En hvemig sem
ég þreifaði fyrir mér, fann ég aldr-
ei þetta vandamál. Það var ekki
áþreifanlegt.
Öllu heilli fór ég erlendis í lok
ársins 1982 og velti því fyrir mér
þar hvað var að gerast, og teiknaði
þá eftirfarandi teiknimyndaröð,
semsé, ég læknaði sjálfan mig á
myndrænan hátt. Myndaröðina
mætti heimfæra upp á stjómmála-
menn í dag.
Lokaorð
Erfíðlega virðist okkur þó ganga
að koma okkur út úr Njálu. Njála
er sú saga sem best lýsir okkur
íslendingum. Sú saga á að öllu leyti
við okkur enn þann dag í dag.
Hárið á Hallgerði og boginn hans
Gunnars em talandi dæmi fyrir
okkur íslendingana og slúðrið í
Njálu ekki síður. Ef okkur tekst í
hvaða mynd sem það er, að hörfa
örlítið frá okkar gömlu hefð, en það
er að vera endasleppir og hefni-
gjamir, beiskir og öfundsjúkir og
leiða hugann jákvætt að íslandi hf.
sem sameiginlegu fyrirtæki okkar
allra, er okkur vel borgið.
ísland hf. var stofnað árið 874
og er því 1114 ára gamalt fyrir-
tæki, rótgróið og traust með vilja
góðra manna, og á alla framtíð
fyrir sér, ef það verður opnað frels-
inu til fulls.
Helst vildi ég losna við að yrkja
aftur limru á borð við eftirfarandi,
sem ort var 1982 í verðbólgubálinu
og ég hef kosið að kalla Fjár(-ans)
málin.
Fjármálin stefndu fjandans til
Fjárinn með stöðuna sér í vil
loks tðk að rofa
ég fór að lofa
Guð fyrir það, sem ég alls ekki skil
En fjármálin tóku aftur stökk
Fjárinn þá sjálfur setti í mig kökk
margt var að varast
ég var að farast
Loks var það bannsettur Fjárinn sem stökk
Tvær spumingar brenna á
mínum vöram, sem fræðimenn í
viðkomandi greinum gætu svarað:
1) Er það ekki verðbólguhvetj-
andi að fyrirtæki fær ekki að taka
erlent lán til vörukaupa, (án skuld-
bindinga íslands hf.) á lágum vöxt-
um, í stað þess að þurfa að taka lán
í gegnum bankakerfíð á háum vöxt-
um. Lán sem Seðlabankinn í raun
tekur erlendis frá til endurláns
gegnum bankakerfíð til fyrirtækja?
2) Getur það verið að ísland hf.
sé ekki aðeins mettað verslunar-
og viðskiptalega, heldur einnig á
menntunarsviðinu. Allir vilja í dag
ná æðri menntun, sem er góðra
gjalda vert. En því fleiri sem fara
í æðri menntun, því færri höfum
við til kennslu nægjanlega mennt-
aðra, m.a. vegna lélegra launa
kennara, sem þýðir í raun lakari
nemendur á hinu æðra menntunar-
stigi. Þetta er verðugt verkefni fyr-
ir stjómvöld og hættulegt íslandi
hf. í framtíðinni.
Höfundur er forstjóri Veltish.f.
ÍSLENDINGAR fluttu á siðasta
ári út vörur til Grænlands fyrir
123 mil(jónir króna og er það
hátt í þreföldum frá árinu áð-
ur, en útflutningur til Græn-
lands var nánast engin þar til
þá. Mest hefur verið flutt út af
útgerðar- og fiskvinnsluvörum
og annarri iðnframleiðslu, að
því er fram kemur í frétt frá
Verslunarráði, en ráðið efnir
nú til kynningar á möguleikum
islenskrar verslunar til að taka
upp almenn viðskipti við Græn-
lendinga.
Kynning þessi verður haldin á
morgunverðarfundi í Hallargarði
Veitingahallarinnar hinn 3. maí
nk. og hefst kl. 8. Þar mun Jens
Ingólfsson, markaðsstjóri hjá Út-
flutningsráði, skýra frá reynslu
ráðsins af stórvaxandi samskipt-
um við Grænlendinga og greina
frá aðstæðum til verslunarvið-
skipta þar.
Áuk útflutnings á íslenskum
iðnvamingi til Grænlands hafa
íslendingar haft nokkrar telq'ur
af þjónustu, svo sem vegna flug-
samgangna. Þá hafa íslenskir
verktakar unnið að talsverðum
verkefnum í Grænlandi síðustu
misseri, m.a. við byggingu sútun-
arverksmiðju og endurbyggingu
fiystiiðnaðar á þremur stöðum.
Verslun á Grænlandi hefur ver-
ið að opnast allra síðustu árin,
segir í frétt Verslunarráðs. Heild-
sala er nær öll í höndum hinnar
opinbera verslunar heimastjómar-
innar, KNT, og um helmingur
smásöluverslunarinnar, en ekki
eru nema 2 ár síðan Grænlending-
ar tóku þessi mál í sínar hendur.
Áður var það lagaskylda Konung-
lega grænlenska verslunarfélags-
ins að tryggja aðdrætti.
Heildsöluveltan var um 12 millj-
arðar króna á síðasta ári. Sáralít-
ill iðnaður er á Grænlandi og því
þarf að flytja inn nær allar vörur
á þennan markað sem telur um
55 þúsund manns. í fréttinni segir
að Grænlendingar hafí sjálfír sýnt
áhuga á að auka almenn viðskipti
við Islendinga og fundur Verslun-
arráðsins sé liður í að kanna hugs-
anleg viðbrögð við því.
RAMVAN
DODGE RAM VAN B250, ÁRGERÐ 1988,,ER
FR^MÍJRSKARANDI VINNUÞJARKIJR A
FRABÆRU VERÐI: AÐEINS KR. 945.000,-
Vél: V8 318 Cid vél með beinni innspýtingu.
Mál: Lengd 5m, breidd 2,02m, hæð 2,05m.
Vörurými: Lengd 2,82m, breidd l,83m, hleðslugeta
1,5 tonn. Gluggar á hliðum og afturgafli.
Innifaliö í verði:
Sjálfskipting • Aflstýri • Læst mismunadrif • Styrkt fjöðr-
un • Krómaðir stuðarar, grill og umhverfis glugga, o.fl.
Allt þetta færðu fyrir aðeins 945.000.-
Greiöslukjör: T.d. 25% í útborgun og afganginn á 2Vi ári.
Opid kl. 9-6 virka daga og kl. 1 - 5 á laugardögum.
m
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600
JOFUR — ÞEGAR ÞU KAUPIR BIL
*gBBggaga»ji»jaiiaMMfli)pwi^i)aiBgBaaBBBgBS