Morgunblaðið - 03.05.1988, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
25
Ami Ólafsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Guðný Kristjánsdóttir,
Brynja Aðalbergsdóttir, Alfreð Alfreðsson og Jóhannes Kjartansson
í hlutverkum sínum i „Skemmtiferð á vigvöllinn“.
„Skemmtiferð
í leikhúsið“
eftír Ómar
Jóhannsson
Leikfélag Keflavíkur frumsýndi
um páskana í tengslum við Menn-
ingarvöku Suðumesja einþáttung-
inn „Skemmtiferð á vígvöllinn"
eftir Spánverjann Arrabal í þýð-
ingu Jökuls heitins Jakobssonar.
„Skemmtiferð á vígvöllinn" er
skemmtilega skrifaður leikur þar
sem tilgangsleysi styijalda er
dregið fram á þann hátt að engum
ætti að dyljast hverslags óþarfi
það er að vera að beijast al-
mennt. Þegar óbreyttur hermaður
fær í heimsókn til sín á vígvöllinn
foreldra sfna, og síðar óbreyttan
óvinahermann, sem að vísu er tek-
inn til fanga til málamynda, kem-
ur í ljós að báðir hermennimir
hafa fengið sömu upplýsingar hjá
sínum yfirmönnum hverslags villi-
menn óvinimir em. Þeir ákveða
að hætta að beijast, en þá heyrist
í flugvél, og allt er búið. Leikurinn
er fullur af kátínu, en þegar áhorf-
endur eiga síst von á þá er það
alvaran sem á lokaorðin, nefnilega
tortíming stríðsins.
Leikstjóranum, Huldu Ólafs-
dóttur, tókst vel að ná út úr leikn-
um því háði sem í honum felst,
og henni hefur einnig tekist að
koma til skila þeim boðskap sem
hann flytur. Allur flutningur leik-
enda er hnökralaus, framsögnin
samningar séu raunvemlegir kjara-
samningar og að „yfirvinnubijálæð-
inu“ hér á landi linni.
Hæstvirtur fjármálaráðherra
hefur fullyrt að þrepaskattur skili
sér ekki í ríkiskassann. Hvemig
má það vera? Hvemig stendur á
þvi að hægt er að hafa þrepaskatt
í Bandaríkjunum og Evrópu en ekki
á íslandi? Em íslendingar meiri
þjófar en þegnar þessara þjóða? Og
ennfremur telur hæstvirtur flár-
málaráðherra ekki að þrepaskattur
muni minnka launamismun í
landinu og þannig auðvelda kjara-
samninga?
Hér með skora ég á ríkisstjómina
að skapa þann gmndvöll sem nauð-
synlegur er til að friður ríki á vinnu-
markaðnum.
Ég leyfi mér að fara fram á að
hæstvirtur §ármálaráðherra svari
erindi mínu og helst í verkum.
Höfundur er foratöðumaður ail-
fræðideildar skóla Fræðsluskríf-
stofu Reykjavíkurumdæmis.
skýr og hreyfingar liprar, þar
hefur leikstjóra einnig tekist að
ná því fram sem hún vildi. Þó
skeður það hér, eins og svo oft
með áhugaleikhópa að ekki er lögð
nóg rækt við litlu hlutverkin, en
ekki ber svo mikið á því að til
vansa sé.
Leikaramir em góð blanda af
gömlum og nýjum, gamall jaxl á
fjölunum, Ámi Ólafsson, fer á
kostum í hlutverki föðurins sem
var í hinu stríðinu. Alfreð Alfreðs-
son náði „mömmustráknum" Zapo
og einfeldni hans vel. Jóhannes
Kjartansson lék Zépo, óvinaher-
manninn og fangann, eins og ör-
yggið uppmálað. Þó var það Sigr-
ún Guðmundsdóttir sem lék möm-
muna sem bar af. Það er alltaf
erfitt fyrir unga leikkonu að leika
sér eldri konu, en Sigrúnu tókst
að ná fram þessari blöndu af
mömmu og snobbkerlingu sem
hlutverkið býður uppá. Hjúkmn-
arkonumar tvær léku þær Guðný
Kristjánsdóttir og Brynja Aðal-
bergsdóttir.
Leikfélag Keflavíkur hefur ver-
ið svo til dautt undanfarin ár svo
ekki get ég annað enn fagnað því
að nú hafi loksins verið hafíst
handa á ný. Það verður að segj-
ast eins og er að það er ekki svo
stóm bæjarfélagi sæmandi að
ekkert leikfélag sé starfandi. Von-
andi verður þessi sýning sem var
nú frekar stutt vísir að meiri af-
rekum, því víst er þetta hægt
hér, það sýndi sig þetta kvöld sem
ég sá sýninguna. Var þetta nota-
legt kvöld og skemmtileg ný-
breytni að borða góðan mat og
sjá skemmtilegt leikverk um leið,
en sýningar vom í Glaumbergi.
Ekki verður sagt um það húsnæði
að það henti svona hefðbundnum
sýningum, til þess em súlumar í
húsinu, sem skyggja á sviðið, of
margar.
Verður það að teljast brýnt
verkefni fyrir leikfélagið að kom-
ast í gott húsnæði sem hentar
því. Væri það sjálfsagt vel þegið
ef bæjaryfírvöld kæmu þar til
hjálpar, nú þegar menningarvakn-
ing er svo mikil, sem raun ber
vitni.
Ég þakka Leikfélagi Keflavíkur
fyrir sýninguna með ósk um að
nú sé „Þymirós" vöknuð og láti
heyra í sér strax á næsta leikári.
Á meðan, lifíð heil.
Höfundur er bankamaður,
búsettur i Kefla vik.
TÖLVUPRENTARAR
■ i .. —— — ......
11* r 11 ji n f í u 11H ' 14 c 5 i H l\ ' j í * I * ýj (c í1M HI N t
OPIN LEIÐ TIL AVOXTUIVAR
Verðbréfamarkaöur Útvegsbankans annast
kaup, sölu og umboðsviðskipti á hvers konar
skuldabréfum.
Vegna eftirspurnar óskum við eftir öruggum
skuldabréfum í umboðssölu.
Veðdeildarbréf Útvegsbankans bera 10% raun-
vexti og eru frá eins til fjögurra ára. Gjalddagar eru í
janúar, apríljúlí og október ár hvert. Veðdeildarbréf-
in eru örugg Qárfesting og á verði við allra hæfi.
Veðdeildarbréf Útvegsbankans fást á öllum
afgreiðslustöðum bankaps.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
______ÚTVEGSBANKANS_______
SÍÐUMÚLA 23, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 68 80 30
Þjónusta fyrir þig
----,------------—