Morgunblaðið - 03.05.1988, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Þórður Skúlason, sveitarstjóri á Hvammstanga, í ræðustóli.
SALZBURG
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
Efþú þarft að
flýja mús
eða setja upp Ijós.
Stendur Beldray stiginn
stöðugur fyrir þig.
Hvammstangi:
Fundað um atviimumál
í V-Húnavatnssýslu
Hvammstanga.
FORSTJÓRI Byg-gingastofnun-
ar, Guðmundur Malmquist,
Pálmi Jónsson alþingismaður og
Vilhjálmur Egilsson 1. varaþing-
maður voru frummælendur á al-
menniun fundi sem Sjálfstæðis-
félögin í Vestur-Húnavatnssýslu
boðuðu til í Félagsheimilinu Ás-
byrgi 19. apríl sl. Fundarstjóri
var Júlíus Guðni Antonsson.
Fundarefnið var erfið staða at-
vinnulífs á landsbyggðinni og
leiðir til úrbóta. Fundinn sóttu
nm 70 manns.
Guðmundur Malmquist sagði frá
starfsemi Byggðastofnunar í helstu
atriðum. Taldi hann tvær leiðir til
að bæta atvinnuástand á lands-
byggðinni, byggðastefna yrði aukin
með stjómvaldsaðgerðum og/eða
stórefldum heimastjómum til aukn-
ingar hagvaxtar í héruðum. Reynsla
liðinna ára sýndi að í góðæri væri
ekki hugað sem skyldi að eflingu
atvinnulífs á landsbyggðinni.
Heimamenn yrðu að koma sér sam-
an um aðalmarkmiðin í heimabyggð.
í uppbyggingu atvinnulífs. Sam-
ræma þurfí aðgerðir fagstofnana
og ráðuneyta til að sem bestur
árangur náist. Fremur þurfí að laga
rekstrargrundvöll fískveiða og
vinnslu, en reka þær á auknum lán-
um.
Fyrirsjáanleg byggðaröskun er
mjög óheppileg vegna nýtingar
verðmæta á landsbyggðinni, s.s.
fasteigna og hlunninda. Óæskileg
þensla er nú á höfuðborgarsvæðinu,
sagði Guðmundur.
Pálmi Jónsson sagði stöðu at-
vinnulífs í ýmsum byggðum mjög
alvarlega. Vestur-Húnavatnssýsla
væri sterkt landbúnaðarhérað með
vaxandi útgerð og fískiðnað, ásamt
þjónustu og smáiðnaði. Nánast er
nú hrun í ullariðnaðinum og halla-
rekstur á rælquvinnslu. Krafist hef-
ur verið að verðjöfnunarsjóður
rækju verði endurgreiddur af sölu
ársins 1987.
Hluta vandamálsins má rekja til
rangrar gengisskráningar og við-
skiptahalla ríkissjóðs. Hafnaði.hann
fullyrðingum um almennt slæman
rekstur fyrirtækja á landsbyggð-
inni. Skapa verði undirstöðuat-
vinnuvegunum rekstrargrundvöll,
þá muni annað fylgja eftir í já-
kvæða átt. Sjálfstæðisflokknum
beri skyida til að taka á þessum
erfíðu málum. Með lq'arasamning-
um hafí verið stóraukið fé til hús-
næðismála, sem síðan hafí skapað
þensluástand á höfuðborgarsvæð-
Tónlistarskóli Borgarfjarðar
hélt lokatónleika sína á þessu
starfsári í Logalandi sunnudag-
inn 24. apríl fyrir fullu húsi.
61 nemandi tók þátt í tónleikun-
um en fram kom í máli skólastjór-
ans, Björns Leifssonar, að rúmlega
200 nemendur stunduðu nám í vet-
inu, ásamt stórauknum erlendum
lántökum.
Vilhjálmur Egilsson sagði að
koma yrði á jafnvægi í gjaldeyris-
málum, útflutningsfyrirtækin beij-
ist í bökkum en innflutningur
blómstri. Færa eigi gengisskráning-
una til viðskiptabankanna og taka
upp markaðsskráningu á gengi.
Hlutur einkaaðila í erlendum lán-
tökum sé innan við 10% af heildar-
skuldum erlendis, opinberra aðila
um 50% og bankanna um 30%.
Viðskiptahalla á árinu 1988 er spáð
jafnháum og sem nemur útflutn-
ingsverðmæti sjávarafurða til USA
á yfirstandandi ári. Jafnvægi í
gengismálum yrði besta aðgerðin
til björgunar atvinnumálum á lands-
byggðinni. Leggja beri niður bindi-
skyldu Seðlabanka gagnvart við-
skiptabönkunum.
Þórður Skúlason, sveitarstjóri á
Hvammstanga, vildi færa gengis-
skráninguna til ríkisstjómarinnar.
A Hvammstanga sagði hann erfíð-
leika í rekstri fyrirtælqa og sveitar-
félagsins. Samdráttur væri í sveit-
um og þungt hjá fiskvinnslunni.
íbúum á Hvammstanga fækkaði
um 14 — eða 2% — á sl. ári. Gerði
hann samanburð á rekstrartekjum
Hvammstanga og Reykjavíkur.
Aðstöðugjald á Hvammstanga er
mest af frumframleiðslu, 0,3—0,5%,
en í Reykjavík mest af verslun og
þjónustu, eða 1—1,3%. Fasteigna-
gjöld í Reykjavík væru hærri hundr-
aðshluti en á landsbyggðinni. Þá
ræddi Þórður um skerðingu Jöfnun-
arsjóðs sveitarfélaga og ríkisstjóm-
arákvörðun um álagningu útsvars
1988, sem hann taldi of lágt. Mis-
rétti í orkuverði væm pólitískar
ákvarðanir hveiju sinni. En umfram
allt yrðu fyrirtækin að fá gmndvöll
til að skila hagnaði.
Aðalbjöm Benediktsson
Hvammstanga sagði að menn
mættu ekki glata sameiginlegum
hagsmunum í innbyrðis deilum og
nefndi þar gjaldheimtu á Norður-
landi vestra. Taldi hann flest kosn-
ingaloforð um hagsmuni lands-
byggðarinnar hafa gleymst og Al-
þingi þess í stað samþykkt léleg
sveitarstjómarlög ásamt slæmum
húsnæðismálalögum. Ríkisstjómin
verði að bæta ráð sitt eða segja af
sér að öðmm kosti.
Hólmfríður Bjamadóttir,
Hvammstanga, spurðist fyrir um
áform um eflingu heimastjóma.
Einnig um könnun á Qárstreymi til
höfuðborgarinnar og viðbrögð
Skólinn átti 20 ára afmæli í haust
og af því tilefni bámst honum góð-
ar gjafir, m.a. píanó og píanóbekkur
frá Lionsklúbbi Borgamess og
harmonikkur frá Harmonikkuunn-
endafélagi Vesturlands.
- DP
stjómmálamanna við hugmyndum
Vilhjálms Egilssonar í gengismál-
um.
Egill Bjamason, Sauðárkróki,
vildi ijúfa þing hið fyrsta, svo ríkis-
stjómin gæti farið að stjóma. Ríkið
yrði sjálft að gæta aðhalds í rekstri.
Egill rakti einnig mjög slæma stöðu
loðdýrabænda.
Benedikt Ragnarsson, Barkar-
stöðum, taldi stjómvöld stefna
bændum í stór samyrkjubú og flytja
„umframbændur" til Reykjavíkur.
Gefa verði bændum meira frelsi í
búskap sínum.
Karl Sigurgeirsson, Hvamms-
tanga, taldi atvinnurekstur í frum-
framleiðslugreinum ekki þola þessa
háu vexti, þar sem veltuhraði væri
lítill. Stöðva yrði fjárstreymi til
Reykjavíkur í formi sjóðagjaida
hvers konar, fjármagnið ætti að
ávaxtast í heimabyggð. Hann lagði
áherslu á að dreifbýlisfólk mætti
ekki missa trú á, að hægt væri að
búa „úti á landi".
Böðvar Sigvaldason, Barði,
ræddi um nýtingu veiðivatna og
markaðssetningu silungs. Hafði
hann áhyggjur af virðisaukaskatti
og áhrifum hans á sölu veiðileyfa,
sem nú væru mjög há. Trúlega yrðu
bændur að taka skattinn á sig.
Sigfús Jónsson, Söndum, ræddi
misgengi lánskjaravísitölu og raun-
tekna. Taldi hann það hafa stuðlað
að meiri vandræðum og erfíðleikum
hjá almenningi, en sæist á yfirborð-
inu.
Júlíus Guðni Antonsson, Þorkels-
hóli, sagði frá fundi í Þorkelshóls-
hreppi, þar sem leitað var hug-
mynda um fjölbreytni í atvinnumál-
um utan hefðbundins Iandbúnaðar.
Guðmundur Malmquist svaraði
fyrirspumum, m.a. að ótækt væri
að binda gengi krónunnar við er-
lenda reikningseiningu. Hugmynd
um gengisskráningu viðskipta-
banka góð, spuming um fram-
kvæmd. Ullariðnaðurinn hlaut að
verða fyrir áföllum vegna stórauk-
inna launakrafna og lélegrar vöm-
þróunar. Nýi Álafoss hf. á í miklum
rekstrarerfiðleikum. Kannað verði
með ijárstreymið til Reylq'avíkur.
Heimamenn verði að hafa fmm-
kvæði til atvinnuuppbyggingar,
Byggðastofnun komi svo inn með
aðstoð. Bændum muni fækka og
búskapur trúlega leggjast af í ein-
stökum sveitum. Veitt verði aðstoð
til fóðurstöðva loðdýra, en til að
koma fóðurverði á æskilegan
gmndvöll þyrfti hundmð milljóna
króna.
Pálmi Jónsson svaraði einnig fyr-
irspumum. Sagði hann að gengis-
breytingar væm ávallt gerðar með
vitund og á ábyrgð ríkisstjóma.
Vilji væri fyrir hendi hjá ríkisstjóm
að virðisaukaskattur taki gildi 1.
júlí 1989. Taldi hann gjaldheimtur
geta verið hjá fógetum, líkt og ver-
ið hafi. Sveitarstjómarmenn verði
að halda sínum hlut gagnvart ríkis-
valdinu. Verð innlendrar orku hafí
lækkað í raun frá árinu 1984 og
sé nú sambærilegt við olíu, sem þó
hafí lækkað. Verðjöfnun allrar orku
innanlands verði ekki raunhæft, t.d.
er mjög misjöfn staða hitaveitna,
sem em í eigu sveitarfélaga. Sjóða-
kerfi landbúnaðarins verði að end-
urskoða. Vaxtafmmvarp Eggerts
Haukdals verði ekki afgreitt á þessu
þingi.
Vilhjálmur Egilsson sagði kenn-
ingu sína í gengismálum ekki falla
í kramið hjá stjómmálamönnum,
en sífellt fleiri litu á málið af áhuga.
Spáði hann gengisfellingu fyrir
júnílok.
Hér að ffarnan hefur verið drepið
á flesta þætti í máli manna á fund-
inum, eftir fundinn heyrði fréttarit-
ari menn tala um að fleiri hugmynd-
ir um úrbætur hefðu þurft að heyr-
ast. En orð era til alls fyrst.
- Karl
Morgunblaðið/Davíð Pétureaon
Frá lokatónleikum Tónlistarskóla Borgarfjarðar.
Borgarfj örður:
Lokatónleikar tónlistarskólans
ur.
t í.iíi
i an/i