Morgunblaðið - 03.05.1988, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
31
Teiknimynd í sovésku tímariti:
Kerfiskarlar ákalla
Stalín sér til hjálpar
Moskvu. Reuter.
TIMARIT í Moskvu birti sl.
laugardag teiknimynd af and-
stæðingum Míkhaíls Gor-
batsjovs, leiðtoga Sovétríkj-
anna, og umbótastefnu hans.
Stóðu þeir hálfbognir fyrir
framan mynd af Jósef Stalín,
ákölluðu hann og báðu um að
rísa upp frá dauðum.
Á myndinni, sem tók næstum
yfir heila síðu í tímaritinu Ogon-
jok, var hópur af skælandi mönn-
um, augljóslega kerfiskarlar innan
kommúnistaflokksins, sem lutu í
auðmýkt fyrir framan mynd af
Stalín, og fyrir neðan var eftirfar-
andi texti: „Komdu aftur, elskaði
faðir, og hjálpaðu okkar í stríðinu
við umbótasinnana. “
Á teiknimyndinni mátti einnig
sjá tvo menn í einkennisbúningi
vera að draga tjöldin betur frá
myndinni af Stalín en í einu hom-
inu var heldur skuggalegur náungi
á gægjum, með hatt og gleraugu
eða með öðrum orðum útsendari
öryggislögreglunnar.
Tímaritið Ogonjok þykir vera í
fararbroddi í því aukna ftjálsræði,
sem nú er farið að viðgangast í
sumum sovéskum fjölmiðlum, en
teiknimyndina kvaðst það hafa
tekið úr tímariti í Minsk í Hvíta
Rússlandi. Að undanfömu hefur
stuðningur eða andstaða við um-
bætur Gorbatsjovs snúist meir og
meir um afstöðuna til Stalíns en
Gorbatsjov hefur sakað hann um
„hryllilega glæpi“.
KAUPMANNAHÖFN
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
Forkosningar 1 Ohio í dag:
Dukakis spáð yfirburðasigri
Columbus f Ohio. Reuter.
MICHAEL Dukakis mun sigra
keppinaut sinn, Jesse Jackson,
með miklum yfirburðum í for-
kosningum Demókrataflokks-
ins sem fram fara í Ohio í dag.
Þetta kemur fram í skoðana-
könnun sem dagblað i Ohio birti
í gær. Svipaðar miðurstöður
hafa fengist í skoðanakönnun-
um Indiana og í Washington.
Samkvæmt skoðanakönnun
sem gerð var í Ohio í Bandaríkjun-
um og birt var í gær mun Dukak-
is hljóta 65% atkvæða 5 forkosn-
ingunum í Ohio í dag. Jackson
mun einungis hljóta 23% atkvæða.
Skoðanakannanir sem gerðar hafa
verið í Indiana gefa til kynna svip-
aða niðurstöðu í forkosningunum
sem einnig fara fram þar í dag.
í Ohio er kosið um 159 fulltrúa
en um 79 fulltrúa í Indiana. Einn-
ig er kosið í höfuðborginni, Was-
hington DC, í dag þar eru kjömir
16 fulltrúar. Dukakis er nú talinn
hafa tryggt sér útnefningu demó-
krata. Hann hefur tryggt sér fylgi
1276 fulltrúa en Jackson 872.
Verði útkoma kosninganna í
dag svipuð því sem fram kemur í
skoðanakönnununum mun Dukak-
Jerúsalem, Reuter.
TVEIR Palestínumenn létu lífið
á herteknu svæðunum í ísrael á
sunnudag. Yfirmaður herdeild-
arinnar sem varð öðrum mann-
anna að bana var vikið úr starfi.
Hafa nú 169 Palestinumenn og
tveir ísraelar látið lífið frá því
átök hófust á herteknu svæðun-
um í desember á síðasta ári.
Víða kom til átaka á herteknu
svæðunum í ísrael á sunnudag.
Margir særðust en tveir létu lífið.
ísraelsk hersveit skaut ungan mann
í bænum Faqua á Vesturbakkanum.
Talsmaður hersins sagði að yfir-
is hafa 1441 fulltrúa að baki en
Jackson 930 eftir kosningamar í
dag.
manni herdeildarinnar hefði verið
vikið úr starfi þar til yfirheyrslur
vegna atviksins hafa farið fram.
Sagði talsmaðurinn að unglingar
hefðu kastað gijóti að hermönnum
og hefðu þeir svarað með skothríð.
Unglingspiltur lést af sárum
sínum á sjúkrahúsi í bænum Nablus
á Vesturbakkanum. Hann fékk raf-
straum þegar hann reyndi að festa
palestínska fánann á háspennu-
mastur í bænum Beit Wazen. Tals-
maður hersins segir að herinn muni
rannsaka atvikið.
Tveir láta lífið á herteknu svæðunum:
Israelskur hermaður
látinn víkja úr starfi
EKr. 39.600,- st<
KIARAN
ABMÚLA 22, SlMI (91) 8 30 22, 108 REYKJAVÍK
Hún. hfifbr það aUfc
-CXjMEERAHL
Olympia Startype með 40 stafa skjá, 18 minniseiningar, feitletri,
gleiðletri, undirstrikun, miðjusetningu, spássíujöfnun
og mörgum letur- og litbandagerðúm.
Ritvinnsluvélin sem eykur afköst, hagræði og góðan frágang.
Sannkölluð stiömuvél á skínandi góðu verði.
Hefjið veiðiferðina
hjá Veiðimanninum
/KUtdgft.f
HAFNARSTRÆTI 5 SlMAR 16760 og 14800