Morgunblaðið - 03.05.1988, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
33
Frönsku forsetakosningarnar:
Le Pen veikir vonir Chiracs
París. Reuter.
TALIÐ er að vonir Jacques
Chiracs, forsœtisráðherra, um
sigur í frönsku forsetakosning-
unum nœstkomandi sunnudag
hafi enn minnkað um helgina,
þegar hægri öfgamaðurinn Je-
an-Marie Le Pen neitaði að Iýsa
yfir stuðningi við hann.
Le Pen hélt útifund í París á
sunnudag og komu þar 50 þúsund
stuðningsmenn hans saman, að
sögn lögreglu. Er það mesti stjóm-
málafundur fransks hægrimanns
eftir stríð. Á fundinum hvatti Le
Pen stuðningsmenn sína til að kjósa
ekki Francois Mitterrand, forseta.
„Það er stórmál að Frakkar losni
við sósíalisma Mitterrands. Þess
vegna má ekki greiða honum eitt
einasta atkvæði," sagði Le Pen.
Hann sagði kjósendur standa
frammi fyrir tveimur slæmum kost-
um. Annar þeirra væri þó miklu
verri en hinn og átti hann þar við
forsetann.
Le Pen sagðist ekki vilja lýsa
yfír stuðningi við Chirac því honum
yrði bara kennt um síðar meir, ef
forsætisráðherrann tapaði kosning-
unum. Af þessu tilefíii gaf kosn-
ingastjóri Chiracs út yfírlýsingu þar
sem sagði að næstkomandi sunnu-
dag kysu menn ekki samkvæmt
fíokkslínum, heldur veldu milli verk-
efnaiista frambjóðendanna tveggja.
Er talið að yfírlýsingunni hafí verið
ætlað að ná eyrum stuðningsmanna
Le Pens, en Chirac hefur reynt að
höfða til þeirra. Hefur hann þó
heitið því að semja ekki við Le Pen
um stuðning.
Chirac hlaut 19,5% atkvæða í
fyrri umferð frönsku forsetakosn-
inganna, 24. aprfls sl., en Le Pen
um 15%. Samkvæmt skoðanakönn-
unum bendir allt til þess að Mitter-
rand sigri í seinni umferðinni og fái
10 prósentustigum meira fylgi en
Chirac.
Bretland:
ERLENT
Corazon Aquino, forseti Fillipseyja, hefur skorið upp herör gegn hvers
kyns lausung og spillingu. í síðustu viku handtóku lögreglumenn
ekki færri en 1000 stúlkur, sem afla sér tekna á vafasaman hátt, á
skemmtistöðum og vínstúkum Manila-borgar. Mjmdin var tekin er
sveitir óeinkennisklæddra lögreglumanna létu til skarar skríða í helsta
ferðamannahverfí borgarinnar.
Sj ómannasamband-
ið lítur í lægra haldi
Ferjusiglingar hafnar á ný eftir árangurlaust verkfall
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SJÓMÖNNUM hjá ferjufyrir-
tækinu P&O í Dover, sem hafa
veríð í verkfalli síðan í febrúar,
tókst ekki að koma í veg fyrir,
að feijur fyrirtækisins hæfu
siglingar nú um helgina. Búist
er við, að sjómannasambandið
lúti í lægra haldi í þessum átök-
um, jafnvel þótt það boði til alls-
heijarverkfalls.
Undirbúningur að því að hefja
siglingar á ný til Dover hafði stað-
ið alla vikuna. P&O-fyrirtækið réð
nýja menn í lausar stöður, og um
1000 þeirra, sem verið höfðu í
verkfalli, sneru aftur til vinnu.
Feijumar höfðu verið bundnar við
bryggju í Hollandi.
Þegar undirbúningi var lokið og
öryggiseftirlitsmenn ríkisins höfðu
gengið úr skugga um, að skipin
væru haffær, sigldu tvær ferjur til
Dover. Þær lögðust að bryggju
síðastliðinn laugardagsmorgun.
Þar var skipt um áhöfn á annarri
þeirra og skipið fyllt af bflum og
vamingi, en farþegar utan þeirra,
sem vom í bflunum, vom engir.
Siglt var af stað til Zeebriigge á
sunnudag og komið til baka þá um
kvöldið. Siglt var aftur á mánudag.
Sjómenn hjá Sealink-ferjufyrir-
tækinu í Dover hafa neitað að sigla
vegna verkfallsvörslu sjómanna
hjá P&O. Sealink-fyrirtækið, sem
á í engum deilum við sjómanna-
sambandið, verður því að sætta sig
við, að feijur þess séu ekki á sjó.
Formaður sjómannasambandsins
hefur neitað að skipa sjómönnum
hjá Sealink á sjó. Það er því ljóst,
að gert verður lögtak í- eignum
sjómannasambandsins í dag,
þriðjudag. Er þá vel mögulegt, að
það glati öllum eigum sínum, ef
sjómennimir hjá Sealink neita að
sigla.
F erjuflutning'ar
hafa dregist saman
Sjómenn þjá öðrum fyrirtækjum
og í öðrum höfnum hafa farið í
samúðarverkfall. Feijuflutningar
hafa því dregist mjög saman. Sam
MacCluskie, formaður sjómanna-
sambandsins, hefur hótað að grípa
til allsheijarverkfalls vegna þess
að P&O-fyrirtækið hefur neitað að
viðurkenna sambandið sem samn-
ingsaðila vegna hinna nýju áhafna.
Hann segir einnig, að teljist að-
gerðir víða um land ólöglegar,
verði það bara að vera svo. Það
geti komið sá tími, að bijóta þurfí
lög.
122 dagar á sjó —
243 dagar í landi
Sá samningur, sem meirihluti
sjómanna hjá P&O hefur sam-
þykkt, hljóðar upp á 122 daga á
sjó á ári og 243 í landi, 24 tíma
á sjó og 24 í landi eina viku og
næstu viku frí. Af hveijum 24
tímum um borð á að vinna 14.
Meirihluti sjómanna hjá P&O hafn-
aði þessu boði á fundi. Talið er,
að ástæða þess, að sjómenn eru
svo ákveðið á móti boðinu, sé sú,
að flestir verkfallsmanna hafí aðra
vinnu í landi.
Reynslan hefur sýnt, að lögtak,
sem gert er í eignum verkalýðs-
sambanda, hleypir hörku í deilum-
ar fyrst í stað, en þegar frá líður,
dregur það allan þrótt úr samband-
inu. Það er því talið ólíklegt annað
en breska sjómannasambandið lúti
í lægra haldi í þessum átökum,
þrátt fyrir að gripið verði til alls-
heijarverkfalls, stuðning í frönsk-
um höfnum og aukna hörku í deil-
unni í þessari viku. í kjölfarið
kæmu síðan kröfur um sams konar
samninga hjá öðrum feijufyrir-
tækjum.
Reuter
Spillingin upprætt
Reuter
Jean-Marie Le Pen ræðir við unga stúlku sem klædd er eins og
Jóhanna af Örk á útifundinum sem hann hélt & sunnudag.
DAGVI8T BARNA
HEIMAHVERFI
Sunnuborg — Sólheimum 19
Fóstrur, þroskaþjálfar eða kennarar óskast í
100% og 50% störf.
Upplýsingar gefiir Bima
ísíma 36385.
VILT ÞU LITA UT YNGRIEN ÞU ERT?
Vilt þú koma í veg fyrir óþarfa hrukkumyndun?
Er húð þín orðin hrukkótt eða slök?
Ef svarið er já, þá er ef til vill það nýjasta frá
SUNTRONIC þ.e.a.s. „FACE LIFT" lausnin fyrir
þig. Einnig „LIFT“ fyrir brjóst og aðra líkamshluta.
Snyrtistofan Snyrtistofan Snyrtistofan
ANDROMEDA, DANA, EVA,
Iðnbúð 4, G., Hafnargötu 49, Ráðhústorgi 1, Ak.,
sími: 43755 sími: 92-13619 sími: 96-25544
Snyrtistofan Snyrtistofan Snyrtistofa
FEGRUN, GIMLI, JÓNU,
Búðargerði 10, R., Miðleiti 7, R., Laugavegi 163, R.,
sími: 33205 sími: 686438 sími: 29988
Snyrtistofan Snyrtistofan
MANDÝ, YRJA,
Laugavegi 15, Klausturhv. 15, Hf.,
sími: 21511 sími: 651939