Morgunblaðið - 03.05.1988, Síða 35

Morgunblaðið - 03.05.1988, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988 35 JÁ 4% HAFA STARFSMENN HEILr BRIGÐISÞJÓNUSTUNNAR BROTIÐ TRÚNAÐ GAGNVART ÞÉR? þörf beinn aðgangur eftirlitsnefndar að sjúkraskrám sé forsenda eftirlits með greiðslum lækna. Þetta er al- rangt. Þeir er segja alþjóð slíkar fréttir fara með rangt mál einu sinni enn. Löggjafinn gerir ráð fyrir eftir- liti, t.d. hefur Landlæknisembættið faglegt eftirlit með heilbrigðisstétt- um enda er landlæknir umboðsmað- ur sjúklinga og þar á meðal að læknar taki ekki óhóflegar greiðslur fyrir verk sín sbr. 6. grein í lækna- lögum, auk þess getur embættið krafist þess að fá þær skýrslur viðvíkjandi störfum þeirra og heil- brigðismálum sem hann telur nauð- synlegar sbr. 13. gr. Að ósk Trygg- ingastofnunar ríkisins og ríkisend- urskoðunar hefur Landlæknis- embættið farið yfir reikninga og þannig hafa komið í ljós misferli sem send hafa verið til Rannsóknar- lögreglu ríkisins. Landlæknisemb- ættið átti frumkvæði að því að koma upp tölvufærðum samskiptaseðlum fyrir 10 árum á heilsugæslustöðv- um, en þetta kerfi er fyrirmynd samskiptaseðla Tryggingastofnun- ar, sem hefur auðveldað allt eftirlit sl. 2 ár. Landlæknisembættið hefur því stuðlað að stórbættu eftirliti. Sannleikur er að vísu dýrmætur en óþarfi er að fara sparlega með hann. Vissulega eru færar aðrar leiðir varðandi eftirlit enda nauð- synlegt að eftirlit sé tryggt. Nú hefur samist um aðferð sem beitt hefur verið við eftirlit með reikn- ingum sérfræðinga og heimilis- læknar geta sætt sig við. Án efa er besta leiðin að spyija viðkom- andi sjúkling um leyfi til þess að skoða sjúkraskrár. Fylgst er með reikningum hvers læknis og er kraf- ist skýringa ef þess er þörf og í flestum tilfellum fást þær. Ef nauð- synlegt þykir að fara nánar ofan í sjúkraskrár er leitað heimildar sjúklings. Á þann veg er hægt að fylgjast með reiknishaidi án þess að rjúfa þagnarskyldu. Brotalamir finnast enn Þrátt fyrir ítrekuð mótmæli Landlæknisembættisins eru allar lyfjaávísanir sem gefnar eru út hér á landi fluttar til Ríkisendur- skoðunar i Reykjavík þar sem þær eru til athugunar þjá starfs- mönnum stofnunarinnar. Lyf- seðlar eru með fullu nafni, heim- ilisfangi, lyfjaheiti og magni lyfja ásamt nafni læknis. Jafnvel sá sem ekki er læknir á oft auð- velt með að lesa út úr lyfseðli upplýsingar um sjúkdóm sjúkl- ings. Upplýsingar um rannsóknir í sjúkraskrá gefa góða vísbendingu um hvert vandamálið er. Ég trúi að margir sjúklingar geri sér þetta ljóst og skilji að við svo búið má ekki standa. Hér er of langt geng- ið. Þeir sem ekki hafa leitað til lækna með alvarleg vandamál sín eiga ef til vill erfítt með að gera sér grein fyrir inntaki þess sem hér hefur verið sagt, en seinna munu ýmsir skilja þetta. Meðferð sjúkraskýrslna á sjúkrastofnunum Landlæknisembættið hefur ítrek- að gefið út tilmæli til lækna um meðferð sjúkraskýrslna. Engum er heimill aðgangur að þeim nema hann eða hún eigi beina aðild að meðferð sjúklings vegna hags- muna sjúklings. Ef yfirlæknir læt- ur það viðgangast að gáleysislega sé farið með sjúkraskýrslur hefur hann brotið læknalög og þar með landslög. Læknaritarar vinna á ábyrgð yfirlæknis. Sjúkraskýrslur og bifreiða- viðgerðir Það á að halda uppi öruggu eftirliti en ekki skal fara með sjúklingabókhald og sjúkiinga- skýrslur sem t.d. greiðslur manna fyrir múrverk eða bif- reiðaviðgerðir. Þess vegna hefur löggjafinn sett sérstök lög um hvemig eftirliti skal háttað og því verður ekki breytt nema löggjafinn ákveði annað. Almenningur treystir því að heilbrigðisstarfsfólk gætitrúnaðar Leitt er til að vita að ýmsir ábyrg- ir aðilar hafa skrifað mjög ógæti- lega í dagblöð undanfarið um varð- veislu sjúkraskýrslna á heilbrigðis- stofnunum. Jafnframt bera þeir á borð rakalausar staðhæfingar um að læknar séu á móti eftirliti. Frá- sagnir eða getgátur þessa fólks um að sjúkraskýrslur liggi yfirleitt á glámbekk eiga þó ekki við rök að styðjast. í könnunum sem gerðar hafa verið kemur í ljós að 96% fólks treystir því að heilbrigðisstarfs- fólk gæti trúnaðar. Svo virðist sem lagaákvæði um þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks hafi þjónað tilgangi og því vart ástæða til að breyta lögum. Ef leyfa á óviðkomandi aðilum óheftan aðgang að sjúkraskýrsl- um — líkt og nú er lagt til á Al- þingi — er hætt við að trúnaðarsam- band sjúklings og læknis rofni. Höfundur er landlæknir. Morgunblaðið/Emilía nar á Reylgavfkurflugvelli I gær. Verðum að kom- ast í dag Sigrún Bergsteinsdóttir og Gísli Ásgeirsson ætluðu að fara til Luxemburgar og voru mætt tímanlega i Flugstöðina á Keflavíkurflugvelli í morgun. Þau komust hins vegar ekki í gegn um vegabréfaskoðunina og voru þvi i hópi þeirra farþega sem fóru um borð i Reykjavík. „Flugvélin átti að fara klukkan 8:25 í morgun og Flugleiðir höfðu beðið okku að mæta tímanlega. Við vorum því komin þangað klukkan sjö í morgun," sagði Gísli. Þar voru þá fyrir 20 til 30 verkfallsverðir. „Þeir stóðu við vegabréfaskoðunina, Morgunblaðið/Emilía Sigrún Bergsteinsdóttír og Gisli Ásgeirsson bíða á Reykj avíkurflugvelli eftir að komast til Luxemburgar. leyfðu okkur hins vegar að tékka inn. Svo vorum við flutt hingað og vonandi að við komumst áfram í dag, skólinn byijar á morgun og við megum ekki missa af fyrsta degin- um, þá fáum við að vita um bækur sem við þurfum að kaupa og fleira, við verðum að komast í dag,“ sagði Gísli Ásgeirsson. far- víkur kærur vegna verkfallsvörslunnar. Tveir íslenskir ferðamenn í viðskipta- ferð sættu sig ekki við að komast ekki leiðar sinnar og kærðu verk- fallsverðina sem hindruðu ferð þeirra. Sögðust mennimir gera verk- fallsverðina ábyrga fyrir því tjóni sem þeir kynnu að verða fyrir og tók lögreglan niður nöfn nokkurra verk- fallsvarða. Meðal þeirra var Magnús Gíslason formaður VS. Bogi Ágústsson blaðafulltrúi Flug- leiða sagði í gær, að Verslunar- mannafélagi Suðumesja hefði verið gerð grein fyrir því, að Flugleiðir lýstu fullri ábyrgð á hendur félaginu vegna tjóns af völdum verkfallsvörsl- unnar og áskildu sér allan rétt til að krefjast skaðabóta. Síðdegis í gær fór Flugleiðavél til Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Krakkamir { 9. bekk í Garðaskóla í Garðbæ voru að vonum ánægð þegar þ'óst var að þau kæmust tíl Kaupmannahafnar f gær, en þau höfðu beðið siðan á föstudag vegna verkfallsaðgerða. Krakkarnir hafa verið að safna fyrir ferðinni f allan vetur með ýmsu móti og sögðu að ef þau hefðu ekki komist með þessari ferð væri eins lfklegt að ekkert hefði orðið af ferðalaginu. Kaupmannahafnar og var engin fyr- irstaða við afgreiðsiu farþega í það sinn. Fáir voru með vélinni. Flug gekk eðlilega fyrir sig á frfdegi verkamanna 1. maí og að sögn Magnúsar Gfslasonar formanns VS var ákveðið að taka daginn ró- lega. Verkfallsveröir vom á vakt í Flugstöðinni en aðhöfðust ekkert. Þá vom famar 3 ferðir vestur um haf og 4 ferðir til Evrópu og fiuttu Flugleiðir um 500 manns þann dag að sögn Jóns Óskarssonar stöðvar- stjóra Flugleiða. - BB Kærði verkfalls- verði og lögreg'lu Nokkrar kærur voru lagðar fram í Flugstöðinni, vegna framgöngu verkfallsvarða og aðgerðarleysis lögreglu. Ein þeirra sem kærðu var Helga Hannesdóttir. „Ég lagði fram kæru vegna þess að mér var meinað að ganga í gegn um vegabréfaskoðun og tollskoð- un, “ sagði hún. Helga. sagðist vera undrandi á þessum aðgerðum og þó ekki síður aðgerðaleysi lögreglu. „Hvorki lög- regla né útlendingaeftirlit aðstoð- uðu opinbera starfsmenn til að gegna skyldustörfum sfnum og þeir aðstoðuðu fólk ekki við að komast leiðar sinnar. Verkfallsverðimir hindmðu ekki innritun farþega, heldur tolleftirlit. Þetta lýsir algjöm ábyrgðarleysi lögreglu, tollvarða og Flugleiða líka. Lögreglan var greinilega á sveif með verkfalls- vörðunum og neitaði að gera nokk- uð fyrr en kom til handalögmála. Morgunblaðið/Emilía Helga Hannesdóttir Mfn kæra beinist gegn bæði lög- reglu og verkfallsvörðum," sagði Helga Hannesdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.