Morgunblaðið - 03.05.1988, Page 54

Morgunblaðið - 03.05.1988, Page 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988 + Elsku litla dóttir okkar og systir, HREFNA BJÖRG, lést 29. apríl. Haukur Kr. Eyjólfsson, Guðrún Vilhjálmsdóttir, Vera Björt Hauksdóttir. + Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, STEINN EGILSSON, Hátúni 8, lést í Landakotsspítalanum föstudaginn 29. apríl. Jónína Jóhannsdóttir, Jóhann Steinsson, Eyþór Steinsson. + Móðir okkar, MARGRÉT ÞORMÓÐSDÓTTIR, lést á Hrafnistu, Reykjavík, föstudaginn 29. apríl. Pótur Haraldsson, Guðbjörg Haraldsdóttir Bay, Þormóður Haraldsson. + Ástkær eiginmaður minn, AXELSMITH, Reynimel 72, andaðist á Landspítalanum 30. apríl. Ásta Egilsdóttir. + Ástkær eiginmaöur minn, MAGNÚS VILMUNDARSON, Engihlíð 10, Reykjavfk, lést í Borgarspítalanum þann 29. apríl. Ásdfs Guðlaugsdóttir. + Faðir okkar, STEFÁN ÁGÚST KRISTJÁNSSON fyrrverandi forstjóri frá Akureyri, andaðist 1. maí. Annella Stefánsdóttir, Friðrik D. Stefánsson. + Móðir okkar, SIGURRÓS JÓNASDÓTTIR, Ásvallagötu 53, andaðist 1. maí í Borgarspítalanum. Pálina Eggertsdóttir, Jónas Eggertsson. + Eiginkona mín, SVEINSÍNA BALDVINSDÓTTIR, Skálagerði 17, Reykjavík, lést í Landakotsspítala sunnudaginn 1. maí. Óskar Gunnlaugsson. + Móðir okkar, SIGRÍÐUR GÍSLADÓTTIR, Esjubergi, Kjalarnesi, lést í Borgarspítalanum 29. apríl. Árni Snorrason, Oddný Snorradóttir, Gisli Snorrason. gMMHMWHMMKffUHHNWMlllMHWMWMVWMinW Minning: Hallur Krisijáns- son fv. póstfulltrúi Fæddur 2. ágúst 1906 Dáinn 24. apríl 1988 Þegar nóttin kemur og færir þér svefninn að gjöf þegar hin dularfullu skip rökkursins flytja anda þinn á ókunn mið, þá hlustarðu ekki lengur á lagið sem forlögin leika á fiðlu þína Nóttin hefur fært þér svefninn að gjöf, og þú mátt sofa þar til nóttin verður dagur. (Gunnar Dal.) I dag verður til moldar borinn tengdafaðir minn, Hallur Kristjáns- son. Hann var fæddur að Breiða- bólsstað á Fellsströnd í Dölum, næst yngstur tólf systkina. Foreldr- ar hans voru þau hjónin Sigurbjörg Jónsdóttir og Kristján Þórðarson, bóndi. Vegna veikinda móður hans var Halli komið í fóstur til hjónanna Ólafar Guðmundsdóttur og Þórðar Sigmundssonar, bónda að Teigi og síðar Skarðsstöðum í sömu sveit, og ólst upp hjá þeim. Svo sem tíðkaðist um alþýðuböm þess tíma, varð Hallur að fara að vinna fyrir sér strax á bamsaldri. Hann vann fyrst við sveitastörf en fór á unglingsaldri til Reykjavíkur og vann hin ólíkustu störf til sjós og lands. Hugur hans stóð til náms, en tímabundin veikindi og kröpp kjör leyfðu ekki að sá draumur rættist. Rúmlega tvítugur réðst Hallur að Pósthúsinu í Reykjavík og átti þar síðan alla sína starf- sævi. Allt starf hans þar einkennd- ist af þeirri nákvæmni og prúð- mennsku sem honum var lagið. ' í einkalífí sínu var Hallur gæfu- maður. Árið 1935 kvæntist hann Ingeborg Nielsen, dóttur hjónanna Rögnu og Antons Nielsen, skip- stjóra frá Melbu í Vesterálen í Norð- ur-Noregi. Hjónaband þeirra hefur alla tíð einkennst' af ást og sam- heldni. Það var gaman að sjá, hve hrifín þau vom alltaf hvort af öðru, þótt árin færðust yfir. Þeim Halli varð þriggja bama auðið. Elst er Inger, kennari í Reykjavík, gift undirrituðum. Næstur er Rúnar Þór, vélvirkja- meistari á Fáskrúðsfírði, kvæntur Sigfríð Guðlaugsdóttur. Yngst er Heba, talkennari í Reykjavík, gift Eyjólfi Eðvaldssyni, húsgagna- smíðameistara. Bamabömin eru ellefu og bamabamabömin þrjú. Ég kynntist Halli og Ingeborg fyrst fyrir 35 ámm, þegar við Inger fómm að draga okkur saman. Ég hafði áður veitt athygli þessum glæsilegu hjónum, hún ljós, grann- vaxin og létt, hann brúneygður, dökkur og virðulegur í fasi. Ekki var laust við að ég kviði okkar fyrsta fundi, en sá ótti reyndist ástæðulaus. Mér var tekið sem syni frá fyrstu tíð og æ síðan. Hallur var dulur maður við fyrstu + Eiginkona min og móðir okkar, ÁSTA MARTEINSDÓTTIR, Háagerðí 41, Reykjavík, lóst í Landspítalanum 1. maí. Gestur Vigfússon og börn. Eiginmaður minn og faðir okkar, KARL GUNNARSSON fyrrv. bóndi, Hofteigi, Jökuldal, Eyjabakka 30, Reykjavík, andaöist í Vífilsstaðaspítala 30. apríl. Guðrún Stefánsdóttir og börn hins látna. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JARÞRÚÐUR BERNHARÐSDÓTTIR, áður til heimilis í Básenda 3, Reykjavík, andaðist á öldrunardeild Borgarspítalans 1. maí. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir mín, SIGRÚN GRÍMSDÓTTIR, Kleppsvegi 134, lést 1. maí. Jarðarförin verður ákveðin síðar. Fyrir hönd aðstandenda. Ásgrímur Gunnarsson. + Mágkona mín, ARNDÍS ÞORVALDSDÓTTIR, áður búsett á Öldugötu 55, Reykjavík, lést i Borgarspítalanum í Reykjavík aðfaranótt 2. maí. Jóna Erlendsdóttir. iWAlíii-Hi iffnmnmHiaimniiimiiiMiTtw kynni. Eðlislæg kurteisi og fágun í allri framkomu leyndi sér ekki. Við nánari kynni var stutt í græsku- lausa glettni og leiftrandi frásagn- argáfu. Hann var sjóður af fróðleik um Reykjavík fyrri tíma og íbúa hennar. Aldrei heyrði ég hann hnjóða í nokkum mann. Hann var alinn upp í anda aldamótakynslóð- arinnar, að skulda engum neitt, gera ætíð meiri kröfur til sín en annarra og að hafa réttsýni og heið- arleika að leiðarljósi. Hallur var mikill fjölskyldumað- ur. Fjölskyldan var honum meira virði en allt annað í lífínu. Bömin hændust að honum. Ég átti eftir heilt ár í námi þeg- ar þriðja bam okkar, Hallur, fædd- ist. Auraráð voru í knappasta lagi. Tengdaforeldrar mínur buðu okkur stóran hlut af sínu húsnæði, án endurgjalds, og vildu engin frekari orð um það. Þetta var þeim líkt. Hjá þeim bjuggum við svo með bömin í þrjú ár. Aldrei féll skuggi á þá sambúð. Slíkt gleymist ekki. Það er svo margs að minnast, þegar hugurinn reikar til baka. Það er heiðríkja yfír liðnum stundum. Hallur var náttúrubam. Hann kunni þá list að njóta líðandi stund- ar, hvort heldur var í dagsins önn eða fjölskylduhátSð. Hann naut úti- vistar, fuglasöngs og gróðurs, sum- aryls og sólar. Á ferðalögum var hann næmur fyrir nýjum áhrifum. Gönguferðir voru hans líf ogyndi. Lengstum naut Hallur góðrar heilsu. Hann fékk kransæðastíflu árið 1971 en náði ágætri -heilsu. Um 1980 fóru kalkanir í mjaðmalið- um að baga hann svo, að hann átti erfítt með gang. Hann gekkst und- ir aðgerðir vegna þessa árið 1983 og tókust þær með þeim ágætum, að hann gat aftur farið að ganga úti. í ágúst 1984 hneig hann niður á götu. Hjartað hafði stöðvast. Hann var fluttur á Borgarspítalann og endurlífgaður. Hann náði sér að nokkru, en var bundinn við hjóla- stól og átti erfítt með að tjá sig. Greinilegt var þó, að hann þekkti sína nánustu og mat nærveru þeirra. Halls beið nú hlutskipti hjúkr- unarsjúklings. Hann var alla tíð eftir áfallið sjúklingur á deild B-6 á Borgarspítalanum og naut þar frábærrar umönnunar. Ekki brást kjarkur og tryggð Ingeborgar fremur en endranær. Hún heimsótti bónda sinn hvem dag að kalla öll þessi löngu sjúkdómsár, hvemig sem viðraði. Hún var hjá honum klukkustundum saman í hvert skipti og veitti honum stuðn- ing, sem orð fá ekki lýst. Mig hafði aldrei dreymt tengda- föður minn, en á þrettándanum dreymdi mig draum. Ég kom inn í herbergi. Þar sat Hallur, eins og ég mundi hann frá fyrnvtíð, hraust- legur, útitekinn og gláður. Brún augun leiftmðu af glettbi og til- hlökkun. Hann var ferðbúinn og beið. Næsta morgun var hririgt frá spítalanum. Hallur hafði veiksÞum nóttina. Banalegan var hafín og stríðið varð langt og strangt. Inge- borg vék vart frá honum. Hinn 24. apríl fékk hann svo loksins hvíldina. Friður var yfir honum. Förin til Austursins eilífa var hafín. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem) Kristján Baldvinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.