Morgunblaðið - 03.05.1988, Page 58

Morgunblaðið - 03.05.1988, Page 58
- 58 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988 fclk í fréttum UNDIR EYÐIMERKURSÓL Með krílið í vinnunni Margaux - eða Margot - Hemingway sér fram á betri tíð...Hér er hún ásamt manni sínum, stoð og styttu, Stuart Sundl- un. Mariel Hemingway leikur í kvik- myndum á ný en skilur smávaxna dóttur sína aldrei við sig. Á myndinni sjást þær mæðgur í hléi milli atriða kvikmyndar sem í ísrael. Mariel Hemingway, barnabam rithöfundarins Emest Hemingway, skilur fjögurra mánaða dóttur sína ekki við sig lengur en örskotsstund. Þann- ig hefur það atvikast að Dree Louise Crisman Heming- way er með víðforlari komabömum. Hún ferðast í burðarrúmi með móður sinni hvert á land sem er. Undanfarið hafa þær mæðgur dvalist í ísrael þar sem Mariel leikur í njósnamynd sem meðal annars er kvik- mynduð í eyðimörkinni. Mariel sem nú er 27 ára gömul lætur predikanir um æskilegt umhverfí komabarns sem vind um eym þjóta. Sjálf hlaut hún heldur ævintýralegt uppeldi að hætti Hemingway flölskyldunnar. Þótt gengið hafí á ýmsu í einkalífí Mariel og vinnan við kvikmyndaleik hafí reynst stopul leikur lífið nú við hana. Ekki gengur eiginmanninum ver. Hann stóð upp úr forstjórastólnum í „Hard Rock Café" og stofnaði keðju veitingahúsa undir heitinu „Sam’s Café“. New York búar flykkjast á veitingastaðina og Steve vinnur myrkranna á milli. Upphaflega ræddu hjónakomin um að veitingahúsin yrðu sameiginlegt verkefni þeirra, en Mariel gat ekki neitað tilboðinu um að leika í kvik- myndinni í ísrael. Hún ku hafa verið fegin að sleppa um stundarsakir úr brasinu á Sammakaffi. Systirin á bömmer Úr því Hemingway slektið er til umræðu mættu fregnir af systur Mariel, Margaux, fljóta með. Hún var heimsins hæst launaðasta fyrirsæta á síðasta ára- tug, en þegar atvinnutilboðum fór fækkandi og hún var skilin við eiginmann númer tvö hellti hún sér af offorsi út í samkvæmislífið. Svallið varð meira en Margaux þoldi, hún breyttist í feitlaginn vodkasvelg með grátbólgna hvarma. Einn góðan veðurdag ákvað hún að rífa sig upp úr volæðinu, ella myndi hún ein- faldlega deyja úr drykkju. Með stuðningi maka síns, Stuart Sundlun, og meðferð á Betty Ford stofnuninni náði hún bata. Morgunblaðið/Reuter Að vanda sýnir Eiisabet drottning lltil svipbrigði. Áströlsku dansmey- jarnar leggja sig þó ailar fram i list sinni. # Ástralía # Listdans fyrir drottningnna Elísabet II drottning Breta er þessa dagana á ferð um Ástralíu. Hér hefur hún stutta viðdvöl í Áströlsku listdansstofnuninni í Melboume þar sem þessar yngismeyjar sýndu henni listir sínar. Frá Melboume hélt kóngafólkið til Queensland. Þau ætla að dvelja ein- ar þijár vikur í Ástralíu í ferðinni. ar eru í tísku, að minnsta kosti í New York. LONDON-PARÍS-NEW YORK Að tolla í tísku Sokkar upp á læri þykja alveg ómöguleg- London. [ Paris munu háir hælar vera öldungis ómissandi. Eða viltu vera púkó?“ spurði Spilverkið í söngnum um sirkús Geira Smart og svarið kvað við: „Nei, ekki ég!“ Listar yfír„smört“ fyrirbæri og púkaleg birtast reglu- lega í tískublöðum og eru líklega mikil þarfaþing. Séu þeir stúderaðir rækilega er unnt að komast hjá leiðum mistökum eins og að hlusta á Suzanne Vega í stað Anitu Baker og forðast að verða að athlægi fyr- ir að sulla í hvítvíni í stað þess að svelgja kokkteil. Enginn skyldi þó halda sig færan í flestan sjó eftir lestur eins Ksta yfir það sem er í og úr tísku. Málið virðist flöknara en svo. Hvort tveggja er að listamir falla geysi- hratt úr gildi, ný smartheit koma í stað þeirra gömlu, og það sem þyk- ir fínt á einum stað getur bara alls ekki gengið á öðmm. Því brá sænska tískublaðið Clic á það heilla- ráð að láta útbúa lista yfír það sem er „inni“ og „úti“ í þremur stórborg- um; London, París og New York. Urðu listamir býsna ólíkir og segja jafnvel eitthvað um muninn á þess- um ágætu borgum. Hér verða til gamans birtar glefs- ur úr listunum. Þeir sem hyggja á ferðalög til einhverrar borgarinnar skulu varaðir sterklega við því að tískublaðið kom út í febrúar, svo að farið er að slá í staðhæfíngamar meira en góðu hófi gegnir. París „Inni“ Orsay listasaöiið Gamaldags matur Swatch armbandsúr Háir hælar Nútímaleg arabísk tónlist Ferskjukampavfn Smokkar Kvenleiki „Úti“ Pompidou listasafnið „Nýtt franskt eldhús" Cartier armbandsúr Skór með breiðri tá Flamenco Beaujolais Nouveau Kæmleysi í kynlífí „Strákstelpur" London „Inni“ Húðlitir nælonsokkar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.