Morgunblaðið - 03.05.1988, Síða 65

Morgunblaðið - 03.05.1988, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988 65 Á kjörskr. Atkvgr. % Já % Nei % auðir ógildir Reykjavík 11.565 3.842 33,2 1885 49,1 1925 50,1 24 8 Hafnarfjörður ' 727 277 38,1 75 27,1 199 71,8 3 0 Suðumes 1041 438 42,0 48 390 0 0 Akranes 160 97 60,6 14 82 1 0 Borgames 125 88 70,4 3 84 1 0 Stykkishólmur 39 20 51,2 4 14 2 0 Bolungarvík 58 44 75,8 3 40 1 0 ísaflörður 161 96 59,6 11 84 1 0 Hvammstangi 42 28 66,6 14 13 1 0 Sauðárkrókur 207 106 51,2 27 75 4 0 Sigiuflörður 45 27 60,0 3 24 0 0 Alcureyri 1039 453 43,5 138 312 3 0 Húsavík 156 93 59,6 15 72 6 0 Vestm.eyjar 164 82 50,0 19 61 2 0 Ámessýsla 373 275 73,7 52 218 5 0 vsí 19 18 13 4 0 1 VMS 7 6 3 2 1 0 Miðlunartillaga ríkissáttasemjara: Felld í 13 félögum og samþykkt í 2 MIÐLUN ARTILL AG A ríkis- sáttasemjara var felld I þrettán félögum verslunarmanna af þeim fimmtán sem voru í verk- falli, en samþykkt í tveimur fé- lögum, félaginu á Hvammstanga og Verslunarmannafélagi Reykjavíkur. Atkvæði um tillög- una voru greidd á föstudag og laugardag og atkvæði talin þá um kvöldið. Það var þó aðeins í félaginu á Hvammstanga að tillagan var sam- þykkt með naumum meirihluta at- kvæða eða 14 atkvæðum gegn 13. í Verslunarmannafélagi Reykjavík- ur voru 1.925 á móti tillögunni og 1.885 meðmæltir henni, en hún skoðast samþykkt, þar sem kjör- sókn náði ekki 35% af félögum VR. 3.842 greiddu atkvæði af 11.565 félögum á kjörskrá eða 33,2% fé- lagsmanna. í lögum um sáttastörf í vinnudeil- um eru nákvæm fyrirmæli um af- greiðslu á miðlunartillögu. Ef þát- taka f atkvæðagreiðslu er minni en 35% þarf mótatkvæðafjöldi að hækka um einn af hundraði fyrir hvem hundraðshiuta sem vantar upp á 35% til að fella miðlunartillög- una. Ef færri en 20% félagsmanna hefðu greitt atkvæði hefði miðlun- artillagan skoðast samþykkt hvem- ig sv sem atkvæðagreiðslan hefði farið. Aðeins 73 fleiri hefðu þurft að greiða atkvæði gegn miðlunartil- lögunni til þess að fella hana, því þá hefðu 52% þeirra sem greiddu atkvæði verið á móti henni. Trúnað- armannaráð VR hefur þvf aflýst verkfalli á félagssvæði sínu. í hinum félögunum þrettán var miðlunartillagan felld, víðast hvar með miklum meirihluta atkvæða. í þeim félögum var kjörsókn á bilinu 42% og upp í 75,8%. Verkfall versl- unarmanna þar stendur því áfram. Þessir staðir eru: Hafnarfjörður, Suðumes, Akranes, Borgames, Stykkishólmur, Bolungarvík, ísa- fjörður, Sauðárkrókur, Siglufjörð- ur, Akurevri, Húsavík, Vestmanna- eyjar og Amessýsla. Af 19 manna framkvæmdastjóm Vinnuveitendasambands íslands greiddu 18 atkvæði. 13 samþykktu miðlunartillöguna, 4 vom á móti og eitt atkvæði var ógilt. Af sjö manna stjóm Vinnumálasambands samvinnufélaganna greiddu sex at- kvæði. Þrír samþykktu tillöguna, tveir vora á móti og einn seðill var auður. Forsvarsmenn VR mótmæltu því að stjómir vinnuveitendasamta- kanna greiddu aðeins atkvæði, en ekki félagar almennt eins og í versl- unarmannafélögunum. Er það mál nú í athugun hjá VR. Bjöm Gunnarsson, VA: Svik hjá yfirborgaða f ólkinu í Reykjavík nÞAÐ ER alveg á hrernu af hveiju miðlunartiUagan var felld, það eru kaupliðimir. Þetta var sams konar, ef ekki lægra, kauptilboð og var þegar búið að fella, þannig að það var ekki hægt að búast við öðru,“ sagði Björn Gunnarsson, form- aður Verslunarmannafélags Akraness. Um ástæður þess að miðlunar- tillagan var felld úti á landi, en ekki í Reykjavík sagði Bjöm: „Ég held að um það bil 70-80% fólks í Reykjavík sé yfirborgað. Fólk í stórmörkuðum og mörgum versl- unum tekur laun samkvæmt samningum, en skrifstofufólk og aðrir taka laun umfram þetta. Þessu er svo alveg öfugt farið úti á landsbyggðinni. Þar era um 20% fólks sem nýtur yfírborgana og 80% sem fær greitt samkvæmt töxtum. Ég held að þetta sé skýr- ingin á þessum mun. Það gerir stöðuna ákaflega erf- iða að þetta skuli vera samþykkt í Reykjavík og það veldur okkur miklum vonbrigðum hér á lands- byggðinni að það skyldi ekki hafa náðst samstaða á meðal þessa fólks sem nýtur yfírborgana. Mér finnst það vera svik meðal þessa fólks sem nýtur yfírborgana að það skuli ekki styðja sína félaga. Steini Þorvaldsson, VÁ: Kaupliðurinn of lágur „ÞAÐ ER náttúrulega bara ein ástæða fyrir þvl að miðlunartillag- an var felld. Hún er sú að kauplið- urinn var allt of lágur. Við settiun fram ákveðnar kröfur sem eru búnar að vera til umfjöUunar þarna. Vinnuveitendur eru ekki búnir að svara einni einustu krónu og sáttasemjari gekk þvi miður ekki neinn milliveg, heldur færði fram prósentuhækkun sem var i gamla samningnum," sagði Steini Þorvaldsson, formaður Verslun- armannafélags Árnessýslu. „Fólk er reitt yfír því að vera á launum langt undir skattleysismörk- um og geta þannig ekki talist nýtir .■aotrJ»40:1)11/111 i.t■: 11 > ■ 11 þjóðfélagsþegnar með því að greiða til þjóðfélagsins eins og aðrir. Það er móðgun við hvem fíjálsborinn íslending. Skýringin á því af hveiju samning- amir voru felldir með svo afgerandi hætti úti á landi er sú að við hér úti á landi fáum borgað eftir töxtunum. Þenslan í Reykjavík hefur skapað miklar yfirborganir þar og ég tel að það fólk sem er yfírborgað í Reykjavík hafi ekki verið reiðubúið að beijast með fólkinu I sínu eigin stéttarfélagi sem vinnur á töxtunum. Við erum tilbúin að beijast lengi og hart ef í það þarf að fara, en við vonum að menn átti sig og gangi til samninga við okkur." „Dæmigerð misþynn- ing á lýðræðinu“ - segir Magnús L. Sveinsson, formaður VR um niður- stöður atkvæðagreiðslunnar um miðlunartillöguna „Ég verð að segja þá skoðun mina að mér finnst þetta alveg dæmigerð misþyrming á lýðræð- inu, að 1.925 atkvæði skuli vigta minna en 1.885. Á sama tima nægja þijú atkvæði fyrir sam- þykki hjá Sambandinu. Það er auðvitað mjög slæmt að svona lagað skuli gerast og það liggur alveg ljóst fyrir að það stríðir gegn allri réttlætiskennd manna,“ sagði Magnús L. Sveins- son, formaður Verslunarmanna- félags Reykjavíkur aðspurður um niðurstöður atkvæðagreiðsl- unnar um miðlunartillögu rikis- sáttasemjara. Hann sagði að VR hefði gert athugasemd við það að stjómir vinnuveitendasamtakanna hefðu greitt atkvæði, en verslunarmanna- félögunum væri uppálagt að félag- amir sjálfír greiddu atkvæði en ekki stjómimar. „Við óskum eftir að því verði fundinn staður í lögun- um að það gildi ekki sömu reglur fyrir báða aðila. Við eram að at- huga hvemig við tökum á þessu. Þó ekki væri nema upp á framtíðina að gera, þarf að fást úr þessu skor- ið. Það lítur afskaplega einkenni- lega út ef annar aðilinn getur látið sex manna klúbb taka ákvörðun, en við þurfum að bera það undir fleiri þúsundir manna,“ sagði Magnús. Hann sagði að félagar VR ættu erfítt með að sætta sig við að meiri- hlutinn þyrfti að beygja sig fyrir minnihlutanum, eins og hefði gerst í þessari atkvæðagreiðslu og hann hefði ekki átt von á þessari niður- stöðu. „Ég átti von á meiri kjörsókn og ég bjóst við að yfírborgaða fólkið kæmi og greiddi samningunum at- kvæði. Við urðumn hins vegar var- ir við það að þetta fólk taldi ekki rétt að það færi á kjörstað til þess að samþykkja samninginn og seija þannig fótinn fyrir að það væri hægt að knýja fram launabættur fyrir lægstlaunaða fólkið. Ég tel að þetta sé vitnisburður um að umræð- an um hin Iágu laun og sá áróður okkar að öllum beri skylda til að koma laununum upp í 42 þúsund krónur hafí borið árangur," sagði Magnús. Aðspurður hvort VR gæti með einhveijum hætti beitt samúðarað- gerðum til stuðnings þeim 13 félög- um sem enn eru í verkfalli, sagði Magnús að lögformlega væri ekkert sem kæmi í veg fyrir það. „Ég get ekki neitað því að þetta hefur kom- ið til tals, en það er ekki komið á það stig að við höfum tekið afstöðu til þess.“ „Sú mikla eining og baráttuvilji, sem hefur komið fram hjá verslun- armönnum um allt land að undanf- ömu er einstakur og er öðram gott fordæmi. Ég held að það sé langt síðan önnur eins samstaða hefur sést innan verkalýðshreyfíngarinn- ar og aðrir gætu dregið lærdóm af því,“ sagði Magnús að lokum. f eru bunir Viö erum að innrita 7-12 ára böm til viku og hálfs mánaðar dvalar hjá okkur í sumar. Reiðnámskeið, íþróttir, leikir, sveitastörf, siglingar, ferðalög, sund, kvöldvökur og fleira. Verð: Vikunámskeið kr. 9750.- Hálfsmánaðamámskeið kr. 19500.- (sy stkinaafsláttur). Tímabil 23. mai - 28. maí. Vikunámskeið 29. maí - 3. júní — 5. júní - 17. júní Hálfsmánaðarnámskeið 19. júní - 1. júlí — 3. júlí - 15. júlí — 17. júlí - 29. júlí 1. ágúst - 13. ágúst — 14. ágúst - 26. ágúst — Innritun fer fram á skrifstofu SH Verktaka Stapahrauni 4, Hafnarfirði, sími 652221. Missið ekki af plássi í sumar! Sumardvalarheimilið Kjarnholtum Biskupstungum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.