Morgunblaðið - 03.05.1988, Side 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
íslendingar lentu í
þriðja sinn í 16. sæti í
Söngvakeppni
evrópskra
sjónvarpsstöðva á
laugardag og þótti
mörgum það súrt í
broti. Sögðust allir
keppendurnir hafa
búist við mun betri
árangri og nefndu
margir 10. sætið.
Önnur varð raunin og
voru því nokkrir
írlandsfaranna inntir
álits á keppninni.
Morgunblaðið/Sverrir
Björn Emilsson, upptökustjóri
Sjónvarpsins segir Stefáni Hilm-
arssyni til á æfingu.
Stefán Hilmarsson og Sverrir Stormsker flytja Iag Sverris, „Sokrates" á generalæfingu.
um fyrir keppni. „Þegar Stefán
veiktist þá átti ég ekki til orð, það
hvarflaði að mér að fá annan
söngvara í hans stað. Ég sé reynd-
ar ekki hvemig það hefði átt að
vera mögulega. Þetta tók mjög á
taugamar."
Aðspurður sagðist Bjöm hafa
áhuga á að vinna aftur að keppn-
inni. „Ég hef ákaflega gaman af
tónlist auk þess sem þessi reynsla
kemur mér til góða.“
En hvaða lög hélt Bjöm að
myndu vinna? „Ég setti Lúxemburg
f fyrsta sætið, Tyrkland í annað
og írland í það þriðja. Lag Sverris
taldi ég lenda í 7. sæti. Því þrátt
fyrir að það sé mjög gott, fellur
það ekki nógu vel inn í keppnina."
Dró úr gjamminu
eins og hægt var
Hermann Gunnarsson, sjónvarps-
maður, sá um að kynna keppnina
fyrir lslendingum. Hann sagðist
hafa búist við því að kynningin
yrði erfið þar sem dagskráin hafi
verið svo þétt. „Hljóðið til íslands
kom ekki á fyrr en 15 sekúndum
fyrir átta og þvl því þurfti ég að
tala ofan í kynningamar. Ég vissi
að það yrði kvartað og dró því úr
gjamminu eins og hægt var. Ef ég
væri ekki vanur svona lýsingum,
hefði ég orðið óskaplega stressað-
ur.“
Undir lok keppninnar brá breski
sjónvarpsmaðurinn Terry Vaughan
sér upp í þularklefana og hlustaði
á kynningar þulanna. Þótti honum
mikið til um íslenskuna. „Hvílíkt
mál, þú ert nú alveg frábær," sagði
hann við Hermann sem segir að
sér hafi orðið bylt við þar sem
Vaughan sé uppáhalds sjónvarps-
maðurinn sinn.
Aðspurður sagðist Hermann
hafa átt von á meiri skrautsýningu
en raun varð á; „Þetta er jákvæð
samkoma Evrópuþjóða og íramir
stóðu sig vel í skipulagningunni.
Flestir hafa skoðun eftir á hvemig
á að standa að framkvæmdinni.
Hér eiga engar afsakanir við og
því síður minnimáttarkennd, heldur
á að bíta á jaxlinn og halda áfram."
Spældur yf ir úrslitunum
„Áður en við fómm inn á svið gát-
um við ekki setið fyrir spenningi,
en það er betra að byrja og ljúka
þessu af,“ sagði Guðmundur Jóns-
son, gítarleikari, um líðan kepp-
enda áður en stigið var á svið.
„Þegar við komum niður af sviðinu
var okkur sagt að keppendur og
áhorfendur hefðu sungið með. Þeg-
ar ljóst varð hvemig laginu okkar
myndi ganga fór mesta spennan í
að fylgjast með hinum lögunum og
við vomm fegin að Bretinn skyldi
ekki vinna." Sjálfur sagðist hann
hafa búist við því að lenda í 10.
sæti.
Fór út með vinningsglamp-
ann í sólgleraugunum
- segir Sverrir
Stormsker
„Ég vildi hreinlega ekki trúa því
að ísland væri svona njörvað við
16. sætið," sagði Sverrir Storm-
sker. „Ég jafnaði ég mig fljótt,
fannst þetta í raun bráðfyndið. Svo
lenti ég í 16. sæti í flugvélinni á
leiðinni heim og býst ekki við öðm
en að sætið fylgi mér fram í rauð-
an dauðann.
Ég hefði miklu frekar viljað
lenda í 21. sæti en 16. af öllum
sætum. Mér þykir hart að vera
kominn f hóp með Valgeiri Guðjóns-
syni og Magnúsi Eiríkssyni."
Hvaða sæti áttir þú von á að
lenda í? „Ég bjóst við að verða í
einum af 10 efstu og taldi fyrsta
sætið nokkuð líklegt. Eg tek eflaust
þátt í keppninni á næsta ári og
verð fyrir vonbrigðum ef ég lendi
ekki í 16. sæti.“
Hvemig gekk flutningurinn? „Ég
var nokkuð ánægður með flutning-
inn, nema hvað við heyrðum ekkert
í okkur á sviðinu. Það hafði engin
áhrif á mig að vita af þessum millj-
ónum glápandi á keppnina, þetta
var svipuð tilfinning og að halda
tónleika á Eskifirði fyrir 20 manns.
Ástæðan fyrir slæmu gengi okkar
er einfaldlega sú að við emm ekki
komnir á landakortið, úti veit eng-
inn neitt um okkur og það er ekki
gert ráð fyrir að neitt komi frá
okkur. Ég held að lagið hafi engu
máli skipt, við hefðum lent í 16.
sæti þó við hefðum flutt svissneska
lagið.“
Sérðu eftir að hafa farið? „Alls
ekki, það var til dæmis mikil
lífsreynsla að smakka frskan mat.
Ef ég hefði séð úrslitin fyrir hefði
ég auðvitað ekki farið, ég fór út
með vinningsglampann í sólgler-
augunum."
Hvað tekur nú við? „Við Stebbi
eram að fara að taka upp plötu,
sem á að koma út í nóvember, ég
get ímyndað mér að hún komi út
þann 16.. Þá var ég var búinn að
lofa að hengja mig í gaddavír ef
við lentum í 16. sæti, svo ég kaupi
mér að öllum lfkindum kaðal eða
gaddavír. Ef ég svo hengi mig,
verður það gert hægt og hljótt í
gleðibankanum."
Morgunblaðið/Sverrir
Sigurvegarinn Celine Dion fagn-
ar sigri. Við hlið hennar standa
Atilla Sereftug, stjómandi og
Nella Martinetti höfundur lags-
ins.
Hef áhuga á að vinna
aftur að keppninni
Bjöm Emilsson upptökusfjóri,
sem skipulagði æfíngar Beathoven
í írlandi, sagði það óneitanlega
nokkur vonbrigði að lenda neðar-
lega. Sér hefði fundist lagið eiga
miklu betra skilið. „Ég sagði krökk-
unum að þau myndu lenda í einu
af fyratu þremur sætunum til að
halda uppi móralnum, því ég fann
að þeim var bmgðið þegar við kom-
um út og fjölmiðlamir vom á eftir
fleimm en þeim.Ég var búinn að
lofa að éta hattinn minn ef illa
færi og er þegar búinn að því. ís-
lendingar em alltaf stórtækir í öllu
og stefna alltaf á brattann; þeir
vilja vera fremstir í skák, hand-
bolta og sönglagakeppni. Hins veg-
ar fínnst mér dálftill húmor í því
að lenda í 16. sæti fyrst við urðum
svona neðarlega."
Bjöm sagði að sér fyndist engin
ástæða til að gera neinar breyting-
ar á framkvæmd keppninnar. Is-
lendingar hefðu einfaldlega aðra
tilfinningu fyrir popptónlist en Evr-
ópuþjóðimar auk þess sem keppnin
ætti sér sterka hefð, sem íslending-
ar væm að kynnast núna. „Ég
held að meðalaldur okkar hóps sé
lægri en annara keppenda og tón-
listin er frekar fyrir fólk á miðjum
aldri. Við emm ennþá að bögglast
við að vera með tónlist sem höfðar
til þess hóps sem hlustar á popptón-
list. Öll framkvæmdin hefur gengið
vel, allar áætlanir hafa staðið. Það
eina sem fór úrskeiðis var að Stef-
án og Sverrir veiktust og gátu því
ekki alltaf verið saman til staðar
til að kynna dúettinn. Auglýsinga-
herferðin hefði því getað farið bet-
ur.“ Bjöm var spurður hvaða
hugsanir flygju í hug upptökustjóra
sem sæti uppi með meira og minna
veika hljómsveit þar sem söngvar-
inn væri verst haldinn, örfáum dög-
Fögnuður svissnesku áhorfend anna var
voru Ijós.