Morgunblaðið - 19.05.1988, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
19
Hátíð á 70 ára afmæli
Siglufjarðarkaupstaðar
Siglufjarðarkaupstaður á 70
ára afmæli á morgun, 20. maí,
auk 170 ára verslunarafmælis.
Af því tilefni verður fjölbreytt
hátíðardagskrá i bænum, sem
hefst klukkan 14.00 með opnun
nemendasýningar í Grunnskól-
anum undir yfirskriftinni „Smá-
myndir og þættir í 70 ár“. Hátíð-
arfundur bæjarstjórnarinnar
hefst svo klukkan 17.00 í nýjum
fundarsal í Ráðhúsinu. Á sama
tima frumsýnir Leikfélag Siglu-
fjarðar leikritið Galdrakarlinn í
Oz eftir L. Frank Baum, undir
leikstjórn Carmen Bonitch. Há-
tiðahöldunum lýkur svo með há-
tiðardagskrá i Siglufjarðar-
kirkju.
Galdrakarlinn í Oz er viðamesta
verkefni, sem Leikfélag Siglufjarð-
ar hefur ráðist í, en félagið var
stofnað 4. apríl 1951. Húsnæðis-
vandi hefur hijáð það auk skorts á
fólki, en með þessari sýningu er
vonast til að fari að birta til.
Auk þess að sjá um leikstjóm
hannar Carmen Bonitch leikmynd
og búninga og sér um förðun og
lýsingu í samráði við Ingvar Bjöms-
son hjá Leikfélagi Akureyrar. Tón-
listin er í höndum Sturlaugs Kristj-
ánssonar. Milli 50 og 60 manns
standa að sýningunni, en leikendur
eru 35, þar af 12 böm. Aðalhlut-
verk eru í höndum Jónu Bám
Siglufjarðarkirkja á hvítasunnudag:
Stefán Friðbjarn-
arson prédikar
Si^lufirði.
SJÖTÍU ár eru liðin síðan Siglu-
fjörður fékk kaupstaðarréttindi
í dag, föstudag og 170 ár sfðan
að kaupstaðurinn fékk verslun-
arréttindi. Einnig eru á þessu ári
liðin 100 ár sfðan sr. Bjarni Þor-
steinsson tónskáld og fyrsti heið-
ursborgari Siglufjarðar vígðist
til Siglufjarðar og rétt fimmtíu
ár sfðan hann lést.
Vegna þessara tímamóta tengist
guðsþjónusta hvítasunnudags sér-
staklega bæjarfélaginu en bæjar-
fulltrúar munu flytja ritningarorð
við guðsþjónustuna.
Þennan sama dag verður sfðan
guðsþjónustu sjónvarpað frá Siglu-
fírði, en þar em hátíðarsöngvar sr.
Bjama fluttir af kirkjukór undir
stjóm Anthonys Raleys og sóknar-
prestinum sr. Vigfúsi Þór Amasyni.
- Matthfas
Siglufjarðarkirkja
Akranes:
Átak í gatnagerð
MIKIÐ verður unnið við gatna-
gerð á Akranesi f sumar og ber
þar hæst að notuð verður ný að-
ferð við að steypa götur með svo-
kallaðri „þjappaðri þurrsteypu".
Áætlað er að lagning fari fram
f júnímánuði og er undirbúnings-
vinna f fullum gangi.
Þessi nýja aðferð er árangur af
starfí nefndar sem skipuð er fulltrú-
um Akraneskaupstaðar, Sements-
verksmiðju ríkisins og Sérsteypunn-
ar sf. Nefndin hefur lagt drög að 5
ára framkvæmdaáætlun í gatnagerð
á Akranesi miðað við þessa nýju
aðferð. Ljóst er að ef þessar fram-
Gripinn
klæðlaus
UNGUR maður í Reykjavík var
handtekinn tvisvar um helgina
fyrir ósæmilegt athæfi á af
mannafæri. Maðurinn hefur áður
komið við sögu lögreglu vegna
slíkrar hegðunar.
Á sunnudag fækkaði maðurinn
fötum á Lækjartorgi, en lögreglan
greip hann á meðan hann var enn
á skyrtu og nærbuxum. Aðfaranótt
mánudags tókst ekki eins vel til;
þá var maðurinn nakinn þegar til
hans náðist.
Hauksdóttur, sem leikur Dóróteu,
Kolbeins Engilbertssonar, sem leik-
ur Puglahræðu, Jóhanns Sigþórs-
sonar, sem leikur Pjáturkarl og
Halldórs Guðjónssonar, sem er í
hlutverki Ljónsins.
Hátíðardagskráin í Siglufjarðar-
kirkju verður sem hér segir:
1. Júlíus Júlíusson setur hátíðina
og kynnir dagskráratriði.
2. Bæjarstjóri, ísak J. Ólafsson,
flytur stutt ávarp.
3. Kirkjukór Sigluíjarðar syngur
undir stjóm Anthony Raley.
4. Hátíðarræða: Siguijón Sæ-
mundsson-, fyrrverandi bæjarstjóri.
5. Kvennakór Siglufjarðar syng-
ur undir stjóm Rögnvaldar Val-
bergssonar.
6. Sverrir Páll Erlendsson,
menntaskólakennari, flytur fmm-
samið efni tengt Siglufírði.
7. Þorvaldur Halldórsson, guð-
fræðinemi, syngur.
8. Lúðrasveit Siglufjarðar leikur
undir stjóm Anthony Raley.
9. Hátíðarsamkomunni slitið af
forseta bæjarstjómar Bimi Jónas-
syni.
Að lokinni samkomunni verður
gestum boðið upp á kaffíveitingar
í Safnaðarheimilinu.
Þórsmörk:
Bannað
að tjalda
Á umsjónarsvæðum Ferðafé-
lags íslands í Þórsmörk verður
ekki leyft að tjalda fyrr en í júní.
Þessi svæði eru Langidalur,
Stóriendi og Litliendi.
Átroðningur á viðkvæmum svæð-
um á þessum árstíma getur haft
ófyrirsjáanlegt tjón í för með sér
og þess vegna bannar Ferðafélagið
tjöldun þar til séð verður að gróður-
inn þoli slíkt.
(Fréttatilkynning)
kvæmdir takast eins vel og vonir
standa til má búast við að þetta
geti orðið góður kostur fyrir önnur
sveitarfélög.
Þessi þurrsteypa verður lögð út
líkt og um malbikun sé að ræða og
mun Loftorka hf. sjá um þá hlið en
Steypustöð Þorgeirs og Helga hf. á
Akranesi mun sjá um blöndun efn-
is. Gert verður ráð fyrir að steyptir
verði tæpir 1.400 metrar af götum
í sumar og er þar um að ræða hluta
af Jörundarholti, Bakkatún og Víði-
grund og verður um fullnaðarfrá-
gang á þessum götum að ræða sem
þýðir að allar gangstéttir verða
einnig gerðar. Síðan er ætlunin að
undirbyggja nokkrar götur til að
unnt verði að leggja á þær árið
1989. Þá er einnig á dagskrá að
ljúka gerð gangstétta við Sunnu-
braut og Sandabraut.
Sérsteypan hf. er fyrirtæki í eigu
Sementsverksmiðju ríkisins og
íslenska Jámblendifélagsins og hef-
ur unnið undanfarin ár að þróun
steinsteypu og er þessi þurrsteypa
m.a. árangur af því starfí.
Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akra-
nesi sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann fagnaði sérstaklega
því samstarfí sem tekist hefði með
bæjaryfírvöldum og fyrirtækjum
sem stæðu að Sérsteypunni sf. og
hann vonaði að þessi tilraun tækist
vel og yrði öðrum sveitarfélögum
og opinberum aðilum til eftirbreytni.
- JG
FATALAND
Smiðjuvegi 2
AFSLÁTTARDAGAR
30% afsláttur
af öllum fatnaði.
DÆMI:
Herrabuxurkr. 1790/1253
Herraskyrtur kr. 1090/763
Háskólabolirkr. 790/553
Jogging-gallar kr. 1590/1113
Jogging-buxur kr. 790/553
Barnajoggi ng-gallar kr. 990/693
5 pör barnasokkar kr. 245/171
Barnabolir kr. 195/136
Skórkr. 1590/1113
o.m.fl.
Hringbraut 119.
Smiðjuvegi 2b.