Morgunblaðið - 19.05.1988, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
69
Reuter
Starfsmaður Bonhams uppboðsfyrirtækisins heldur á hinu um-
deilda höfði Maorihöfðingjans, sem stendur til að selja á uppboði.
DEILT UM HÖFUÐ
Mótmæli vegna
fyrirhugaðs uppboðs
Reuter
etta húðflúraða höfuð af
höfðingja Maori-ættflokksins
á Nýja-Sjálandi verður boðið upp
hjá Bonham uppboðsfyrirtækinu
í London þann 20. maí næstkom-
andi. Höfiiðið var flutt til Bret-
lands fyrir 150 árum síðan, en
hjá Maori-ættflokknum tíðkaðist
áður fyrr sá siður að varðveita
höfuð þeirra óvina sem þeir felldu,
og einnig höfuð þeirra Maori-
manna sem féllu í bardögum.
Höfuð af óvinum ættflokksins
voru sett á stengur sem hafðar
voru umhverfís þorpin f þeim til-
gangi að koma í veg fyrir árásir
óvina á þau.
Sá siður að þurrka mannshöfuð
á þennan hátt á uppruna sinn að
rekja til Pólinesíu, og lagðist hann
af hjá Maori-ættflokknum árið
1865, en nokkuð var um að þeir
skiptu við hvíta menn á þurrkuð-
um höfðum og skotvopnum, og
drápu þeir þá jafnvel þræla sína
í þeim tilgangi.
Mikil ólga er nú á meðal tals-
manna Maori-ættflokksins vegna
hins fyrirhugaða uppboðs, og hafa
þeir kraflst þess að umrætt höfuð
verði ekki boðið til sölu. Samtök
í London, sem hafa það á stefnu-
skrá sinni að verja réttindi ætt-
flokka, hafa hótað að stefna upp-
boðsfyrirtækinu fyrir dómstóla.
Samtökin telja að fyrirhugað upp-
boð beri vott um fyrirlitlegt virð-
ingarieysi í garð ættflokksins. I
bréfl til uppboðsfyrirtækisins
halda þeir fram þeirri skoðun, að
það sé glæpsamlegt athæfl að
koma í veg fyrir að hægt sé að
jarðsetja líkamsleifar á löglegan
og viðeigandi hátt. Talsmenn Bon-
hams segjast skilja sjónarmið
þeirra sem vilja að höfuðið verði
flutt til Nýja-Sjálands, en segjast
þó verða að gæta hagsmuna um-
bjóðanda síns og kröfu hans um
að selja það.
Höfiiðið sem um ræðir er talið
vera af ungum Maorimanni, sem
mun hafa fallið f bardaga árið
1820, og er það í eigu einkaaðila.
Uppboðsfyrirtækið telur að um
6000 sterlingspund fáist fyrir höf-
uðið.
Talið er að um það bil 150
höfuð af þessu tagi séu varðveitt
í heiminum, og þar af eru um 50
þeirra í söfnum í Bretlandi, eða í
eigu einkaaðila. Christie’s upp-
boðsfyrirtækið í London fyrir-
hugar að bjóða upp 29 hauskúpur
í næsta mánuði, og þar á meðal
nokkur þurrkuð höfuð. Hlutir
þessir sem eru í eigu safnara frá
Sviss eru flestir frá Amazonsvæð-
inu, og verða þeir væntanlega
boðnir upp í næsta mánuði.
COSPER
— Ég mátti svo sem vita að Fía frænka myndi ekki deyja
hjálparlaust.
lyfH-
vognar
f'j* Eigum ávallt fyrirliggjandi
'Mr hinavelþekktu BV-hand-
lyftivagnameð 2500
og 1500 kílóa lyftigetu.
BiLDSHÖFÐA W SiMI:672444
STÚDENTA-
STJARNAN
Jón Sigmundsson,
14 karata
gull
hálsmen
eða
prjónn
Verð kr.
2400.-
skartgripaverslun, Laugavegi 5, sími 13383.
anda
--
- húsgo9n
SAUX húsgogn
unga 'ó'ks,nS'
FALLEG
OG VÖNDUÐ
HÚSGÖGN
I ALLA ÍBÚÐINA
§§■ " " á ra6a saman á tiötmarga
Þar sem góðu kaupin gerast.
2 Kopavogi
44444
ÚTSM-A'-
_ - eftO/n l
UIOW AF SLÁTTUB
ALLT AÐ ^"torösstólar, hæginda-
Leöurbúsgogrvsk Bnnigvegg-