Morgunblaðið - 19.05.1988, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 19.05.1988, Blaðsíða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988 t Móöir mín, HÓLMFRÍÐUR JÓHANNSDÓTTIR, Hávallagötu 23, Reykjavík, er látin. Knútur Hallsson. t Ástkær móðir mín, JÓNÍNA JÓNSDÓTTIR, Brávallagötu 10, lést í Landakotsspítala, 17. þessa mánaöar. Jarðarförin ákveöin síðar. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Unnur Axelsdóttir. t Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN S. HJARTARDÓTTIR, Fannafold 135, lést í Borgarspítalanum 17. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Sigurlfn Ellý Vllhjálmsdóttir, Hákon M. Magnússon, barnabörn og barnabarnabarn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, tengda- dóttir, systir og amma, KRISTÍN ESTER SIGURÐARDÓTTIR, Dverghamri 32, Vestmannaeyjum, lést þann 11. maí í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja. Útförin fer fram frá Landakirkju föstudagjnn 20. maí kl. 14.00. Ólaf ur T ryggvason, T ryggvi Þ. Ólafsson, Brynhlldur Baldursdóttir, Slgurður Ó. Ólafsson, Sædís Steingrímsdóttir, Linda Björk Ólafsdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir, Þórhildur Stefánsdóttlr, systkini og barnabörn. t Jarðarför ÁSTU HANNESDÓTTUR, áöur tll heimilis á Freyjugötu 6, Reykjavfk, fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 20. maí kl. 10.30. Aðstandendur. t Kveðjuathöfn um föðursystur okkar, SOFFÍU PÁLMADÓTTUR MAINOLFI fyrrum kaupkonu á Laugavegi 12, fer fram frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 19. maí, kl. 13.30. Auður Ingvarsdóttir, Sigurður Ingvarsson. Pálmi Ingvarsson. + Faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, STEINN SIGURGEIR KRISTJÁNSSON frá Ólafsvfk, verður jarösunginn frá Ólafsvíkurkirkju, laugardaginn 21. maí kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Olafsvíkurkirkju. Eygló Steinsdóttlr, Jón Auðunn Viggósson, Halla Steinsdóttir, Birgir Jónsson, Adolf Steinsson, Erla Þóröardóttir, Nfna Steinsdóttir, Hilmar Gunnarsson, Áslaug Þrálnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, OLGA LAUFEY ÞORBJÖRNSDÓTTIR, Álfaskeiði 84, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni f Hafnarfirði föstudaginn 20. maí kl. 13.30. Erla Olsen, Bjarnl Ólafsson, Ágústa Olsen, Þorsteinn Sigurðsson, Sonja Valdimarsdóttir, Erlingur Herbertsson, Halldóra Guðjónsdóttir, Ingi Hannesson, Ólöf Guðjónsdóttir, Aðalsteinn Elnarsson, Hulda Þorbjörnsdóttir, Marinó Þorbjörnsson. barnabörn og barnabarnabörn, Nanna Guðmunds- dóttir - Minning Fædd 18. september 1906 Dáin 14. marz 1988 Mig langar að minnast nokkrum orðum gagnmerkrar konu, vinkonu minnar Nönnu Guðmundsdóttur, kennara og bókavarðar, en hún lézt fyrir nokkru að heimili sínu í Beru- firði í Suður-Múlasýslu. Ég kynntist henni fyrir mörgum árum í Ingólfs- stræti 14 hjá Kristínu Ólafsdóttur lækni og Vilmundi Jónssyni land- lækni, en við vorum báðar tengdar því heimili. Nanna stóð föstum fótum í íslenzkri menningu og var hafin yfir allt smátt og ómerkilegt, sem nú þykir við hæfi að fjölyrða um í tíma og ótíma. Hún var meira hugs- andi en flestir aðrir, sem ég hef kynnzt. Ef ég minnist hennar, koma þessi orð fyrst upp í hugann; þjóð- rækni, ættjarðarást, nægjusemi og bindindi. Hún var hollvinur íslenzkr- ar menningar í hvaða formi sem var, brot af bergi lands eins og blik af þess draumi, eins og Jóhannes úr Kötlum orðar svo fagurlega í kvæði sínu, íslendingaljóði. Nanna bjó alla sína ævi í Beru- firði í Suður-Múlasýslu. Ég heim- sótti hana oft á sumrin og kom alltaf fróðari til baka. Hún var minnug og óvenjulega skemmtileg, hafði glöggt auga fýrir allri gaman- semi og skemmtilegheitum í ræðu og riti. Þá er ótalið, hvað hún lagði til menningarmála, svo sem skóg- ræktar og landgræðslu. Fyrir ofan túnið í Berufírði lét hún girða af stórt svæði. Þar voru gróðursettar flestar tegundjr tijáplantna, sem vaxið geta á íslandi. Oft hugsaði ég um það, að svona gæti landið allt verið vafið gróðri, ef fólkið sem það byggir, bæri meiri umhyggju fyrir því. Eitt enn nefni ég, sem var Nönnu til mikils sóma. Það var hvað hún hugsaði vel um kirkjuna og kirkju- garðinn í Berufírði. Berufjörður er gamalt prestssetur, sem lagt var niður sem slíkt snemma á öldinni. Oft finnst mér slíkar jarðir fara í niðumíðslu og fólk, sem fær þær til ábúðar, ekki hugsa um menning- argildi þeirra. Kirkjumar fara í óhirðu og kirkjugarðamir verða ijótasti blettur landareignarinnar. Kannski er sú, sem þetta skrifar, viðkvæmari fyrir þessu en aðrir, vegna þess að hún er alin upp á prestssetri, sem nú er aflagt sem slíkt. íbúðarhúsið stóð mitt á milli kirkju og kirkjugarðs, og maður sat oft uppi á kirkjulofti, meðan sólin var að setjast og þokan sveimaði um dalinn. í litlu kirkjunni í Beru- firði er öllu vel við haldið. Þar er m.a. altarisklæði frá 17. öld og eft- irlíking af gamalli altaristöflu, sem þau systkinin létu gera eftir altaris- töflu, sem var í kirkjunni, en er nú á Þjóðminjasafninu. Mikið er ísland fátækara, eftir að Nanna er horfin á braut. Nú heyrist ekki framar af hennar vör- um þessi syngjandi skaftfellski hreimur í orðum eins og bam og stjama, sem enginn nær nema þeir, sem aldir eru upp á þessu svæði. Mig langar að lokum að stinga upp á því, að þeir, sem vildu minnast Nönnu og fínnst þeir eigi henni eitt- hvað upp að inna, planti einu tré í garðinn sinn í hennar minningu. Eg kveð svo þessa vinkonu mína með miklum söknuði og bið himna- smiðinn að lýsa henni á ótroðnum stígum. Þorbjörg Björnsdóttir Anna Einars- dóttir - Minning Fædd 5. október 1903 Dáin 1. maí 1988 Hún Anna Einarsdóttir, föður- systir mín, er dáin. Mig langar að sýna henni þakklæti mitt með því að minnast hennar með nokkrum orðum. Anna Einarsdóttir var fædd að Hafranesi við Reyðarfjörð 5. októ- ber 1903, elsta bam Guðrúnar Hálfdánardóttur og Einars Friðriks- sonar bónda og útgerðarmanns þar. Ólst hún upp á mannmörgu heim- ili, en þau systkinin voru 8 og auk þess voru þar skyldmenni og vinnu- fólk, oft um og yfír 20 manns á heimilinu. Anna giftist eftirlifandi manni sínum, Eiríki Bjömssyni lækni, 9. febrúar 1929. Eignuðust þau tvö böm, Guðrúnu sem giftist Hafliða Andréssyni, en hann lést árið 1970 t Útför systur okkar og fóstursystur, ÖSSURÍNU BJARNADÓTTUR frá Bolungavfk, sem lóst 8. þ.m., fer fram fró Fossvogskirkju föstudaginn 20. maí kl. 13.30. Jóna BJarnadóttir, Ásta Bjarnadóttlr, Steingrfmur Bjarnason, Jóhann Kristjánsson. t Útför, ÖNNU KATRINE ÞORGRÍMSSON, faedd Ólsen, Melgerðí 19, fer fram frá Fossvogskapellu nk. föstudag, 20. maí, kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Davfð S. Jónsson. t Bróöir okkar, JÓHANNESÁRNASON frá Gegnishólaparti, verður jarösunginn frá Selfosskirkju, laugardaginn 21. maí kl. 13.30. Kristfn Árnadóttir, Slgurður Árnason. Lokað Lokað frá kl. 13.00 ÁRNASONAR. dag vegna jarðarfarar HELGA Gullkistan, Frakkastíg 10. iangt um aldur fram, og Bjöm, kvæntan Hjördísi Halldórsdóttur. Minnisstæðar eru mér ferðimar í Hafnarfjörð með foreldrum mfnum og systkinum. Oft gengum við til Hafnaifyarðar á sunnudagseftir- miðdegi og fengum heimkeyrslu að heimsókn lokinni. Böggull fylgdi þó stundum skammrifi, en það var þegar Eiríkur tók okkur Erling af- síðis inn á læknastofu sína, sem var á jarðhæð hússins, til að gera við tennumar í okkur. Það gleymdist þó fljótt, því alltaf tók Anna vel á móti okkur þegar viðgerðinni var lokið. Og næst þegar rætt var um að fara í Hafnarfjörð tókum við strax vel í það — heimsóknin var tannviðgerðinni sterkari í minni. Þá þótti okkur alveg einstakt að leika okkur í garðinum þeirra á Austurgötu, en hann er mjög sér- stakur að því leyti að klettar ná inn í hálfan garð, eins og reyndar víða í Hafnarfirðinum. Sambandið við Önnu og Eirík datt að mestu niður á unglingsárun- um. Það var ekki fyrr en á síðustu 2-3 árum, að við. Anna fómm að hafa samband aftur. Og þegar við töluðum saman í síma var ekki hægt að heyra að 50 ára aldurs- munur væri á okkur, svo mikið var hlegið og gantast. Anna og Eiríkur bjuggu fyrstu 3 hjúskaparárin i Ólafsvík, en fluttu þá til Hafnarfjarðar, áð Austurgötu 41, og bjuggu þar í rúmlega hálfa öld. Þau fluttu að Hrafnistu í Hafn- arfirði fyrir örfáum mánuðum og var það sérstaklega erfitt fyrir Önnu að yfirgefa húsið sitt og að- lagast nýju umhverfí. Ég held hún hafi aldrei sætt sig við það. Hún fékk mildan dauðdaga en hún varð bráðkvödd á heimili sínu. Anna var jarðsett í kyrrþey 16. maf. Ég votta Eirfki, Guðrúnu, Bimi og þeirra fólki samúð mína. Hildur Friðriksdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.