Morgunblaðið - 19.05.1988, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
23
Svo sem sjá á af ofansögðu er
fullur vilji fyrir því innan Háskóla
Islands að hefja kennslu í blaða-
mennsku og áætlun liggur fyrir um
tilhögun kennslunnar í staerstum
dráttum. Þessi áætlun á sér reyndar
æðilangan aðdraganda og styðst við
athuganir á fyrirkomulagi kennslu á
þessu sviði í fjölda skóla bæði vestan
hafs og austan. Gert er ráð fyrir að
auk sérstaks kennslustjóra sem hafa
mun umsjón með skipulagi og fram-
kvæmd kennslunnar, þurfi að ráða
nokkra einstaklinga úr röðum starf-
andi fréttamanna í hlutastarf
(1—IV2 starfsígildi) til að sinna
þjálfun í blaðamennsku, hljóðvarps-
og sjónvarpsstörfum, en námskeiðin
í fjölmiðlafræði, fjölmiðlarétti og
íslensku yrðu í höndum kennara í
heimadeildum þessara fræða.
Vera kann að einhveijum þyki
gæta ofmetnaðar í þeim ásetningi
að eftia til þessarar kennslu ofan á
háskólapróf f stað þess að kenna
blaðamennsku sem grunnnám í há-
skóla eins og víða tíðkast, eða jafn-
vel á sérstöku kjörsviði í fjölbrauta-
skóla. Ég held hins vegar að flestir
sem hugleiða í alvöru þjóðfélagslegt
mikilvægi fjölmiðlanna hljóti að fall-
ast á að menntunarkröfur til starfs-
manna þeirra á næstu árum og ára-
tugum megi ekki vera minni en hér
er lagt til. Jafnframt er fjölbreytni
menntunarinnar geysimikilvæg og
því er gert ráð fyrir því að allar
hugsanlear tegundir grunnáms í
háskóla eða sambærileg menntun
verði tekið gilt sem undirstaða eins
árs náms í hagnýtri fjölmiðlun. A
það ber einnig að líta að nú þegar
hefur meira en helmingur starfandi
blaðamanna háskólanám að baki.
Astæða er til að ætla að ein-
hveijir úr hópi starfandi blaðamanna
muni hafa áhuga á einstökum hlut-
um námsheildarinnar. Þátttaka
þeirra væri fagnaðarefni. Eins gæti
svo farið að vettvangur skapaðist
fyrir sérstök endurmenntunamám-
skeið til hliðar við eins árs námið.
Reyndar hafa þegar verið haldin slík
námskeið við háskólann f samvinnu
við Blaðamannafélag íslands. Ýmsar
fleiri hugmyndir eru uppi um sam-
starf við starfandi blaðamenn.
Tækjakostur er vissulega mikil-
vægur í námi í hagnýtri fjölmiðlun
og verður ekki undan því vikist að
tryggja lágmarksútbúnað, en sjálf-
sagt mun einnig reyna töluvert á
góðvilja starfandi fjölmiðla þegar
kemur að vettvangsþjálfun nemend-
anna. Samstarf við fræðsluvarp og
háskólaútvarp þegar það tekur til
starfa, hlýtur einnig að teljast nær-
tækur kostur.
Hugmyndir þær sem hér hafa
verið mjög stuttlega reifaðar hafa
um sinn beðið þess að verða hrint í
framkvæmd. Ef yfirvöld mennta- og
fjármála kjósa er unnt að gera þær
að veruleika með nokkurra mánaða
fyrirvara.
Ef marka má þann sæg fyrir-
spuma sem berast til félagsvísinda-
deildar á hveiju ári um nám í fjöl-
miðlun og blaðamennsku þarf ekki
að óttast að skortur verði á áhuga-
sömum nemendum.
Höfundur er dósent við Félagsvis-
indadeild Háskóla íslands.
Morgunblaðið/BAR
Frá æfingu Islenska jazzballettflokksins.
BÍLDSHÖFÐA 16 SIMI 6724 44
SjáHgjjæðqr
eðaheilar
samstæður
Níðsterkarog
hentugar stálhillur.
Auðveld
uppsetning.
Margarog
stillanlegar stærðir.
Hentarnánast
allsstaðar.
Ávallt fyrirliggjandi.
Leitið upplýsinga
UMBOÐS OG HEILDV6RSL UN
S£*aunsur
Islenski jazzballettflokkurinn:
Boðssýning á Hótel Islandi
ÍSLENSKI jazzballettflokkur-
inn heldur þriðju og sfðustu boðs-
sýningu sina á Hótel fslandi á
morgun, föstudaginn 20. maf. Á
efnisskránni eru m.a. atriði úr
söngleiknum “Sweet Charity",
eftir Bob Forse, sem að sögn Báru
Magnúsdóttur hefur notið mikilia
vinsælda i New York undanfarið.
Bára Magnúsdóttir, frumkvöðull
að stofnun jazzballettflokksins og
aðal driffjöður hans, sagði f viðtali
við Morgunblaðið að markmiðið með
stofnun flokksins væri að veita döns-
urum tækifæri til að starfa við list-
grein sína. Það væri fjöldi fólks sem
legði hart að sér ámm saman til að
ná árangri í danslistinni, en því byð-
ust nánast engin tækifæri til starfa.
„Vonir okkar um aukna atvinnu
glæddust þegar skemmtistaðimir
fóru að bjóða upp á viðameiri sýning-
ar, en því miður virðist lítill áhugi
vera á því að fá fagfólk til að starfa
við þær,“ sagði Bára.
íslenski jazzballettflokkurinn var
stofnaður 13. september s.l. og sýndu
yfir 20 dansarar áhuga á þátttöku,
en aðeins 9 komust inn. Meiningin
er þó að flokkinn skipi 15 — 18 dans-
arar, en beðið verður með að fylla
þá tölu þar til hæfír dansarar fást.
Það vom þau Marfa Gísladóttir, bal-
lettdansari og Karl Barbee, kennari
við David Howard skólann í New
York, sem sáu um val dansara inn
í flokkinn og aðstoðuðu við upp-
byggingu hans. Bára sagði þá sem
að komust í möigum tilfellum hafa
fómað miklu til að geta verið með,
því æfíngar væm alla virka daga í
þijá tíma á dag, og yrðu dansaram-
ir ólaunaðir þar til launaðar sýningar
hæfust.
Tii að afla flokknum fjár var farin
sú leið að freista þess að safna
styrktarmeðlimum og hefur það, að
sögn Bám, gengið mjög vel. Nú þeg-
ar hafa rúmlega 200 manns heitið
flokknum stuðningi, Sýningin á
morgun er þriðja og sfðasta boðssýn-
ing flokksins og eins og áður sagði
em atriði úr söngleiknum „Sweet
Charity", í danssmfð og uppfærslu
Lori Leshner.á dagskrá. Einnig verða
sýnd tvö ný verk eftir Sharon Wong
og atriði úr fyrri sýningum flokks-
ins, „Moving on“, eftir Evrol Pucker-
ing og „Something real“ eftir Karl
Barbee.
Aðsókn að fyrri sýningunum var
að sögn Bám mjög góð og var hún
bjartsýn á að flokkurinn ætti framtíð
fyrir sér. „Við verðum að ala upp
traustan hóp áhorfenda um leið og
ftokkinn sjálfan", sagði Bára. „Það
skortir hefð fyrir listrænum danssýn-
ingum á íslandi, en áhuginn virðist
sannarlega vera fyrir hendi."
Gardsláttuvélin
&mi m
Rafeindakveikja tryggir örugga gangsetningu
Hún slær út fyrir kanta og upp að vegg.
Fyrirferðarlítil, létt og meðfærileg.
3.5 HP sjálfsmurð tvígengisvél.
Auðveldar hæðarstillingar.
Þú slærð betur með
■- 1
13 POR” SÍMI: 681500 - ÁRMÚLA 11
RÝMINGARSALA!
Rýmum fyrir nýjum vörum
Pokar frá 295.-
Leðurlíkistöskur 50% afsláttur
Leðurtöskur 50% afsláttur
Nýjar vörur á hverjum degi
Aðeins 2 dagar eftir
y