Morgunblaðið - 19.05.1988, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
35
Páfaheimsóknin:
Guðsþjónusta á Landa-
kotstúni og Þingvöllum?
JÓHANNES Páll páfi annar mun
að líkindum messa á Landakots-
túni í heimsókn sinni til íslands
næsta sumar. Þá hefur komið
fram tillaga um að samkirkjuleg
athöfn með páfa, sem allir kristn-
ir söfnuðir á landinu eigi aðild
að, fari fram á Þingvöllum. Páfi
er væntanlegur til landsins í byij-
un júní á næsta ári en dagskrá
ferðarinnar biður nú samþykkis
stjórnar Páfaríkis.
Að sögn Gunnars J. Friðriksson-
ar sem situr í undirbúningsnefnd
páfaheimsóknarinnar verður að
líkindum gefín út tilkynning um
dagskrá fyrstu heimsóknar páfa til
Norðurlandanna um næstu mán-
aðamót. Jóhannes Páll annar er nú
á ferð um Suður-Ameríku og vannst
ekki tími til að ganga frá dag-
skránni áður en hann hélt þangað.
í tillögum undirbúningsnefndar-
innar er gert ráð fyrir því að páfí
búi í kaþólska biskupssetrinu með-
an á heimsókninni stendur. Hann
dvelur hér í einn og hálfan dag.
Páfí mun væntanlega hitta að máli
forseta íslands, ríkisstjómina og
veita fulltrúum kaþólskra móttöku.
Þetta verður annar viðkomustaður
páfa í heimsókninni til Norður-
landa. Hingað til lands kemur hann
frá Noregi, en heldur síðan rakleitt
til Finnlands, Danmerkur og
Svíþjóðar.
I föruneyti páfa eru um 30 að-
stoðarmenn, öryggisverðir og lækn-
ir. í flugvél páfa, DC-9 þotu frá
ítalska flugfélaginu Alitalia, verður
gert ráð fyrir allt að 100 frétta-
mönnum. Fréttastofur og fjölmiðlar
hafa að jafnaði greint ítarlega frá
ferðalögum páfa.
Skipting loðnu-
kvóta enn óviss
TILLÖGUR fiskifræðinga um
skiptingu loðnukvótans milli ís-
lendinga og Norðmanna gera ráð
fyrir sömu sókn og í fyrra. Von-
ast er tíl að málið hljóti af-
greiðslu ráðgjafnefndar Alþjóða
hafrannsóknastofnunarinnar í
þessari viku. Heildarafli miðast
við 500.000 tonn, en vegna inn-
eignar Norðmanna frá fyrra ári
eiga þeir tilkall til fimmtungs
aflans. Á laugardag funduðu við-
ræðunefndir Norðmanna, Græn-
lendinga og íslendinga í
Reykjavík um veiði úr loðnu-
stofninum án árangurs.
Veiðamar hafa að jafnaði hafist
um miðjan júlí og em norsku skipin
oftast fyrst á miðin. Auknar rækju-
veiðar hér við land hafa valdið því
að íslensku skipin fara seinna á
loðnu með hveiju árinu sem líður.
í gildi er samkomulag við Norð-
menn um að íslendingum beri 85%
af loðnukvótanum á hveiju ári en
þeim 15%. Að sögn Jóns B. Jónas-
sonar skrifstofustjóra í sjávarút-
vegsráðuneytinu verður skerfur
Norðmanna í ár líklega 102.000
tonn vegna_ inneignar þeirra frá
síðasta ári. íslendingar mega veiða
afganginn, 398.000 tonn, eða tæp
80% loðnukvótans.
Færeyingar hafa veitt loðnu í
umboði Grænlendinga undanfarin
ár en þeirra hlutur er utan kvót-
ans. Fiskifræðingar skila jafnan
endurskoðuðu sóknarmarki á
haustin og hefur það þijú undanfar-
in ár leitt til þess að kvótinn hefur
verið hækkaður um að minnsta
kosti tíu prósent. íslendingar hafa
látið í ljósi þá skoðun að veiðar
Færeyinga kunni að hafa þau áhrif
að þessi hækkun verði minni en
ella þar sem gengið hafí verið á
stofninn.
Loðnukvótinn skiptist á 49 skip
eins og í fyrra, jafnt á allan flotann
að tveimur þriðju hlutum en þriðj-
ungi kvótans er útdeilt eftir burðar-
getu skipa. Undanfarin ár hafa
verið gerðar breytingar á skipum
milli ára og stærri skip komið í stað
þeirra sem úreldast. Þær breytingar
hafa ekki áhrif á þann kvóta sem
hver útgerð fær í sinn hlut að sögn
Jóns.
Fyrir þremur árum voru grann-
þjóðimar þijár nálægt samkomu-
lagi um skiptingu loðnukvótans en
upp úr þeim viðræðum slitnaði. Ári
síðar lögðu Grænlendingar fram
stórauknar kröfur um hlutdeild í
veiðunum sem hin ríkin gátu ekki
sætt sig við. Viðræðunefndimar
hittust síðan í fyrsta sinn í tvö ár
í Reykjavík um síðustu helgi en
höfðu ekki árangur sem erfíði.
Morgunblaðið/KGA
Jómfrú-express skutlan svífur af þaki MH. Átta aðstoðarmenn þurfti til að koma skutlunni rétta leið.
Menntaskólinn við Hamrahlíð:
Risaskutla sett saman úr
pappa, lími og viljastyrk
SKÓLUM landsins er nú óðum
að ljúka og gera nemendur sér
ýmislegt til dægrastyttingar í
lok skólaárs. Nemendur
Menntaskólans við Hamrahlíð
og aðrir, sem leið áttu um
Hamrahlíðina um hádegisbil í
gær, urðu vitni að flugi stærstu
pappaskutlu landsins ofan af
þaki skólans en skutluna höfðu
tveir bjartsýnir MH-ingar sett
saman. Skutlan er 10 metrar
að lengd og vænghaf hennar 4
metrar. Ekki misstu þó nem-
endur sjónar af henni þar sem
hún sveif aðeins um 6 metra
áður en hún stakkst til jarðar.
Hugmyndina að skutlunni áttu
félagamir Aðalsteinn Leifsson og
Gunnar Thoroddsen og vom þeir
býsna ánægðir með árangurinn.
„Hugmyndin bar hana hálfa leið
og vindurinn hina,“ sagði Gunnar.
Gerð skutlunnar tók um hálfan
sólarhring en hún er nákvæm eft-
irlíking A4-blaðs og gerð úr
pappa, lími, bambusstöngum og
viljastyrk að þeirra sögn. Ekki
vom allir jafn trúaðir á að skutlan
klyfí nokkum tíma loftið. „Það
var hlegið að okkur, rétt eins og
hlegið var að Edison og Rockefell-
er.“
Er þeir vom inntir eftir ástæðu
þess að þeir réðust í skutlugerðina
sögðust þeir vilja sýna fram á að
íslendingar gætu einnig eignast
geimskutlu. „Geimskutlur hafa
hingað til verið feikilega dýrar og
gerð þeirra flestum ofviða. Með
hugviti og ódým hráefni tókst
okkur að senda á loft geimskutlu
án þess að slys yrðu á mönnum.“
Aðalsteinn og Gunnar segjast
munu halda ótrauðir áfram og
hafa hug á að setja saman bát
úr pappa sem yrði um 63 fermetr-
ar að stærð áður en hann yrði
brotinn saman.
Ömólfur Thorlacius, umboðs-
maður Guinnes-heimsmetabókar-
innar, efkði að stærð skutlunnar
væri heimsmet en reiknaði fast-
lega með að skutlan væri sú
stærsta sem gerð hefði verið hér-
lendis. Skutlugerð- og flug mun
ekki vera viðurkennd metgrein.
Leiðrétting
Rangt var farið með föðumafn
eins dansarans frá Nýja dans-
skólanum sem þátt tekur í al-
þjóðlegri danskeppni í Blackpool
á næstunni í frétt sem birtist á
bls. 46 hér í blaðinu í gær, mið-
vikudag. Hann heitir Nikulás
Sigurður Óskarsson. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á mis-
tökunum.
SOKKABUXURNAR
SEM PASSA.
Fjölbreytt úrval!
Örugglega eitthvað fyrir þig.
Þú velur þína stærð eftir stærðatöflunni á Leggs söluhillunum.
Þunnar og fallegar á fæti,
falla þétt að maga og mjöðmum,
styrkt tá, stærðir A,B,Q.
Blátt egg og hólkur.
Nuddsokkabuxur, sem örva,
blóðrásina við hverja hreyfingu.
Falleg glansáferð.
Styrkt tá, stærðir A,B,Q.
Silfurlitt egg og hólkur.
Nuddsokkabuxur, mjög stífar
að ofan hafa sömu
eiginleika og Sheer Energy.
Stærðir B,Q.
Silfurblátt egg og hólkur.
Samkvæmissokkabuxur.
Líta út og eru viðkomu eins
og silki. Einnig fáanlegar
stífar að ofan.
Stærðir A,B,Q.
Glært egg - grár hólkur.
Vetrar Leggs. 50 den þykkar,
í fallegum litum.
Einnig fáanlegar stífar að
ofan. Stærðir A,B,Q.
Glær egg - hólkar lýsa litum
All
Sheef
Tískulitir frá Leggs.
Vanalegar sokkabuxur og
einnig stífar að ofan.
Stærðir A,B,Q.
Glær egg.
Leggs hnésokkar, 2 pör í eggi, extra breið teyja.
Einkaumboð: Æíw****
íslensk7////
Ameríska